Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 21
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Djúpivogur | Ýmislegt er það sem
fuglarnir leggja sér til goggs. Það
sýndi og sannaði þessi silfurmáfur í
flæðarmálinu í Djúpavogshöfn þeg-
ar hann kokgleypti vænan kross-
fisk.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Krossfiskur
í matinn
Neskaupstaður | Framkvæmdir
við nýbyggingu og endurbyggingu
eldri hluta Fjórðungssjúkrahúss-
ins í Neskaupstað (FSN) ganga
vel.
Að sögn Valdimars O. Her-
mannssonar, rekstrarstjóra Heil-
brigðisstofnunar Austurlands/
FSN, eru allir verkþættir ríflega á
áætlun í heild.
„Til dæmis er múrverki innan-
húss nær lokið“ segir Valdimar.
„Þá er byrjað að mála þriðju hæð
og setja upp ofna.Vinna við pípu-
lagnir, raflagnir og loftræstingu er
í góðum gangi en umtalsverðar
breytingar eru gerðar innanhúss á
eldri byggingu sjúkrahússins
ásamt nýbyggingu að norðan-
verðu, sem er alls á fjórum hæð-
um, þar sem verður m.a. nýr inn-
gangur og anddyri, lyftuhús,
setustofur og fundaherbergi.“
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Ný- og endurbyggt
Framkvæmdir við
Fjórðungssjúkrahúsið
í Neskaupstað ganga vel.
Framkvæmdir ganga vel
hjá Fjórðungssjúkrahúsinu
Vesterålen í heimsókn | 16
manna sendinefnd frá Vesterålen í
Norður-Noregi hefur verið á ferð-
inni á Austurlandi undanfarna daga.
Kom hún að tilhlutan ferðamálaráðs
Vesterålen, Markaðsstofu Austur-
lands og Menningarráðs Austur-
lands og auk almennrar kynningar á
Austurlandi horfa menn til þess
hvernig megi nýta söfn og menning-
arviðburði betur í tengslum við nátt-
úruupplifun, til að laða að ferða-
menn.
Vesterålen er eyjaklasi norðan við
Lófóten nyrst í Noregi. Þar hefur
verið hlúð talsvert að menningar-
málum og leitað út á við eftir sam-
starfi. Atvinnuvegir þar eru áþekkir
og á Austurlandi, þar er langt á milli
staða og unga fólkið flytur í burtu og
kemur oft á tíðum ekki aftur. Svæðið
þótti því fýsilegt til samstarfs og
segir Signý Ormarsdóttir, menning-
arfulltrúi Austurlands, að eitt af því
sem menningarsamstarf geti leitt af
sér sé að fá unga fólkið heim til verk-
efna eða veru og sé það einn helsti
tilgangur samstarfsins við Vesterå-
len.
Norðurnorski blaðamaðurinn, rit-
höfundurinn og ljósmyndarinn Alf
Oxem kom með sendinefndinni og
ferðast um fjórðunginn fram á
helgina. Hans hlutverk er að taka
viðtöl og ljósmyndir á Austurlandi
og kynna í fjölmiðlum.
www.vestreg.no/kultur/
www.vol.no
www.oxem.no
Tengslanet innan fiskeldis | Nú
stendur yfir á Egilsstöðum ráðstefn-
an „Innovation and networking in
aquaculture“ á vegum Þróunarfélags
Austurlands og verkefnisstjórnar i2i.
Ráðstefnan fjallar um nýsköpun og
hagnýtingu tengslaneta innan fisk-
eldis. Hún hófst á miðvikudag og lýk-
ur í dag. „Integrate to innovate“ (i2i)
verkefnið er samstarfsverkefni innan
Norðurslóðaáætlunarinnar og unnið
með fagaðilum frá Skotlandi, Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi. Markmið verk-
efnisins er að búa til samskiptavett-
vang fyrir fyrirtæki, háskóla og op-
inberar stofnanir til eflingar á
nýsköpunarstarfi. Verkefnið hófst
formlega í byrjun árs 2005 og stendur
fram til loka árs 2007. Auk fjölmargra
fagaðila frá aðildarlöndunum 5 sem
standa að i2i verkefninu taka mörg af
fremstu fiskeldisfyrirtækjum og
rannsóknarstofnunum innan fiskeldis
þátt í ráðstefnunni.
♦♦♦
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
Grilla›u í kvöld!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fiesta Blue Ember
59.900 kr.
Fiesta Gusto Cabinett
23.900 kr.
Fiesta Gusto 38040
13.900 kr.
G
R
IL
L
I‹
S
E
N
T
HEIM
SAMAN
SE
T
T
O
G
T
IL
B
Ú
I‹
Hjá ESSO fæst úrval gasgrilla á sjó›heitu ver›i. fiú getur
fengi› grillið sent heim án endurgjalds, samansett
og tilbúi› til notkunar. Au›veldara getur fla› ekki
veri›. Grilla›u me› ESSO í sumar!
*Bo›i› er upp á heimsendingu samdægurs á höfu›borgarsvæ›inu.