Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 67
Úr Guy Noir-ballettinum, sem er á meðal þeirra verka sem hópurinn setur upp hér á landi.
hæfileiki, líkt og sumir fæðist með
listamannshæfileika.
Við erum ekki spurð hvað eða
hvernig við viljum vera þegar við er-
um orðin stór, hver og einn verður að
vinna úr því sem honum er rétt.
Elíasi hefur tekist að lifa sínu lífi
með reisn og virðingu, var aldrei „í
skápnum“, samkvæmt eigin sögn, á
meðan aðrir samkynhneigðir voru
ekki jafn lánsamir á þessum árum.
Maður minnist Elíasar frá því oftast
skemmtilega tímabili sem hádeg-
isbarinn á Borginni, var viðkomu-
staður eftir vinnu á laugardögum.
Það var síðla á sjöunda áratugnum
og „Skuggabarinn“, hýsti þverskurð
þjóðfélagsins. Ekki var hægt að
væta kverkarnar nema á örfáum
brynningarstöðum og ekki verið að
bruðla með tímann oní múginn, opn-
unartíminn frá hádegi til hálfþrjú.
Borgin var einskonar mannlífsdeigla
og allir í óðaönn að nýta þessa
skammlífu gleðistund sem best.
Stundum sá maður Elías, teinréttan,
svipmikinn og óhagganlegan í sinni
kreðsu. Maður varð líka var við að
ólíklegustu menn ruku skyndilega
„út úr skápnum“. Ekki yfirvegað,
heldur með hurðina á herðunum,
gjarnan ölvaðir. Voru síðan stimpl-
aðir kynvillingar fyrir neyðarópið, en
það var eitt versta skammaryrði sem
til var á þessum miðöldum fordóma.
Ástandið var ekki beysnara en þetta
í samfélaginu og sjálfsagt gerðu slík-
ar uppákomur aðeins illt verra í lífi
þessara einstaklinga.
Þórir er einnig sáttur við þessa
misjöfnu tíma, einkum hernámsárin,
sem hann kallar sannkallaða gós-
entíma og ástarlífið stóð í blóma.
Þeir Elías eru ljúfir sem lömb í fag-
mannshöndum Evu Maríu og gefa
ákveðna og jákvæða mynd af því að
vera gagnkynhneigður í kringum
miðja öldina sem leið. Hún er fræð-
andi en gefur vitaskuld þrönga og
persónulega sýn, a.m.k. miðað við
það sem blasti við manni sem gagn-
kynhneigðum einstaklingi og heyrði
hjá samkynhneigðum kunningjum.
Hátíð eins og þessi sannar hversu
drjúgt okkur hefur skilað áfram í
rétta átt.
Sæbjörn Valdimarsson
ZAPPA
PLAYS
ZAPPA
miðasala 2. apríl
www.rr.is