Morgunblaðið - 07.04.2006, Síða 54
54 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÉR MUN STANDA
AF HLÁTRI!
www.xy.is
Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!!
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6 og 8
Date Movie kl. 10 B.i. 14 ára
N ý t t í b í ó
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Ice Age 2 m/ensku tali í Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 4, 6 og 8
Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Big Momma´s House 2 kl.3.40, 5.45, 8 og 10.15
Pink Panther kl. 3.50 og 10.10
Ein stærsta opnun
allra tíma í USA !
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
„FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN...
OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ THM Sýnd með íslensku og ensku tali
eee
LIB, Topp5.is
FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“
2 af 6
Hvað segirðu gott?
Ekkert sérstakt, því miður. Ég er rúmliggjandi með
40 stiga hita, vítiskenndan höfuðverk og hálsbólgu af
verstu gerð.
Hvað dreymdi þig í nótt? (Spurt af síðasta aðals-
manni, Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur)
Mig dreymdi viðmótsþýðan hest, mann í loftbelg og
reipi. Ég man hins vegar ekki alveg hvernig þessi fyr-
irbæri tengdust innbyrðis.
Kanntu þjóðsönginn?
Nei, og ég hyggst ekki læra hann.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Ég tók þátt í verkefni á vegum Hins hússins í Grikk-
landi síðasta sumar. Ákaflega skemmtilegt fólk sem þar
býr og ökumenning þeirra verður að teljast rannsókn-
arefni. Það sem stendur þó upp úr er líklega að hafa
kennt Þjóðverjum, Grikkjum og Lettum að dansa Stuð-
mannadansinn í hátíðarsal í bænum Argos, við Kastor-
iavatn.
Uppáhaldsmaturinn?
Nautalundir sem mamma eldar af mikilli íþrótt. Glóð-
arsteiktur hrægammur fylgir þar fast á hæla.
Bragðbesti skyndibitinn?
Veitingahúsið Miltað á hug minn allan þessa dagana.
Besti barinn?
Ég hef ekki nægilegt vit á íslenskri drykkjumenningu
til að geta svarað þessari spurningu. Ég hef ekki einu
sinni aldur til að stíga fæti inn á slíka menningarstofnun
þegar út í það er farið.
Hvaða bók lastu síðast?
Ég er að lesa Bréf til Láru og finnst hún stórkostleg.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Nemendasýningu skólans míns, MH, sem ber nafnið
Íslenski
fjölskyldusirkúsinn. Sýningin er í einu orði sagt frá-
bær.
En kvikmynd?
München og fannst hún mjög áhugaverð.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Steely Dan-plöturnar. Þær eru hver annarri betri. Svo
hlusta ég líka mikið á Jeff Beck og Pink Floyd þessa dag-
ana.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Rás 2. Aðrar stöðvar beinlínis fyrirlít ég.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Ég bara horfi eiginlega ekkert á sjónvarp.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru-
leikaþætti í sjónvarpi?
Það efa ég stórlega.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Ja, hingað til hef ég kosið venjulegar á sjálfan mig en
hver veit nema breyting verði gerð á því.
Helstu kostir þínir?
Ég er allavega skipulagður í hugsun.
En gallar?
Ég er mjög óþolinmóður maður með stuttan kveiki-
þráð og ég er ekki skipulagður í verki.
Besta líkamsræktin?
Fótbolti úti á velli í góðra vina hópi.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Eitthvað drasl bara.
Ertu með bloggsíðu?
Nei, en ég er með veftímarit. www.dindill.is
Pantar þú þér vörur á netinu?
Ekki enn. Langar samt mikið að kaupa mér notaðan
skriðdreka.
Flugvöllinn burt?
Já, burt með hann.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda okkar?
Hvar endar þetta líf?
Íslenskur aðall | Halldór Ásgeirsson
Vill kaupa notaðan skriðdreka
Aðalsmaður vikunnar lék ásamt
Furstaskyttunni í úrslitum Músík-
tilrauna, auk þess sem hann keppti
til úrslita í Morfís og hreppti titilinn
ræðumaður Íslands. Líka sigraði
hann í Örleikritasamkeppni fram-
haldsskólanna í síðustu viku.
Morgunblaðið/Eyþór
„Mig dreymdi viðmótsþýðan hest, mann í loftbelg og
reipi,“ segir Halldór Ásgeirsson.
SVOKALLAÐIR Manchester-
tónleikar verða haldnir í Laug-
ardalshöll laugardaginn 6. maí
næstkomandi. Á tónleikunum
koma fram nokkrir fulltrúar Man-
chestersvæðisins, tónlistarmað-
urinn Badly Drawn Boy og hljóm-
sveitirnar Elbow og Echo and the
Bunnymen. Þá hyggjast hinar ís-
lensku Trabant, Benni Hemm
Hemm og Foreign Monkeys einn-
ig troða upp en sú síðastnefnda
vann Músíktilraunir á dögunum.
Það er Icelandair sem stendur að
baki tónleikunum en flugfélagið
er með þeim að kynna nýja flug-
leið á milli Íslands og Manchester
á Englandi.
Miðasala á tónleikana hefst í
dag og geta 14 heppnir unnið ferð
til Manchester og fá þeir lánsömu
tilkynningu um vinninginn um
leið og þeir hafa lokið við að
kaupa. Miðasala fer fram í versl-
unum Skífunnar og BT um allt
land. Miðaverð í stæði er 2.600
krónur en 3.700 í stúku. Miða-
gjald er innifalið.
Tónlist | Fjórtán heppnir tónleika-
gestir vinna farseðla til Englands
Echo and the Bunnymen verða í Höllinni 6. maí.
Miðasala á Manchester-
tónleika hefst