Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 19
ERLENT
Kanebo kynning í dag,
föstudag og á morgun,
laugardag, í Hygeu
Kringlunni
Hægt er að panta tíma í
förðun. Sérfræðingar veita
húðgreiningu og kynna það
allra nýjasta frá Kanebo.
Spennandi kynningartilboð.
K R I N G L U N N I
S í m i 5 3 3 4 5 3 3
Forrétta-
hlaðborð
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
s: 587 5070
Risarækja
Hörpuskel
Túnfiskur
Humar
Silvio Berlusconi er auðugastimaður Ítalíu og forsætis-ráðherra langlífustu rík-isstjórnar landsins frá síð-
ari heimsstyrjöld. Hann hefur því
hlotið sess meðal merkustu stjórn-
málamanna í sögu Ítalíu og ef hægt
væri að mæla persónutöfra og sjálfs-
traust stjórnmálamanna yrði hann
væntanlega efstur á blaði. Sjálfur
hefur hann líkt sér við Winston
Churchill og Napóleon og jafnvel
lýst sér sem „Jesú Kristi stjórnmál-
anna“.
Berlusconi, sem er 69 ára, hefur
verið forsætisráðherra frá júní 2001
og telst það mikið afrek í ljósi þess
að ítalskar ríkisstjórnir hafa þótt
langlífar endist þær lengur en í eitt
ár. Styrkur Berlusconis sem stjórn-
málamanns byggist fyrst og fremst
á þokka hans, eldmóði og óbifanlegu
sjálfstrausti. Hann virðist hafa talið
að persónutöfrarnir myndu tryggja
honum sigur í þingkosningunum á
Ítalíu á sunnudag og mánudag.
Skoðanakannanir benda þó til þess
að hann eigi undir högg að sækja og
að vinstri- og miðflokkarnir hafi náð
allt að fimm prósentustiga forskoti
þegar rúm vika var til kosninga.
Þetta mótlæti virðist hafa farið í
skapið á forsætisráðherranum því að
hann hefur þótt taugaspenntur, ön-
ugur og jafnvel dónalegur á loka-
spretti kosningabaráttunnar.
„Fyllibytta“ gegn
„nytsamlegum fábjána“
Reyndar hefur kosningabaráttan
verið hatrömm og forsætisráð-
herraefni vinstriflokkanna, Romano
Prodi, hefur líka verið hortugur.
Prodi, sem er 66 ára, er fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu og forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins.
Prodi og Berlusconi spöruðu ekki
svívirðingarnar í síðari sjónvarps-
kappræðum þeirra á mánudags-
kvöld. „Forsætisráðherrann ríg-
heldur í tölfræðilegu upplýsingarnar
eins og fyllibytta heldur í ljósastaur
– ekki til upplýsingar, heldur til að
halda sér standandi,“ sagði Prodi.
„Ég sætti mig ekki við þetta. Sýndu
forsætisráðherranum virðingu,“
svaraði Berlusconi. „Leyfið mér að
svara ummælum Prodis um fylli-
byttuna með því að segja að Prodi sé
eins og nytsamlegur fábjáni – hann
hefur lánað vinstrimönnum glað-
vært prestsandlitið og um 70%
þeirra eru fyrrverandi kommún-
istar.“
Mikið fjaðrafok varð daginn eftir
kappræðurnar þegar Berlusconi
notaði dónalegt orð til að lýsa kjós-
endum vinstriflokkanna, sagði þá
„heimska punga“.
Í kosningabaráttunni hefur Ber-
lusconi meðal annars líkt sér við
Winston Churchill, forsætisráðherra
Bretlands í síðari heimsstyrjöldinni.
„Ég berst gegn kommúnismanum á
sama hátt og Churchill berst gegn
nasismanum,“ sagði hann.
Þegar forsætisráðherrann var
beðinn að lýsa árangri ríkisstjórnar
sinnar síðustu fimm árin svaraði
hann: „Aðeins Napóleon hefur áork-
að meiru.“
Berlusconi lýsti sér sem „Jesú
Kristi stjórnmálanna“ og skírskotaði
til þrautseigju sinnar og fórna fyrir
ítölsku þjóðina þegar hann hefði
staðið frammi fyrir „ofsóknum“ sak-
sóknara og fjölmiðla sem væru á
bandi vinstriflokkanna.
Enginn hagvöxtur
Efnahagsleg stöðnun er helsta
ástæðan fyrir því að Berlusconi og
stjórn hans eiga í vök að verjast í
kosningabaráttunni. Hagvöxturinn
var 1,1% árið 2004 og 0,0% á síðasta
ári. Nokkrir hagfræðingar og fjöl-
miðlar hafa jafnvel spáð efnahags-
legum samdrætti.
Berlusconi hefur lýst slíkum við-
vörunum sem samsæri vinstrisinn-
aðra fjölmiðla um að koma stjórninni
frá völdum. Hann bendir til að
mynda á að atvinnuleysið hefur
minnkað, er nú um 8%, og fleiri Ítal-
ir búa í eigin húsnæði en nokkru
sinni fyrr.
Stjórnin bendir einnig á að mörg
smá og meðalstór fyrirtæki standa
enn vel að vígi á Ítalíu og nokkur
stórfyrirtæki, þeirra á meðal Fiat,
eru að rétta úr kútnum eftir nokkur
erfið ár.
Berlusconi hefur einkum kennt
háu gengi evrunnar gagnvart doll-
arnum um efnahagslegu stöðnunina
og sagt að gengisþróunin síðustu
fjögur árin hafi orðið til þess að sam-
keppnisstaða evrópskra fyrirtækja
hafi stórversnað.
Berlusconi er einnig ósáttur við
stöðugleikasáttmála Evrópusam-
bandsins sem kveður meðal annars á
um að fjárlagahallinn megi ekki vera
meiri en 3% af vergri landsfram-
leiðslu. Fjárlagahallinn á Ítalíu er nú
um 4% af landsframleiðslunni þar
sem útgjöld ríkisins hafa aukist en
skatttekjurnar minnkað.
Forsætisráðherrann segist þurfa
fimm ár í viðbót til að „færa Ítalíu
frá miðöldum til nútímans“ og sakar
vinstriflokkana um að undirbúa
skattahækkanir sem bitni verst á
miðstéttarfólki.
„Napóleon“ Ítalíu á
undir högg að sækja
Reuters
Silvio Berlusconi forsætisráðherra á kosningafundi flokks síns, Forza Italia, í Róm í fyrradag.
’Berlusconi lýsti sérsem „Jesú Kristi stjórn-
málanna“ og skírskotaði
til þrautseigju sinnar og
fórna fyrir ítölsku þjóð-
ina þegar hann hefði
staðið frammi fyrir „of-
sóknum“ saksóknara.‘
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050