Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
frá
aðra leið
Reykjavík Oslo
frá
aðra leið
Reykjavík Stavanger
Kr. 9.500
Kr. 8.000
www.flysas.is
Aðrir áfangastaðir í Noregi
einnig á frábæru verði!
Skattar og flugvallargjöld innifalin.
Flug hefst 27. mars.
Sími fjarsölu: 588 3600.
Tími til
kominn!
ÞÓ SVO að frostið geti verið leiðigjarnt á tímum, geta margar
birtingarmyndir þess verið stórfenglegar eins og sjá má á
þessari mynd sem tekin var við Skógafoss. Auk þess sem snjó
hafði lagt yfir landið að undanförnu hafði úðinn af fossinum
frosið á plöntum og steinum. Búast má við að frostið herji á
landsmenn næstu daga en fari heldur minnkandi. Vænta má
að jákvæðar tölur fari að láta kræla á sér í veðurkortum um
miðja næstu viku því samkvæmt upplýsingum Veðurstof-
unnar er von á að fari að hlýna á ný.
Morgunblaðið/RAX
Í froststillu við Skógafoss
KAUPENDUR skuldabréfa ís-
lensku bankanna í Bandaríkjunum
hafa ákveðið að framlengja ekki
samninga að andvirði samtals rúm-
lega 1,5 milljarða Bandaríkjadala,
sem samsvarar um 115,7 milljörðum
króna á gengi gærdagsins.
Kaupendur skuldabréfa Glitnis
ákváðu að endurnýja ekki samninga
að andvirði 775 milljóna dala, sem
samsvarar 56,9 milljörðum króna,
segir Ingvar H. Ragnarsson, for-
stöðumaður alþjóðlegrar fjármögn-
unar hjá Glitni. Þetta eru rúmlega
þrír fjórðu hlutar þess konar skulda-
bréfa hjá Glitni, sem eru alls um 1
milljarður Bandaríkjadala.
Fram kom í Lundúnablaðinu Tim-
es í gær að sambærilegar tölur hjá
Landsbanka Íslands séu um 200
milljónir dala, og fram hefur komið
að hjá KB banka var um að ræða 600
milljóna dala. Samtals var því ákveð-
ið að endurnýja ekki samninga við ís-
lensku bankana þrjá að andvirði
1.572 milljóna Bandaríkjadala.
Ingvar H. Ragnarsson hjá Glitni
segir þetta alls ekki koma á óvart.
„Það hafa verið svo miklar sveiflur á
markaði að þegar þeir gera upp sjóð-
ina sína miðað við markaðsvirði
þessara bréfa, hefur verið neikvæð
ávöxtun á þessum bréfum í söfnun-
um þeirra. Þess vegna áttum við ekki
von á að þeir [bandarískir kaupend-
ur] myndu framlengja,“ segir Ingv-
ar.
„Þetta breytir ekki neinu um end-
urfjármögnun næsta árs. Í öllum
okkar áætlunum erum við alltaf með
þetta til 13 mánaða í senn og þetta
því inni í öllum áætlunum um endur-
fjármögnun næsta árs,“ segir Ingv-
ar. Hann segir af því leiða að þetta
verði ekki til að auka endurfjár-
mögnun hjá Glitni, og því rangt sem
fram komi í undirfyrirsögn á forsíðu
Morgunblaðsins á föstudag að þetta
auki endurfjármögnunarþörf ís-
lensku bankanna verulega á næsta
ári.
„Skuldabréfin eru á gjalddaga á
næsta ári, eru inni í öllum tölum um
endurfjármögnunarþörf, eða þær
upphæðir sem þarf að borga til baka
á næsta ári. Þessi skuldabréf þarf að
borga á gjalddaga eins og önnur
skuldabréf, og þess vegna ekki
ástæða til að líta þau öðrum augum
en önnur skuldabréf,“ segir Ingvar.
Ákveðið að framlengja ekki samninga íslenskra banka að andvirði 116 milljarða kr.
Ekki framlengt að andvirði
56,9 milljarða kr. hjá Glitni
Gert er ráð fyrir uppsögn í öllum áætlunum um endurfjármögnun
LEIKSTJÓRINN Kevin Reynolds
er staddur hér á landi til að kynna
nýjustu kvikmynd sína, stórmynd-
ina Tristan og
Ísold.
Kevin hefur
margoft komið
hingað til lands
og segist í viðtali
við Ásgeir Ingv-
arsson vera kol-
fallinn fyrir
landi og þjóð og
vera að gæla við
þá hugmynd að gera víkingamynd,
og taka hana þá upp að hluta á Ís-
landi. | 70–71
Dauðlangar að
gera víkinga-
mynd á Íslandi
Kevin Reynolds
LEITAÐ verður að lausnum
innan heilbrigðisráðuneytisins
á þeim vanda sem blasir við
Tryggingastofnun ríkisins
(TR), en ekki er ljóst hvort
hægt verður að veita meira fé
til stofnunarinnar fyrr en við
gerð fjárlaga fyrir árið 2007,
segir Siv Friðleifsdóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra.
Umboðsmaður Alþingis vakti athygli ráð-
herra á löngum afgreiðslutíma hjá TR og að
ekki hafi fengist fé til að ráða nægt starfsfólk
til að afgreiða verkefni stofnunarinnar á skikk-
anlegum tíma. Forstjóri TR sagði í Morgun-
blaðinu í gær að það verkefni að sjá um end-
urútreikning bóta hafi sett stofnunina á hliðina.
„Það er alveg ljóst að þetta er staða sem er
afar óheppileg og við munum skoða það með
Tryggingastofnun hvernig er hægt að bæta úr
þessu,“ segir Siv Friðleifsdóttir. Hún segir að
TR hafi verið styrkt á undanförnum árum og
þrír viðbótarstarfsmenn ráðnir vegna lífeyris-
trygginga nýlega.
Þarf líklega að fjölga starfsmönnum
„Starfsmönnum hefur verið fjölgað, en það
þarf líklega að fjölga þeim enn meira, ég tek
undir það. Við munum skoða hvernig við getum
styrkt Tryggingastofnun til þess að takast á við
þetta verkefni,“ segir Siv. Hún sagði ljóst að or-
sök vandans sé þær breytingar sem voru gerðar
á lögum um almannatryggingar árið 2003. Þá
hafi verið ákveðið að reyna að greiða út bætur á
sem réttlátastan hátt, þannig að bætur séu
hvorki vangreiddar né ofgreiddar, m.a. með því
að nýta upplýsingar frá skattayfirvöldum.
Siv bendir á að á árinu 2004 hafi um 700–800
milljónir króna verið vangreiddar, en 1.800
milljónir ofgreiddar. Vangreiddar bætur hafi
verið greiddar út, en það sem ofgreitt hafi verið
þurfi að innheimta. Þar sé þeim einstaklingum
sem gerð sé krafa á gefinn kostur á að andmæla
og aukið álag á TR skýrist að miklu leyti af
þessum andmælum og úrvinnslu á þeim.
Innheimtur á ofgreiddum bótum eru eðli
málsins samkvæmt viðkvæmar. „Við erum núna
að skoða í heilbrigðisráðuneytinu með hvaða
hætti sé hægt að innheimta þessar ofgreiddu
bætur,“ segir Siv. „Það hljóta allir að átta sig á
því að það verður að greiða út réttlátar bætur
til þeirra sem eiga rétt á þeim, og ekki til ann-
arra.“
Leitað verði lausna á vanda TR
Siv Friðleifsdóttir