Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guð á himninum, ég verð drullusjóveik, ég hef aldrei migið í saltan sjó.
Verðbólgan vex hröðumskrefum um þessarmundir með óhjákvæmi-
legum afleiðingum á kaupmátt
launafólks og skuldabyrði heimil-
anna.
Spár um verðlagsþróunina
næstu mánuði hafa tekið stakka-
skiptum að undanförnu og er það
til marks um óvissuna framundan
í efnahagslífinu, að meiri munur
er nú á verðbólguspám opinberra
stofnana, sérfræðinga á vinnu-
markaði og greiningardeilda
bankanna en sést hefur um langt
skeið.
Í desember sl. spáði OECD 4%
verðbólgu á Íslandi á árinu 2006.
Mánuði síðar setti fjármálaráðu-
neytið fram þá spá að verðbólgan
yrði 3,9%. Seðlabankinn endur-
skoðaði fyrri spá sína í seinustu
viku og telur nú að verðbólga
muni aukast hratt á næstunni,
verða komin í tæplega 5½% í lok
þessa árs og ná hámarki um mitt
næsta ár er hún verði rúmlega
6%. Seðlabankinn spáir 4,9%
verðbólgu yfir allt þetta ár. Verð-
bólguspá KB banka í seinasta
mánuði hljóðaði upp á 5,8% á
þessu ári. ASÍ sendi frá sér end-
urskoðaða hagspá í gær og spáir
nú 4,8% verðbólgu á þessu ári en
að síðan muni heldur draga úr
verðbólgu og að hún verði 4,2% á
næsta ári. Í gær sendi svo Glitnir
frá sér spá sem hljóðaði upp á um
8% verðbólgu yfir þetta ár, mun
hærri spá en í janúar sl. þegar
greiningardeild bankans spáði
4,7% verðbólgu á þessu ári.
Þrátt fyrir mismunandi spár
eiga allir þeir sem spáð hafa fyrir
um verðbólguna það sameiginlegt
að sjá það fyrir að verðbólga verði
yfir verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans (2,5%) út spátímabilið.
Skulda bönkum
577 milljarða
Heildarskuldir heimilanna í
landinu rufu á seinasta ári eitt
þúsund milljarða múrinn. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum voru heildarskuldir
heimilanna um seinustu áramót
1.082 milljarðar króna. Jukust
þær á seinasta ári um 23,4%.
Helmingur af skuldum heimila
við lánakerfið eru skuldir við inn-
lánsstofnanir og jukust þær á
árinu um 76,5%. Skv. nýjustu
upplýsingum voru skuldir heim-
ilanna við banka og sparisjóði
komnar í um 577 milljarða kr. í
febrúar sl. Þar af voru verð-
tryggðar skuldir heimilanna við
innlánsstofnanirnar tæplega 435
milljarðar kr.
Til að bregða upp mynd af þeim
fjárhæðum sem hér um ræðir og
ef gengið er út frá 4,9% verð-
bólgu, mætti að óbreyttu ætla að
skuldir heimilanna við bankakerf-
ið gætu aukist um ríflega 20 millj-
arða á árinu, eingöngu vegna
verðlagshækkana. Skuldir heim-
ilanna við lífeyrissjóði hafa einnig
aukist jafnt og þétt en lífeyris-
sjóðslán eru yfirleitt vísitölubund-
in. Þær námu samtals um 94,5
milljörðum um seinustu áramót
skv. bráðabirgðatölum. Skuldir
við Lánasjóð íslenskra náms-
manna voru komnar í 68,8 millj-
arða um seinustu áramót og
skuldir heimila við ýmis lánafyrir-
tæki, þ.e. fyrst og fremst við
Íbúðalánasjóð, voru 369 milljarð-
ar. Ljóst er því að vaxandi verð-
bólga mun hafa uggvænleg áhrif á
kaupmátt heimilanna og auka
skuldirnar, þar sem um 80% af
skuldum heimilanna eru verð-
tryggð. Gengisbundin lán heimil-
anna hafa einnig aukist en þau
voru komin í ríflega 30 milljarða
kr. í febrúar sl.
Á móti þessum skuldum standa
svo eignir heimilanna í landinu,
sem eru áætlaðar tæplega 3.000
milljarðar í lok síðasta árs. Þar af
eru eignir í íbúðarhúsnæði og bíl-
um áætlaðar 1.789 milljarðar um
seinustu áramót og jókst verð-
mæti þeirra um 23,5% í fyrra.
Eignir einstaklinga í lífeyrissjóð-
um landsins eru svo taldar vera
um 1.176 milljarðar kr. Jókst líf-
eyriseign landsmanna um tæp
22% á seinasta ári skv. bráða-
birgðatölum.
Sérfræðingar Seðlabankans
telja í nýútkomnum Peningamál-
um bankans, að þær hræringar
sem orðið hafa á fjármálamörk-
uðum nýlega hafi aðhaldsáhrif á
heimili landsins. „Vextir húsnæð-
isveðlána hafa hækkað þrátt fyrir
nýlega lækkun ávöxtunarkröfu
verðtryggðra skuldabréfa. Vextir
óverðtryggðra lána hafa hækkað,
en aukist verðbólguvæntingar
heimilanna einnig á næstunni hef-
ur hækkunin tæpast varanleg að-
haldsáhrif. Gengislækkun krón-
unnar mun skila sér í þyngri
greiðslubyrði á erlendum lánum,
en þau vega ekki þungt í greiðslu-
byrði einstaklinga. Hlutfall geng-
isbundinna útlána lánakerfisins til
heimila er talið vera milli 3 og 4%.
Undir lok síðasta árs hægði á út-
lánaaukningu lánakerfisins til
heimila,“ segir þar.
„Mánuðum saman hefur árs-
verðbólgan verið vel yfir 4% og
aðalhættan er sú að væntingar
um framtíðarverðbólgu séu smám
saman að festast í þessu fari,“
segir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, í leiðara fréttabréfs SA. Í
Vorspá ASÍ í gær segir að dökkar
verðbólguhorfur gefi tilefni til að
ætla að verðlagsforsendur kjara-
samninga verði brostnar í haust.
Fréttaskýring | Vaxandi verðbólga eykur
á skuldabyrði heimilanna
Skulda billjón
en eiga þrjár
Skuldir heimila við banka komnar í um
577 milljarða og lífeyrissjóði 95 milljarða
! !"#$%%&'
()**+
("'&,
!
"
Skuldir heimila eru 214%
af ráðstöfunartekjum
Með sívaxandi skuldaaukn-
ingu heimilanna hefur hvert
metið verið slegið af öðru. Skuld-
ir heimila eru nú komnar í 214%
af ráðstöfunartekjum heimila,
sem er með því mesta sem þekk-
ist í heiminum. Árið 2000 var
þetta hlutfall 165%. Þá er sam-
anlögð upphæð þessara skulda
orðin hærri en sem nemur vergri
landsframleiðslu þjóðarinnar. Í
fyrra var hlutfallið komið í
107,5% af landsframleiðslu.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Innihaldið skiptir máli