Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 33
UMRÆÐAN
EIGN CHEP
CHEP bretti og gámar (CHEP búnaður) eru og
verða ætið einkaeign CHEP UK Limited eða eins
af tengdum fyrirtækjum þess (CHEP). Aðeins
CHEP, leigutakar CHEP búnaðar og viðkomandi
umboðsaðilar CHEP hafa lögmætan rétt til að
nota CHEP búnað.
Ólögmætt er að kaupa eða breyta CHEP
búnaði eða skipta á honum fyrir aðra tegund
búnaðar, selja eða losa sig við hann á annan
hátt.
Eignaupptaka í leyfisleysi, notkun eða sala
á CHEP búnaði er stranglega bönnuð.
Vinsamlegast hafið samband í síma 568-5000
eða fax 568-5002 til að láta sækja CHEP búnað.
ÞAÐ skiptir miklu máli fyrir Suð-
urland allt og landið í heild að vel
takist til um næsta stóra skrefið í
endurbótum á samgöngum milli
lands og Eyja, en leiðin milli lands
og Eyja hefur alltaf verið sérmál í
samgöngum þar sem farþegafjöldi
er um 200 þúsund á ári. Um langt
árabil hafa Vestmannaeyjar verið
með fjölsóttustu ferðamannastöðum
á Íslandi, ein öflugasta verstöð
landsins í heila öld og ein af helstu
dyrum Íslands til Evrópu í sigl-
ingum. Þeir þrír valkostir sem nú
eiga að vera til skoðunar þegar nú-
verandi Herjólfur er kominn á tíma,
skipta allir mjög miklu máli og það
eru miklir hagsmunir í húfi fyrir allt
Suðurland með tilliti til atvinnusköp-
unar og ferðaþjónustu, nýr Herj-
ólfur sem engin úttekt hefur reynd-
ar verið gerð á og þó sérstaklega
möguleikarnir sem myndu valda
byltingu á Suðurlandi austan Þjórs-
ár, þ.e. jarðgöng milli lands og Eyja
eða bygging ferjuhafnar á Bakka-
fjöru.
Aðgengilegustu byggingar-
svæði landsins í Suðurkjördæmi
Það er engin spurning að mati
undirritaðra að jarðgöng sömu gerð-
ar og Hvalfjarðargöng myndu gefa
mesta og dýrmætasta möguleika
fyrir margs konar framfarir og upp-
byggingu á Suðurlandi og úti í Eyj-
um, en ferjuhöfn á Bakkafjöru er
kostur númer tvö í ljósi þess að
hann gefur ekki færi á aðgengi að
stórskipahöfn eins og jarðgöng
myndu gera milliliðalaust fyrir tvær
einu hafnlausu sýslur landsins,
Rangárvallasýslu og Vestur-
Skaftafellssýslu, auk þess að stytta
siglingaleiðina milli Íslands og Evr-
ópu um tæpan sólarhring. Undirrit-
aðir leggja áherslu á að aðgengileg-
ustu byggingarsvæði Íslands í
náinni framtíð eru í Suðurkjördæmi,
frá Suðurnesjum, inn í Árnessýslu, í
Rangárvallasýslu og austur úr.
Allir kostirnir eru
framkvæmanlegir
50 ára reynsla er af Herjólfi milli
lands og Eyja, en þröskuldurinn er
löng og erfið siglingaleið. Þess
vegna er lykilatriði að kanna til hlít-
ar hvaða möguleikar og kostnaður
liggur í gerð jarðganga eða ferju-
hafnar á Bakkafjöru með 20 mín-
útna akstursleið eða innan við 30
mín. siglingaleið. Reikna má með að
nýr Herjólfur myndi kosta um 25
milljarða króna á 30 ára tímabili og
gert er ráð fyrir þeim peningum í
vegaáætlun þannig að talsvert svig-
rúm er til þess að kanna aðra kosti
án þess að raska nokkrum áætl-
unum í samgöngumálum annars
staðar á landinu um árabil. Ef sam-
gönguleiðin milli lands og Eyja ligg-
ur um Rangárvallasýslu skapast al-
veg nýjar víddir í möguleikum á
svæðinu. Allir kostirnir eru fram-
kvæmanlegir, nýr Herjólfur á
grunni reynslunnar, jarðgöng að
mati yfirlýstrar niðurstöðu Vega-
gerðarinnar og allra sérfræðinga
sem hafa unnið að málinu og sama
er að segja um Bakkafjöruhöfn að
mati Siglingastofnunar sem hefur
hingað til unnið metnaðarfyllst og
markvissast að könnun þess val-
kostar sem næst þeim stendur. Sér-
fræðingum ber ekki saman um
kostnað við gerð jarðganga, en mun-
urinn er svo mikill og svo síbreyti-
legur af hálfu opinberra aðila að
ekkert annað en rannsóknir geta
skorið þar úr. Það er slíkur himinn
og haf á milli kostnaðaráætlana og
hugmynda sérfræðinga að hjá því
verður ekki komist að kanna málið
ítarlega og m.a. ræða við alla sem
hafa sett fram hugmyndir í málinu,
ekki síst vegna þess að þeir sem
hafa eytt mestum tíma í málið eru
með lægstu kostnaðaráætlanirnar.
Sérstaða jarðgangagerðarinnar mið-
að við hina valkostina er sú að jarð-
göngin afskrifast á ákveðnu árabili
og miðað við kostnaðaráætlun eins
stærsta verktakafyrirtækis á Norð-
urlöndum, ættu göngin auðveldlega
að geta afskrifast á 30 árum á með-
an hinir valkostirnir spinna báðir
framhaldandi kostnað.
Það verður að gera ófrávíkjanlega
kröfu um það að lokið verði nauð-
synlegum rannsóknum á jarðganga-
möguleikunum milli lands og Eyja
með kjarnaborun og frekari berg-
málsmælingum á jarðgangaleiðinni
frá Eyjum að Krossi í Landeyjum.
Mælingar sem kosta um 20–30 millj-
ónir króna miðað við það að tekinn
sé af vafinn um gerð berglaganna..
Það er ekki hægt að bjóða Sunn-
lendingum upp á annað en að sam-
gönguráðherra tryggi að Vegagerðin
ljúki þeim rannsóknum sem hún er
byrjuð á, allt annað mun þýða enda-
lausar vangaveltur og tortryggni í
framtíðinni og Sunnlendingar vilja
ekki vera metnir eins og annars
flokks þegnar á Íslandi, því nið-
urstöður í samgöngum eiga að
byggjast á óyggjandi rökum, en
ekki spádómum.
Ljúka verður rannsóknum vegna
jarðganga milli lands og Eyja
Árni Johnsen, Sveinn Pálsson
og Þorgils Torfi Jónsson skrifa
um samgöngubætur fyrir Suð-
urland og Vestmannaeyjar
’… jarðgöng sömu gerðar og Hvalfjarð-
argöng myndu gefa
mesta og dýrmætasta
möguleika fyrir margs
konar framfarir og upp-
byggingu á Suðurlandi
og úti í Eyjum, en ferju-
höfn á Bakkafjöru er
kostur númer tvö …‘
Höfundar eru stjórmálamenn úr röðum
sunnlenskra sjálfstæðismanna.
Sveinn PálssonÁrni Johnsen Þorgils Torfi Jónsson