Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ásta GuðrúnTómasdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 15.
nóvember 1970.
Hún lést hinn 4.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Gísli Tómas Ív-
arsson, f. 3.4. 1949
og Guðrún Þórdís
Björgvinsdóttir, f.
16.2. 1949, d. 14.10.
2004. Systur Ástu
eru Elva Björk
Gísladóttir, f. 25.6.
1973, sambýlismaður Einar Helgi
Jónsson og Helena Sif Gísladóttir,
f. 14.7. 1976, sambýlismaður Jón
Ragnar Magnússon.
Sonur Ástu og
Arnars Reynissonar
er Tómas Freyr, f.
25.9. 1986.
Árið 1991 hóf
Ásta búskap með
Gunnari Þór Jóns-
syni í Reykjavík og
eignuðust þau þrjú
börn: Lilju, f. 17.4.
1993, Brynjar Ægi,
f. 30.12. 1994 og
Laufeyju Diljá, f.
12.8. 1996.
Sambúð Ástu og
Gunnars varði í 8 ár.
Útför Ástu var gerð frá Foss-
vogskirkju í kyrrþey.
Núna sit ég og horfi á mynd af
þér, mér finnst svo skrýtið að ég
muni ekki fá að sjá þig aftur í
þessu lífi. Maður rifjar upp ótal
minningar og mín síðasta minning
er þegar við vorum við jarðarför
móður okkar fyrir einu og hálfu ári.
Ég man hvað þér leið illa þá og
vonaði innilega að þú gætir fundið
hamingjuna.
Mínar bestu minningar eru þeg-
ar ég og þú sátum við eldhúsborðið
þitt, oft í marga klukkutíma, í
Laufengi 15 og ég var ófrísk af Sig-
urjóni Axel. Þú sýndir mér mikinn
stuðning og áhuga og ég man hvað
mér fannst gott að leita ráða hjá
þér enda varstu snillingur með lítil
börn á þínum blómatíma.
Stundum lágum við líka uppí sófa
með krakkana og kysstum þau al-
veg í kaf. Þú átt svo falleg og dug-
leg börn og mátt vera ákaflega
stolt af þeim.
Elsku Ásta mín, ég vona svo að
þú sért komin með frið og ró í sál-
ina þína, það er sorglegt hvað lífið
gat verið erfitt og margir þrösk-
uldar sem þú þurftir að fara yfir.
Ég finn mikinn söknuð og tómleika
og vildi óska að þú hefðir getað séð
birtuna og einhverja leið út úr
myrkrinu. En við munum sjá þig
áfram í börnum þínum því þau er
ávöxtur þinn sem við eigum eftir að
elska alla tíð.
Elsku Tómas Freyr, Lilja,
Brynjar Ægir og Laufey Diljá, þó
að mamma sé farin til Guðs þá
geymum við hana í hjarta okkar.
Þín systir,
Helena Sif.
Það er skrítin tilfinning að skrifa
hér örlítið kveðjubréf til eldri syst-
ur minnar.
Ég þekkti þig frá því ég fæddist
og í rúm 30 ár og þó varla síðustu 4
árin. Það eru margar minningar
sem sækja á hugann frá því við
vorum litlar stelpur, t.d. þegar við
fórum saman í sumarbúðir (ég 8
ára og þú 11 ára) og fannst ekkert
gaman og ákváðum að stinga af og
fara til ömmu og afa í Hafnarfirði
því þar var gott að vera. Við vorum
rétt komnar út á veg eftir mikla
fyrirhöfn og skipulagningu þegar
við vorum sóttar af starfsfólkinu.
Þessu gátum við oft hlegið að
mörgum árum seinna.
Það var snemma sem þú byrjaðir
móðurhlutverkið, tæplega 16 ára,
og 26 ára varstu komin með börnin
þín fjögur. Það var þinn besti tími
og komum ég og Helena systir oft
og mikið til þín upp í Grafarvog til
að dást að frændsystkinum okkar.
Og oft var mikið um að vera með
öll litlu stýrin.
Það sagði við okkur prestur um
daginn að sumt fólk gengi í gegn-
um lífið með skóna sína fulla af
steinum og því væri sárt að stíga
niður. Þetta finnst mér lýsa þínu
lífi vel og öll óskuðum við þér stein-
lausum skóm. Ég veit að þar sem
þú ert núna hefur þú fengið nýja,
mjúka og þægilega skó og algjöran
frið í sálina þína.
Ég vil biðja góðan guð að vaka
yfir yndislegu börnunum þínum;
þeim Tomma, Lilju, Brynjari og
Laufeyju.
Einnig styrk til allra þeirra sem
standa þeim næst.
Ég kveð þig, Ásta mín, með
þessu versi.
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villzt af leið.
(Matthías Jochumsson.)
Þín systir,
Elva Björk.
Elsku frænka. Mig langar til að
kveðja þig með nokkrum línum og
þakka þér fyrir samfylgdina í þessu
lífi. Þú varst elsta barnabarn for-
eldra minna. Þú komst í heiminn
ÁSTA GUÐRÚN
TÓMASDÓTTIR
þremur árum á eftir mér, þannig
að þið systurnar þrjár voruð stór
hluti af okkar fjölskyldulífi og mik-
ill samgangur var á milli heimila
okkar. Flest sumur áttum við sam-
an, annaðhvort varst þú hjá afa og
ömmu eða ég hjá Guðrúnu systur
minni að passa ykkur systurnar.
Mín besta og dýrmætasta minn-
ing um þig er þegar þú fæddir
fyrsta barnið þitt, hann Tómas
Frey. Þá fékk ég þann heiður að fá
að vera með þér og styðja þig í
fæðingunni. Þá minningu mun ég
ávallt geyma í huga mér og var
þetta mér ómetanleg reynsla þegar
ég gekk í gegnum það að fæða mín
börn.
Elsku Ásta mín. Líf þitt var ekki
alltaf auðvelt og reyndist þér oft
erfitt að finna réttu leiðina í því og
urðu margar hindranir á vegi þín-
um. Þú átt fjögur yndisleg börn
sem eiga erfitt með að skilja hvers
vegna líf þitt endaði á þennan hátt.
Veikindi þín voru þér erfiðari en
svo að þú gætir borið þau lengur og
verðum við hin að virða þá leið sem
þú valdir.
Ég veit að Bjöggi afi og mamma
þín hafa nú tekið þig í sinn faðm og
að þú finnir frið.
Þín
Lilja.
Elsku Ásta, mig langar að kveðja
þig með nokkrum orðum og þakka
þér fyrir vináttuna í gegnum tíðina.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég vil votta Tomma, Lilju,
Brynjari og Laufeyju mína dýpstu
samúð, Guð styrki ykkur á þessari
erfiðu stundu, og óska ég ykkur
alls góðs á ókomnum árum.
Magna Sveinsdóttir.
Elsku Ásta mín, ég man þegar
ég kynntist þér fyrst, þá var
Tommi 2 ára og þú varst svo stolt
móðir.
Þá var oft glatt á hjalla, við ung-
ar og áhyggjurnar litlar.
Svo bættust við þrjú börn. Þú
veittir þeim allt sem þú gast.
Í nokkur ár höfðum við ekkert
samband en svo hittumst við aftur
og þá var eins og við hefðum hist
síðast í gær. Við rifjuðum upp
gamla tíma og hlustuðum á Smokie
og Abba en það var ávallt í uppá-
haldi hjá okkur.
En núna ertu farin til móður
þinnar sem þú saknaðir svo mikið.
Ég vona að þér líði betur þar
sem þú ert núna og að þú sért sátt.
Minningin um þig mun lifa í
hjarta mínu um ókomin ár.
Þín vinkona,
Íris G.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐBJÖRG FANNDAL TORFADÓTTIR
frá Hvítadal,
lést á Landakoti fimmtudaginn 9. mars.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og
langafi,
KJARTAN RÓSINKRANS STEFÁNSSON
rafvirkjameistari,
lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn
14. mars.
Jarðsungið verður frá Háteigskirkju mánudaginn
27. mars. kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar- og vinafélagið Bergmál.
Skúlína Hlíf Kjartansdóttir,
Guðrún Anna Kjartansdóttir,
Elínborg Kjartansdóttir,
Stefán Rósinkrans Kjartansson, Sjöfn Marta Hjörvar,
Skúlína Sigurveig Stefánsdóttir,
Páll Á.R. Stefánsson,
Össur S. Stefánsson,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
SESSELJA HELGADÓTTIR HICKS
(Dellý),
andaðist á heimili okkar, Wylie Texas, miðviku-
daginn 15. mars.
Útför hennar var gerð frá Texas laugardaginn
18. mars.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Cullas Mack Hicks,
Helga Rósa Þormar, Patrick Corlay
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, vinur og afi,
GUÐMUNDUR GEIR ÓLAFSSON,
Grænumörk 3,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðjudaginn
21. marz. Útförin verður auglýst síðar.
Erla Guðmundsdóttir, Gunnar Guðnason,
Ólafur Þ. Guðmundsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Ingunn Guðmundsdóttir, Sigurður Karlsson,
Soffía Ólafsdóttir,
barnabörn og aðrir afkomendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, bróðir, tengda-
sonur, mágur og vinur,
EMIL DUSAN ILIC,
lést á Landspítala Hringbraut sunnudaginn
19. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jóhanna Elsa Axelsdóttir,
Olivera Ilic,
Slobodanka Jovanovic,
Ólöf, Una, Sigurður, Garðar, Prapha, Sigrún, Tom, Milan, Jelka
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengda-
móðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR ODDSDÓTTIR,
Ásabyggð 17,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri að kvöldi
fimmtudagsins 23. mars.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
30. mars kl. 13.30.
Ingvar Guðmundsson,
Örn Ingvarsson, Svanhvít B. Ragnarsdóttir,
Valur Ingvarsson, Filippía Björnsdóttir,
Guðmundur Ó. Ingvarsson, Þorgerður Þormóðsdóttir,
Oddur Ingvarsson, Linda Iversen,
Páll Ingvarsson, Hólmfríður Bragadóttir,
Íris Ingvarsdóttir, Karl Óskar Þráinsson,
Ásdís Ingvarsdóttir, Kjartan Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
ÞÓRARINN INGI ÞORSTEINSSON,
Faxaskjóli 24,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn
23. mars sl.
Fjóla Þorvaldsdóttir.