Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tímamót eru yfirvofandi. Skýin hverfa
og fuglarnir byrja að syngja. Reyndar
hafa þeir sungið allan tímann þótt þú
hafir ekki veitt því eftirtekt. Núna
veistu af hverju þú hefur verið að missa.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið verður einstaklega heppið í dag.
Það hefur þann hæfileika að geta létt
allar aðstæður með þokka og persónu-
töfrum. Leyfðu reynslunni að koma þér
að notum í félagslegu samhengi í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður tvíburans við hina sígildu
vinnustaðakaffivél eru yfirleitt
skemmtilegri en aðrar, líklega vegna
þess að þær eru miklu betri en síðari
tíma útgáfa af einhverjum slúðursögum.
Þú ert svo sannarlega frumlegur og
færð aðra til að hlæja.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn leysir vandamál sitt snilld-
arlega. En til þess að geta það verður
hann að hefja sig yfir hugsunarháttinn
sem hann tamdi sér þegar hann bjó það
til. Ef þú veist ekki enn að vandamál
þitt er heimatilbúið er það þinn helsti
vandi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Manneskjan sem ýtir undir léttlyndi
þitt og óbælda hegðun er svo sann-
arlega góður vinur. Sá sem lætur þér
líða eins og þú hafir lent undir vörubíl
er kannski líka góður vinur, en sá sem
þú átt að forðast í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er meistari tíma síns og orku.
Að vera og finnast maður vera við
stjórnvölinn er frábær tilfinning. Hins
vegar muntu skemmta þér betur í kvöld
ef þú lætur eldmerki, hrúti, ljóni eða
bogmanni, eftir stjórnartaumana.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gerðu þér grein fyrir því að einhver
sem þú ert að reyna að þóknast kann í
raun ekki að njóta hamingjunnar. Þessi
manneskja leggur stein í götuna til þess
að viðhalda volæðinu sem hún þekkir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tækifæri glatast aldrei, ef á það er litið.
Einhver tekur þau sem þú missir af.
Það á við í dag, svo vertu með augun op-
in. Eyddu kvöldinu með einhverjum
sem hefur góð áhrif á þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vinna bogmannsins virðist ekki skila því
sem hann þráir eða þarfnast þessa dag-
ana. En vertu viss um að aðferðirnar
sem þú notar við iðju þína gera heiminn
að betri stað. Umbunin er ekki langt
undan.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjölskyldumeðlimur lumar á gamalli
áskorun. Ekki bregðast við á sama
gamla háttinn, þannig tryggir þú best
þinn innri frið. Berðu gæsku og þraut-
seigju gott vitni. Þú verðskuldar virð-
inguna sem þú uppskerð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn heimsækir nýtt fólk og
nýja staði. Lítil gjöf gerir mikið til þess
að greiða þér götuna sem er framundan.
En ef þú ert ekki með neitt er hlýlegt
bros, traustvekjandi augnaráð og vin-
gjarnlegt orð gjöf í sjálfu sér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn hefur ótrúlegt þolgæði. En
gættu þess að reyna ekki að umbera hið
ómögulega. Það er í góðu lagi að labba í
burtu ef eitthvað gengur ekki. Það er
engum að kenna. Sólin skín á næstunni.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tunglið myndar ekki af-
stöðu við neina plánetu
fyrir hádegi og ýtir undir
áhugaleysi. Kannski er hvíldin skilvirk-
ari en vinnan þegar upp er staðið. Ekki
er allt glatað. Framleiðslan fer af stað á
ný þegar tungl fer í naut eftir hádegi. Eitt
skref í einu kemur manni á leiðarenda.
Ekki er auðvelt að vera þolinmóður á
meðan hrúturinn ræður ríkjum.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 saltlög, 8 dáin,
9 vægar, 10 tölustafur, 11
arka, 13 blæs kalt, 15
ósoðið, 18 vegurinn, 21
máttur, 22 sjófugl, 23
peningar, 24 af-
brotamaður.
Lóðrétt | 2 standa gegn, 3
kaggi, 4 getnaður, 5 at-
vinnugrein, 6 rekald, 7
konur, 12 megna, 14
espa, 15 jó, 16 gróða, 17
spjald, 18 káta, 19 köku,
20 ill kona.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 alveg, 4 þytur, 7 volks, 8 eðlið, 9 tík, 11 karp, 13
fann, 14 ostur, 15 tölt, 17 ágæt, 20 kal, 22 pútan, 23 um-
ber, 24 rænir, 25 draga.
Lóðrétt: 1 atvik, 2 volar, 3 gust, 4 þrek, 5 tolla, 6 rúðan,
10 ístra, 12 pot, 13 frá, 15 tæpur, 16 lotan, 18 gubba, 19
torfa, 20 knýr, 21 lund.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Café Cultura | Kristín Bergsdóttir ásamt
hljómsveit flytja ýmsa tónlist, þar á meðal
soul, pop, djass og frumsamið efni.
Café Rosenberg | Halli Reynis heldur tón-
leika kl. 21.30, í tilefni geisladisksins
„Leiðin er löng“ sem hann er að senda frá
sér þessa dagana.
Fríkirkjan í Reykjavík | Sálmatónleikar
Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunn-
arssonar í Fríkirkjunni 9. apríl nk. kl. 20.
Miðasala hafin á midi.is og í verslunum
Skífunnar og BT
Hótel Borg | Stórtónleikar Benna Hemm
Hemm kl. 21. Sá möguleiki fyrir hendi að
óvæntir leynigestir stígi á stokk og taki
lagið með sveitinni. Einnig koma fram
Borko og Seabear. Miðasala fer fram í 12
tónum, Skólavörðustíg. Miðaverð er kr.
1000.
Íslenska óperan | Píanónemendur í Tón-
listarskólanum í Reykjavík flytja verk eftir
ýmsa höfunda kl. 20. Allir velkomnir.
Nasa | Miðnæturköntrísveitarhódán á
NASA. Húsið opnað kl. 23 og miðaverð er
1500 kall. Síðasta tækifæri til að upplifa
alíslenska köntrísveitarstemningu fyrir
Rússlandsferð sveitarinnar í apríl. Sér-
stakir leynigestir (í stafrófsröð): Björgvin
Halldórsson! Páll Óskar Hjálmtýsson! Val-
geir Guðjónsson!
Þjóðmenningarhúsið | Smekkleysa sendir
nú frá sér á Boðunardegi Maríu, 25. mars,
geisladiskinn „Til Máríu“ með söng
Kammerkórs Suðurlands. Þar er að finna
trúarlega tónlist eftir Gunnar Reyni
Sveinsson tónskáld svo og lagasmíðar
hans við ærslavísur Æra-Tobba.
Myndlist
101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl.
14–17 fim., föst. og laug. Til 15. apríl.
Artótek Grófarhúsi | Steinunn Helgadótt-
ir myndlistarmaður sýnir ljósmyndir og
DVD. Nánar á artotek.is
Aurum | Berglind Laxdal – Catch of the
day – til 2. apríl.
Café Karólína | Föstudaginn 31. mars lýk-
ur sýningu Örnu Valsdóttur „Stað úr
stað“. Á sama tíma lýkur sýningu Óla G
„Týnda fiðrildið“. Það eru því nokkrir dag-
ar uppá að hlaupa fyrir þá sem enn hafa
ekki náð að sjá þessar sýningar.
Gallerí Fold | Lilja Kristjánsdóttir sýnir
málverk í Baksalnum til 9. apríl.
Gallerí Gyllinhæð | Föstudaginn 31. mars
kl. 17 opna 2. árs myndlistarnemar LHÍ
sýninguna „mini me“ í Gallerí Gyllinhæð,
Laugavegi 21. 2.h.. Sýningin stendur til 9.
mars. Opið fim–sun: 14–18.
Gallerí Humar eða frægð! Sýning á veg-
um Leikminjasafns Íslands um götu-
leikhópinn Svart og sykurlaust. Ljós-
myndir, leikmunir, kvikmyndasýningar.
Opið kl. 12–17 laug., 12–19 fös. og 12–18
virka daga.
Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson
til 19. apríl.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum,
ljósmyndir o.fl. Til 30. apríl. Opið mán. og
þrið. kl. 11–17, mið.. 11–21, fim. og fös. 11–17
og kl. 13–16 um helgar.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl.
Listasafn ASÍ | Olga Bergmann – Utan
garðs og innan. Jón Stefánsson, málverk í
eigu safnsins. Til 2. apríl. Opið 13–17,
nema mánudaga. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar-
ar. Safnið er opið alla daga nema mánu-
daga 12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím-
ans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og
Safnbúð opin á opnunartíma.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin
Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna
þar sem viðfangsefnið er náttúra Íslands.
Málverk, skúlptúrar, vefnaður og graf-
íkmyndir. Verkin eru í eigu Listasafn Ís-
lands. Opið kl. 13–17.30.
Listhús Ófeigs | Dominique Ambroise
sýnir olíumálverk. Sýninguna nefnir hún
Sjónhorn. Sýningin er opin virka daga kl.
10–18 og laug. kl. 11–16. Til 5. apríl.
Ráðhús Reykjavíkur | Sautján félagar í
Fókus, félagi áhugaljósmyndara, sýna á
ljósmyndasýningunni Fegurð í Fókus í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur til 9. apr-
íl.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir 20 Minningastólpa, til 28. ágúst.
Safn | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir
nýleg verk sín á grunnhæðinni. Sýning
bandarísku listakonunnar Roni Horn held-
ur áfram á öllum hæðum. Sýningarnar eru
opnar til 9. apríl. Opið mið–fös kl. 14–18 og
lau–sun kl. 14–17. Ókeypis inn.
Saltfisksetur Íslands | Elísabet Dröfn
Ástvalsdóttir sýnir til 3. apríl. Opið alla
daga kl. 11–18.
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar ár-
legu vinnustofa á vegum Listaháskóla Ís-
lands og Dieter Roth Akademíunnar
stendur nú yfir í Menningarmiðstöðinni
Skaftfelli. Þátttakendur sýningarinnar eru
útskriftarnemendur frá myndlistardeild
LHÍ ásamt erlendum listnemum. Sýningin
stendur til 29. apríl.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi
og verk tíu kvenna sem voru nær allar
fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu
þeirra forréttinda að nema myndlist er-
lendis á síðustu áratugum 19. aldar og
upp úr aldamótum. En engin þeirra gerði
myndlist að ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru
afrakstur af ferðum hans um Ísland. Meg-
inþema verkefnisins var atvinna og ákvað
Rob að einbeita sér að starfsfólki í fisk-
iðnaði. Rúnturinn vakti sérstakan áhuga
hans vegna þess að hann sýndi hvað ungt
fólk í litlum þorpum gerir til að drepa tím-
ann.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Guðfinnu Ragnarsdóttur á ættargripum
og ættarskjölum frá fjölskyldu hennar,
ættrakningum af ýmsu tagi auk korta og
mynda stendur yfir. Opið virka daga kl.
10–16. Aðgangur er ókeypis.
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá
tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum.
Til 1. apríl. Opið daglega kl. 13–18.30.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn
sýnir.
Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla
daga kl. 12–17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum söguna frá landnámi til 1550.
www.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiði-
tengdum munum. Opið alla daga kl. 11–18.
Sjá nánar á hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19
myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma,