Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 35
UMRÆÐAN
Smáauglýsingar Morgunblaðsins og mbl.is eru ódýr og þægilegur viðskiptavettvangur með
óþrjótandi möguleika. Hvort sem þú vilt selja eitthvað eða kaupa þá eru smáauglýsingarnar
hagkvæmasta lausnin.
Ókeypis á smáauglýsingar
Ef þú kaupir smáauglýsingu í Morgunblaðinu birtist hún ókeypis á mbl.is.
- ódýrari í Morgunblaðinu!
Sjáð
u m
ögu
leik
ana
l i l i l.i il i i
j i l i . il lj i l i
l i .
ypis smáauglýsingar á
- ódýrari í Morgunblaðinu!
BARNAHÁTÍÐ í Reykjavík var
yfirskrift tillögu sem við sjálfstæð-
ismenn lögðum fram í borgarstjórn
4. apríl síðastliðinn. Hátíðin á að
vera sniðin að börnum, örva sköp-
unargleði þeirra og bjóða þeim
uppá þroskandi og góða skemmtun.
Barnaborgin
Reykjavík er yndisleg borg og
hefur á mörgum sviðum tekið fram-
förum á undanförnum árum. Mörg-
um finnst þó sem betur mætti gera
í
málefnum fjölskyldunnar. Barnahá-
tíð er liður í þeirri stefnu
Sjálfstæðisflokksins að beina sjón-
um að yngstu Reykvíkingunum.
Hvernig sjá þau borgina okkar?
Hvernig getur verið enn betra að
alast upp í Reykjavík? Hvernig lít-
ur borgin út úr rúmlega eins metra
hæð? Þessum spurningum og
fjöldamörgum öðrum verður gaman
að svara á jákvæðan og upp-
byggilegan hátt á Barnahátíð í
Reykjavík.
Ótal útfærslur á árlegri Barnahá-
tíð í Reykjavík má hugsa sér.
Fjöldi erlendra skemmtikrafta og
listamanna sérhæfir sig í að
skemmta börnum. Því skyldum við
ekki kalla slíka aðila til landsins,
rétt einsog við fáum hingað heims-
fræga skemmtikrafta til að
skemmta fullorðnum? Skólar borg-
arinnar geta líka tekið virkan þátt,
og leitað yrði samstarfs við þá. Hin-
ar framúrskarandi menningarstofn-
anir borgarinnar ættu líka að
leggja sitt lóð á vogarskálar. Leitað
yrði eftir því að Listasafn Reykja-
víkur héldi myndlistarsýningu fyrir
börn með myndum eftir bæði börn
og fullorðna. Borgarbókasafnið,
sem alltaf hefur sinnt börnum ákaf-
lega vel, er vel í stakk búið til að
taka þátt í hátíð af þessum toga.
Sama má segja um Borgarleikhúsið
þar sem setja mætti saman barna-
dagskrá. Minjasafn Reykjavíkur
hefur boðið upp á skemmtilega og
fróðlega dagskrá fyrir börn og
þannig mætti áfram telja. Þegar
allt þetta kemur saman undir ein-
um hatti, auk fjölda annarra uppá-
koma frá innlendum og erlendum
listamönnum og skemmtikröftum,
ætti okkur að takast að bjóða börn-
unum okkar upp á ógleymanlega
daga eða vikur í borginni. Hjá
Listahátíð í Reykjavík liggur mikil
sérhæfing og þekking á hátíðum af
þessum toga, sem leitast yrði við að
nýta sem allra best.
Afgreiðslan
Tillaga okkar sjálfstæðismanna
var því miður ekki samþykkt í
borgarstjórn, en í henni tókum við
sérstaklega fram að fyrsta hátíðin
skyldi haldin sumarið 2007. Málið
fer nú til umfjöllunar í menningar-
og ferðamálaráði og íþrótta- og
tómstundaráði og vonandi verður
henni tekið vel. Þá fáum við öll að
rækta barnið í okkur eftir rúmt ár,
og bjóða börnum okkar uppá jafn-
glæsilega skemmtun og við bjóðum
sjálfum okkur uppá.
Barnahátíð í Reykjavík
Gísli Marteinn Baldursson
skrifar um tillögu
sjálfstæðismanna um
Barnahátíð í Reykjavík
’Hvernig lítur borgin útúr rúmlega eins metra
hæð? Þessum spurn-
ingum og fjöldamörgum
öðrum verður gaman að
svara á jákvæðan og upp-
byggilegan hátt á
Barnahátíð í Reykjavík.‘
Gísli Marteinn
Baldursson
Höfundur er í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.
Hlíðasmára 11, Kóp.
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar
Fréttir í
tölvupósti