Morgunblaðið - 30.03.2006, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
MEISTARANÁM
Í LÖGFRÆÐI
við lagadeild Háskólans í Reykjavík
Umsóknarfrestur
í meistaranámið
2006–2008
rennur út
31. mars.
SETUVERKFALL
Starfsemi á hjúkrunar- og dvalar-
heimilum raskaðist nokkuð í gær
vegna setuverkfalls ófaglærðs
starfsfólks, sem krefst hærri launa.
Stjórnvöld hafa gert þjónustusamn-
ing við hjúkrunarheimilin og segir
fulltrúi stjórnvalda að ekki standi til
að endurskoða þann samning.
Stjórnendur hjúkrunarheimilanna
óttast fólksflótta, og segja besta
starfsfólkið á förum.
Abramoff dæmdur í fangelsi
Dómstóll í Miami á Flórída dæmdi
í gær Jack Abramoff, þekktan hags-
munavörð (lobbíista) í Bandaríkj-
unum, í fimm ára og 10 mánaða
fangelsi fyrir fjársvik og samsæri.
Abramoff, sem var í nánum
tengslum við marga af forystu-
mönnum Repúblikanaflokksins,
gekkst við sakargiftunum, en þær
tengdust kaupum hans á spilavíti.
Misnotaði ráðandi stöðu
Flugþjónustan á Keflavíkurflug-
velli, dótturfélag FL Group, misnot-
aði markaðsráðandi stöðu sína við
afgreiðslu farþegaflugvéla, og var
gert að greiða 80 milljóna króna
stjórnvaldssekt samkvæmt niður-
stöðu Samkeppniseftirlitsins.
Y f i r l i t
Kynningar – Blaðinu fylgja kynning-
arblöðin Sumarbúðir KFUM og KFUK
og Rannísblaðið.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
NÝJAR reglur sem framkvæmdastjórn ESB boð-
ar að settar verði til að knýja farsímafyrirtæki til
að lækka verð fyrir notkun farsíma í útlöndum, á
svonefndum reikisímtölum, geta komið til með að
hafa umtalsverð áhrif fyrir íslenska neytendur
þegar fram líða stundir.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær vill
ESB knýja fram lægri verð fyrir reikisímtöl sem
byggjast á notkunarsamningum milli farsímafyr-
irtækja og veita aðgang að farsímakerfum þeirra.
,,Við fögnum því fyrir hönd okkar viðskiptavina
að gjald fyrir reikisímtöl í útlöndum muni lækka.
Það tryggir þeim lægri símareikninga,“ segir Eva
Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
„Þrátt fyrir að við höfum takmarkað vald yfir
því verði sem erlend símafyrirtæki innheimta,
tókum við fyrir nokkru frumkvæði að því að ein-
falda og lækka verðskrá í útlöndum,“ segir Eva og
vísar til breytinga sem Síminn gerði í fyrra á
verðskrá símtala úr farsímum frá öðrum löndum
en þar er heiminum skipt í fimm þjónustusvæði og
sama verðskrá gildir innan svæðis hvort sem
hringt er til Íslands, innan landsins eða til ann-
arra landa.
„Ef þetta verður að lögum hjá Evrópusam-
bandinu mun það að sama skapi leiða til lækkunar
útgjalda erlendra ferðamanna á Íslandi þegar
fram líða stundir,“ segir hún. Að sögn hennar
liggur ekki fyrir hversu mikil áhrif breytingin
muni hafa á tekjur félagsins verði reglurnar leidd-
ar í lög.
Erfitt að meta áhrifin
,,Við fögnum tillögu framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins. Hins vegar er erfitt að segja til
um á þessari stundu hvaða áhrif hún mun hafa
fyrir neytendur hér á landi, þar sem ekki er vitað
hvort eða hvenær hún verður hluti af EES-samn-
ingnum,“ segir Gísli Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi OgVodafone. „Við fylgjumst grannt með
þessu,“ segir hann.
„Við höfum þegar stigið þetta skref í átt að ein-
faldari og gegnsærri GSM-verðskrá fyrir við-
skiptavini erlendis, í samstarfi við Vodafone fyr-
irtæki um heim allan. Má þar nefna Vodafone
World, sem tryggir að viðskiptavinirnir vita ætíð
hvað símtalið kostar. Þessi þjónusta er þegar í
boði í 36 löndum. Gjaldskráin er í evrum og breyt-
ist verðið ekki hvort sem hringt er að degi til, að
kvöldi eða um helgar. Með þessum hætti höfum
við verið að leitast við að tryggja viðskiptavinum
okkar hagstæðari kjör hvar sem þeir eru staddir, í
samstarfi við Vodafone fyrirtæki,“ segir Gísli
Í Morgunblaðinu í gær sagði Hrafnkell V.
Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar,
að fyrirhuguð lög gætu haft áhrif á gjaldtöku fyrir
farsímanotkun Íslendinga hér heima og erlendis.
Verði lögin samþykkt af aðildarlöndum ESB og
reglurnar verði síðan innleiddar í EES-löndunum
muni þau hafa áhrif á tekjur íslensku farsímafyr-
irtækjanna. Þetta sé mjög mikilvægt skref fyrir
neytendur, enda sé æskilegt að verðlagning á far-
símaþjónustu færist í átt til raunkostnaðar.
Fyrirhugaðar breytingar framkvæmdastjórnar ESB á reikisímtölum í Evrópu
Umtalsverð áhrif fyrir
íslenska símnotendur
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FRUMVARP Valgerðar Sverris-
dóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra
um Nýsköpunarmiðstöð var ekki af-
greitt úr þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins í gær, að sögn Arnbjargar
Sveinsdóttur, þingflokksformanns.
Hún segir að þingflokkurinn vilji
taka sér lengri tíma til að ræða frum-
varpið.
Frumvarpið var hins vegar af-
greitt úr þingflokki framsóknar-
manna, að sögn Magnúsar Stefáns-
sonar, starfandi þingflokksfor-
manns. Samkvæmt frumvarpinu á
að sameina starfsemi Byggðastofn-
unar, Iðntæknistofnunar og Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðar-
ins undir merki Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands. Ný stofnun á að
hafa höfuðstöðvar á Sauðárkróki.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær er kurr í þingmannaliði
sjálfstæðismanna vegna frumvarps-
ins. Arnbjörg segir að þingmenn hafi
m.a. áhyggjur af því að byggðasjón-
armiðum sé ekki gert nógu hátt und-
ir höfði í frumvarpinu. „Það er margt
í þessu sem við viljum skoða aðeins
betur og fara yfir,“ segir hún.
Ekki
afgreitt úr
þingflokki
HLUTI starfsemi MS í Reykjavík
verður fluttur á Selfoss á næstu
tveimur árum, og verður starfsfólki
tilkynnt þetta á fundi með forstjóra
félagsins í dag. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins flyst mjólkur-
pökkunin austur, en dreifingardeild-
in í Reykjavík verður efld á móti.
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
MS, vildi ekki staðfesta þessar frétt-
ir í gær. Heimildir blaðsins herma að
til standi að ræða skipulagsbreyting-
ar á fundi Guðbrands með starfs-
mönnum kl. 9 í dag, og verður málið
auk þess kynnt á aðalfundi félagsins
síðar í dag.
Alls munu um 40 manns missa
vinnu sína í Reykjavík, en um helm-
ingi verður boðið starf á Selfossi.
Heimildir blaðsins herma að dreif-
ingardeild félagsins í Reykjavík
verði byggð upp á sama tíma, og þar
muni verða til um 15 ný störf. Sam-
tals starfa um 140 manns í MS í
Reykjavík í dag, að starfsmönnum
dótturfélags meðtöldum, en á Sel-
fossi starfa um 100 manns.
Hluti starfsemi MS
fluttur frá Reykjavík
SLÖKKVILIÐINU á Akureyri
barst tilkynning um eld á veitinga-
staðnum Strikinu skömmu eftir
klukkan átta í gærkvöldi. Þegar
slökkvilið kom á vettvang logaði eld-
ur á bakvið járnklæðningar sem
stóðu í kringum eldunartæki og í
kjölfarið var staðurinn rýmdur.
Greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um eldsins og var slökkvistarfi lokið
um klukkustund síðar og staðurinn
þá reykræstur.
Ljósmyndir /Þórhallur Jónsson
Eldur á veitingastað á Akureyri
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 34/42
Úr verinu 14 Brids 45
Erlent 16/17 Hestar 46/47
Landið 19 Dagbók 48
Höfuðborgin 20 Víkverji 48
Austurland 20 Velvakandi 49
Akureyri 21 Staður og stund 50
Daglegt líf 22/25 Menning 52/57
Listir 26/27 Bíó 59
Umræðan 28/33 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
Viðhorf 32 Staksteinar 59
* * *