Morgunblaðið - 26.04.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 112. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Fasteignasalan Miðborg
auglýsir í blaðinu í dag
Stráhattur frá
stríðsárunum
Myndar alla kvenkyns afkomendur
með gamla hattinn Daglegt líf
Úr verinu og Íþróttir í dag
Úr verinu | Humrinum mokað upp Sambúð lista, fólks og fisks
Fiskverð hækkar Íþróttir | Þróttur Íslandsmeistari kvenna í blaki
Þórey Edda keppir ekki í sumar Lehmann bjargaði Arsenal
AFLEIÐINGAR hlaupsins í Skaftá
fyrir ásýnd Vatnajökuls eru hrika-
legar. Myndast hefur sigketill í
jöklinum sem er um tveir og hálfur
til þrír km í þvermál þar sem vatnið
hefur hlaupið fram úr svonefndum
eystri katli, en þetta er eitt stærsta
hlaup sem vitað er um. | 4
Morgunblaðið/RAX
Eitt stærsta hlaupið
HÓPUR íslenskra og erlendra vís-
indamanna m.a. frá Bandarísku
geimferðastofnuninni NASA, und-
irbýr nú rannsóknir á Skaftárkötlum
í leiðangri sem farinn verður sam-
hliða vorferð Jöklarannsóknafélags-
ins í byrjun júní. Aðild NASA teng-
ist rannsóknum á Mars.
Tekinn verður borkjarni úr vest-
ari Skaftárkatli til að safna sýnum til
jarð- og örverufræðilegra greininga.
Settir verða niður skynjarar, sem
senda gögn um hita og þrýsting á
botni stöðuvatnsins undir Skaft-
árjökli og er vonast til að þau nýtist
til að auka skilning á eðli Skaftár-
hlaupa. Afkoma safnsvæðisins verð-
ur mæld með snjóborunum og áfok
rannsakað með rykmælingum snjó-
kjarnanna, auk mælinga á ísskriði
inn að jöklunum. Að sögn Þorsteins
Þorsteinssonar, rannsóknarstjóra
verkefnisins, hefur nýr bræðslubor
verið smíðaður á vegum Vatnamæl-
inga Orkustofnunar sem á að fara
niður á 400 metra dýpi í jöklinum.
Er líf undir íshellunni?
„Einn þáttur verkefnisins verður
sá að bora snjókjarna á safnsvæði
ketilsins til þess að greina áfok ryks
frá hálendinu á þessu svæði. Þetta
verkefni tengist því jöklafræði, jarð-
efnafræði og vatnafræði og ekki síst
örverufræði og hvort möguleikar
séu á að líf geti þrifist undir 400
metra þykkum jöklinum,“ segir Þor-
steinn. „Íslenskir örverufræðingar
koma að þessum þætti rannsókn-
arinnar, frá Prokaria og Umhverf-
isstofnun, og svo erum við í sam-
starfi við vísindamenn á vegum
NASA sem hafa mikinn áhuga á því
hvort frumstætt líf geti þrifist undir
ísþekju á Mars eða Júpíterstunglinu
Evrópu þar sem talið er að sé haf
undir 20 km þykkri íshellu. Þessi
áhugi tengist mjög þeirri framtíð-
arsýn að einhvern tíma verði borað í
gegnum jökla á þessum hnöttum og
sýni úr þeim rannsökuð.“
Með NASA inn að
Skaftárkötlum
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur og
Örlyg Stein Sigurjónsson
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, tilkynnti í gær á fundi sam-
taka um endurnýjanlega orku í
Washington, að hafin væri rannsókn
á verðlagningu á olíu á bensínstöðv-
um landsins. Þá lýsti forsetinn því
yfir að hætt yrði í nokkra mánuði að
safna olíubirgðum fyrir Bandaríkja-
her, en markmið aðgerðanna er að
hafa hemil á síhækkandi olíuverði.
„Eitt af því sem við getum gert
þegar í stað til að sýna fólki að okkur
sé alvara með því að auka framboð [á
olíu] er að hætta tímabundið að safna
birgðum til hernaðarnota,“ sagði
Bush í gær. „Birgðir hersins eru
nægjanlegar til að vernda okkur
gegn umtalsverðri röskun [á fram-
boði á olíu] á næstu mánuðum.“
Tilkynningin kemur í kjölfarið á
vaxandi þrýstingi á stjórnina í Wash-
ington, en búist er við að olíuverð
verði enn hátt þegar landsmenn
leggjast í ferðalög í sumar.
Áhersla á
endurnýjanlega orku
Bush fjallaði einnig um endurnýj-
anlega orkugjafa um leið og hann
kynnti margvíslegar aðgerðir til að
draga úr olíuverði, þ.m.t. aukna olíu-
vinnslu innan-
lands og þróun á
sviði endurnýjan-
legra orkugjafa.
Þá sagði forset-
inn að bandarísk
samkeppnisyfir-
völd væru að
rannsaka hvort
„verði á eldsneyti
hefði verið hag-
rætt óeðlilega
með einhverjum hætti“. Af sama til-
efni hefur Alberto Gonzales dóms-
málaráðherra hvatt 50 ríki landsins
til að fylgjast með verðlagningu á ol-
íu.
Að auki taldi Bush að olíuverð
varðaði þjóðaröryggi landsins og það
endurspeglaði hversu Bandaríkja-
menn væru háðir olíu. Vakti hann
sérstaka athygli á að nú kæmu 60
prósent af þeirri olíu, sem notuð væri
á ári í landinu, frá löndum utan
Bandaríkjanna, miðað við um 25 pró-
sent fyrir 20 árum.
Olíuverð á mörkuðum lækkaði lít-
illega eftir tilkynningu forsetans og
endaði í 72,88 dollurum fatið í New
York og í 73,21 dollara í London.
Vill rannsaka olíuverð
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
George W. Bush
flytur ávarp sitt.
Dregið úr birgðum Bandaríkjahers til að auka framboð