Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 29
allar sínar fyrirmyndir í samfélag-
inu. Ég held að ekkert sem við ger-
um sé virkilega fjarstæðukennt.
Eins og ég lít á þetta er verkið kall
um vakningu, við erum að benda á
hluti sem eru ekki réttir í samfélag-
inu.“
Á sjötta tug nemenda kemur að
uppsetningunni á Íslenska fjöl-
skyldusirkusnum og telst það nokk-
uð stór framhaldsskólasýning. Þau
segja það hafa gengið mjög vel að
vinna í svona stórum hópi og allir
hafi orðið jákvæðari eftir því sem
leið á æfingaferlið. Athyglisvert er
að tónlistin í verkinu er öll frum-
samin af Helga Rafni Ingvarssyni,
nemanda í MH. Sigrún Sól segir að
hún hafi viljað nýta alla þá krafta
sem búa í skólanum. „Verkið er
samið frá upphafi og því er vel við
hæfi að hafa frumsamda tónlist
líka.“ Aðspurð hvort það séu miklir
hæfileikar í MH, öskra krakkarnir
„Já“ í kór og Sigrún Sól hlær að
þessum ákafa.
Góður endir?
Sýningarnar fara fram í Loft-
kastalanum, ekki hinum eiginlega,
heldur í stórri og hrárri skemmu
sem er þar innanhúss. „Okkur leist
ekkert á þetta rými í fyrstu en svo
settum við sviðsmyndina upp eins
og hálft sirkustjald og það kemur
vel út.“ Áhorfendur sitja í hálfhring
og eru fremstu sætin hægindastólar
sem þau fengu lánaða hjá Góða hirð-
inum og eru þeir til sölu á sýning-
unni. Teppi eru líka í hverjum stól
fyrir áhorfendur. „Við vorum stund-
um að frjósa þarna inni enda er
þetta hálfgerð skemma og við vild-
um ekki að áhorfendum liði illa, svo
við ákváðum að bjóða upp á teppi.“
Blaðamaður getur ritað undir það
að það var einstaklega hugguleg og
heimilisleg stemning að sitja í hæg-
indastól með teppi ofan á sér í leik-
húsi.
Að lokum segir Sigrún Sól þetta
ekki endilega vera leikrit með góðum
endi. „Persónurnar finna mismun-
andi leiðir út úr vandræðunum og
þær leiðir eru ekki endilega þær
bestu. Þarna eru engar lausnir en
samt sem áður reynir hver einstak-
lingur að finna sína lausn sem gefur
ekki alltaf hamingjuríkan endi. Við
bendum líka á að hamingjan er ekki
fólgin í grasinu sem er grænna hin-
um megin, heldur á fólk að rækta sitt
nærumhverfi.“
Blaðamaður kveður þennan
áhugaverða hóp með óskum um gott
gengi og hamingjuríkan endi.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Sjónvarpsgláp spilar stórt hlutverk eins og hjá mörgum fjölskyldum.
ingveldur@mbl.is
TENGLAR
..............................................
http://www.nfmh.is/ifs
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 29
Framtíðarsjóður
Ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga
Engin lágmarksinnborgun
Verðtryggður
Bundinn til 18 ára aldurs
Kjör haldast óbreytt þótt innstæða sé ekki
tekin út við 18 ára aldur
Vildarviðskiptavinur Sparisjóðsins sem gefur
fermingarbarni 5.000 króna gjafabréf í Framtíðar-
sjóð Sparisjóðsins eða meira fær 2.000 króna
viðbót við gjöfina frá Sparisjóðnum. Gefðu
gjöf sem stækkar í pakkanum!
Gjöfin vex í
pakkanum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
1
6
7
1
3
5.000 kr. verða 7.000 kr.
Kíktu á spar.is og reiknaðu út ávöxtun á
sparnaði í Framtíðarsjóði Sparisjóðsins.
Grandagarði 2, sími 580 8500
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/S
ÍA
Óvenjuhagstæð vagnalán í boði.
Opið laugardag 10–16, sunnudag 12–16
Sýnum
Upplýsingar hjá sölumönnum
í síma 580 8528 og 580 8529
allt það nýjasta um helgina
Njóttu þess besta
frá Ellingsen Evró
– þar sem gæðin eiga heima