Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FYRIR skömmu barst í bréfalúgu
fyrirtækis míns, Portus ehf. sem
rekur m.a. vefverslunina Portus.is,
bréf frá Microsoft Íslandi. Bréfið var
þess efnis að ég gæti
átt þess von að hingað
kæmu fulltrúar hags-
munasamtaka hugbún-
aðargeirans (Business
Software Alliance) og
riðu húsum í leit að illa
fengnum hugbúnaði.
Ég efast ekki um að
framkvæmdastjóri
Microsoft Ísland, herra
Elvar Þorkelsson, hef-
ur eingöngu gott í
hyggju þegar hann
varar mann við að
brjóta á hugbúnað-
arrisunum. Ekki var þó
ljóst hvort hann væri að vara við lög-
broti því hann tekur enga afstöðu
með því hvort sú notkun hugbúnaðar
sem um ræðir sé beinlínis ólögleg á
Íslandi. Hinsvegar talar hann um
notkun ólöglegs hugbúnaðar. Hygg
ég að hér sé á ferðinni hugtakarugl-
ingur og að það sem Elvar Þorkels-
son meini í raun og veru sé ann-
aðhvort ólögleg notkun hugbúnaðar
eða notkun á hugbúnaði sem er á
einhvern hátt fenginn með ólögleg-
um hætti.
Það hlýjaði vissulega mínu litla
fyrirtæki um hjartarætur að sjá að
jafnstórt og voldugt alþjóðafyr-
irtæki og sjálft Microsoft sýndi því
áhuga. En hlýjan breyttist í norðan
30m/s þegar ég tók eftir því að und-
irskrift Elvars er ljósrituð á bréfs-
efnið.
Því sendi ég honum opið svar, til
að gjalda honum ópersónulegheitin.
„Kæri Elvar.
Þakka þér kærlega fyrir skemmti-
legt bréf. Vissulega hlýtur ólögleg
afritun hugbúnaðar til endursölu að
vera öllum framleiðendum hugbún-
aðar mikið áhyggjuefni. Þetta er
augljóst hagsmunamál og algjörlega
andstætt vestrænu viðskiptasiðferði.
Hinsvegar get ég ekki verið sann-
færður um að afritun hugbúnaðar til
heimilis- og einkanota sé endilega af
hinu slæma fyrir framleiðendur, né
heldur not lítilla fyrirtækja á hug-
búnaði sem ekki hafa
verið fengin leyfi fyrir.
Ég tel að snjóboltaá-
hrifin sem slík hafi
beinlínis átt stóran þátt
í að stuðla að sterkri
stöðu margra hugbún-
aðarfyrirtækja og þá
sérstaklega Microsoft.
Þetta er kenning sem
þið ættuð að þekkja
nokkuð vel. Útbreiðsla
Windows 95 á sínum
tíma hefði líklega verið
mun slakari en raun
bar vitni ef allir hefðu
greitt fullt verð. Micro-
soft Office hefur rutt allri samkeppni
úr vegi sökum stærðar sinnar og út-
breiðslu. Þó að ekki hafi verið greitt
fyrir hvert notað eintak er ég viss
um að það tekjutap sem af því hlaust
hafi skilað sér margfalt til baka síðar
sökum útbreiðslunnar sem margir
hafa verið dæmdir fyrir. Þeir hefðu
betur fengið laun frá ykkur.
Hinsvegar er það eindregin af-
staða mín og míns fyrirtækis að not-
ast eingöngu við hugbúnað sem
stenst okkar gæða-, öryggis- og
verðkröfur. Hugbúnaður frá Micro-
soft hefur átt afar erfitt með að upp-
fylla a.m.k. tvær þessara krafna. Ör-
yggismálin hafa verið í algjörum
lamasessi síðustu ár og þó að vissu-
lega hafi orðið talsverðar framfarir
hafa þær bara komið allt of seint fyr-
ir marga.
Annar hlutur sem við setjum
spurningamerki við er einok-
unartilburðir Microsoft. Þegar þetta
bréf er skrifað var að berast frétt
þess efnis að Microsoft beiti endur-
söluaðila samansettra tölva þrýst-
ingi til að selja ekki tölvur án stýri-
kerfis frá Microsoft, vegna þess að
með því væru endursöluaðilar að ýta
undir lögbrot. Þessar fréttir eru því
miður allt of tíðar og ber að taka al-
varlega. Skemmst er að minnast
þess hvernig Microsoft gerði, í krafti
fjármagns, útaf við BeOS stýrikerfið
með mjög tvíræðum hætti.
Allir eftirlitsmenn eru velkomnir
til að skoða hugbúnaðarmál Portus
ehf. Við vitum ekki betur en að á
okkar tölvum keyri eingöngu hug-
búnaður sem gefinn er út með GPL,
GNU eða svipuðum leyfum. Stýri-
kerfið sem við notum er GNU/Linux
að nafni Fedora Core sem er sam-
starfsverkefni Red Hat og hins opna
hugbúnaðarsamfélags. Ritillinn sem
notaður er til að rita þetta bréf heitir
OpenOffice.org og er ókeypis í víð-
asta skilningi þess orðs.
En auðvitað er það skylda hvers
stórfyrirtækis að gæta hagsmuna
sinna og tel ég það af hinu góða að
þið upplýsið fólk og fyrirtæki um af-
stöðu ykkar, alþjóðlegra hagsmuna-
samtaka og stjórnvalda í Bandaríkj-
unum gagnvart dreifingu
hugbúnaðar.
Þó að vissulega séu einhverjir sem
túlki bréf þitt sem hótunarbréf skilj-
um við hjá Portus ehf. meiningu þína
mjög vel og tökum þessu öllu með
stóískri ró.
Andsvör eru vel þegin.
Með bestu kveðju,
Drengur Óla Þorsteinsson,
eigandi Portus ehf.“
Opið bréf til framkvæmda-
stjóra Microsoft Íslandi
Drengur Óla Þorsteinsson
skrifar um eftirlit Microsoft
með hugbúnaðarnotkun ’Það hlýjaði vissulegamínu litla fyrirtæki um
hjartarætur að sjá að
jafnstórt og voldugt al-
þjóðafyrirtæki og sjálft
Microsoft sýndi því
áhuga.‘
Drengur Óla
Þorsteinsson
Höfundur rekur hljómtækjaverslun.
FYRIR nokkru var haldin mikil
íslenzk listahátíð í Þýzkalandi, þar
sem a.m.k. 2.000 manns sóttu opn-
unarhátíðina.
Geir H. Haarde utanríkisráðherra
var þar m.a viðstaddur.
Í viðtali við Mbl. sagði hann það
koma sér mest á óvart hinn mikli
áhugi Þjóðverja á Íslandi. Því er
vert að taka heilshugar
undir leiðara Morg-
unblaðsins 22. nóv. sl.
Þess efnis að ,,utanrík-
isráðherra hefur upp-
lifað í Þýzkalandi þann
veruleika, sem við hef-
ur blasað í marga ára-
tugi og raunar lengur.
Þjóðverjar og aðrar
þýzkumælandi þjóðir
finna til mikilla og ná-
inna tengsla við okkur
Íslendinga, menningu
okkar og náttúru lands
okkar.
Sennilega er engin
þjóð í heimi, sem sýnir Íslandi for-
tíðar og nútíðar jafnmikinn áhuga og
Þjóðverjar“.
Stóraukum samskiptin
Þá er ennfremur vert að taka und-
ir leiðara Mbl. um að ,,þann áhuga
eigum við að endurgjalda með því að
stórauka samskipti okkar við Þjóð-
verja og leggja aukna áherzlu á að
kenna þýzku í skólum og halda fram
þýzkri menningu. Þjóðverjar eru ein
voldugasta þjóð í heimi. Þótt þeir
hafi átt við ákveðinn efnahagsvanda
að stríða um nokkurt skeið er það
tímabundinn vandi, sem þeir eiga
eftir að ná tökum á“. Mörg af mestu
stórvirkjum þýzkrar menningar á
síðari öldum vísa einmitt til forn-
menningar okkar. Þetta vita Þjóð-
verjar, og er því ein helsta skýring á
þeirra mikla áhuga á íslenzkri sögu
og menningu. Þýzk-íslenzkri vin-
áttu.
Ísland, Evrópa og varnarmál
Ísland er Evrópuþjóð. Við eigum
fyrst og fremst mikið undir sterkum
og góðum samskiptum
við þjóðir Evrópu.
Þýzkaland er eitt af
þremur til fjórum öfl-
ugustu efnahags-
veldum heims, og eitt
af þeim fremstu hvað
hernaðarmátt varðar.
Auk þess er Þýzkaland
sterkasta ríkið innan
Evrópusambandsins.
Þar sem Ísland hefur
réttilega ákveðið að
standa utan ESB eru
sterk og öflug tengsl
við Þýzkaland lykil-
atriðið varðandi okkar
hagsmuni þar. Í títtnefdum leiðara
Mbl. segir ennfremur að ,,við eigum
jafnvel í vissum erfiðleikum með að
fá Bandaríkjamenn til þess að
standa við skuldbindingar sínar við
okkur í öryggismálum. Meðal ann-
ars af þeim ástæðum er ástæða til
þess fyrir okkur að auka pólitísk
samskipti okkar við Þjóðverja. Við
þurfum á öflugum bandamanni að
halda í Evrópu, sem við getum leitað
til, þegar við þurfum á að halda.
Þjóðverjar skilja Íslendinga betur
en flestir aðrir“.
Í ljósi þess að samskipti okkar við
Bandaríkjamenn í varnar- og örygg-
ismálum dvína nú ört þurfum við á
öflugum bandamanni að halda í Evr-
ópu eins og fram kemur í leiðara
Mbl. Á grundvelli aldargamallar
vináttu Þjóðverja og Íslendinga
hljótum við nú að horfa til þeirra í
þeim efnum.
Þá ber okkur enn frekar að efla
öryggissamvinnu við frændþjóðir
okkar Norðmenn og Dani á N-
Atlantshafi. Sömuleiðis við vinaþjóð
okkar Rússa. Íslenzku landhelg-
isgæzluna þarf verulega að efla svo
hún verði í stakk búin að yfirtaka
starfsemi Bandaríkjamanna á Kefla-
víkurflugvelli. Við þá yfirtöku hljót-
um við að fá verulegan stuðning frá
NATO.
Leyfum Bandaríkjamönnum að
fara! Það er reyndar líka þeirra ósk
og vilji. – Íslendingar eru sjálfstæð
og fullvalda þjóð. Þess vegna eigum
við nú að taka fullan þátt í varnar- og
öryggismálum okkar, eins og sjálf-
stæðri og fullvalda þjóð sæmir.
Þýzkaland
Guðmundur Jónas Kristjánsson
fjallar um varnarmál ’Íslendingar eru sjálf-stæð og fullvalda þjóð.
Þess vegna eigum við nú
að taka fullan þátt
í varnar- og öryggis-
málum okkar, eins og
sjálfstæðri og fullvalda
þjóð sæmir.‘
Guðmundur Jónas
Kristjánsson
Höfundur er bókhaldari.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing stjórnenda
gjörgæsludeilda Landspítala – há-
skólasjúkrahúss vegna frétta um
meðferð sjúklinga í öndunarvélum.
Undir yfirlýsinguna skrifa Alma
D. Möller, yfirlæknir gjörgæslu-
deildar LSH við Hringbraut, Mari-
anne Hólm Bjarnadóttir, deildar-
stjóri gjörgæsludeildar LSH við
Hringbraut, Kristinn Sigvaldason,
yfirlæknir gjörgæsludeildar LSH í
Fossvogi, Margrét Ásgeirsdóttir,
deildarstjóri gjörgæsludeildar
LSH í Fossvogi og Gísli H. Sig-
urðsson, prófessor í svæfinga- og
gjörgæslulækningum.
„Í kvöldfréttum á RÚV hinn 5.4.
og í Morgunblaðinu 6.4. er haft
eftir hjúkrunarfræðingi að sjúk-
lingum sé haldið sofandi í önd-
unarvélum á gjörgæsludeildum
LSH lengur en eðlilegt getur talist
vegna skorts á hjúkrunarfræðing-
um. Mikilvægt er að leiðrétta þann
misskilning sem þessi fullyrðing
veldur. Það er ástand sjúklings
sem ræður öllu um hvenær sjúk-
lingur er vakinn og öndunarvél-
armeðferð hætt. Þá þarf hjúkr-
unarfræðingur að vera stöðugt hjá
sjúklingi og læknir að vera til taks
en á báðum gjörgæsludeildunum
eru sérfræðilæknar og deildar-
læknar á vakt á staðnum allan sól-
arhringinn alla daga ársins.
Á gjörgæsludeildum LSH við
Hringbraut og í Fossvogi liggja
sjúklingar sem af ýmsum orsökum
þurfa meðferð í öndunarvél. Til að
gera erfið veikindi og öndunarvél-
armeðferð auðveldari fyrir sjúk-
lingana eru þeim oftast gefin
verkjalyf og slævandi lyf og þeir
„svæfðir“ eða „slævðir“ að því
marki sem þarf í hverju tilviki.
Þegar sjúklingurinn er farinn að
ná bata og hann þarf minna magn
súrefnis og stuðnings frá öndunar-
vélinni er létt á svæfingu/slævingu
og slanga sem liggur í barka sjúk-
lingsins og tengir hann við önd-
unarvélina fjarlægð. Þetta er gert
eftir nákvæmt læknisfræðilegt mat
og þarfnast góðs undirbúnings.
Fyrst eftir að barkaslangan og
öndunarvélin eru fjarlægð er
fylgst sérstaklega vel með sjúk-
lingnum. Öndunarvélin er fjarlægð
þegar sjúklingur er vel vaknaður,
hvíldur og rannsóknarniðurstöður
liggja fyrir. Þannig ræður ástand
og hagsmunir sjúklings fyrst og
fremst hvenær hann er tekinn úr
öndunarvélinni en ekki hvaða viku-
dagur er.
Óvenju mikið álag hefur verið á
starfsfólki gjörgæsludeildanna
tveggja að undanförnu vegna mik-
ils fjölda bráðveikra og slasaðra
sjúklinga en ekki er vitað til
neinna tilvika þar sem sjúklingi
hefur farnast verr af þeim sökum
enda hafa stjórnendur deildanna
lagt sig fram um að stýra álaginu
að því marki sem unnt er. Þurft
hefur að grípa til þess neyðarúr-
ræðis að fresta ráðlögðum, stórum
skurðaðgerðum þar sem þarf gjör-
gæslumeðferð á eftir og öryggi
sjúklings er ekki ógnað vegna
frestunar.
Stjórnendum spítalans hefur
fyrir nokkru verið gerð grein fyrir
því álagi sem ríkt hefur og í sam-
ráði við þá er unnið að ráðstöf-
unum til að bregðast við með tilliti
til bættrar mönnunar og húsa-
kosts. Þetta á einkum við um gjör-
gæsludeildina við Hringbraut.
Við undirrituð viljum þakka
starfsfólki gjörgæsludeildanna fyr-
ir frábærlega vel unnin störf og
bindum vonir við það að úr álaginu
dragi sem fyrst. Við viljum full-
vissa sjúklinga og aðstandendur
um að fagleg meðferð og öryggi
sjúklinga er leiðarljós lækna og
hjúkrunarfræðinga gjörgæslu-
deildanna.“
Yfirlýsing
stjórnenda gjör-
gæsludeilda LSH
Hafnarfjörður | Bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar og sendiherra Þýska-
lands á Íslandi undirrituðu á þriðju-
dag samning þess efnis að
Hafnarfjarðarbær hýsi þýska bóka-
safnið fyrir Goethe-Zentrum á Ís-
landi. Mun safnið í framtíðinni
verða sérdeild innan Bókasafns
Hafnarfjarðar.
Starfsmenn Bókasafns Hafn-
arfjarðar hafa þegar hafist handa
við að skrá barnabækur úr safninu í
Gegni. Lögð verður mikil áhersla á
að reyna að koma safnkosti Goethe-
Zentrum eins fljótt og mögulegt er
í Gegni svo safnkosturinn verði öll-
um aðgengilegur á netinu. Starfs-
menn Bókasafns Hafnarfjarðar
munu taka á móti öllum sem áhuga
hafa á að nýta sér safnkostinn á
opnunartíma bókasafnsins og auk
þess veita upplýsingar frá 8 til 10 í
síma eða þar til bókasafnið er opn-
að virka daga.
Morgunblaðið/Ásdís
Oddný G. Sverrisdóttir og Lúðvík Geirsson fagna hinum nýgerða samningi
um fóstur Bókasafns Hafnarfjarðar á bókasafni Goethe Zentrum.
Þýska bókasafnið
heim í Hansabæinn
FRÉTTIR