Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Sölumaður óskast
Traust og öflug fasteignasala óskar eftir sölu-
mönnum nú þegar.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl. eða í box@mbl.is merktar:
„Sölumaður — 18395“.
„Au pair“ í Þýskalandi
Íslensk fjölskylda óskar eftir reglusamri og
barngóðri stúlku, 18 ára eða eldri, til að gæta
½ árs drengs, aðst. 2 bræður, 3 og 6 ára og
annast létt heimilisstörf. Umsókn sendist til:
vilma@mmedia.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Konur til forystu!
Ágætu Kópavogsbúar, opið hús verður laug-
ardaginn 8. apríl 2006 milli kl. 10 og 12 í Hlíða-
smára 19. Allir velkomnir.
Dagskrá:
Ragnheiður K. Guðmundsdóttir
BA í stjórnmálafræði/MBA,
markaðsstjóri Stika ehf. og
frambjóðandi á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Kópavogi fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar,
fjallar um forystuhlutverk kvenna í stjórnmál-
um.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Gránugötu
4-6, Siglufirði miðvikudaginn 12. apríl 2006 kl. 13.50 á eftir-
farandi eignum:
Lækjargata 8, 01-0101, fastanr. 213-0751, þingl. eig. Gjafakot-Eikin
ehf., gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf., sýslumaðurinn á Siglufirði
og Tollstjóraembættið.
Norðurgata 11, 0102, fastanr. 213-0788, þingl. eig. Aðalbjörn Rögn-
valdsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf.
Suðurgata 28, fastanr. 213-0874, þingl. eig. Haraldur Björnsson
og Ólafía I S Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
6. apríl 2006.
Guðgeir Eyjólfsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ránargata 2a, Seyðisfirði, fastnr. 216-8725 með öllum rekstrartækjum
sem tilheyra þeim rekstri, þingl. eig. Stjörnublástur ehf., gerðarbeið-
andi Byggðastofnun, þriðjudaginn 11. apríl 2006 kl. 10:00.
Steinholt 16, fastanr.217-2074, Vopnafirði, þingl. eig. Sigurbjörg
Árný Björnsdóttir og Vigfús Davíðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalána-
sjóður, miðvikudaginn 12. apríl 2006 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
6. apríl 2006.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hlíðarbær 8, fnr. 226-2405, Hvalfjarðarstrandarhreppi, þingl. eig.
Anna María Jónsdóttir og Jón Benjamínsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki FBA hf. og Sparisjóður Mýrasýslu,
þriðjudaginn 11. apríl 2006 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
5. apríl 2006.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Til sölu
363 fermetra
iðnaðarhúsnæði
til sölu á Blönduósi
Til sölu er fasteignin Ægisbraut 1, Blönduósi,
sem er 363 fermetra iðnaðarhúsnæði úr stáli
frá árinu 1981. Hentar vel fyrir margvíslega
starfsemi. Góð staðsetning.
Fjölmargar fleiri eignir til sölu auglýstar á
vefsíðunni www.logso.net.
Höfum kaupendur að eignum víða um
norðvestanvert landið.
Lögmannsstofa Stefáns Ólafssonar ehf.,
Blönduósi, s. 452 4030.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Víkurás 1, 010301, Reykjavík, þingl. eig. Gústaf H. G. Þorsteinsson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 11. apríl
2006 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
6. apríl 2006.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur
Þórhallur Heimisson erindi
og kynnir bók sína um: „Hin
mörgu andlit trúarbragðanna“
og spjallar um hana í húsi félags-
ins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús á milli
15 og 17 með fræðslu kl. 15.30
í umsjá Halldórs Haraldssonar:
„Spjall um Vedanta“.
Á fimmtudögum kl. 16.30-18.30
er bókaþjónustan opin með
miklu úrvali andlegra bókmennta.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 186478½ Bi.
Frábær heimsókn frá
Vineyard í Gautaborg.
Matthias Martinson lofgjörð-
arleiðtogi og pastor leiðir lof-
gjörð og predikar.
Unglingasamkoma í kvöld kl.
20.00 í safnaðarheimili Grens-
áskirkju.
Öll samkoman fer fram á
íslensku og ensku.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
www.vineyard.is
„Keyrðum frá LA til Vegas og vorum tvær nætur þar, þessi borg er náttúrulega rugl.
Í einu spilavítanna rákumst við á hasarhetjuna Chuck Norris. Danni óð upp að
honum og kallaði:“You rule, Chuck fokking Norris. „Chuck dauðbrá og hraðaði sér í
burtu.“
Blog.is
Heimssýn fundar
um evruna
HEIMSSÝN, hreyfing sjálfstæð-
issinna í Evrópumálum, boðar til al-
menns fundar um evruna, íslensku
krónuna og stöðu efnahagsmála
innan Evrópusambandsins í sal
Norræna hússins á morgun, laug-
ardaginn 8. apríl kl. 14.30.
Illugi Gunnarsson hagfræðingur
og Bjarni Már Gylfason, hagfræð-
ingur frá Samtökum iðnaðarins,
flytja inngangsorð og taka síðan
þátt í pallborðsumræðum ásamt
þeim Katrínu Júlíusdóttur, þing-
manni Samfylkingarinnar, Stein-
grími J. Sigfússyni, formanni
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, og Tryggva Þór Her-
bertssyni, prófessor í hagfræði við
Háskóla Íslands. Fundurinn er öll-
um opinn.
KOSNINGASKRIFSTOFA Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
fyrir komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar í Hafnarfirði verður opnuð að
Strandgötu 24 (pósthúsinu) á morg-
un, laugardaginn 8. apríl, kl. 16.
Boðið verður upp á skemmtiatriði
og veitingar og rætt verður um bar-
áttumál Vinstri grænna í komandi
sveitarstjórnarkosningum.
Kosningaskrifstofan verður opin
fram að kosningum alla daga kl.
16–18.
Kosningamiðstöð
VG í Hafnarfirði
KÖFUNARDAGURINN 2006 verð-
ur haldinn á morgun, laugardaginn
8. apríl, kl. 10–17, í Sundhöll
Reykjavíkur við Barónsstíg.
Vanir kennarar og leiðbeinendur
munu aðstoða fólk við köfun.
Krakkar yngri en 18 ára verða að
koma með skriflegt leyfi foreldra
eða forráðamanna. Litlir krakkar
fá einnig að prufa köfun undir eft-
irliti, í grunnu lauginni.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur
fyrir fullorðna og 1.200 krónur.
fyrir börn.
Nánari upplýsingar eru á
www.kofun.is
Köfunardagurinn í
Sundhöll Reykjavíkur
Áhyggjur vegna
ástands á dvalar-
og hjúkrunar-
heimilum
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni lýsir yfir þungum
áhyggjum vegna þess ástands sem
upp er komið á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum aldraðra.
„Félag eldri borgara telur það al-
gjörlega óviðunandi að stjórnvöld
skuli ekki bregðast strax við þessu
ófremdarástandi sem stafar af óvið-
unandi launakjörum starfsfólks á
stofnunum fyrir aldraða.
Félag eldri borgara lýsir yfir
stuðningi við launabaráttu ófag-
lærðra starfsmanna og skorar á
stjórnvöld að koma til móts við
kröfur starfsfólksins strax og leysa
þennan alvarlega vanda sem nú er
uppi.“
Nýr tónlistarskóli
og verslun
HLJÓMAR og List, nýr tónlist-
arskóli og verslun með hljóðfæri,
hefur opnað í Skipholti 29A Reykja-
vík. Síðastliðin 5 ár hefur Hljómar
og List ehf. átt samstarf við tónlist-
arkennara við að þróa og hanna
strengjahljóðfæri. Fyrirtækið hef-
ur áunnið sér rétt til dreifingar á
hljóðfærum í Skandinavíu, og er
m.a.umboðsaðili Jan Pawlikowscy.
Hljómar og List lætur nú einnig
framleiða fyrir sig hljóðfæri undir
eigin nafni.
Boðið er upp á námskeið bæði
tveggja vikna og lengra nám og
hefjast þau nú í apríl og er kennt
bæði frá grunnstigi og upp á há-
skólastig. Kennslugreinar eru: óp-
erusöngur, fiðla, suzuki fiðla, selló,
kontrabassi og píanó.
Kennarar skólans eru m.a. Alina
Dubik messósópran, Ewa Tosik
fiðluleikari og Páll Hannesson
kontrabassaleikari.
Þuríður Helga píanóleikari spilar
með í samspili.
Innritun er hafin.
FRÉTTIR