Morgunblaðið - 30.03.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 23
DAGLEGT LÍF Í MARS
FJÓRTÁN uppvaskarar hafa skráð
sig til leiks í nýstárlega keppni, sem
fram mun fara á sýningunni Matur
2006 á morgun, föstudag. Þá munu
uppvaskarar frá ýmsum fyrirtækj-
um etja kappi saman þar til eftir
stendur uppvaskari ársins 2006.
Sigurvegari keppninnar ásamt fjór-
um næstu sætum verður svo fulltrúi
Íslands í Norðurlandakeppni upp-
vaskara, sem fram fer í Stokkhólmi
24. apríl nk.
„Ýmis fyrirtæki hafa verið að
hvetja sína uppvaskara til þátttöku
sem þurfa fyrst og fremst að vera
búnir þeim kostum að vera vand-
virkir og skipulagðir við iðju sína.
Keppnin snýst um að þrífa leir-
tauið vel í uppþvottavélina, sem síð-
an sér um að skola og sótthreinsa í
tvær til þrjár mínútur,“ segir Þur-
íður Helga Guðbrandsdóttir, for-
maður Matartækna.
Krydd í tilveruna
Þær Ásdís Ingólfsdóttir og Ingi-
björg Bjarnarsdóttir, sem vinna
saman á vöktum við uppvask hjá
Alcan í Straumsvík, eru meðal kepp-
enda og æfðu sig lítillega í gær. „Við
ákváðum að taka þátt í keppninni
upp á grín til að fá smá krydd í til-
veruna, en alls munu fimm uppvask-
arar frá Alcan taka þátt í þessari
fyrstu keppni sinnar tegundar hér á
landi,“ segja þær stöllur í samtali
við Daglegt líf, sem fregnaði það
jafnframt að á morgun munu starfs-
menn Alcan fá að notast við einnota
plastdiska og plasthnífapör þar sem
uppvaskarar verða vant við látnir
við önnur störf.
„Til að sigra í keppninni gerum
við ráð fyrir því að þurfa að vera
fljótar og vandvirkar, brjóta sem
minnst og skila öllu hreinu og fínu
frá okkur.“
Þær segjast venjulega fá frí frá
uppvaskinu þegar heim er komið
þar sem uppvaskið sé í verkahring
eiginmanna á báðum heimilum.
„Okkur finnst þó hvorugri leiðinlegt
að vaska upp þótt stóru pottarnir
geti verið hálferfiðir stundum,“
segja þær stöllur, sem segjast ann-
aðhvort stefna á fyrstu tvö sæti
keppninnar eða neðstu tvö sætin.
„Það er enginn millivegur. Ann-
aðhvort tökum við þetta með stæl
eða ekki.“
Aðalstyrktaraðilar keppninnar
eru John Lindsay og sænska fyr-
irtækið Diskteknik auk Bako-
Ísbergs, Amaro og Eflingar.
Morgunblaðið/Ásdís
Þær Ingibjörg Bjarnarsdóttir og Ásdís Ingólfsdóttir, uppvaskarar hjá Al-
can í Straumsvík, ætla galvaskar að taka þátt í fystu íslensku uppvösk-
unarkeppninni sem fram fer í boxhring á sýningunni Matur 2006.
UPPVÖSKUNARKEPPNI
Brothljóð, slettur
og gusugangur
ANTIK
Rýmingarsala
Við flytjum af Laugavegi í Hafnarfjörð
eftir 3 vikur.
Opið laugardag og sunnudag
í báðum búðum.
30-70% afsláttur
KAUPUM OG SELJUM
Laugavegi 101,
sími 552 8222
ANTIKBÚÐIN
Bæjarhrauni 10b, Hafnarfirði
(bak við Hraunhamar),
sími 588 9595