Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 43
UMRÆÐAN
áfram að nota móðurmálið ásamt
því að tungumálahópar fá stuðning
til að stunda kennslu utan skóla-
tíma.
Hlutverk kennsluráðgjafa í hol-
lensku sem öðru tungumáli er eft-
irfarandi:
Þróa kennsluskipulag, kennsluað-
ferðir og útbúa námsefni
Þjálfa nýja kennara
Ráðleggja kennurum
Í Hollandi fá allir kennarar sem
hefja störf í móttökudeildum sér-
staka kennslu í kennslufræði, notk-
un námsefnisins og kennsluaðferð-
um einn eftirmiðdag í mánuði í eitt
ár sem bætist við þá menntun sem
þeir hafa þegar hlotið í grunnnámi
í faginu.
Kennsla barna með annað móð-
urmál er langtímaverkefni. Strax í
1. bekk hafa börn af erlendum upp-
runa að meðaltali 1.000 orð þegar
eintyngd börn hafa 3.200 orð. Mun-
urinn eykst eftir því sem árum í
grunnskóla fjölgar. Ef námsefnið
er ekki samið sérstaklega fyrir þau
er textinn einfaldlega of þungur.
Þau læra því ný orð hægt, 500 orð
á ári á meðan eintyngd börn bæta
við sig 700 orðum í 2.–3. bekk og
3.000 orðum á ári eftir það.
Börn með annað móðurmál en
talað er í skólanum þurfa að læra
ný orð hratt, 1.500 orð á ári fyrstu
3 árin, 3.000 orð eftir það. Hraðinn
eykst ekki fyrr en þau hafa lært
5.000 og til að verða fluglæs þurfa
nemendur líklega 10–13.000 orð.
Það er óþarfi að fjölyrða um það
hversu mikilvægt er að hafa gott
námsefni sem tekur tillit til þessara
staðreynda og að kennarar hafi
kunnáttu til að miðla því. Góður
orðaforði er forsenda þess að nem-
endur nái fótfestu í námi og um
leið lykillinn að velgengni í fram-
haldsskóla.
’Börn með annað móð-urmál en talað er í skól-
anum þurfa að læra ný
orð hratt, 1.500 orð á ári
fyrstu 3 árin, 3.000 orð
eftir það.‘
Höfundar starfa við móttökudeild í
Breiðholtsskóla og Háteigsskóla, og
eru höfundar Kötlu námsgagnavefjar
í íslensku sem öðru tungumáli.
TIL að taka af allan vafa þá er ég
ekki í framboði. Mér hefur reyndar
verið strítt og ég skráð í
pólitískan flokk sem vill
ekki losna við mig. Ég
fæ bréf bæði frá Sjálf-
stæðisflokki og Sam-
fylkingu og styð vini
mína í öllum flokkum,
enda er vináttan ópóli-
tísk. Ég hef verið kölluð
kommúnisti, rauðsokka
og femínisti og er þekkt
fyrir að vera sjálfstæð.
Ég heyrði ágætt
spakmæli um daginn.
Það er svona: „Maður
byrjar ekki að baka fyrir
erfidrykkjuna meðan
líkið er ennþá lifandi.“
Spakmælið varð til í um-
ræðunni um þá óþægi-
legu stöðu sem upp er
komin vegna símtalsins
frá Washington þess
efnis að herinn væri að
pakka saman og yfirgefa
Ísland.
Og því miður eru að
koma sveitarstjórn-
arkosningar, því nú vilja
allir nýta sér þessa
óþægilegu stöðu sér til
framdráttar.
Margar skemmtilegar
hugmyndir hafa komið upp á yfir-
borðið en mér sýnist fólk gleyma að í
þessu málefni getur enginn einn ráðið
hvað skuli gera.
Ég vildi stundum geta bætt sam-
félagið sem ég bý í. Ég get stjórnað
því frá mínum bæjardyrum og gefið
frekjuhundunum, fýlupokunum og
vælukjóunum langt nef en þeim
stjórna ég ekki, ég ræð nefnilega ekki
ein.
Á líkan hátt geta stjórnvöld í
Reykjanesbæ, úr hvaða flokki sem
völdin koma, ekkert ráðið ein hvað á
að gera í þeirri stöðu sem nú er komin
upp á varnarsvæðinu. Bærinn á jú
landsvæðið, ásamt Sandgerðisbæ en
Bandaríkjamenn eiga mannvirkin og
ríkisstjórn Íslands undirritaði varn-
arsamninginn fyrir
rúmum 50 árum.
Reykjanesbær á líka
lóðina sem húsið mitt
stendur á en ræður
engu heima hjá mér.
Sá sem hefur verið
með yfirgang og frekju
hér er Bandaríkja-
stjórn og það bætir
sennilega ekki ástandið
að taka upp þá siði við
hagsmunaðila hér á
landi þó okkur finnist
þeir kannski hafa skellt
skollaeyrum við of
lengi. Vald er bæði
hægt að nota til góðs
og ills, og svo ég vitni í
spakmælið góða þá
bakar maður ekki fyrir
erfidrykkjuna meðan
líkið er ennþá lifandi!
Hins vegar þurfa hags-
munaaðilar að ganga í
takt svo allir stefni í
sömu átt. Eitthvað
virðast menn hins veg-
ar óöruggir með vald-
svið sitt.
Þangað til málin
hafa skýrst nægilega
mikið er fínt að kasta á
loft ýmsum hugmyndum. Við Íslend-
ingar eru meistarar í reddingum og
förum létt með að hoppa í klof-
stígvélin og bretta upp ermarnar
þegar á þarf að halda, það gerir eðlið.
Ég ætla að trúa því og treysta að
þessu máli takist að smokra framhjá
niðurrifi kosningabaráttu og hægt
verði að finna lausn sem margir verða
sáttir við.
Hvar liggur valdið?
Svanhildur Eiríksdóttir
fjallar um mannvirki Banda-
ríkjahers og hagsmunamál
á Suðurnesjum
Svanhildur Eiríksdóttir
’Ég ætla að trúaþví og treysta að
þessu máli takist
að smokra
framhjá niðurrifi
kosningabaráttu
og hægt verði að
finna lausn sem
margir verða
sáttir við.‘
Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ.
Erindið hefst kl. 3 e.h. og er haldið
í fundarsal LbhÍ á Keldnaholti, 3. hæð.
Mánudaginn 27. mars
flytur Bragi L. Ólafsson erindi:
Sérstaða íslenskrar kúamjólkur.
Allir velkomnir
Fræðsluerindi Landbúnaðar-
háskóla Íslands á Keldnaholti
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Tjarnarmýri - Seltjarnarnesi
Glæsilegt, 187 fm raðhús á tveimur
hæðum með 29 fm innb. bílskúr. Á
neðri hæð eru rúmgóð forstofa,
endurnýjuð gestasn. með vönduð-
um tækjum, hol, þvottaherb., sjón-
varpsstofa, borðstofa, skáli fyrir
enda borðstofu m. útgangi á verönd
með skjólveggjum, rúmgóð og björt
stofa með mikilli lofthæð og nýlega
endurnýjað eldhús. Uppi eru 3 her-
bergi, öll með skápum og flísalagt baðherbergi. Aukin lofthæð á allri efri
hæð. Vandaðar innréttingar. Massívt parket, sandsteinn og flísar á gólfum.
Ræktuð lóð með lýsingu. Verð 50,0 millj.
Hofgarðar-Seltjarnarnesi
Glæsilegt, mikið endurnýjað og vel
skipulagt 290 fm einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt 52 fm tvöf.
bílskúr. Húsið var nánast allt endur-
nýjað fyrir 7-8 árum síðan og skipt-
ist m.a. í rúmgóðar og bjartar sam-
liggjandi stofur, eldhús með fallegri
innréttingu og vönduðum tækjum,
sjónvarpsstofu, 5 herb. og flísalagt
baðherb. auk gestasn. Mjög vönduð eign sem hefur nánast öll verið end-
urnýjuð, t.d. gólfefni, innréttingar og hurðar. Massívt eikarparket og flísar á
gólfum. Gott viðhald hið ytra, nýlegur þakkantur. Falleg, ræktuð lóð með
nýlegri timburverönd til suðurs. Nánari uppl. á skrifstofu.
Garðhús
Mjög fallegt 211 fm raðhús á tveimur
hæðum auk rislofts með 29 fm inn-
byggðum bílskúr í húsahverfi í Grafar-
vogi. Stórar samliggjandi stofur með
mikilli lofthæð, flísalagður sólskáli, eld-
hús með eyju og innréttingum úr eik, 2
baðherbergi, flísalögð í hólf og gólf, 4
herbergi og sjónvarpsstofa. Ræktuð
lóð. Verð 44,9 millj.
Laugalækur
Mjög gott 174 fm raðhús, tvær
hæðir og kjallari. Á neðri hæð eru
hol/borðstofa, eldhús, flísalögð
gestasnyrting og parketlögð stofa.
Á efri hæð eru sjónvarpshol, þrjú
góð herbergi, öll parketlögð og
skápar í öllum og nýlega endurnýjað
baðherbergi auk rislofts og í kj. eru
eitt herb., snyrting, þvottaherb. og
góð geymsla. Tvennar svalir, til suð-
vesturs út af stofu og til norðausturs af stigapalli. Ræktuð lóð með stórum
sólpalli og skjólveggjum. Nýtt þak. Verð 39,5 millj.
Suðurgata - Hafnarfirði
Fallegt 232 fm einbýlishús sem er
kjallari og tvær hæðir ásamt 22,0 fm
sérstæðum bílskúr. Eignin skiptist
m.a. í eldhús með góðum innrétting-
um, borðstofu og setustofu með
arni, flísalagt baðherb. auk gestasn.
og fjölda herbergja. Geymsluris.
Gler og gluggar endurnýjað að
mestu. Vel staðsett eign, mikil veð-
ursæld. Gott útsýni af efri hæð yfir
höfnina. Falleg, afgirt ræktuð lóð. Stutt í skóla, sundlaug og þjónustu.
Arkitekt: Einar Sveinsson. Verð 53,0 millj.
Áland
165 fm einlyft einbýlishús á þessum
eftirsótta stað í Fossvogi. Eignin
skiptist í forstofu, hol, eldhús með
eikarinnréttingu og borðaðstöðu,
parketlagða stofu með fallegu útsýni
yfir Fossvoginn, 3 parketlögð herb.
og flísalagt baðherb. auk þvotta-
herb./geymslu. Falleg ræktuð lóð
með hávöxnum trjám. Verð 56,0
millj.
Glæsileg og vel staðsett 350 fm húseign á tveimur hæð-
um rétt ofan við Hveragerði.
Eignin hefur verið í útleigu undanfarið til traustra aðila, en
möguleiki er að breyta því í glæsilegt einbýlishús.
Eignin er endurnýjuð bæði að utan sem innan á vandað-
an og smekklegan hátt. Alls eru vel útbúin sex tveggja
manna herbergi, öll með sérbaði, borðstofa og fundar-
salur auk forstofu, eldhúss, tveggja snyrtinga, þvottaher-
bergis og geymslu.
Teikningar liggja fyrir að 65 fm baðhúsi á lóðinni. Timb-
urverönd með heitum potti og stórt bílaplan með 10 bíla-
stæðum. Leyfi er fyrir byggingu bílskúrs.
Um er að ræða afar vel staðsetta eign á 2.000 fm rækt-
aðri leigulóð í fallegu umhverfi með víðáttumiklu útsýni til
vesturs yfir Hveragerðisbæ, Ölfusið og yfir ströndina.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Axelshús á Reykjum, Ölfusi
Laugarnesvegur - á efstu hæð m/bílskýli.
Glæsileg 87,6 fm íbúð á 5. hæð og
efstu hæð í nýlegu álklæddu fjölbýlis-
húsi byggðu af ÍAV ásamt stæði í bíl-
skýli. Sér inngangur af svölum. Íbúðin
skiptist í stofu, borðstofu, eldhús,
svefnherbergi, baðherbergi og sér
þvottahús í íbúð. Húsið er byggt 2002.
Laus við kaupsamning.
V. 28,5 m. 5571
Marteinn Karlsson: „Vegna
óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar af okk-
ur smábátaeigendum, þar sem
ekkert tillit er tekið til þess
hvort við megum veiða 10 eða
500 tonn, ákvað ég að selja bát-
inn og flytja í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir skrif-
ar um bækur Lizu Marklund
sem lýsa heimilisofbeldi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn