Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 71
sagan í raun meira grípandi þegar
ástin milli Tristans og Ísoldar er
ekki komin til vegna töfradrykkjar.
Það eru miklu meiri galdrar í því
hvernig þau laðast hvort að öðru af
sjálfsdáðum.“
Vandræðahnéð
Kevin segir þetta og margt annað
hafa orðið til þess að handritið er
raunsærra í framvindu en margar
frumútgáfur sögunnar: „Það eru svo
margar fantasíukvikmyndir í gangi
um þessar mundir, og kannski
Hringadróttinssaga mest áberandi
af þeim. Þetta eru frábærar sögur,
en ég held að þegar vissu marki er
náð hætti fólk að trúa því sem gerist
á skjánum: Fantasían er svo mikil og
af svo allt öðrum heimi, að áhorfand-
inn finnur ekki jafnsterkt fyrir
spenningi og tilfinningum söguper-
sónanna, því þær verða minna raun-
verulegar. Þess vegna vildum við
láta söguna standa fastari fótum í
raunveruleikanum.“
Og afraksturinn er alveg hreint
ágæt kvikmynd og áhugaverð frá-
sögn af ástartragedíunni sígildu.
Handbragð Kevins Reynolds er líka
áberandi, og þeir sem kunnu að
meta fyrri myndir hans, eins og
Robin Hood: Prince of Thieves og
Waterworld ættu ekki að verða fyrir
vonbrigðum. James Franco, sem fer
með hlutverk Tristans, og hefur
hingað til verið mest til hliðar í þeim
kvikmyndum sem hann hefur leikið í
hingað til, stígur fram í aðahlutverki
sem nýjasti hjartaknúsari Holly-
wood.
En þó James fari í myndinni létt
með að snara niður heilu herskarana
af berserkjum reyndist leikarinn þó
hafa einn akkilesarhæl, eða kannski
öllu heldur akkilesarhné, sem reynd-
ist mikil hindrun við gerð myndar-
innar: „Það er alltaf erfitt að gera
kvikmynd, en ég held að þetta sé sú
allra erfiðasta sem ég hef gert til
þessa. Það tók tvö ár að gera mynd-
ina vegna allskonar vandræða, en þó
mest vegna þess hve oft aðalleikar-
anum tókst að slasa sig. Í hvert
skipti þurfum við að hætta tökum og
síðan safna saman tökuliðinu á ný,
og fljúga á tökustað, hvort sem það
var á Írlandi eða í Tékklandi, og
byrja aftur þegar hann hafði náð sér,
en honum tókst að brjóta á sér hnéð
í þrígang.
Það var samt ekki í þeim atriðum
sem maður hefði helst vænst að
hann slasaði sig. Í fyrsta skiptið tók
hann bara skref afturábak, og hnéð
gaf sig.“
Víkingamynd á teikniborðinu?
Eftir mánaðar sjúkralegu hófust
tökur á ný, og aftur endurtók sama
sagan sig, og eftir aðgerð á hné og
nokkurra mánaða hvíld hófust tökur
enn aftur, og James slasaði sig enn
einu sinni, og það á fyrsta tökudegi.
„Það má segja að hafi ekki verið
mikil heppni með okkur í framleiðsl-
unni. En okkur tókst að endurskipu-
leggja tökuferlið á hverjum tíma og
gera það sem við gátum. Hlutirnir
urðu jafnvel svo flóknir að við íhug-
uðum um tíma að fá staðgengil til að
leika hlutverk hans og nota síðan
tölvutækni til að klippa rétt andlit
inn á filmuna, en afréðum frekar að
bíða, og reyna bara aftur. Eins og
gefur að skilja var síðan heilmikið
púsluspil að setja myndina saman.“
Kevin er með ýmis verkefni á
prjónunum um þessar mundir, en er
ekki búinn að gera upp við sig hvað
kemur næst. „Ég segist alltaf vera
hættur að gera myndir sem gerast
til forna og að ég vil endilega fá að
gera nútímamynd næst, en satt best
að segja dauðlangar mig að gera vík-
ingamynd og taka hana, í það
minnsta, að hluta til upp hér á
landi.“
Kevin segist vera að melta hug-
mynd að efnistökum myndarinnar
og tekur undir að langt er síðan að
síðast var gerð almennileg mynd um
víkinga: „Ég veit ekki hvað veldur.
Hitt er víst að það gengur í hringi,
hvað fólk vill sjá í bíói, og ég held að
áhorfendur séu að þreytast á sögu-
legum kvikmyndum, svo kannski að
hugmyndin fái að gerjast örlítið
lengur. En ég hefði aldeilis gaman af
að gera víkingamynd, og ef ekki það
þá myndi ég eiginlega vilja gera
hvað sem er hérna á Íslandi, þetta er
svo einstakur staður.“
asgeiri@mbl.is
Nánast
óþekkjan-
legur: Kevin
fékk góðvin
sinn Jón
Ólafsson til
að leika lítið
hlutverk í
myndinni,
og mega les-
endur reyna
að sjá hvort
þeir þekki
Jón á þess-
ari mynd.
Ást án elixíra: James Franco
og Sophia Myles í hlutverkum
sínum sem Tristan og Ísold.
Upplifðu magnaðan söngleikinn!
Stútfull af stórkostlegri tónlist!
eee
L.I.B. - Topp5.is
18 krakkar. Foreldrarnir.
Það getur allt farið úrskeiðis.
eee
S.V. Mbl.
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
G.E. NFS
e e e
Ó.H.T Rás 2
2 fyrir 1
fyrir viðskiptavini
Gullvild Glitnis
kl. 2, 4 og 6
kl. 10 - Allra síðustu sýn.
ALLIR
EIGA SÉR
LEYNDAR-
MÁL
Rolling Stone Magazine
eeee
Roger Ebert
Empire Magazine
ee e
Topp5.is
eeee
GOYA VERÐLAUNIN
Besta Evrópska myndin
Sýnd kl. 8
Sími - 551 9000
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
Í DAG
200 kr. afsláttur
fyrir XY félagawww.xy.is
Mamma allra grínmynda
er mætt aftur í bíó!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 14 ára
MATCH
POINT
-bara lúxus
Klassísk og spennandi ástarsaga um forboðið samband ungra elskenda,
sem blandast inn í stríð og valdabaráttu kónga og riddara.
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2
The Producers kl. 8 og 10.45
Big Momma´s House 2 kl. 3 og 5.50
Rent kl. 5.20 B.i. 14 ára
Capote kl. 8 B.i. 16 ára
Constant Gardener kl. 5.30 B.i. 16 ára
Brokeback Mountain kl. 2.40 og 10
Walk the Line kl. 3 og 10.20
Hinsegin bíódagar
Bangsalingur kl. 4
Í Gini Rokksins kl. 6 Transamerica kl. 8
eee
S.K. - Dv
eee
Kvikmyndir.com
eee
Topp5.is