Morgunblaðið - 05.05.2006, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIKLAR breytingar hafa verið
á atvinnulífi Íslendinga frá ní-
unda áratugnum fram til dagsins
í dag. Þróunin hefur verið minnk-
andi vægi frum-
framleiðslugreina en
samhliða efling at-
vinnugreina innan
þjónustu, þekkingar
og stóriðju. Viðbrögð
atvinnugreina eins og
sjávarútvegs hafa
verið aukin
tækniþróun með
fækkun starfa. Þetta
hefur haft mikil áhrif
á Vestfjörðum, sem
hafa um aldir byggt
efnahagslíf sitt á
sjávarútvegi. Það
hefur aukið á erf-
iðleikana að samhliða hefur svæð-
ið þurft að glíma við miklar
breytingar í aðgengi að auðlind-
um svæðisins. Með takmörkunum
á sókn og ekki síður breytingar
vegna framsals aflaheimilda sem
hefur leitt til fækkunar öflugra
fyrirtækja.
Sjávarútvegur er þó enn mik-
ilvægasta atvinnugrein Vest-
fjarða, en fyrirtækin sem eru inn-
an greinarinnar eru nú færri og
sumpart veikari en áður. Áhrif
þessa á efnahagslíf svæðisins
koma fram í minni veltu stoð-
greina svo sem þjónustu, flutn-
ingum og minnkandi tekjum ein-
staklinga og sveitarfélaga. Því
eru minni fjármunir til staðar til
þess að bregðast við þróun at-
vinnulífs sem lýst er hér að fram-
an. Val margra íbúa Vestfjarða á
undanförnum árum hefur verið að
flytja sig til annarra landssvæða
til að leita nýrra tækifæra. Hafa
margir þeirra náð að hasla sér
þar völl enda komnir úr umhverfi
sem hefur alið upp í þeim frum-
kvöðlaanda.
Núverandi íbúar Vestfjarða
hafa hinsvegar tekið það val að
hasla sér völl á Vestfjörðum. For-
senda fyrir því byggist á tvennu,
annarsvegar jafnræði með öðrum
landshlutum varðandi grunngerð
samfélaganna svo sem í sam-
göngum, aðgengi að fjármagni og
menntun. Hinsvegar þróun nýrra
atvinnukosta sem geta byggst
upp samhliða núverandi atvinnu-
greinum. Á samgönguáætlun eru
nú stærri verkefni til ársins 2009
en sést hafa um langa hríð, en
stór verkefni eru þó enn eftir sem
áður. Efling á rannsóknum og
menntun á framhaldsstigi á sér
nú stað innan stofnana í Þróun-
arsetri Vestfjarða,
meðal annars hjá
Hafrannsóknastofnun
og Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins og á
vegum Háskólaseturs
Vestfjarða og Nátt-
úrustofu Vestfjarða.
Athygli vekur einnig
árangur iðnfyr-
irtækja líkt og 3 X
stál ehf og fram-
leiðsludeildar Marel
hf á Ísafirði (áður
Póls hf). Á þessum
þáttum er einnig tek-
ið innan Vaxtarsamn-
ings Vestfjarða þar sem lögð er
áhersla á klasa innan sjávar-
útvegs, ferðaþjónustu og menn-
ingar og menntun og rann-
sóknum. Hér eru því að skapast
forsendur fyrir eflingu þekkingar
og nýsköpunar, þar með bættum
rekstri fyrirtækjanna.
Efling núverandi atvinnulífs er
hinsvegar langtímaverkefni og
byggist á auðlindum sem svæðið
ræður yfir í dag. Spáð er áfram
hægri fækkun starfa í frumfram-
leiðslu en eftir standa verðmætari
störf. Nýir atvinnukostir eru því
nauðsynlegir en leit að nýjum
auðlindum sem svæðið gæti byggt
sig upp á hefur verið erfið. Önnur
landsvæði sem hafa verið í svip-
aðri stöðu hafa mörg hver sett
markið á eflingu atvinnulífs með
stórum iðjuverum, samhliða virkj-
un. Umræða síðustu missera er
hinsvegar að beina sjónum manna
á að slík stór inngrip í atvinnulíf
af þessu tagi geti til lengri tíma
litið, verið tvíeggja sverð.
Fjórðungssamband Vestfirð-
inga er sameiginlegur vettvangur
sveitarfélaga á Vestfjörðum og
heldur árlega þing sem tekur á
málefnum sveitarfélaganna. Eitt
af hlutverkum þess er að vakta
þróun atvinnulífs og benda á nýj-
ar leiðir í þeim efnum. Fyrir ligg-
ur samþykkt frá Fjórðungsþingi
Vestfirðinga árið 2003, þar sem
það mat var sett fram, að mik-
ilvæg sóknartækifæri væru fólgin
í því fyrir Vestfirði, að sveit-
arfélög á Vestfjörðum ynnu sér-
stakt skipulag eða framtíðarsýn
fyrir landshlutann. Slíkt skipulag
myndi byggjast á hugmyndafræði
um sjálfbæra þróun. Ekki væri
hér átt við lögformlegt svæð-
isskipulag heldur fremur sameig-
inlega sýn sveitarfélaganna. Mál-
ið síðan verið til umræðu á
Fjórðungsþingum 2004 og 2005.
Niðurstaða Fjórðungs-
sambandsins er að leita beri eftir
samnefnara fyrir sjálfbæra þróun
og fjárfestingu og fjölgun at-
vinnutækifæra. Ekki verði farið í
spor þeirra er treysta á eflingu
stóriðju heldur fremur á auðlind-
um náttúru og mannauðs. Hér
vakti athygli sambandsins starf
starfshóps sem stóð að ráð-
stefnunni „Orkulindin Ísland.
Náttúran, mannauður, menning
og hugvit“ í mars sl. Hefur
Fjórðungssambandið leitað eftir
hugsanlegu samstarfi við starfs-
hópinn varðandi greiningu nýrra
tækifæra til eflingar atvinnulífi
svæðisins, á grundvelli sam-
þykkta Fjórðungsþings Vest-
firðinga. Einnig verður leitað eft-
ir samvinnu við stjórnvöld. Að
lokinni þeirri vinnu er þess vænst
að sveitarfélögin á Vestfjörðum
geti hvert og eitt tekið afstöðu til
þróunar atvinnulífs og hugs-
anlegra breytinga á svæðaskipu-
lagi.
Sýningin Perlan Vestfirðir er
haldin 6. til 7. maí nk, í Reykja-
vík, á vegum Markaðsstofu Vest-
fjarða og Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða. Samhliða sýningunni
mun Fjórðungssamband Vestfirð-
inga boða til málþings þar sem
sjónarmið um breytta atvinnu-
stefnu verða tekin til umræðu.
Málþingið verður haldið 6. maí og
hefst kl 10.00 á Hótel Loftleiðum.
Breytt atvinnustefna
á Vestfjörðum
Guðni Geir Jóhannesson
fjallar um Fjórðungssamband
Vestfirðinga ’Niðurstaða Fjórðungs-sambandsins er að leita
beri eftir samnefnara fyr-
ir sjálfbæra þróun og
fjárfestingu og fjölgun
atvinnutækifæra.‘
Guðni Geir
Jóhannesson
Höfundur er formaður stjórnar
Fjórðungssambands Vestfirðinga.
NÝVERIÐ spurði fréttakona
mig þeirrar spurningar hvaða við-
urlaga sakborningar í Baugsmál-
inu gætu vænst yrðu þeir sakfelld-
ir skv. ákæru. Var svarið að
aðalsakborningur gæti vænst 3–5
ára fangelsis óskilorðsbundið. Var
til samanburðar
nefndur svokallaður
Landssímadómur.
Þetta kalda mat fór
fyrir brjóstið á Hreini
Loftssyni hrl., stjórn-
arformanni Baugs,
sem sendi frá sér yf-
irlýsingu, þar sem
m.a. sagði:
– Landssímamálið
væri alls ekki
sambærilegt.
– Það væri í and-
stöðu við ákvæði
Mannréttinda-
sáttmála Evrópu
(MSE) að nú væri
ákært aftur eftir
að fyrri ákæru
hefði verið vísað
frá.
– Hann hefði sjálf-
ur kynnt sér gögn
málsins og væri
sannfærður um
sakleysi fyr-
irsvarsmanna
Baugs.
– Vegið væri að
ákærðu persónu-
lega og væri ég
rekinn áfram af
annarlegum hvöt-
um; bæri illan
hug til Baugs og
væri í fjölskyldu-
tengslum við rit-
stjóra Morgunblaðsins.
Eitt fárra mála í íslensku dóms-
kerfi sem bera má saman við
ákæruna í Baugsmálinu er hið svo-
kallaða Landssímamál. Þar var um
svipaðar fjárhæðir að ræða og í I.
kafla (fjársvik) og V. kafla (fjár-
dráttur) og ásetningsstig svipað og
í Baugsákærunni. Fjársvik og fjár-
dráttur eru lögð að jöfnu þegar
kemur að viðurlögum. Fyrir viku
gekk síðan dómur í Héraðsdómi
Reykjaness þar sem tveir Níger-
íumenn sem fundnir voru sekir um
8 m.kr. fjársvik og voru dæmdir í
15 mánaða fangelsi óskilorðs-
bundið. Fjárhæðin í Baugsmálinu
(I og V. kafla) er 25 sinnum hærri.
Fyrir sakborningana er vissu-
lega bagalegt að ákæruvaldinu
gefist kostur á því að endurbæta
ákæruna. Það er hins vegar alveg
í samræmi við íslensk lög og
margsinnis hafa fallið efnisdómar
í sakamálum þar sem ákærum
hefur áður verið vísað frá. Fráleitt
er að um sé að ræða
brot á reglu 6. gr.
MSE um réttláta
málsmeðferð. Hreinn
þvættingur verður
engin speki við það
eitt að hamra nógu oft
á honum.
Í téðu viðtali var
engu spáð um það
hvort sakborningar í
Baugsmálinu yrðu
sakfelldir eða sýkn-
aðir. Öll gögn málsins
eru til á geisladiski og
úr því þau eru sak-
borningum svo hag-
felld, því gerir Hreinn
þau ekki aðgengileg
almenningi með því að
setja þau á netið, svo
aðrir sannfærist?
Dylgjur Hreins um
annarlegar hvatir eru
hreinn hugarburður.
Hef ég skipt við fyr-
irtæki Baugs í árarað-
ir, enda starfsfólkið
gott og ritstjóri Morg-
unblaðsins ritstýrir
mér ekki. Jónatan
Þórmundsson prófess-
or var fenginn til þess
að rita álitsgerð um
rannsókn Baugsmáls-
ins. Hefði Hreinn ekki
átt að sama skapi að
geta þess að prófess-
orinn væri í fjölskyldutengslum
við aðalsakborning Baugsmálsins?
Það er síðan hreinn ósómi að
þeir sem tjáð hafa skoðun sína á
einhverjum atriðum Baugsmálsins
sem ekki eru í samræmi við
keyptar skoðanir Hreins, hafa
mátt þola ómálefnalega gagnrýni
og breiðsíðu af dylgjum frá leigu-
pennum formannsins. Er það til
marks um góðan málstað? Veit
það ekki.
Hreinn
þvættingur
Sveinn Andri Sveinsson gerir
athugasemdir við yfirlýsingu
Hreins Loftssonar
Sveinn Andri Sveinsson
’…þeir sem tjáðhafa skoðun sína
á einhverjum at-
riðum Baugs-
málsins sem ekki
eru í samræmi
við keyptar skoð-
anir Hreins, hafa
mátt þola ómál-
efnalega gagn-
rýni og breiðsíðu
af dylgjum …‘
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
www.reykjanesbaer.is
. . .og aukin lífsgæði.
Verið velkomin!