Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRISAMBÍÓ KEFLAVÍK
BYGGÐ Á ÓTRÚLEGUM SÖNNUM ATBURÐUM
F R U M S Ý N I N G
WOLF CREEK kl. 8 - 10 bi 16 ára
LASSIE kl. 6
EIGHT BELOW kl. 5:45 - 8
BASIC INST. 2 kl. 10:15 bi 16 ára
Ísöld 2 kl. 6 - 8
Basic Instinct 2 kl. 10 B.i. 16 ára
Date movie kl. 10 B.i. 14 ára
Pink Panther kl. 6 - 8
Ein magnaðasta
kvikmyndaupplifun ársins.
FRELSI AÐ EILÍFU !
eee
- VJV topp5.is
eee
- SV mbl
eeee
- S.K. - DV
eeee
- S.U.S. - XFM 91,9
eeeee
- V.J.V. - TOPP5.IS
eeee
- KVIKMYNDIR.IS
eeee
- A.B. Blaðið
Sharon Stone
er í banastuði
eins og í fyrri
myndinni.
eeeee
Dóri Dna / Dv
Frá höfundi „Traffic“
Fyrir besta
aukahlutverk
karla
George Clooney.
Ógleymanlegar persónur í mynd sem er svo töff, skemmtileg og
alveg drepfyndin. Pierce Brosnan hefur aldrei verið betri.
Basic Instinct 2 kl. 6 og 9 b.i. 16 ára
V for Vendetta kl. 6 - 8 og 10 b.i. 16 ára
The Matador kl. 6 - 8 og 10 b.i. 16 ára
Blóðbönd kl. 6 og 8
Syriana kl. 10 b.i. 16 ára
Lassie kl. 6
ÁHEYRNARPRUFUR fyrir raun-
veruleikaþáttinn Rock Star – Sup-
ernova fóru fram á Gauki á Stöng
í fyrradag. Fjöldinn allur af
þekktum og óþekktum tónlistar-
mönnum var mættur til að freista
gæfunnar og voru þeir bestu kall-
aðir til aukaprufu í gær. Þeirra á
meðal var Jenna úr Brain Police
boðið að koma aftur en ekki fylgir
það sögunni hvernig honum gekk í
seinni prufunni.
Sjöfn Ólafsdóttir á Skjá einum
segir að vel á annað hundrað
manns hafi mætt á miðvikudaginn
til að spreyta sig fyrir framan
vökul augu og eyru útsendara
raunveruleikaþáttarins en eins og
sást í Kastljósinu var Dean
Houser, annar dómaranna, ánægð-
ur með frammistöðu Íslending-
anna. Hversu ánægður kemur í
ljós síðar en eins og Heiða Idol-
stjarna sagði svo réttilega: „Það
tapar enginn á því að mæta á
Gaukinn og syngja.“
Tónlist | Á annað hundrað manns í áheyrnarprufur fyrir Rock Star – Supernova
Allir vinna eitthvað
Menn tóku misjafnlega á taugtitringnum fyrir áheyrnarprufurnar.
Jó Jó lét sig að sjálfsögðu ekki vanta enda vanur maður á tónlistarsviðinu.
Hreimur úr Landi og sonum var mættur í áheyrnarprufu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Menn gáfu sig alla í flutninginn eins og sést á þessari mynd.
Villi Goði og Magni æfðu gítargripin áður en röðin kom að þeim.
Lesendur kvennatímaritsins NewWoman kusu á dögunum feg-
urstu konu allra tíma og hreppti
Audrey heitin Hepburn þann glæsi-
lega titil. Eldri fegurðardísir eru
greinilega ofar í huga lesenda en
þær ungu, því Sophia Loren, Grace
Kelly og Marilyn Monroe hlutu fleiri
atkvæði en Jennifer Lopez og Vic-
toria Beckham.
Nokkrar frá seinni hluta 20. aldar
komust þó í efstu tíu sætin, þeirra á
meðal fyrirsætan fyrrverandi Cindy
Crawford í þriðja sæti og leikkonan
Angelina Jolie í því sjötta. Topp 100
listann yfir fallegustu konur heims
er hægt að skoða í heild sinni á
Fólksvef mbl.is.
Fólk folk@mbl.is
Hljómsveitin Original Melodysendi í gær frá sér sína fyrstu
plötu sem ber nafnið Fantastic
Four. Platan hefur nú þegar fengið
viðurnefnið „lengsta hip-hop plata
Íslands“ en á henni eru 26 lög sem
slaga upp í á annan klukkutíma að
lengd. Hljómsveitina skipa fjórir
ungir menn; Ívar Schram, Helgi
Pétur Lárusson, Ragnar T. Hall-
grímsson og Þór Elíasson en sveitin
sjálf var stofnuð fyrir fimm árum.
Útgáfutónleikar verða haldnir í
kvöld í Stúdentakjallaranum en þar
kemur Original Melody fram ásamt
Llama, Kroníka og DJ S.T.E.F.