Morgunblaðið - 26.04.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 19
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Reykjanesbær | Þó að verkefninu
Lestrarmenning í Reykjanesbæ sé
formlega lokið sem þróunarverkefni
verður haldið áfram með það starf
sem gefist hefur vel. Á næstunni
verður lögð áhersla á að ná til nýrra
Íslendinga og foreldra sem sjálf eiga
við lestrarörðugleika að etja.
Lestrarmenning í Reykjanesbæ
hófst sem þriggja ára þróunarverk-
efni 23. apríl 2003 og síðastliðinn
sunnudag, á degi bókarinnar, voru
árin þrjú liðin. Haldið var upp á þau
tímamót á Bókasafni Reykjanes-
bæjar og kom þar fram í máli Eiríks
Hermannssonar, fræðslustjóra
Reykjanesbæjar, að verkefninu væri
hvergi lokið, það væri komið til að
vera.
Samstarfsaðilum Fræðsluskrif-
stofu við framkvæmd verkefnisins,
leik- og grunnskólum bæjarins,
bókasafni og Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja voru við athöfnina af-
hent veggspjöld með lestrarhvetj-
andi slagorðum til að prýða veggi
stofnana á næstunni. Í framhaldi
mun verkefnishópur leggja sérstaka
áherslu á nýja Íslendinga.
Árangur er að nást
Á þeim þremur árum sem þróun-
arverkefnið hefur staðið yfir hafa
ýmsar leiðir verið farnar til að ná til
almennings og fyrirtækja. Áhersla
hefur þó verið lögð á að efla mál-
þroska og málskilning barna í leik-
og grunnskólum, að efla lestrar-
kennslu almennt og ýta undir ynd-
islestur og áhuga á lestri og bók-
menntum.
Eiríkur Hermannsson fræðslu-
stjóri sagði í hófinu á bókasafninu að
ekki væri auðvelt að svara hverju
Lestrarmenning í Reykjanesbæ
hefði áorkað á þremur árum en hins
vegar hafi mælingar gefið til kynna
að talsverður árangur sé að nást,
einkum með yngsta markhópinn,
bæði hvað málþroska og læsi varðar.
„Verkefnið okkar var skilgreint sem
þriggja ára verkefni og ætti sam-
kvæmt því að vera lokið nú. En svo
er þó ekki. Verkefnið er komið til að
vera,“ sagði Eiríkur og kynnti í
framhaldi mörg af þeim verkefnum
sem unnin hafa verið á tímabilinu.
Á næstu mánuðum hefur verið
ákveðið að leggja áherslu á að ná til
nýrra Íslendinga, innflytjenda og
þeirra foreldra sem eiga sjálf við
lestrarerfiðleika að stríða og telja
sig þurfa frekari aðstoðar við til þess
að geta stutt börn sín. Verkefn-
ishópur hefur verið myndaður til að
halda utan um áframhaldandi lestr-
armenningarstarf, en hann er skip-
aður Eiríki Hermannssyni frá
fræðslusviði, Huldu Björk Þorkels-
dóttur frá menningar-, íþrótta- og
tómstundasviði og Kristbjörgu
Leifsdóttur frá félagsmálasviði.
Meðal verkefna hópsins er að at-
huga með útgáfu á hljóðbókum fyrir
foreldra af erlendum uppruna eða
með lestrarerfiðleika og að koma á
fót farandbókasafni í leikskólum
bæjarins. Þar munu foreldrar geta
fengið bækur að láni, m.a. áður-
nefndar hljóðbækur.
Áhersla lögð á
nýja Íslendinga
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Lestrarhvetjandi veggspjöld Eiríkur Hermannsson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, var glaður í bragði þegar
hann hóf útdeilingu á lestrarhvetjandi veggspjöldum. Jón Oddur Guðmundsson hannaði veggspjöldin.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Svartholið, nýr
hjólabretta- og línuskautagarður,
verður opnaður í vélasal 88 hússins
við Hafnargötu næstkomandi föstu-
dag.
Opnun fer fram við dagskrá sem
hefst klukkan 19. Um kvöldið fer
fram hæfileikakeppni Fjörheima og
88 hússins. Um klukkan 20 verður
Svartholið opnað og er tekið fram
að öllum sé velkomið að spreyta sig
á nýju pöllunum.
Þá verða tónleikar þar sem fram
koma New Start New Secret,
Jenny’s Dream, 2 leikmenn og
Kapteinn Hafsteinn og áhöfnin.
Hjólabretta-
garðurinn
Svartholið
opnaður