Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Daglegtlíf
apríl
Egg hafa verið áberandipáskatákn um margaraldir, enda tákn um vorog frjósemi sem liggur í
loftinu þegar allt er að vakna til lífs-
ins á ný á vorin. Til eru ýmiss konar
egg og eru eggjaskreytingar þjóða
mismunandi, t.d. hvort notuð eru
hænuegg eða egg úr málmi, súkku-
laði eða pappa, fyllt með gjöfum eða
eingöngu sem skraut. Gull- og silfur-
egg eru algeng í Austur-Evrópu, oft
mjög skrautleg og flott, sannkölluð
listaverk, sem finna má dæmi um á
söfnum í Rússlandi, og hafa þá jafn-
vel verið gefin að gjöf milli elskenda
eða sem verðlaun í keppnum.
Einnig hefur þá tíðkast að lita
hænuegg, í Grikklandi voru eggin
oft rauð eins og blóð Krists, en græn
egg voru algeng í Þýskalandi og
Austurríki þar sem egg eru t.d. lituð
með því að sjóða þau með plöntum
sem lita. Þá hefur líka tíðkast að
blása innihaldið úr eggjunum,
skreyta skelina svo og hengja á
greinar sem skraut yfir páskana. Í
dag má svo orðið fá alls konar
skrautleg pappaegg, sem óneit-
anlega eru mun auðveldari í með-
förum en brothætt eggjaskurnin. Ég
vandist því að skreyta harðsoðin egg
með tússlitum og það er gaman að
borða svo persónulega skreytt egg,
ef maður tímir því. Nú ber ég fram á
páskum marglit egg. Þau geta verið
linsoðin með morgunverðinum eða
harðsoðin til að setja ofan á brauð
eða bara hreinlega notuð sem skraut
á páskaborði. Lita má egg með
mörgum mat og auðvitað matarlit,
smálitur kann að fara í gegnum
skurnina en það er engu að síður í
góðu lagi að borða eggin og
skemmtilegt verkefni að prófa sig
áfram með eggjalitunina í félagi við
eldri börn. Sjóða þannig egg með ál-
pappír eða lituðum kreppappír og
sjá hver útkoman verður.
Rauð/bleik; rauðrófubiti er
settur í pottinn með eggjum eða safi
af niðursoðnum rauðrófum
Gul; túrmerik er sett í pottinn
með eggjunum.
Brún, sjóðið hýði af nokkrum
laukum í potti í 10 mínútur og
setjið svo eggin út í og sjóðið
þau í vatninu.
AF hverju heitir næsta vika
dymbilvika? Af hverju eru
páskaeggin ómissandi hluti
af páskahátíðinni? Þessum
spurningum og mörgum
fleiri er svarað á vef Náms-
gagnastofnunar þar sem for-
eldrar og börn geta vafrað
saman. Vefurinn er öllum op-
inn og undir hnappnum Í
dagsins önn er m.a. að finna
fróðleik um páskana.
Svörin við fyrrnefndum
spurningum eru ekki beint
stutt og laggóð heldur í
formi pistla þar sem saga
páskanna er sögð, atburða-
rás dymbilvikunnar rakin og
greint frá ýmsum útskýr-
ingum á nafngiftinni. Höf-
undur pistlanna er Sigurður
Ægisson.
Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannsson segir einnig frá
reynslu sinni af því að búa í
Jerúsalem.
Deyfðu ljósin og
hringdu ekki klukkum
Um dymbilviku segir m.a.
á vef Námsgagnastofnunar:
„Úr vöndu er að ráða þegar
leita á skýringa á þessari
nafngift, dymbilviku. Senni-
legast er talið að hún sé
dregin af einhverju áhaldi,
sem kallað var dymbill og
notað í kaþólskum sið við
guðsþjónustur, undir lok sjö-
viknaföstu, enda finnast hlut-
ir með þessu heiti í upptaln-
ingu kirkjugripa í mál-
dögum. Þessi dymbil-orð
þekkjast einnig í gömlum
norskum og sænskum text-
um, og í hjaltlensku, en eiga
sér enga einhlíta hliðstæðu í
öðrum málum. Í umræddri
viku deyfðu menn öll ljós og
hringdu ekki klukkum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fróðleik-
ur um
páskana
VEFUR
„ÞVÍ yngri, sem unglingar eru þegar
þeir hefja neyslu áfengis og því
meira magn sem þeir drekka, því
meir skaðast heili þeirra, sem getur
síðan haft í för með sér vitræna
skerðingu. Heilinn er ekki fullþrosk-
aður fyrr en um 20 ára aldur og
taugaeituráhrif alkóhóls eru mun al-
varlegri á heila sem er í mótun held-
ur en á heila sem náð hefur fullum
þroska. Mestu skemmdirnar verða
þegar mikið magn áfengis er drukkið
á stuttum tíma eins og gerist í fyll-
iríisdrykkju,“ segir Sólveig Jóns-
dóttir, sérfræðingur í klínískri tauga-
sálfræði barna á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi, um niðurstöður úr
bandarískum rannsóknum, þar sem
heili unglinga var skannaður og
skoðað hvernig og hvaða svæði hans
hefðu orðið fyrir skemmdum vegna
áfengisdrykkju. „Viss svæði í heila
þeirra unglinga sem drekka, eru
greinilega minni heldur en í þeim
sem ekki drekka.“
Standa sig ekki eins
vel á minnisprófum
Sólveig segir áfengi hafa bein áhrif
á myndun og starfsemi taugafrumna
og skaði mest tvö svæði í heilanum,
sæhestinn (hippocampus) og fram-
heila (prefrontal cortex). „Sæhest-
urinn er ákaflega mikilvægur fyrir
allt nám og minni. Rannsóknir með
segulómun hafa sýnt að sæhesturinn
í unglingum, sem drekka mikið
áfengi, er mun minni, heldur en í
unglingum, sem drekka ekki. Rann-
sóknir hafa líka sýnt að unglingar
sem drekka standa sig mun ver á
ýmsum minnisprófum heldur en þeir
sem drekka ekki.“ Sólveig segir að
mikil áfengisneysla ungs fólks skaði
einnig stöðvar fremst í framheil-
anum, sem liggja undir enninu.
„Þessar stöðvar hafa verið kallaðar
stjórnunarstöðvar heilans og eru
mikilvægar fyrir hegðunarstjórnun,
ákvarðanatöku, dómgreind og mótun
persónuleikans.“
Þunglyndi og sjálfsvíg
Heilaskaði sem verður vegna
áfengisneyslu á unglingsárum, er
óafturkræfur og af því má ljóst vera
hversu miklu máli það skiptir að ung-
menni drekki sem minnst fram að
tvítugu. Auk þess hafa rannsóknir
sýnt að unglingar sem drekka eru í
meiri hættu en þeir sem ekki drekka
með að verða þunglyndir og árásar-
hneigðir, þeir hafa frekar sjálfsvígs-
hugsanir og eiga oftar í félagslegum
vanda og þjást oftar af svefntrufl-
unum. Því yngra sem fólk er þegar
það hefur áfengisneyslu, því meiri
líkur eru á því að það verði háð áfengi
síðar á ævinni, og ætti það að vera
enn ein ástæða fyrir ungt fólk til að
halda sig frá drykkju sem allra
lengst.
Áfengisdrykkja fyrir tvítugt
skaðar heila ungs fólks
Reuters
Sláandi munur er á vissum svæðum í heila tveggja 15 ára unglinga, sá til
vinstri drekkur ekki áfengi en sá til hægri notar áfengi ótæpilega.
HEILSA
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
www.alcoholpolicymd.com
Áfengisdrykkja skaðar minnisstöðvar í heilanum, stöðvar fremst í fram-
heilanum sem eru mikilvægar fyrir hegðunarstjórnun, ákvarðanatöku,
dómgreind og mótun persónuleikans.
MATUR
Morgunblaðið/Arnaldur
Það er til dæmis hægt að lita eggin með því að setja í vatnið rauðrófubita,
túrmerik eða hýði af nokkrum laukum.
Páskaegg geta verið
margvísleg, því þótt sæl-
gætisfyllt súkkulaðiegg
séu okkur Íslendingum
hvað best kunn er sinn
siðurinn í landi hverju.
Heiða Björg Hilmisdóttir
setur litrík hænuegg á
páskaborðið.
Litrík egg á páskaborðið