Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 25
maður er góður þarf maður ekkert
að stressa sig,“ segir Guðjón rogg-
inn.
Tuskudýr í Danmörku
Á fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar
sat Guðlaug María Sigurðardóttir
sem stundar mastersnám í mann-
auðsstjórnun við Háskóla Íslands.
Spurð af hverju hún læri á bókhlöð-
unni segir hún engan frið vera heima
hjá sér, það sé svo einfalt. Henni
finnst ágætt að læra þarna en segist
þó stundum verða fyrir truflun. „Í
morgun pirraði mig hrikalega að það
var einhver manneskja með svo
sterka ilmvatnslykt að ég var að
kafna.“
Guðlaug segist þurfa að nýta tím-
ann vel yfir daginn til að læra því
þegar hún sé búin að sækja börnin á
leikskólann og komin heim sé enginn
vinnufriður fyrr en klukkan níu eða
tíu á kvöldin og því sé það dagurinn
sem gildi fyrir hana.
Hún segir próftímann alltaf vera
ákveðið álag en hún þjáist ekki af
prófkvíða. „Hjá mér er ekki stress,
maður á ekkert líf í smástund en svo
er þetta búið og sumarið tekur við,“
segir Guðlaug dreymin á svip.
Guðlaug er ekki haldin neinni próf-
hjátrú. „Ég var í skóla í Danmörku
þar sem allir voru með lítil tuskudýr,
sem hétu eitthvað, á borðunum í
prófum, þessi tuskudýr voru oft búin
að fylgja þeim í prófum frá barna-
skóla. Ég hef ekki átt neitt svoleiðis
og svona venjur hjálpa mér ekki
neitt.“
Lærir í kaffihúsaklið
Það eru ekki allir sem læra í skjóli
bókasafna því á Kaffibrennslunni sat
Baldur Már Vilhjálmsson, rafvirkja-
nemi í Iðnskólanum í Reykjavík, með
fartölvu og heyrnatól. Aðspurður af
hverju hann læri á kaffihúsi segist
hann ekki geta lært heima hjá sér.
„Ég er með tónlist í eyrunum á með-
an ég læri svo kliðurinn á kaffihúsinu
truflar mig ekki.“ Hann segir ekkert
mál að hlusta á tónlist samhliða lær-
dómnum enda sé hann ekki að lesa
neitt, aðallega að reikna. Þennan dag
var fyrsti í próflærdómi hjá Baldri,
hann segist vera frekar kærulaus og
ekki taka prófin of alvarlega.
Við rekumst á Baldur vel eftir há-
degi og er hann þá búinn að sitja á
Kaffibrennslunni síðan klukkan ell-
efu um morguninn og læra. „Ég ætla
að vera eins lengi og klinkið dugar í
stöðumælinn,“ segir Baldur og bætir
glottandi við að það sé kannski svolít-
ið dýrt að læra niðri í bæ.
Eftir að við kvöddum Baldur rölt-
um við sem leið lá í Menntaskólann í
Reykjavík með þá von að geta truflað
einhvern í próflestri þar. Eftir smá-
leit um skólann fundum við hana
Rannveigu Þrastardóttur í bókasafni
skólans þar sem hún var að læra
ásamt öðru.
Rannveig er í 4. bekk og segir frið-
sælt að læra á skólabókasafninu. „Ég
fer í tíu próf og klára 18. maí, ég er
aðeins stressuð en ekki mikið,“ segir
Rannveig. Hún mætir alltaf í skólann
klukkutíma fyrir próf og segir það
góðan vana sem hjálpi henni að slaka
á. „Ég læri líka alltaf í sömu náttbux-
unum og mér finnst það hjálpa mér
smá að vera með svona prófvenjur.“
Rannveigu finnst allir vera mjög
duglegir að læra fyrir próf í MR og
segist sjálf læra ágætlega mikið þótt
hún eigi það til að geyma hluti fram á
seinustu stundu.
Rannveig var að fara í próf eftir
smástund þegar blaðamaður greip
hana svo hann ákvað að sleppa henni
lausri með von um gott gengi.
Félagarnir Páll Daníelsson og Guðjón Örn Helgason
borðuðu nestið sitt í rólegheitum í Þjóðarbókhlöðunni.
Á Kaffibrennslunni sat Baldur Már Vilhjálmsson í
makindum, hlustaði á tónlist og reiknaði.
ingveldur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 25
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
ur er kúnstin að gleyma sjálfum
sér og umhverfinu og sökkva sér
í prófverkefnin.
Gáfumannafæði
Mataræði skiptir miklu máli
yfir próftímann. Rétt mataræði
getur hjálpað til við einbeitingu,
svefn og minnkað kvíða. Forðast
ber sætindi og snakk. Ef nem-
andinn finnur hjá sér þörf fyrir
smásnarl ætti hann að taka sér
almennilegt hlé til þess og fá sér
ferska eða þurrkaða ávexti, sam-
loku, súpuskál, ósaltaðar hnetur,
jógúrt eða ostbita. Einnig verður
að gæta að því að drekka nóg af
vatni því það getur aukið einbeit-
ingu og komið í veg fyrir höf-
uðverk. Forðast ber sykraða
drykki og ekki treysta á koffein-
drykki.
Kvöldið fyrir próf er best að
borða pasta, hrísgrjón, kartöflur
eða brauð þar sem slík kolvetna-
rík fæða stuðlar að góðum næt-
ursvefni. Mjólkurglas er líka gott
fyrir svefninn. Í morgunverð fyr-
ir próf er gott að fá sér prótein-
og trefjaríka máltíð. Ef prófkvíð-
inn er of mikill til að borða heila
máltíð er banani, rúsínur eða
ávaxtadrykkur góð byrjun.
PRÓFKVÍÐI getur birst sem
spenna, ógleði, svitaköst, van-
máttarkennd og áhyggjur. Nem-
andinn festist í smáatriðum,
hættir að greina aðalatriði frá
aukaatriðum og fer að gera
óraunhæfar kröfur til sín eða
hann getur ómögulega fest hug-
ann við próflesturinn.
Til að vinna á prófkvíða er
mikilvægt fyrir nemandann að
gera sér grein fyrir því hvar
hann stendur í raun og veru
gagnvart þessu prófi. Að hann
geti greint aðalatriði frá auka-
atriðum og komi sér upp skyn-
samlegri minnistækni.
Nemendur eiga að gæta þess
að raska ekki um of daglegum
venjum og gæta þessa að lesa
ekki um of, hætta að borða eða
missa svefn. Hreyfing og hvíld
frá lestri skiptir líka miklu máli
gagnvart minni, úrvinnslu og
geymd upplýsinga.
Þegar mætt er í prófið er mik-
ilvægt að slaka á, telja sér trú um
að maður geti þetta og festa sig
ekki í spurningum, heldur reyna
að róa sig niður og leysa þær
spurningar sem maður kann.
Ekki eyða tíma í að hugsa hvað
aðrir eru að gera í prófinu held-
Ágætis ráð í próflestri
„ÉG ER ekki dags daglega mikil
hjólreiðakona, en ég dreg fram hjól-
ið mitt á vorin þegar þessi átök eru
haldin og tek virkan þátt. Það er
bara skemmtilegt,“ segir Halldóra
Viðarsdóttir, lífeindafræðingur hjá
Íslenskri erfðagreiningu, en hún er
liðsstjóri Gusts, eins af þrettán lið-
um starfsmanna ÍE.
„Þótt ég hjóli ekki reglulega
finnst mér ekkert
erfitt að fara af
stað. Ég bý hins
vegar talsvert langt
frá vinnunni og það
má kannski segja
að bíllinn sé þá
hentugri en hjólið
að öllu jöfnu,“ segir
Halldóra og bætir
við að hún sinni
reglulegri hreyf-
ingu í tækjum og á
hlaupabrautum inni
í líkamsræktarstöð.
„Ég fer svo gjarnan
út að hlaupa þegar
vor er í lofti.
Hér innan fyr-
irtækisins er alltaf einhver hópur
sem er mjög keppnissinnaður. Ég sé
um að skrá niður kílómetrafjöldann
eftir hvern dag fyrir hópinn minn,
en við förum þá inn á borgarvefsjá
Reykjavíkurborgar til að reikna út
kílómetrana frá hverju heimili,“ seg-
ir Halldóra og bætir við að allur
gangur sé á því hvernig menn eru
útbúnir. „Sumir eru afskaplega vel
græjaðir en aðrir ekki eins, en hér
innan fyrirtækisins er afskaplega
góð aðstaða til að stunda líkams-
rækt, bæði eru hér vel búnir skipti-
klefar og sturtur.“
Tortellini með spergilkáli
og reyktum laxi
Í eldhúsi ÍE náði Daglegt líf tali
af matreiðslumeistaranum Þráni Ár-
sælssyni, sem segist ávallt reyna að
hafa hollustuna í fyrirrúmi á mat-
seðlinum, en auk salatbars og
ávaxta er alltaf boðið upp á heitar
máltíðir í hádeginu. Þráinn lét af
hendi uppskrift að tortellini með
spergilkáli og reyktum laxi í tilefni
af hjólaátakinu.
Pastaréttur
fyrir fjóra
400 g ferskt tortellini
2–3 lítrar léttsaltað vatn
2 msk ólífuolía í vatnið
Meðlæti
600 g reyktur lax í sneiðum
600 g spergilkál
10 msk furuhnetur
Sósa
300 g reyktur lax
200 g spergilkál
200 g sýrður rjómi
1 dl rjómi
1 dl mjólk
salt og pipar úr kvörn
Sjóðið pastað í þrjár mínútur og
kælið það síðan. Reyktu laxasneið-
arnar eru brotnar saman og lagðar á
disk ásamt spergilkálinu yfir pastað.
Brúnið furuhneturnar á þurri pönnu
og stráið þeim yfir ásamt sósunni,
sem búin er til með því að mauka
allt hráefnið í matvinnsluvél. Sósan
krydduð með salti og pipar og hellt
yfir réttinn.
„Allur gangur
er á græjunum“
Morgunblaðið/Kristinn
Þráinn Ársælsson býður ávallt upp á hollustu.Halldóra Viðarsdóttir, ein af liðsstjórum ÍE.
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa