Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eintóm
leiðindi?
á morgun
VEIÐAR á kolmunna hafa gengið
mjög vel að undanförnu, en veiðin er
nú inni í færeysku lögsögunni, nánar
tiltekið á Færeyjabanka. Alls hefur
verið tilkynnt um 96.000 tonna afla
íslenzkra skipa samkvæmt upplýs-
ingum Samtaka fiskvinnslustöðva.
Erlend skip hafa landað hér um
39.600 tonnum og því nemur mót-
taka fiskimjölsverksmiðjanna um
135.500 tonnum. Aflinn er nú orðinn
ríflega fjórðungur leyfilegs heildar-
afla sem er 352.600 tonn.
Skip Eskju hafa fiskað vel að und-
anförnu. Í gær var Jón Kjartansson,
áður Hólmaborg, á leið á miðin eftir
að hafa landað um 2.000 tonnum í
heimahöfn. Verið var að landa um
2.000 tonnum úr Aðalsteini Jónssyni
og Guðrún Þorkelsdóttir, áður Jón
Kjartansson, beið löndunar með um
1.500 tonn.
Karl Már Einarsson, útgerðar-
stjóri Eskju, segir að veiðarnar
gangi nú þokkalega. Skipin séu að fá
um 400 tonn í hali eftir 12 til 18 tíma
tog. Það sé mikill munur að þurfa
ekki að sækja þetta lengra en inn í
færeysku lögsöguna, en þegar veið-
arnar hófust var 50 tíma stím á mið-
in, en aðeins sólarhringur nú. Tölu-
vert sé af skipum á kolmunna-
slóðinni nú, mest Rússar og séu
samskiptin við þá erfið.
Afli skipa Eskju er nú orðinn ríf-
lega 30.000 tonn, eða tæplega helm-
ingur aflaheimilda félagsins, sem eru
um 67.000 tonn. Nú byrjaði Guðrún
Þorkelsdóttir veiðar um miðjan febr-
úar, en hin skipin mánuði síðar. Afl-
inn er því miklu meiri nú en á sama
tíma í fyrra, en þá hófust veiðarnar í
byrjun apríl.
Hátt hráefnisverð
Aflinn fer allur í bræðslu og fæst
gott verð fyrir hann eða rúmlega
10.000 krónur fyrir tonnið. Það er
hæsta hráefnisverð í langan tíma,
enda er verð á fiskimjöli í sögulegu
hámarki. Karl Már segir því að af-
koman sé viðunandi, en olíuverð í
hæstu hæðum komi sér afar illa, því
þessi útgerð sé orkufrek.
Ætlunin er að skipin haldi kol-
munnaveiðunum áfram unz kvótinn
næst, en Aðalsteinn Jónsson heldur
þó til veiða á norsk-íslenzku síldinni í
byrjun júní. Af henni er það að frétta
að Færeyingar hafa eitthvað verið að
veiða af henni innan eigin lögsögu,
en hún er mögur enn sem komið er.
Síldarvinnslan með mest
Karl Már segir að fiskimjöls-
verksmiðja Eskju hafi nú tekið á
móti um 32.000 tonnum af kolmunna
til bræðslu, þar af tæpum 2.000
tonnum af færeysku skipi. Sam-
kvæmt upplýsingum SF hefur Síld-
arvinnslan í Neskaupstað tekið
ámóti 34.400 tonnum, Loðnuvinnslan
á Fáskrúðsfirði um 25.500, HB
Grandi er með tæp 19.000 tonn, þar
af 4.400 á Vopnafirði og 14.400 á
Akranesi.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
er með 13.600 tonn, Síldarvinnslan á
Seyðisfirði með 8.000, Ísfélag Vest-
mannaeyja með 5.000 og Síldar-
vinnslan í Helguvík með 2.000 tonn.
SVN er því samtals með um 44.000
tonn.
Veiðar Flaggskip þeirra Eskfirðinga, Aðalsteinn Jónsson, hefur verið að
fiska vel af kolmunna. Hann landaði 2.000 tonnum á Eskifirði í gær.
Kolmunnaaflinn
er að nálgast
100.000 tonn
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
Selja
smábáta
úr landi
„VIÐ erum komnir með um 30 báta
nú þegar og gerum ráð fyrir að fá 40
til 50 báta alls. Það er svolítið af bát-
um til sölu eftir að sóknardagakerfið
lagðist af og töluvert hefur verið gert
af því að sameina kvóta á báta,“ segir
Eggert Sk. Jóhannesson, skipamiðl-
ari hjá Skipamiðluninni Bátar og
kvóti.
Þeir hafa verið að auglýsa eftir 40
til 50 smábátum hér á landi til út-
flutnings. Um er að ræða sænskan
skipamiðlara sem kaupir bátana og
selur síðan aftur bæði í Svíþjóð og
víðar. Þetta eru fyrrverandi fiskibát-
ar, sem eru án veiðiheimilda og
verða þeir í flestum tilfellum notaðir
sem skemmtibátar ytra. Eggert seg-
ir að bátarnir séu mjög mismunandi
að stærð og búnaði og verðið í sam-
ræmi við það, frá nokkur hundruð
þúsund krónum og töluvert hærra
en það. Eggert segir að það séu
margir sem hafi fengið úthlutað það
litlum kvóta að ekki borgi sig fyrir þá
að gera bátana út, jafnvel þótt um
hálfgert sumarhobbí sé að ræða. Því
sé það góður kostur fyrir menn sem
þegar hafa selt kvótann að selja bát-
inn líka. Það fylgi því nokkur kostn-
aður að eiga verkefnalausan bát, eins
og tryggingar, hafnargjöld og fleira.
ÚR VERINU
FERÐASKRIFSTOFAN Heims-
ferðir hefur ákveðið að draga úr
þeirri hækkun sem tók gildi á sum-
arferðum þann 21. apríl. Var þá til-
kynnt 12% hækkun á öllum ferðum,
en í gær var tilkynnt að hækkunin
yrði einungis 9%. Heimsferðir hafna
gagnrýni Neytendasamtakanna og
segja hækkunina löglega.
Tómas J. Gestsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Heimsferða, segir að
þeir sem þegar hafi greitt ferðir sín-
ar með 12% hækkun fá mismuninn
endurgreiddan. Hann segir að fljót-
lega eftir að tilkynnt var 12% hækk-
un á öllum pakkaferðum hafi verið
ákveðið að draga úr hækkuninni
vegna haustferða félagins, og hafi
hún því aðeins verið 6%. Nú hafi svo
gengisbreytingar sem komu hækk-
uninni af stað að einhverju leyti
gengið til baka, og rétt að draga úr
hækkuninni á sumarferðum eins og
hægt sé.
Neytendasamtökin gagnrýndu
hækkun á ferðum sem þegar höfðu
verið keyptar, og sendu m.a. Heims-
ferðum bréf vegna þessa. Vilja sam-
tökin meina að slíkt sé ekki heimilt
nema heimild til slíks sé í samningi
sem gerður sé milli ferðaskrifstofu
og kaupanda pakkaferðarinnar, og
þar verði að koma fram við hvaða
gengi sé miðað þegar upprunalegt
verð er gefið út.
Tómas segir að gagnrýni Neyt-
endasamtakanna sýni takmarkaða
þekkingu á ferðaskrifstofum, þar
gerist hlutir hratt og óframkvæman-
legt að ætla sér að gera skriflegan
samning við alla sem kaupi pakka-
ferðir. Hækkunin og framkvæmd
hennar hafi verið í samræmi við lög
um starfsemi ferðaskrifstofa.
Hins vegar séu gefnir út reikning-
ar með skilmálum, þar sem m.a.
komi fram að ferðaskrifstofan áskilji
sér allan rétt til þess að hækka verð
vegna m.a. gengisbreytinga. Mögu-
legt sé að hætta við kaupin í eina
viku frá því ferðin var greidd, sætti
kaupandinn sig ekki við þá skilmála.
Sumar ferðaskrifstofur gáfu við-
skiptavinum sínum svigrúm til að
greiða upp sínar ferðir áður en
hækkunin tók gildi, en slíkt var ekki
gert hjá Heimsferðum. Tómas segir
að þeir hafi beitt aðferðum sem hafi
verið notaðar hingað til, aðrir hafi
kosið að fara aðrar leiðir. Það sé gott
ef ferðaskrifstofur hafi svigrúm til
þess, en það þýði í raun að þá taki
ferðaskrifstofan á sig gengishækk-
unina. Heimsferðir hafi ekki haft
svigrúm til þess, enda reynt að halda
verðum í lágmarki.
Hækkað í miðri dælingu
Hjá Úrvali-Útsýn hækka allar
pakkaferðir um 10% í dag, en við-
skiptavinir voru látnir vita af fyrir-
huguðum hækkunum og þeim gefinn
kostur á að greiða upp ferðirnar áður
en hækkunin tæki gildi, segir Helgi
Eysteinsson, sölu- og markaðsstjóri
Úrvals-Útsýnar. Helgi segir að við-
skiptavinir hafi tekið gríðarvel í
þetta, og um 75% af útistandandi
kröfum félagsins hafi verið greidd
upp við lokun í gær. Hækkunin bitni
því á litlum hluta viðskiptavina.
„Við mátum stöðuna þannig að
það að hækka verð á ferðum án
nokkurs fyrirvara væri eins og að
hækka verðið á bensínlítranum í
miðri dælingu,“ segir Helgi.
Gunnar Fjalar Helgason, einn eig-
enda Sumarferða, segir að verð á
ferðum verði hækkað um 10-15%, en
þeir sem hafi samband fyrir vikulok-
in og greiði ferð sína, eða semji um
vaxtalausar greiðslur á næstu mán-
uðum, lendi ekki í hækkun. Jafnvel
þeir sem það geri ekki hafi þegar
greitt 50% af verði ferðarinnar, og
því hækkunin fyrir þá aðeins 5-7,5%
af heildarverði.
Hann segir þó að yfir 90% þeirra
sem þegar hafi keypt ferðir séu þeg-
ar búin að ganga frá greiðslum, og
hækkunin nái því ekki til þeirra.
Hækkunin komi því nær eingöngu
við þá viðskiptavini sem hafi ákveðið
að kaupa sér pakkaferðir eftir að
hún tók gildi.
„Okkur fannst það heiðarlegra af
okkur að gefa fólki tækifæri til að
greiða ferðirnar sínar upp áður en
við hækkuðum,“ segir Gunnar.
Heimsferðir draga úr áður ákveðinni hækkun á sumarferðum
Segja hækkun á verði
á sumarferðum löglega
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
FERÐASKRIFSTOFUR eru í fullum rétti að breyta verði vegna geng-
ishækkana, enda er það tekið fram í alferðaskilmálum Samtaka ferða-
þjónustunnar, sem eru hluti af þeim gögnum sem viðskiptavinir ferða-
skrifstofa fá í hendur að heimilt sé að hækka
verð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar, sem samtökin senda
frá sér í tilefni af umfjöllun Neytendasamtak-
ana um verðbreytingar ferðaskrifstofa vegna
gengishækkana.
Eitt þeirra skilyrða sem tekið er fram í al-
ferðaskilmálunum er breytingar á gengi ís-
lensku krónunnar frá því að ferð var auglýst.
Segir í tilkynningunni að nú hafi orðið veru-
legar breytingar á gengi krónunnar, gengislækkun hennar gagnvart
evrunni nemi um 30% frá því sumarbæklingar voru gefnir út í janúar
þar til um miðjan apríl.
Því sé ljóst að ferðaskrifstofur séu einungis að nýta heimild í lögum
sem sett sé þar sérstaklega vegna þeirrar aðstöðu sem leiðir af því að
ferðir eru seldar með margra mánaða fyrirvara. Hafi ferð verið greidd
að fullu komi hins vegar ekki til hækkunar.
Tekið fram að hækka
megi verð í skilmálum