Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 28

Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 28
28 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Í slenski fjölskyldusirkusinn var frumsýndur um sein- ustu helgi. Þetta er skemmtileg sýning, full af krafti og leikgleði, og fær áhorfandann til að hugleiða alvarlega stöðu fjölskyld- unnar í nútímanum. Á kaffihúsinu með blaðamanni sitja Sigrún Sól Ólafsdóttir leikstjóri sýningarinnar ásamt Árna Grétari Jóhannssyni að- stoðarleikstjóra og hinum ungu leik- urum, Guðrúnu Töru Sveinsdóttir, Freysteini Oddssyni og Elíasi Þórs- syni. Íslenski fjölskyldusirkusinn er öðruvísi en margar framhaldsskóla- sýningar, þetta er spunaverk, samið frá grunni af krökkunum sjálfum, ásamt því að tónlistin er frumsamin af nemanda í skólanum og öll bún- ingahönnun og sviðsmynd er líka í þeirra höndum. „Leikfélagsstjórnin var með það að markmiði að setja upp ódýra sýningu og færa hana meira inn í skólann. Undanfarin ár hefur ekki verið lögð mikil áhersla á leikritið eða leikinn sjálfan heldur aðallega flotta umgjörð í framhaldsskóla- sýningum og við vildum gera ná- kvæmlega öfugt við það. Sigrún Sól er eina atvinnumanneskjan sem við réðum og með henni fylgdu Árni og ljósamaðurinn og það er eina að- keypta vinnuaflið,“ segir Guðrún spurð út í hugmyndina að þessari sýningu. Aðspurð hvort þeim finnist vanta metnað í framhaldsskólasýningar segir Guðrún að það vanti kannski ekki metnað en hann sé oft á vitlaus- um stað. Elías tekur undir það og bætir við að frumleikann skorti oft. „Það hefur líka snúist mikið um það hjá MH að hafa sýningarnar eintóma skemmtun og afþreyingu. Núna vild- um við hafa þetta meira krefjandi og það eru allir með útpældar persónur sem komu út úr spuna á milli okkar krakkanna og urðu til smátt og smátt á ferlinum. Það var ekkert handrit, þannig að hver og ein mann- eskja er búin að skapa allt leikritið,“ segir Guðrún. Ævintýri með alvöru Leikritið hefst í sirkusnum þar sem sirkusdýrin vilja frelsi til að lifa venjulegu lífi og setja fram óskir um að eignast fjölskyldu og vera ham- ingjusöm. Til að þagga niður þessar raddir um frelsi lofar sirkusstjórinn þeim frelsi sem finna eina góða fjöl- skyldu sem lifir frómu og góðu lífi og lætur stjórnast af dyggðum fremur en löstum. Út frá því er skyggnst inn í líf nokkurra venjulegra íslenskra fjölskyldna og kannað hvort hið góða eða illi leiðir líf þeirra. Sigrún Sól segir þau hafa lagt upp með það frá upphafi að hafa þetta spuna. „Hugmyndin var síð- an samspil. Ákveðið var að vera með ævintýrablæ yfir sýningunni en um leið takast á við alvöru mál- efni. Ég kom með umræðuna um foreldraábyrgð, en við erum svo gjörn á að kenna öðrum um þegar upp koma vandamál hjá börnunum okkar, og sú hugmynd kveikti í þeim strax. Þá kom hugmyndin að vinna með þessar andstæður, fjöl- skylduna og sirkusinn. Svo í bland við það velti ég stöðugt fram hug- myndum um dyggðina, því ég vildi hafa heimspekilega tengingu í verkinu.“ Guðrún grípur þarna inn í og seg- ir dyggð vera meðalveg á milli tveggja lasta. „Hugrekki er t.d dyggð en fífldirfska og hugleysi eru neikvæðar andstæður,“ segir þessi hugsandi unga kona. Sigrún Sól segir þau alltaf hafa tekið eina dyggð og einn löst og unnið út frá en síðan hafi lestirnir margfaldast þeg- ar farið var að vinna nánar með fjöl- skylduhugmyndina, auk þess sem þau hafi fengið innblástur úr Menon eftir Plató og Ofviðrinu eftir Shake- speare. Sjálfstæð hugsun Hópurinn fór saman út á land eina helgi og þar lögðu þau línurn- ar að verkinu. „Þá helgi byrjuðum við leikstjórarnir að leggja okkar inn í verkið og stýra því undir niðri,“ segir Árni Grétar sem hefur unnið nokkuð með Sigrúnu Sól í gegnum tíðina. „Okkur krökkunum fannst alveg magnað hvernig þau stjórnuðu okkur, stundum fannst okkur við vera úti á túni og efuð- umst um að þetta yrði að leikriti. En svo er frelsinu, sem þau gáfu okkur, fyrir að þakka að leikritið varð okkar,“ segir Guðrún. „Við reyndum að stýra án þess að nokk- ur yrði var við það og án þess að leggja nokkrar sterkar línur. Við vildum láta þau finna tilfinninguna inni í sér og leika með hana. Á loka- sprettinum á æfingatímabilinu voru leikararnir ennþá að skapa senur sem smullu inn í verkið. Þetta er það sem við vildum, sjálf- stæð vinnubrögð og að fólk hugsaði fyrir sig sjálft,“ segir Árni Grétar og krakkarnir segja í framhaldi að þau hafi verið hvött til mikils sjálf- stæðis. „Að vera þjálfuð í sjálf- stæðri hugsun er reynsla sem við metum mikils og eigum alltaf eftir að búa að,“ segir Guðrún. Sigrún Sól hefur unnið tvær stór- ar framhaldsskólasýningar áður, og önnur þeirra var líka spunasýning. En hvað er það sem heillar hana við spunann? „Leikhús er spuni, ef fólk er ekki að spinna þegar það er að vinna leikrit þá er leikhúsið dautt fyrir mér. Ég leikstýri ekkert öðru- vísi þó ég sé með skrifuð handrit því ég vil ekki setja neitt í fyrirframgefið form.“ Sigrún Sól segir það hafa verið mjög gefandi, skemmtilegt og lær- dómsríkt að vinna að þessu verki. „Krakkarnir höfðu svo mikið að gefa mér og mér finnst leikhúsvinna snú- ast um það. Við vorum ekki að vinna með mötun, ég var alltaf að henda spurningum á loft og koma með svörin eftir óljósum leiðum. Því kraftur sköpunarinnar felst í óviss- unni. Það var svo gaman þegar krakkarnir komu okkur á óvart með hugmyndum sínum“ Yfirborðskennt samfélag Það er mikil ádeila á íslenskt fjöl- skyldulíf í leikritinu og því er vert að spyrja hvort þeim finnist íslenskar fjölskyldur yfir höfuð brenglaðar? „Þetta eru mjög ýkt dæmi sem við tökum, en þegar við vorum að skapa fjölskyldurnar reyndum við að taka eitthvað sem við höfðum orðið vör við í umræðunni,“ segir Freysteinn, hin kinka kolli til samþykkis og Elías segir fjölskyldusköpunina mest vera gagnrýni á hið yfirborðs- kennda sem ríkir í samfélaginu. „Það eru svo margir að reyna að fela vandamálin með því að vera í lagi útávið,“ segir Elías sem leikur heimilisföður af gamla skólanum, sem vill ekki að dóttirin giftist út- lendingi og að konan vinni utan heimilisins. Árni Grétar segir þetta líka vera ádeilu á sjónvarpskynslóðina og tölvuleikjabörnin. „Það er oft mikill tvískinnungur í gangi í þjóðfélaginu eins og ofurmamman sem er á fullu allstaðar nema heima og með stjórnina á öllu nema á fjölskyld- unni, hún vanrækir fjölskylduna til að bjarga einhverju fyrir næstu kynslóðir í staðinn fyrir að varð- veita og huga að eigin arfleifð. Ég held að það geti allar fjölskyldur tengt sig við að það er ekki það sama í gangi útávið og inni á heim- ilinu. Þó það sé ekki eins öfgakennt og í dæmunum okkar þá geta allir tengt við þetta.“ Margar fjölskyldusenurnar ger- ast fyrir framan sjónvarpið og svo virðist sem í hugum höfunda verks- ins eigi fjölskyldur eingöngu sínar stundir saman þar. „Það er sorg- legt þegar foreldrar og börn geta ekki átt stund saman nema fyrir framan sjónvarp eða tölvu, og á fjölskyldustundum er tekin vídeó- spóla í staðinn fyrir að gera eitt- hvað skapandi saman,“ segja krakkarnir og augljóst er að eldri kynslóðin þarf ekki að hafa áhyggj- ur af framtíðinni ef þetta unga fólk tekur við landinu. Freysteinn segir þau vera að skjóta vítt og breitt með þessu verki, og klámkynslóðin fái líka sína umfjöllun. Elías segir aðalhugs- unina á bak við verkið vera að fá fólk til að hugsa. „Fjölskyldurnar eiga Kraftur sköpunar felst í óvissunni Íslenskur fjölskyldusirkus er kominn í bæinn. Það eru nemendur við Menntaskólann í Hamrahlíð sem færa okkur hann og ekki eingöngu til skemmt- unar. Ingveldur Geirsdóttir dreif sig á sýningu, hrópaði margsinnis húrra og gekk hugsandi út ásamt nokkrum aðstandendum sýningarinnar sem hún fékk með sér á kaffihús til að ræða sirkuslífið. Morgunblaðið/Ómar Sigrún Sól, Árni Grétar, Elías, Guðrún og Freysteinn koma öll að spunaverki MH, Íslenski fjölskyldusirkusinn. Ljósmynd/Jón Svavarsson Sirkusstjórinn stjórnar sínu fólki með harðri hendi og gerir þeim grein fyrir að grasið er ekki grænna hinum megin. Ýmiskonar fjölskylduleyndarmál koma upp á yfirborðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.