Morgunblaðið - 30.03.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 43
Atvinnuauglýsingar
Veiðifélag Ytri-Rangár
óskar að ráða umsjónarmann með
rekstri á vatnasvæði félagsins.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á fiskrækt
og/eða áhuga á stangveiði.
Um heils árs starf gæti verið að ræða, en
vinnuálag er langmest frá lok apríl til október-
loka eðli málsins samkvæmt.
Veiðifélag Ytri-Rangár sleppir árlega um 350
þúsund laxaseiðum í vatnasvæði félagsins og
er hlutverk umsjónarmanns að annast þessar
sleppingar og sjá um mannahald vegna þeirra.
Einnig annast umsjónarmaður um alla skrán-
ingu veiði, nokkra þjónustu við veiðimenn og
umsjón með fjórum veiðihúsum félagsins. Um-
sjónarmaður annast einnig útreikning á arð-
greiðslum til félagsmanna og ýmislegt fleira.
Laun og vinnufyrirkomulag er samkomulags-
atriði. Umsóknarfrestur er til 5. apríl.
Frekari upplýsingar veitir formaður veiðifélags-
ins, Þorgils Torfi Jónsson, í síma 897 5562 og
skriflegar umsóknir um starfið skulu sendar
til formanns, Freyvangi 6, 850 Hellu.
Innheimtustjóri
Heildsölufyrirtæki í innflutningi óskar eftir að
ráða innheimtustjóra.
Í starfinu felst m.a.:
Innheimta.
Færsla og afstemming viðskiptabókhalds.
Samningar og samskipti við viðskiptavini
fyrirtækisins.
Skilyrði er að viðkomandi hafi haldgóða þekk-
ingu og reynslu af innheimtu- og viðskipta-
mannabókhaldi.
Leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi
sem getur unnið sjálfstætt.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Morg-
unblaðsins eða á box@mbl.is merktar:
„Innheimta — 18344“.
Dugmikið fólk —
Tímabundið verkefni
Leitum að duglegu/hraustu fólki til starfa við
pökkun/frágang/flutning á búslóðum. Meira-
próf æskilegt þó ekki skilyrði. Góð laun, mikil
vinna framundan fram á haust.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf skilist
til: olih@propack.is
Bókari óskast
Óskum eftir öflugum bókara sem getur hafið
störf strax. Viðkomandi þarf að vera talna-
glöggur, hafa reynslu af bókhaldi, vera ná-
kvæmur og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Áhugasamir vinsamlega sendið starfsferilskrá
til hbg@st.is merktar: „Bókari - 18350“ fyrir
1. apríl nk.
EGJ-Holdings.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Er ódýrast að búa
í Kópavogi?
Ágætu Kópavogsbúar!
Opið hús verður laugardaginn
1. apríl 2006 milli kl. 10 og 12
í Hlíðasmára 19.
Allir velkomnir.
Dagskrá:
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, ræðir málefni
Kópavogs.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Fræðslufundur
Athyglisbrestur, kvíði og þunglyndi
ADHD samtökin, til stuðnings börnum og full-
orðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar
raskanir, halda fræðslufund í
Safnaðarheimili Háteigskirkju í kvöld,
30. mars kl. 20:00.
Fyrirlesari er Málfríður Lorange sálfræðingur.
Allir velkomnir.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Kársnesbraut 53, 01-0201, þingl. eig. Sveinn Oddgeirsson og Guðlaug
Albertsdóttir, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar hf., Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóður Reykjavíkur
og nágr., þriðjudaginn 4. apríl 2006 kl. 11:00.
Vesturvör 26, 01-0103, þingl. eig. Húsvernd ehf., gerðarbeiðandi
Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 4. apríl 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
29. mars 2006.
Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr.
Tilkynningar
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Fræðslufundur í Bústaðakirkju (neðri hæð)
í kvöld 30. mars kl. 20-22.
Fyrirlesari Páll Eiríksson, geðlæknir.
Munið „Opið hús“ 6. apríl. Allir velkomnir!
Börn og sorg
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Asparfell 4, 205-1793, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Þórunn Grétars-
dóttir, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
3. apríl 2006 kl. 11:00.
Fornistekkur 13, 204-7097, Reykjavík, þingl. eig. Brynjólfur Sigurðs-
son og Hrafnhildur Hlöðversdóttir, gerðarbeiðendur Landsbanki
Íslands hf., aðalstöðv. og Tollstjóraembættið, mánudaginn 3. apríl
2006 kl. 11:30.
Kötlufell 1, 205-2626, Reykjavík, þingl. eig. Guðlaug Örlaugsdóttir,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Norðlendinga, mánudaginn 3. apríl
2006 kl. 10:30.
Lindarbraut 2, 0002, 50% ehl. Seltjarnarnes, þingl. eig. Aðalsteinn
Guðjónsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn
3. apríl 2006 kl. 14:00.
Reynimelur 22, 221-3058, Reykjavík, þingl. eig. Tómas Bolli Hafþórs-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 3. apríl 2006
kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
29. mars 2006.
Ýmislegt
Verður kosið um álver?
Verða Hafnfirðingar einu Íslendingarnir sem
fá að kjósa beint um álverið sem er í næstu
nánd þeirra?
Hvernig kjósa þá astma- og ofnæmissjúkir,
flórgoðaunnendur og þeir sem vilja fá sem
hæst verð fyrir fasteignir sínar?
Verður Hafnfirðingum kannski sleppt við
álverskosningarnar? Í fjölmiðlamálinu var
kosningum sleppt.
Alcan gæti farið. Alusviss fór.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnhætti.
Lovsamling for Island
Samantekið og útgefið af Oddgeiri Stephen-
sen og Jóni Sigurðssyni 1853-1889. Þetta
fágæta verk er hér í heild sinni, 1.-21. bindi.
Nánari uppl.: Bragi Kristjónsson 552 1710/
893 2710 og Ari Gísli Bragason 867 9832.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 1863037½
Landsst. 6006033019 IX
Í kvöld kl. 20.00
Lofgjörðarsamkoma.
Umsjón Valborg Kristjánsdóttir
og Örn Rúnarsson.
Mike Fitsgerald talar.
I.O.O.F. 5 1863308
Fimmtudagur 30. mars 2006
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Predikun Theodór Birgisson.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is.
FRÉTTIR
FUNDUR í landsráði Frjálslynda
flokksins, sem haldinn var 25. mars
sl., hvetur stjórnvöld til að vinna að
því með skipulegum hætti að koma í
veg fyrir atvinnuleysi fjölda fólks og
nýta þau tækifæri sem gefast á Suð-
urnesjum í kjölfar brotthvarfs hers-
ins.
„Til þess þurfa stjórnvöld að
standa að tilflutningi verkefna inn á
svæðið og efla þá þjónustu og starf-
semi sem fyrir er á Suðurnesjum.
Frjálslyndi flokkurinn er tilbúinn að
leggja slíku átaki lið.
Einnig leggur fundurinn áherslu á
að starfsemi Reykjavíkurflugvallar
verði ekki flutt úr Vatnsmýrinni.
Fundurinn lýsir yfir eindregnum
stuðningi við baráttu borgarstjórn-
arflokks Frjálslyndra og óháðra fyr-
ir þeim augljósu hagsmunum Reyk-
víkinga og annarra landsmanna sem
felast í staðsetningu vallarins í
Vatnsmýrinni.
Þá er fagnað frumkvæði borgar-
stjórnarflokks Frjálslyndra og
óháðra varðandi öldrunarmál í
Reykjavík, þar sem F-listinn hefur
sett þessi mál í forgang í komandi
kosningabaráttu í Reykjavík.“
Tækifærin verði
nýtt á Suðurnesjum
MÁLÞING var nýverið haldið á veg-
um Félags íslenskra kennara í ný-
sköpunar- og frumkvöðlamennt. Þar
var kynnt hvað verið væri að gera á
þessu fræðasviði en málþingið sátu
fulltrúar af öllum skólastigum. Eftir-
farandi ályktun um nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt var samþykkt og
send til yfirvalda:
„Nýsköpunar- og frumkvöðla-
mennt er menntasvið þar sem nem-
endur fá tækifæri til að hagnýta
þekkingu sína á skapandi hátt og ýtir
undir frumkvæði þeirra og fram-
takssemi. Málþingið skorar á
menntamálayfirvöld á Íslandi að
móta skýrari framtíðarsýn fyrir
málaflokkinn, sem felur í sér sam-
fellu og vaxtarmöguleika gegnum
allt skólakerfið.“
Vilja framtíðarsýn
fyrir nýsköpun
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
telur brýnt að stjórnvöld öll gæti að-
halds í peningamálum vegna gríðar-
legrar þenslu í hagkerfinu. Félagið
telur að hagstjórnarstefna stjórn-
valda hafi ekki tekið nógu mikið tillit
til aðstæðna á almennum markaði og
hafi útgjöld hins opinbera vaxið
óhemju mikið og tækifæri til að
draga úr þeim hafi ekki verið nýtt.
Félagið telur að stöðva eigi stór
verkefni á borð við byggingu tónlist-
arhúss, hátæknisjúkrahúss og borun
Héðinsfjarðarganga þar sem engin
skynsamleg rök mæli því að halda
skuli þeim til streitu þegar allar við-
vörunarbjöllur hagkerfisins gefi til
kynna að auka þurfi aðhald og
minnka umsvif hins opinbera.
SUS vill aðhald
og aga í
peningamálum
PER Unckel, framkvæmdastjóri
Norrænu ráðherranefndarinnar,
undirritaði nýlega samkomulag um
styrk að upphæð 2,78 milljónir evra
til handa European Humanities Uni-
versity (EHU). Skólinn er óháður
skóli frá Minsk sem nú er starfrækt-
ur í útlegð í Vilníus í Litháen.
Samningurinn gerir 350 náms-
mönnum frá Hvíta-Rússlandi kleift
að stunda nám næstu þrjú árin.
Styrkurinn kemur bæði frá Nor-
rænu ráðherranefndinni og fram-
kvæmdastjórn ESB, sem leggur til
2,2 milljónir evra.
Útlagaháskóli
fær styrk