Morgunblaðið - 05.05.2006, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Til að minnka sykurlöngunina
Króm
Reykjavík | Umhverfissvið Reykja-
víkurborgar hefur fjárfest í fjórum
hjólum til afnota fyrir starfsfólk sitt,
en markmiðið með hjólakaupunum
er að fækka bílferðum vegna styttri
vinnuferða innanbæjar og bæta al-
menna heilsu starfsfólks.
„Undanfarið höfum við hvatt
starfsfólk til að nota hjól í styttri
vinnuferðir innanbæjar,“ segir Ellý
Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstjóri
Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.
„Við höfum notað hjól Vinnuskóla
Reykjavíkur yfir vetrartímann til að
gera þessum samgöngumáta hærra
undir höfði, en nú höfum við keypt
borgarhjól.“
Hjólin eru sprautuð neon-græn og
með slagorðinu „Virkjum okkur!“
Þetta er slagorð vitundarvakningar í
umhverfismálum sem Umhverf-
issvið stendur nú fyrir. Vakningin
hófst með umræðu um samgöngu-
mál, þar sem meðal annars kom
fram að 60% bílferða í Reykjavík eru
innan við þrjá kílómetra. Ellý telur
því kjörið fyrir borgarbúa að nota
hjólin meira. „Hjólin sem við festum
kaup á eru ætluð til notkunar í
vinnu, til að mynda að fara á fundi
eða eftirlit. Við viljum með þessu
sýna gott fordæmi og vonum að
starfsmenn Umhverfissviðs noti
hjólin sem vinnutæki,“ segir Ellý og
bætir við að starfsfólk Umhverf-
issviðs vonist til að þessi breytni geti
verið gott fordæmi fyrir önnur fyr-
irtæki og stofnanir í Reykjavík, því
kjörið sé að nota hjólin til að fara
styttri vegalengdir. „Gaman væri að
fleiri fyrirtæki og stofnanir festu
kaup á hjólum, það er til bóta bæði
fyrir umhverfið og eigin heilsu og
annarra.“
Ellý segir ennfremur að það sé
eitt ráðið til að draga úr svif-
ryksmengun í borginni að hvíla bíl-
inn og nota hjólið. „Hjólunum hefur
verið mjög vel tekið af starfsfólki
Umhverfissviðs, og vonum við að
notkun verði svo góð að við getum
fjárfest í fleirum,“ segir Ellý. „Það
hefur góð áhrif á starfsmenn að
skella sér á hjólið og hjóla á milli
staða, fá sér ferskt loft og hreyfa sig
aðeins.“
Umhverfissvið festir kaup á reiðhjólum til afnota fyrir starfsfólk
Mikilvægt að fækka styttri bílferðum
Umhverfisvæn Starfsmenn umhverfissviðs kunna vel að meta hin nýju neongrænu reiðhjól.
Fræðsla um
fugla og gróður
í Grasagarðinum
Laugardalur | Steinar Björgvinsson,
garðyrkjufræðingur og fugla-
áhugamaður, verður með fræðslu
um fugla og gróður í Grasagarði
Reykjavíkur í Laugardal sunnudag-
inn 7. maí nk. kl. 11. Mun hann þar
ræða um samspil fugla, skordýra og
gróðurs og segja frá því hvernig
hægt er að laða fugla að görðum
með réttu plöntuvali.
Í Grasagarðinum hefur verið
komið fyrir nokkrum varphúsum og
fuglaskálum. Skálarnar eru mót-
aðar í stein og vatn reglulega end-
urnýjað svo að fuglarnir geti gengið
að hreinu vatni. Í lok göngunnar er
boðið upp á te úr piparmintulaufi en
piparmintan er ræktuð í Grasagarð-
inum. Mæting er í lystihúsinu og
fólki bent á að hafa meðferðis fugla-
handbók og sjónauka.
Opið hús
í leikskólum
Efra-Breiðholt | „Opið hús“ verð-
ur í leikskólunum Hraunborg,
Hraunbergi 10, Hólaborg, Suð-
urhólum 19 og Suðurborg, Suð-
urhólum 21 í Efra-Breiðholti á
morgun, laugardag, milli kl. 10 og
12.
Börn og starfsfólk bjóða for-
eldra, aðstandendur, verðandi
nemendur og aðra gesti velkomna
að skoða leikskólana, menningu
þeirra og verkefni barnanna frá
síðasta starfsári.
Allir eru hjartanlega velkomn-
ir, en börn þurfa að vera í fylgd
með fullorðnum.
HILDINGUR, dótturfélag KEA, er
orðinn annar stærsti hluthafi í
Slippnum Akureyri. Hlutafé í félag-
inu hefur verið aukið umtalsvert og
er heildarvirði þess eftir aukningu 90
milljónir króna. Stærsti hluthafinn í
Slippnum Akureyri er Naustatangi
sem er í eigu Málningar, Fjárfesting-
arfélagsins Fjarðar, stjórnenda
Slippsins og fleiri aðila. Naustatangi
á yfir 70% í félaginu en Hildingur er
eigandi 10% hlutafjár.
„Hildingur hefur að markmiði að
fjárfesta í vænlegum fyrirtækjum
þar sem tiltrú er á stjórnendum og
framtíðaráformum,“ segir Bjarni
Hafþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Hildings.
„Slippurinn Akureyri fellur vel að
þessu markmiði með öfluga aðila í
eigendahópnum og við stjórnvölinn.
Unnið er að því að gera starfsemina
fjölbreyttari og við sjáum ekki annað
en þetta fyrirtæki standi vel að vígi í
þeirri þróun sem vænta má hér á
svæðinu á næstu árum. Stórar fram-
kvæmdir eru í farvatninu, svo sem
jarðgangagerð og stóriðja sem
vænta má að hafi afleidd áhrif á
mörgum sviðum,“ segir Bjarni Haf-
þór.
Anton Benjamínsson, fram-
kvæmdastjóri Slippsins Akureyri,
segir innkomu Hildings í hluthafa-
hópinn ánægjulega og styrkja félag-
ið. „Þessi hlutafjáraukning er liður í
því að stækka og efla Slippinn Ak-
ureyri. Að henni standa núverandi
eigendur félagsins auk Hildings, sem
kemur nýr inn í hluthafahópinn.“
Að sögn Antons er Slippurinn Ak-
ureyri að ganga frá samningum um
tvö stór verkefni þessa dagana auk
annarra verkefna. „Útlitið fyrir
næstu mánuði er gott og bendir allt
til þess að verkefnisstaðan verði góð
út árið,“ segir Anton.
Starfsmenn Slippsins Akureyri
eru nú 65 talsins, en síðar í mánuðin-
um bætast við 15. „Síðustu mánuðir
hafa verið rýrir í hinni hefðbundnu
skipaþjónustu, vegna þess að sjávar-
útvegurinn hefur haldið að sér hönd-
um. En við höfum hins vegar náð að
krækja í ágætis landverkefni, sem
hafa verið uppistaðan í starfseminni
síðustu vikur og mánuði. Við höfum
því haldið áætlun þessa fyrstu þrjá
mánuði ársins, þrátt fyrir að minna
hafi verið um skipaþjónustu en alla
jafna. Nú er hins vegar mjög mikið
framundan í skipunum og sumarið
gríðarlega vel bókað og langt fram á
haustið. Við erum því mjög bjartsýn-
ir,“ segir Anton.
Hlutafé aukið í Slippnum
Hildingur verður næststærsti einstaki hluthafinn
Velkominn um borð! Anton Benja-
mínsson, framkvæmdastjóri Slipps-
ins, t.v., og Bjarni Hafþór Helga-
son, framkvæmdastjóri Hildings.
vegna munu myndir af Lilju birtast
á efni á vegum listans áfram í kosn-
ingabaráttunni. Þetta er gert sam-
kvæmt ósk aðstandenda Lilju.
Vinstri græn á Akureyri votta að-
standendum Lilju samúð sína við
fráfall þessarar dugmiklu bar-
áttukonu.
Kosningamiðstöð Vinstri grænna
á Akureyri verður lokuð frá klukk-
an 13 til 17 mánudaginn 8. maí
vegna útfarar Lilju Guðmunds-
dóttur sem fram fer frá Akureyr-
arkirkju klukkan 13.30 þann dag.“
sætið í stað
Emblu Rúnar.
Að öðru leyti
verða ekki gerðar
breytingar á
V-lista Vinstri
grænna á Ak-
ureyri.
Þess má geta
að auglýsingar og
kynningarefni
hefur þegar verið
hannað fyrir Vinstri græn og í sum-
um tilfellum prentað og birt. Þess
LILJA Guðmundsdóttir lést aðfara-
nótt 1. maí sl. Hún skipaði 6. sæti á
lista Vinstri grænna á Akureyri fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar síðar
í mánuðinum. Lilja varð 21 árs.
Í tilkynningu frá VG á Akureyri
kemur fram að þess vegna verði að
gera eftirfarandi breytingar á fram-
boðslistanum:
„Embla Rún Hakadóttir, 19 ára
nemi í MA, mun taka sæti Lilju og
færast upp í 6. sæti listans. Margrét
I. Ríkarðsdóttir, 52 ára þroskaþjálfi
og forstöðumaður, mun skipa 9.
Breyting á framboðslista VG fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
Lilja Guðmundsdóttir er látin
Lilja
Guðmundsdóttir
Rétt númer | Meðlimir Kvenna-
kórs Akureyrar opnuðu á dögunum
reikning til styrktar fjölskyldunni
sem missti allt sitt í bruna í húsi við
Fjólugötu. Ein prentvilla var í reikn-
ingsnúmerinu sem kórinn sendi út
og birtist m.a. í viðtali hér í blaðinu á
laugardaginn við Steina, Þorstein
Sævar Kristjánsson, sem vann
hetjudáð þegar eldurinn braust út
var ein prentvilla. Rétt talnaruna er
þessi: 0565-14-606815, kennitala
050255-5149.
Vortónleikar | Karlakór Eyja-
fjarðar verður með tónleika í Laug-
arborg í kvöld kl. 20.30. Nokkrir
einsöngvarar syngja með kórnum
og hljómsveit leikur í nokkrum lög-
um. Stjórnandi kórsins er Petra
Björk Pálsdóttir. Aðgangseyrir kr.
1500.
Kórinn verður svo með tónleika í
Grímsey síðdegis á morgun.
Nýtt þver-
pólitískt
framboð
NÝTT þverpólitískt framboð ungs
fólks, Framfylkingarflokkurinn, býð-
ur fram í bæjarstjórnarkosningunum
á Akureyri í lok mánaðarins. Hólmar
Finnsson, 26 ára viðskiptalögfræð-
ingur sem starfar hjá Skattstjóranum
á Akureyri, verður í efsta sætinu.
„Þetta er ungt fólk úr öllum áttum,
sem vill láta til sína taka. Okkur finnst
óþarfi að binda sig við einhverjar
landslínur í pólitík fyrir sveitarstjórn-
arkosningar,“ sagði Hólmar við
Morgunblaðið í gær og upplýsti að
flokkurinn vildi ráða ópólitískan bæj-
arstjóra eftir kosningar.
Hópurinn telur ekki hafa verið
nægilega vel staðið að málefnum ungs
fólks í bænum, og rödd þess hafi ekki
fengið að heyrast sem skyldi. „Þá tel-
ur flokkurinn að í ljósi þessa hafi mik-
ið skort á áhuga ungs fólks á bæj-
armálum og þátttöku þess í þeim, og
bendir í því samhengi á þá staðreynd
að meðalaldur núverandi bæjarfull-
trúa er um 50 ár. Þessu viljum við í
Framfylkingarflokknum breyta. Með
því að ná manni eða mönnum inn í
bæjarstjórn mun rödd ungra Akur-
eyringa heyrast þegar mikilvægar
ákvarðanir eru teknar varðandi fram-
tíð bæjarins.“
Framfylkingarflokkurinn hefur
sótt um að fá listabókstafinn O til af-
nota.
Sigurliðið | Gunnar Kristinsson
opnar sýningu á morgun, laug-
ardag, kl. 14 á Café Karólínu í
Listagilinu.
Sýningin hefur hlotið nafnið
Sigurliðið. Þar gefur að líta mál-
verk, teikningar og prjónaskap
þar sem sigurlið heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu
2006 er kynnt. Gunnar stundaði
nám við Listaháskólann í Leipzig
en hefur verið búsettur í Berlín
sl. áratug og unnið þar að list
sinni.
♦♦♦