Morgunblaðið - 05.05.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 29
UMRÆÐAN
ÞÁ HÖFUM við það á hreinu
landsbyggðarmenn; þeir syðra vilja
ekkert með okkur hafa. Þeir telja
höfuðborgina okkar eingöngu fyrir
þá sem þar búa.
Ég heyrði um það frétt í útvarp-
inu að stóru flokkarnir hefðu kom-
ist að þeirri niðurstöðu að rétt væri
að fara með flugvöllinn úr Vatns-
mýrinni fyrir fullt og allt. Þeir telja
þá beitu veiða vel í komandi kosn-
ingum. Hagsmunir landsbyggð-
armanna skipta þá engu máli. Komi
þeir sem koma vilja, en þeir geta
þá skondrað til og frá Keflavík, vilji
þeir komast í flugvél. Þannig virð-
ist obbi Reykvíkinga hugsa.
Ég hef haft það á tilfinningunni,
í allri þeirri umræðu sem verið hef-
ur um flugvöllinn í Vatnsmýrinni,
að andstæðingar hans geri sér ekki
grein fyrir því hvað hann er mik-
ilvægur fyrir daglegt líf þjóð-
arinnar. Þeir sem trúa mér ekki
ættu að vera þar einn dag og fylgj-
ast með mannlífinu sem þar gerj-
ast. Fólk streymir til og frá vell-
inum, fólk sem er að fara til funda,
leita sér lækninga eða lyfta sér
upp. Völlurinn er stór tekjulind
fyrir Reykvíkinga, hann er þeirra
stóriðja. Verði honum lokað eru
Reykvíkingar að kasta frá sér gull-
eggi og einu af fjöreggjum þjóð-
arinnar. Það er svo einfalt.
Það þarf dáleiðslu til að lands-
byggðarmenn sætti sig við klukku-
tíma ferðalag til að komast í fimm-
tíu mínútna flug. Þeir aka frekar
alla leið. Lokun flugvallar í Vatns-
mýrinni yrði því dauðadómur yfir
áætlunarflugi innanlands. Sú að-
gerð gæti líka orðið dauðadómur
yfir sjúku fólki, sem þarf að kom-
ast í bráðaaðgerð á okkar Land-
spítala, sjúkrahúsi sem fengið
hefur milljarða frá okkur lands-
mönnum og á að fá nokkra til
viðbótar á næstu árum til að
byggja nýtt hátæknisjúkrahús. Á
það bara að vera fyrir Reykvík-
inga?
Talsmaður Suðurnesja sagði ný-
lega í sjónvarpsviðtali að það yrði
nú ekki mikið mál að aka með
þessa sjúklinga af landsbyggðinni
frá Keflavík til Reykjavíkur. Þeir
lifðu það af. Hann sá gullið í því að
fá innanlandsflugið til Keflavíkur.
Skömmu áður hafði annar suð-
urnesjamaður haldið því fram að
það yrði að vera sólarhringsvakt
alla daga ársins á sjúkrahúsinu þar
því það væri of langt að aka með
sjúka suðurnesjamenn til Reykja-
víkur. Ég tek undir það, en það
sama gildir um aðra. Menn virðast
ekki vilja átta sig á því að sjúkra-
flug til Reykjavíkurflugvallar hefur
margfaldast á síðustu árum. Oft er
um að ræða fársjúkt fólk, t.d.
hjartasjúklinga sem þurfa að kom-
ast sem fyrst í þræðingu. Þar geta
mínútur skipt máli.
Það má vera að hægt sé að finna
einhverja tæknilega lausn á legu
Reykjavíkurflugvallar þannig að
hægt verði að rýma til fyrir bygg-
ingum án þess að vellinum verði
endanlega lokað. Ég hef ekki þekk-
ingu á því, en mér þótti Arngrímur
Jóhannsson flugstjóri setja fram
athyglisverða lausn á dögunum,
sem vert væri að skoða betur. Eða
er bara endanlega búið að ákveða
að loka vellinum?
Kosningar nálgast,
það fer ekki á milli
mála. Stóru flokkarnir
í Reykjavík telja sig
geta fiskað vel með
því að loka Reykjavík-
urflugvelli. En ætla
stóru flokkarnir úti á
landi ekkert að láta í
sér heyra um þetta
mikla hagsmunamál?
Ég hygg að lands-
byggðarmenn vilji vita
hvað þeir ætla að gera
í þessu mikla hags-
munamáli landsbyggðarinnar. Einu
því stærsta sem á okkur brennur
þessa dagana. Það vita þeir fjöl-
mörgu, sem þurfa að nýta innan-
landsflugið, jafnvel oft í viku.
Þess vegna skora ég á Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóra á Ak-
ureyri, og aðra stjórn-
málaforingja lands-
byggðarinnar að láta
nú í sér heyra um
málið.
Ég skora líka á
Kristján Þór að gera
hreint fyrir sínum
dyrum. Hann gefur
kost á sér til endur-
kjörs, en ætlar hann
að sitja út kjör-
tímabilið? Kjósendur
eiga heimtingu á því
að vita hvort þeir eru
að kjósa bæjarstjóra til eins árs
eða fjögurra. Það er svo kristal-
tært. Segðu nú af eða á, Kristján
minn, engin loðin framsóknarsvör,
sem eru opin í báða enda.
Fyrir hverja er höfuðborgin?
Sverrir Leósson telur að sveit-
arstjórnarmenn á landsbyggð-
inni verði að berjast fyrir
áframhaldandi innanlandsflugi
úr Vatnsmýrinni
’Það þarf dáleiðslu til aðlandsbyggðarmenn sætti
sig við klukkutíma ferða-
lag til að komast í fimm-
tíu mínútna flug. Þeir aka
frekar alla leið.‘ Sverrir Leósson
Höfundur er útgerðarmaður.
Þorsteinn Gestsson fjallar um
vímuefni.
KOSNINGAR 2006
Hildur Baldursdóttir: „Við
mæðgurnar.“
Úrsúla Jünemann: „Kosninga-
jeppi.“
Íris Jóhannsdóttir: „Bréf til
frambjóðenda í Mosfellsbæ.“
Guðvarður Jónsson: „Kosn-
ingaloforð.“
Kári Páll Óskarsson: „Enginn
vill búa við mengun.“
Toshiki Toma: „Þátttaka og við-
horf í borgarstjórn.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fréttir í
tölvupósti
opið:
mán.–föstud. 11–18
laugard. 11–16
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
afmælisveisla
2 ára
Full búð af spennandi
afmælistilboðum
10–25% afsláttur