Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Veraldleg viðfangsefni koma við sögu.
Hetjulegur mikilfengleiki í fari hrútsins
gerir honum kleift að standast áskor-
anir sem aðrir myndu guggna á. Ein-
hver klappar fyrir þér í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það sem flestir kalla ást, er yfirleitt ein-
hvers konar hrifning. Þú glímir við mátt
hennar í dag, sama hvað þú kallar hana.
Reiddu þig á innsæið þegar tilfinningar
eru annars vegar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ánægja tvíburans felst að hluta til í því
að leyfa öðrum að upplifa eitthvað un-
aðslegt. Ekki hafa áhyggjur af venjum
eða félagslegum stöðlum. Farðu yfir
strikið til þess að gera skapandi sýn
þína að veruleika.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í tjáningu krabbans býr mikill fínleiki.
Hann er kannski tilfinningasamur, en
aldrei óviðeigandi eða grófur. Því er það
honum nokkur raun að umbera annars
konar samskipti. Mundu bara, að fólk
er eins margbreytilegt og það er margt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljóninu lætur vel að stjórna frá náttúr-
unnar hendi, en ástvinur þarf að læra
hvernig hann á að bjarga sér í lífinu.
Haltu þig til hlés. Þegar upp er staðið
verður þú alveg jafn upp með þér og ef
þú hefðir lagt viðkomandi lið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert til í að taka áhættu. (Er rétt að
kalla það áhættu ef þú hefur engu að
tapa og allt að vinna?) Ekki láta nokkuð
draga þig frá því sem þú laðast að í
raun og veru.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Meyjan finnur hið fullkomna jafnvægi á
milli vinnu, ástar, einstaklingsvitundar
og fjölskyldu. Það gerist um leið og hún
leyfir sér að þroska hæfileika sína.
Tuttugu mínútur á dag, eru það eina
sem þarf til þess að byrja með.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér yrði kannski aldrei sagt það að
fyrra bragði, en sporðdrekinn er talinn
fremur sérvitur. Fagnaðu því sér-
kennilega í sjálfum þér – það er það
sem gerir þig svo hrikalega aðlaðandi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er kraftmikill og hug-
rakkur þessa dagana. Ef þú einbeitir
þér að þeim sem treysta á þig, vex orðs-
tír þinn í réttu hlutfalli. Það er mikil
gleði fólgin í því að gefa eftir gagnvart
skyldum sínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Allt sem þarf til þess að ná árangri er
innan seilingar. Helgaðu þig gömlu tak-
marki upp á nýtt. Nýir tímar eru að
renna upp og þú færð forsmekkinn af
því í kvöld.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fyrir jafnfélagslynda manneskju og
vatnsberann virðist einvera stundum
jafnast á við einhvers konar alheimsvíti.
En slíkt tækifæri felur í sér sköpun og
töfra. Leitaðu inn á við og náðu sam-
bandi við þig sjálfan.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er í nokkurri hættu að verða
skammsýni að bráð, þegar lang-
tímamarkmiði skýtur allt í einu upp í
kollinum. Notaðu þitt líflega ímynd-
unarafl til þess að búa til kraftmiklar
myndir af framtíðinni. Láttu þig
dreyma um liti, fólk, bakgrunn og önn-
ur smáatriði, til þess að auka á raun-
veruleikann.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Merkúr, hinn áræðni
brellumeistari, er að taka
sér frí frá gamanseminni.
Nú hættir hann að bakka um geiminn og
gefur okkur næði til þess að gaumgæfa
hvað við höfum lært upp á síðkastið um
tjáskipti. Hér eftir verður mun léttara að
sinna daglegum störfum, farsíminn og
tölvan verða í góðu lagi, og bréf berast að
mestu leyti á réttum tíma.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 flá, 8 tuskan, 9
lærir, 10 greinir, 11 lof-
ar, 13 ójafnan, 15 bisk-
upsstaf, 18 mjólkurvara,
21 bál, 22 eyja, 23 blunda,
24 eðli.
Lóðrétt | 2 ofsögur, 3
korn, 4 deila, 5 lærdóm-
urinn, 6 beltum, 7 hug-
boð, 12 svelgur, 14 á húsi,
15 smábrellur, 16 fisks,
17 launung, 18 broddur,
19 skjálfa, 20 kyrrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 troða, 4 refur, 7 bólið, 8 gæfum, 9 sæg, 11 álfa,
13 unna, 14 látin, 15 gull, 17 græt, 20 örg, 22 göfug, 23
lofar, 24 tíðni, 25 parta.
Lóðrétt: 1 tíbrá, 2 oflof, 3 arðs, 4 rögg, 5 fífan, 6 rimma,
10 æmtir, 12 all, 13 ung, 15 gegnt, 16 lífið, 18 rífur, 19
terta, 20 ögri, 21 glep.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Hallgrímskirkja | Kammerkórinn Schola
Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar
flytur verk eftir Heinrich Schütz (1585–
1672) 26. mars kl. 16: „Lofsöngur Maríu“,
„Trúarleg kórtónlist“ og „Litlir trúarlegir
konsertar“. Tónlistarhópur Reykjavíkur
2006. Miðaverð 2.000/1.500 kr. Miðafor-
sala í Hallgrímskirkju, s. 510 1000.
Langholtskirkja | Stúlknakórinn Schola
Cantorum of Calne frá vestur Englandi
heldur tónleika í sunnudag kl. 16 í samvinnu
við Gradualekór Langholtskirkju. Aðgangur
ókeypis. Stjórnandi er Geoffrey Field. Á efn-
isskránni eru verk eftir Brahms, Handel,
Elgar og sígild dægurlög. Gradualekórinn
syngur á tónleikunum. Kórinn syngur einnig
í messunni kl. 11.
Norræna húsið | Laufey Sigurðardóttir
fiðluleikari og Krystyna Cortes píanóleikari
flytja tónlist eftir Leclair, Ravel, Takemitsu
og Messiaen á fyrstu tónleikum 15:15 tón-
leikasyrpunnar í vetur.
Salurinn | Finnski harmonikkuleikarinn Tatu
Cantoma mun flytja nokkur af merkustu
harmonikkuverkum 20. aldarinnar, allt frá
rokki til danskra þjóðlaga. Með honum leika
félagar hans úr Caput. Miðaverð: 1.600/
1.000 kr. Tónleikarnir verða 27. mars kl. 20.
Skálholtskirkja | Hugvísindastofnun, Bibl-
íufélagið og fleiri standa að dagskrá í tilefni
400 ára fæðingarafmælis Brynjólfs Sveins-
sonar biskups. Í dag, sem er boðunardagur
Maríu, verður flutt frumsamin messa,
Brynjólfsmessa, eftir Gunnar Þórðarson kl.
20. Kl. 16 verða flutt þrjú erindi um kveð-
skap Brynjólfs og tengsl hans við Maríu
guðsmóður. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl.
14–17 fim., föst. og laug. Sýningin stendur til
15. apríl.
Artótek Grófarhúsi | Steinunn Helgadóttir
myndlistarmaður sýnir ljósmyndir og DVD.
Nánar á artotek.is
Aurum | Berglind Laxdal – Catch of the day
– til 2. apríl.
Gallerí Fold | Lilja Kristjánsdóttir sýnir mál-
verk í Baksalnum til 9. apríl.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Harð-
ardóttur, myndbönd frá tískusýningum, ljós-
myndir o.fl. til 30. apríl. Opið mán. og þrið.
kl. 11–17, mið.. 11–21, fim. og fös. 11–17 og kl.
13–16 um helgar.
Hafnarborg | Pétur Gautur sýnir í Aðalsal
og Sigrún Harðar sýnir í Sverrissal til 27.
mars. Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 11–
17.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl.
Kling og Bang gallerí | Á jarðhæð: Huginn
Þór Arason og Jóhann Atli Hinriksson –
Glory hole. Í kjallara: Sara Björnsdottir –
Hellirinn á bak við ennið. Opið er fim.–sun.
kl. 14–18. Aðgangur er ókeypis.
Listasafn ASÍ | Olga Bergmann – Utan
garðs og innan. Jón Stefánsson, málverk í
eigu safnsins. Til 2. apríl. Opið 13–17, nema
mánudaga. Aðgangur ókeypis.
Listasafn ASÍ | Sunnudaginn 26. mars kl.
15 mun Olga Bergmann fjallar um sýningu
sína Utan garðs og innan. Verkin á sýning-
unni fjalla um villta náttúru og tamda, dýra-
líf og hugmyndir um framtíðina sem meðal
annars tengjast ævintýrum og óljósum
minningum. Aðgangur er ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfarar.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
12–15. Nánari upplýsingar www.listasafn.ak-
ureyri.is
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tímans.
Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safnbúð
opin á opnunartíma.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin Nátt-
úruafl er samsýning 11 listamanna þar sem
viðfangsefnið er náttúra Íslands. Málverk,
skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir. Verk-
in eru í eigu Listasafns Íslands. Opið kl. 13–
17.30.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Ljóð
Berglindar Gunnarsdóttur og textílverk
Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur ásamt högg-
myndum Sigurjóns Ólafssonar. Opið laug-
ardaga og sunnudaga 14–17.
Listhús Ófeigs | Dominique Ambroise sýnir
olíumálverk. Sýninguna nefnir hún Sjón-
horn. Sýningin er opin virka daga kl. 10–18
og laugardaga kl. 11–16 og stendur til 5. apr-
íl.
Ráðhús Reykjavíkur | Sautján félagar í Fók-
us, félagi áhugaljósmyndara, sýna á ljós-
myndasýningunni Fegurð í fókus í Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur til 9. apríl. Sjá:
www.fokusfelag.is
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir 20 minningastólpa, til 28. ágúst.
Safn | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir
nýleg verk sín á grunnhæðinni. Sýning
bandarísku listakonunnar Roni Horn heldur
áfram á öllum hæðum. Sýningarnar eru
opnar til 9. apríl. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og
lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis inn.
Saltfisksetur Íslands | Elísabet Dröfn Ást-
valdsdóttir sýnir til 3. apríl. Opið alla daga
kl. 11–18.
Suðsuðvestur | Anna Guðjónsdóttir sýnir
lítil málverk og einslags málverksskápa. Op-
ið kl. 14–17.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Guðfinnu Ragnarsdóttur á ættargripum og
ættarskjölum frá fjölskyldu hennar, ætt-
rakningum af ýmsu tagi auk korta og
mynda stendur yfir. Opið virka daga kl. 10–
16. Aðgangur er ókeypis.
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá
tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum. Til
1. apríl. Opið daglega kl. 13–18.30.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn
sýnir.
Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla
daga kl. 12–17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum söguna frá landnámi til 1550.
www.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá nán-
ar á hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Margt er að sjá í söl-
um Þjóðmenningarhússins: Samsýning 19
myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma,
lætur mann lyfta brúnum. Þjóðminjasafnið
– svona var það andar stemningu liðinna
alda. Handritin, ertu ekki búin að sjá þau?
Fyrirheitna landið, fyrstu vesturfararnir,
hverjir voru það? Veitingar, búð.
Leiklist
Halaleikhópurinn | Halaleikhópurinn sýnir
PÓKÓK í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar
í kvöld kl. 20, í Hátúni 12, Rvk. Halaleikhóp-
urinn er blandaður leikhópur sem starfar
undir kjörorðunum „Leiklist fyrir alla“. Sími
552 9188. Nánari uppl. á www.halaleikhop-
urinn.is
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14, 26. mars kl. 14.
Fyrirlestrar og fundir
Alanóhúsið | Tólf spora samtök Debtors
Anonymous funda í Alanóhúsinu, Seljavegi
2 kl. 11–12. Stjórna skuldirnar lífi þínu? Það