Morgunblaðið - 05.05.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 11
FRÉTTIR
Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Bologna
á Ítalíu 17. maí. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1.
Gríptu tækifærið og skelltu þér til Ítalíu á einstökum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Ítalíu
17. maí
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v.
2 fyrir 1 tilboð 17. maí. Netverð á mann.
ÍSLENSK erfðagreining hefur náð sérstöku sam-
komulagi við bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) um
fyrirkomulag á svonefndum þriðja og síðasta fasa
lyfjaprófana á tilraunalyfinu DG031 sem beint er
gegn hjartaáföllum.
Samkvæmt upplýsingum ÍE felur samkomulagið
í sér að verði niðurstöður prófananna jákvæðar hef-
ur lyfjaeftirlitið fyrirfram fallist á að markmið,
hönnun og greining á niðurstöðum þeirra fullnægi
kröfum fyrir markaðsskráningu á lyfinu.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, lýsir mikilli ánægju
með að hafa náð þessu samkomulagi við bandaríska
lyfjaeftirlitið. „Sú nálgun okkar að nota erfðaupp-
lýsingar til grundvallar þátttöku eykur bæði lík-
urnar á jákvæðum niðurstöðum og auðveldar okkur
að fá markaðsleyfi fyrir lyfið, verði niðurstöður
prófananna jákvæðar. Við höfum þegar framleitt
yfir þrjár milljónir taflna af lyfinu og samið við
fjölda heilbrigðisstofnana og sérhæfðra verktaka-
fyrirtækja á þessu sviði um framkvæmd prófan-
anna,“ segir Kári Stefánsson.
3.000 hjartasjúklingar
taka þátt í prófunum
Um 3.000 hjartasjúklingar munu taka þátt í próf-
unum víðs vegar um Bandaríkin. Þeim verður beint
að hópi sem er í mestri hættu á að fá hjartaáfall
vegna fráviks í því lífefnaferli sem lyfið hefur áhrif
á. Þátttakendur munu taka 500 mg af lyfinu eða lyf-
leysu tvisvar á dag. Kannað verður hvort færri
hjartaáföll, heilablóðföll, innlagnir vegna hjarta-
kveisu eða bráðrar kransæðavíkkunar verði meðal
þeirra sem taka lyfið en þeirra sem fá lyfleysu.
Lengd lyfjaprófananna mun ráðast af fjölda sjúk-
dómstilfella meðal þátttakenda. Bráðbirgðagrein-
ing verður gerð á niðurstöðum þegar prófanirnar
verða hálfnaðar.
Í frétt frá ÍE kemur fram að umrætt tilraunalyf
dregur úr myndun á bólguvakanum LTB4 sem
erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa
sýnt að gegnir mikilvægu hlutverki í hjartaáföllum.
Tilraunalyfið DG031 var upphaflega þróað af þýska
lyfjafyrirtækinu Bayer við astma en eftir að nið-
urstöður erfðarannsókna leiddu í ljós að það kynni
að gagnast til varnar hjartaáföllum, keypti Íslensk
erfðagreining lyfið. Í öðrum fasa lyfjaprófana sem
lauk hér á landi síðasta haust var sýnt fram á að lyf-
ið þoldist vel og dró úr myndun bólguvakans LTB4.
Samtals hafa um 2.000 manns tekið lyfið í lyfjapróf-
unum Íslenskrar erfðagreiningar og Bayer.
Íslensk erfðagreining nær samkomulagi við bandaríska lyfjaeftirlitið
Fallist á skipulag prófana á
lyfi ÍE við hjartaáföllum
Þegar hafa verið
framleiddar yfir þrjár
milljónir taflna af lyfinu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt karlmann í eins mánaðar
skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðun-
arsemisbrot og brot gegn barna-
verndarlögum með því að hafa sýnt 8
og 9 ára gömlum dætrum fyrrverandi
sambýliskonu sinnar klámmynd.
Maðurinn var hins vegar sýknaður af
ákæru fyrir að hafa beitt stúlkurnar
kynferðislegu ofbeldi þegar hann fór í
bað með þeim. Hann var einnig sýkn-
aður af bótakröfum.
Í dómnum eru skýrslutökur af
stúlkunum gagnrýndar harðlega en
skýrslurnar tók rannsóknarlögreglu-
maður undir stjórn héraðsdómara og
setti á myndband. Eru í dómnum rak-
in orðaskipti spyrils og stúlknanna.
Dómurinn sagði fyrirliggjandi, að
þegar spyrillinn tók skýrslur af stúlk-
unum hafði hann undir höndum
kæruskýrslu móður þeirra, þar sem
atburðum og atburðarás væri lýst á
skýran hátt um annað en ætlaða
klámmyndasýningu. Segir í dómsnið-
urstöðunni að spyrillinn hafi mótað
skýrslugjöf yngri stúlkunnar svo full-
komlega, að ekki aðeins samrýmdist
hún kæruskýrslunni heldur hafi fram
komið að ákærði hefði að baðinu
loknu látið systurnar horfa á klám-
mynd með honum. Ekkert af þessu
hefði komið fram í sjálfstæðri frásögn
telpunnar og atburðarás hefði algjör-
lega verið stjórnað af spyrlinum.
Einkar hlutdræg skýrslutaka
Segir dómurinn að spyrillinn hafi
leitt skýrslutökuna áfram á einkar
hlutdrægan hátt með þeim afleiðing-
um, meðal annars, að stúlkan mátti
aldrei eða átti aldrei að hafa minnstu
efasemdir um framferði og sekt
mannsins. Hafi steininn tekið úr í
þessu samhengi þegar spyrillinn ját-
aði spurningu stúlkunnar um það
hvort lögreglan gæti tekið manninn
fastan og látið hann í fangelsi, „fyrir
það sem hann gerði ykkur, við ykk-
ur“, bætti hann við samkvæmt
skýrslu sem lá fyrir dóminum.
Taldi dómurinn að frásögn stúlkn-
anna væri óljós um atvik í baðkerinu
og var maðurinn sýknaður af þeim
ákærulið.
Frásögn stúlknanna um klám-
myndina var hins vegar talin trúverð-
ug og og var ekki talinn leika skyn-
samlegur vafi á því að atvikið hefði átt
sér stað, þrátt fyrir að sú atburðarás
hefði verið fengin fram af hálfu yngri
stúlkunnar með leiðandi spurningum.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Jónas Jóhannsson sem dómsformað-
ur, Helgi I. Jónsson og Þorgerður Er-
lendsdóttir. Verjandi var Guðrún
Sesselja Arnardóttir hdl. og sækjandi
Hulda Elsa Björgvinsdóttir fyrir
ákæruvaldið.
30 daga fangelsi fyrir að sýna börnum klámmynd
Skýrslutaka í kynferðisbrotamáli
út í hött að mati héraðsdóms
„ÉG fordæmi svona umfjöllun,“ seg-
ir Sigríður Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra um auglýsingu um
jeppaferðir á Íslandi, sem birt var í
nafni Ferðamálaráðs í blaðinu Kaup-
mannahafnarpóstinum. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær er
yfirskrift auglýsingarinnar; „Iceland
– where monster trucks create the
roads“, sem útleggja má sem; Ísland
– þar sem risajeppar ryðja vegina.
Birting auglýsingarinnar hefur nú
verið stöðvuð.
Sigríður Anna segir birtingu af
þessu tagi lýsa miklu ábyrgðarleysi.
„Mér finnst það vera mjög mikið
áhyggjuefni ef menn eru ekki betur
vakandi yfir þessu en raun ber vitni
því að svona á ekki að sjást,“ segir
hún.
Átak gegn utanvegaakstri
Sigríður Anna segir að umhverf-
isráðuneytið hafi með ýmsum hætti
barist gegn akstri utan vega.
„Það var nefnd að störfum sem
skilaði áliti síðastliðið vor um þessi
mál. Reglugerðin um utanvegaakst-
ur var líka endurskoðuð sl. vor. Við
höfum því verið að vinna mikið í
þessum málum og gerðum átak í að
dreifa upplýsing-
um til ferða-
manna, meðal
annars með aug-
lýsingum í bæk-
lingum, blöðum
og sérútgáfum
fyrir ferðafólk.
Við styrktum
einnig átak þar
sem dreift var
upplýsingum í
alla bíla sem komu með Norrænu og
í alla bílaleigubíla. Við höfum haft
mjög miklar áhyggjur af þessu
vegna þess að hér er um vandamál
að ræða sem við verðum að geta náð
tökum á og leyst.“
Sigríður Anna segir að nú sé unnið
að gerð korts af þeim vegum og veg-
arslóðum á landinu sem má aka eftir
svo ferðafólk geti haft tiltækar skýr-
ar upplýsingar um hvar það megi
örugglega aka.
Það eru tvær stofnanir á vegum
umhverfisráðuneytisins, Umhverfis-
stofnun og Landmælingar, sem
vinna að gerð þessa korts í samvinnu
við Vegagerðina. Verður kortið, sem
á að koma út í vor, bæði birt í tölvu-
tæku formi og prentað.
Umhverfisráðherra um utanvegaakstur
Fordæmir jeppa-
auglýsinguna
Sigríður Anna
Þórðardóttir
GÖNGUGARPURINN Jón Eggert
Guðmundsson, sem á morgun,
laugardag, heldur áfram göngu
um strandvegi Íslands heimsótti
Reyni Pétur Ingvason, annan
göngugarp, að Sólheimum í fyrra-
kvöld. Reynir Pétur gekk á sínum
tíma hringinn í kringum landið.
Fóru þeir saman yfir undirbúning
göngunnar og gat Reynir Pétur
gefið Jóni Eggerti ýmis góð ráð.
Auk þeirra er á myndinni Hanný
María Haraldsdóttir unnusta
Reynis.
Göngugarpar báru
saman bækur sínar
ÁTTA sjúklingar hafa gengist und-
ir þræðingu á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi á þessu ári sem
lokar götum milli hjartagátta, en
um er að ræða meðfæddan kvilla.
Þræðingar þessar hófust á sjúkra-
húsinu á síðasta ári og gengust þá
sex sjúklingar undir slíka aðgerð.
Með því að gera aðgerðirnar hér
á landi felst mikið hagræði fyrir
sjúklingana og umtalsverður sparn-
aður við það að þurfa ekki að fara
utan, segir í ársskýrslu LSH.
Götin á gáttaskilvegg eru frá
fæðingu en uppgötvast ekki fyrr en
síðar á lífsleiðinni, oft eftir ein-
hvers konar heilaáfall. Venjulega
lokast götin sjálfkrafa eftir fæð-
ingu, stundum er áfram smá gat
eða himna yfir því. Nauðsynlegt er
að loka þessum götum af ýmsum
ástæðum, segir í skýrslu LSH. Bæði
getur of mikið streymt í gegnum
þau, stundum geta líka farið blóð-
segar frá hægra hjartahelmingi yf-
ir í vinstri blóðrásina og t.d. valdið
heilaáfalli. Í stað þess að setja fólk á
blóðþynningarlyf getur verið betra
að loka gatinu og það er gert með
sérstöku neti.
Götum milli
hjartagátta
lokað á LSH
KAUPTILBOÐ í byggingarrétt fyr-
ir 10 einbýlishús í Úlfarsárdal í
Reykjavík, við Gefjunarbrunn og
Iðunnarbrunn, voru opnuð í gær
eftir að tilboðsfrestur rann út. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Fram-
kvæmdasviði Reykjavíkur bárust
143 tilboð frá 17 bjóðendum í lóð-
irnar.
143 vildu tíu lóðir
STJÓRNIR Vélstjórafélags Íslands
og Félags járniðnaðarmanna hafa
samþykkt að sameina félögin í nýtt
landsfélag með 4000 virka fé-
lagsmenn innan sinna vébanda. Á
meðal fyrstu verkefna nýs félags
verður að finna nýtt nafn á það og
hefur því verið ákveðið að efna til
samkeppni um nýtt nafn. Öllum er
heimilt að taka þátt í samkeppninni
og eru verðlaunin vegleg, eða 150
þúsund krónur. Tillögum skal skil-
að á skrifstofur Vélstjórafélags Ís-
lands eða Félags járniðnaðar-
manna, merkt „Samkeppni um
nafn“ eða í gegnum tölvupóstfang
sem aðgengilegt er á vefsíðum fé-
laganna, og skal tillögum skilað inn
nafnlaust. Dómnefnd, skipuð
fulltrúum félaganna tveggja, mun
síðan fara yfir tillögur og verða
niðurstöður samkeppninnar kynnt-
ar í síðasta lagi á stofnfundi félags-
ins sem haldinn verður í haust.
Leitað að
nýju nafni