Morgunblaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HVER VAR VIÐ STÝRIÐ?
Tekist var á um það hvort Jónas
Garðarsson, sem ákærður hefur ver-
ið vegna dauða tveggja þegar
skemmtibáturinn Harpa steytti á
Skarfaskeri í september í fyrra, sat
við stýrið þegar slysið varð, í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Mál-
flutningi lauk á áttunda tímanum í
gærkvöldi. Verður dómur kveðinn
upp innan þriggja vikna.
Ekkert fararsnið á Blair
Tony Blair, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, hafnaði í gær með
öllu kröfum þess efnis að hann gerði
grein fyrir því hvenær hann hygðist
stíga upp úr stóli forsætisráðherra.
Sagði hann að slíkt myndi hafa „lam-
andi“ áhrif á störf ríkisstjórnar-
innar, en tók fram að hann myndi
gefa arftaka sínum góðan tíma til að
festa sig í sessi.
Íransforseti sendi Bush bréf
Mahmoud Ahmadinejad, forseti
Írans, hefur skrifað George W. Bush
Bandaríkjaforseta bréf þar sem
lagðar eru fram tillögur um lausn á
deilu ríkjanna um kjarnorkuáætl-
anir Írana. Talsmaður Þjóðarörygg-
isráðs Bandaríkjanna sagði í gær-
kvöldi að bréfið breytti ekki afstöðu
Bandaríkjastjórnar í deilunni.
Mótmæla umfjöllun
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í
gær var fjallað um Baugsmálið og
m.a. vitnað í gögn málsins sem hing-
að til hafa ekki verið gerð opinber,
m.a. lögregluskýrslur. Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur
sent útvarpsstjóra bréf vegna um-
fjöllunarinnar. Sömuleiðis hefur
stjórnarformaður Baugs gefið frá
sér yfirlýsingu og verjendur tveggja
sakborninga málsins, þeirra
Tryggva Jónssonar og Jóns Ásgeirs.
Er þar umfjölluninni mótmælt.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Fréttaskýring 8 Viðhorf 28
Úr verinu 14 Bréf 30
Viðskipti 15 Minningar 32/37
Erlent 16/17 Myndasögur 40
Akureyri 19 Dagbók 40/43
Austurland 20 Víkverji 40
Suðurnes 20 Velvakandi 41
Landið 21 Staður og stund 42
Daglegt líf 22/23 Ljósvakamiðlar 50
Menning 25, 44/49 Veður 51
Umræðan 28/31 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
HITI fór upp í 22 gráður á Þingvöllum um miðjan
dag í gær, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ís-
lands. Þá var 20 stiga hiti á Hjarðarlandi í Biskups-
tungum, í Árnesi, 21 gráða í Borgarnesi og Stafholts-
ey og 20 á Hvanneyri.
Á Hallormsstað fór hitinn í 19 gráður, 18 á Gríms-
stöðum á Fjöllum en svalara er fyrir norðan út við
sjó, 3–4 gráður.
Oft hefur hiti farið í 20 stig í maí en þá einkum á
Norður- og Austurlandi. Þetta þykir því óvenju mikill
hiti á Suður- og Vesturlandi.
Á bloggsíðu Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræð-
ings á Veðurstofu Íslands, kemur fram að sérstaklega
hafi verið merkilegt að sjá hitatölur á Þingvöllum í
gær, en þar frysti í fyrrinótt. „Ótrúlegt að sjá hita-
stigið rjúka þarna upp frá 1°C kl. sex í morgun upp í
19°C og það á aðeins 6 klst,“ að því er segir á
www.esv.blog.is
Sumarið bankaði upp á í Vestmanneyjum um síð-
ustu helgi eins og annars staðar á landinu. Sem fyrr
er það sérstaklega ungviðið sem nýtur þess að baða
sig í sólinni. Þessir hressu Eyjakrakkar notuðu veð-
urblíðuna í gær til að vaða í sjónum við Skansinn.
Sjálfsagt hefur gosið í Heimaey árið 1973 ekki ver-
ið börnunum ofarlega í huga í gær en á þessum slóð-
um stöðvaðist hraunið á sínum tíma.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sjóbað við Skansinn
þetta gangi ágætlega,“ sagði Helga
Jóhanna. „Boltinn er farinn að
rúlla.“
Hún greindi einnig frá því að þeg-
ar hefðu 145 manns skráð sig á og
sótt námskeið á vegum ráðgjafar-
stofunnar og verða þau áfram í boði
út sumarið. Helga sagði að straumur
þeirra sem vildu nýta sér þjónustu
ráðgjafarstofunnar ykist stöðugt en
stofan var opnuð 27. mars.
„Hátt í 50 fyrirtæki hafa óskað eft-
ir aðstoð okkar við að manna störf.
Það gengur mishratt fyrir sig en
boltinn er þó farinn að rúlla,“ sagði
hún.
„Markmiðið með starfsemi okkar
er að tryggja fólki störf við hæfi og
að hafa milligöngu um störf og bjóða
námskeið fyrir fólk í atvinnuleit. Við
leggjum ríka áherslu á að fólk geti
eftir fremsta megni fengið störf við
hæfi í heimabyggð.“ | Miðopna
RÁÐGJAFARSTOFA sem stofnuð
var til að auðvelda íslenskum starfs-
mönnum varnarliðsins að fá störf
eftir brotthvarf varnarliðsins hefur
upplýsingar um að 70 starfsmenn
hafi þegar fengið störf annars stað-
ar. Þá hefur um 140 starfsmönnum
auk þessa verið tryggð áfram störf
hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflug-
vallar skv. nýjum lögum. Hafa því
talsvert á þriðja hundrað starfs-
manna á varnarsvæðinu fengið störf
svo vitað sé, en alls fengu um 600
varnarliðsstarfsmenn uppsagnar-
bréf eftir að ákvörðun var tilkynnt
um brotthvarf varnarliðsins.
Þessar upplýsingar komu fram í
máli Helgu Jóhönnu Oddsdóttur,
starfsmanns ráðgjafarstofunnar, á
fundi sem Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, hélt með
starfsfólki varnarliðsins í gær.
Staðan er sú að okkar mati að
Á þriðja hundrað hefur
þegar fengið starf
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur
dæmt karlmann á þrítugsaldri til sjö
mánaða fangelsisvistar fyrir fjár-
drátt. Með brotinu rauf maðurinn
skilorð reynslulausnar og þótti því
ekki tilefni til að skilorðsbinda refs-
inguna, hann hefur jafnframt ítrek-
að hlotið dóma fyrir þjófnaðarbrot.
Þá þarf hann að greiða verjanda
sínum rúmar 62 þús. kr. í málsvarn-
arlaun. Ákærði játaði brot sitt ský-
laust en honum var gefið að sök að
hafa 4. mars sl. fengið gsm-síma
annars karlmanns lánaðan og í kjöl-
farið slegið eign sinni á hann með
því neita að afhenda símann. Verð-
mæti símans er talið nema 28 þús-
und krónum.
Ólöf Pétursdóttir kvaddi upp
dóminn. Karl Ingi Vilbergsson,
fulltrúi lögreglustjórans í Kópavogi,
sótti málið en til varnar manninum
var Hilmar Ingimundarson hrl.
Dæmdur fyrir að
eigna sér farsíma
ÖKUMAÐUR bifreiðar var fluttur á
slysadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss eftir útafakstur í
Þrengslunum á tólfta tímanum í
gærmorgun. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Selfossi
reyndist maðurinn ekki alvarlega
slasaður. Talið er að hann hafi misst
stjórn á bíl sínum sem við það hafn-
aði utan vegar úti í hrauni en valt
ekki. Þrjú börn voru auk ökumanns í
bifreiðinni og sluppu þau ómeidd.
Missti stjórn á bíl
í Þrengslunum
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
karlmann í annarlegu ástandi á leik-
skóla í vesturbæ Reykjavíkur á
fimmta tímanum í gærdag. Maðurinn
hafði undir höndum hníf við komuna
en eftir stutt samtal við starfsmann
leikskólans lét hann hnífinn af hendi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Reykjavík hugðist maðurinn
sækja barn fyrrverandi sambýliskonu
sinnar.
Að sögn leikskólastjóra var maður-
inn úlpuklæddur og með hettu þannig
að ekki sást framan í hann. Þegar
kom í ljós að hann hefði hníf í hendi
var hringt á lögreglu, sem var komin
á vettvang innan skamms. Hún segir
tilburði mannsins ekki hafa verið ógn-
andi en ljóst var á fasi hans og útliti að
hann gengi ekki heill til skógar. Af-
henti hann hnífinn starfsmanni þegar
um það var beðið og beið rólegur eftir
að lögregla kæmi.
Leikskólastjórinn segir að eftir á
að hyggja verði ekki litið svo á að um
hættu hafi verið að ræða en rætt var
við foreldra og málið skýrt fyrir þeim
þegar börnin voru sótt.
Lagður inn á geðdeild
Móðir barns á leikskólanum sem
Morgunblaðið ræddi við segir að for-
eldrum hafi eðlilega verið brugðið og
sama hafi sést á starfsfólki leikskól-
ans. Hún segir að barn sitt hafi vel og
skilmerkilega getað skýrt frá atburð-
unum en hafi þó ekki hræðst. Barnið
hafi greint frá eins og þetta hefði ver-
ið óraunverulegt og greinilega ekki
skilið hvað var á seyði.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík er vitað að mað-
urinn hefur verið í óreglu. Hann hafi
verið staddur á leikskólanum til að
sækja barn fyrrverandi sambýliskonu
sinnar og hún beðið hann um það.
Konan vissi hins vegar ekki af bág-
bornu ástandi mannsins.
Að sögn lögreglu var einn lögreglu-
bíll sendur á vettvang þegar tilkynn-
ingin kom. Ekki hafi aðstæður verið
metnar svo að mikil hætta stafaði af
manninum þrátt fyrir að mæta á leik-
skóla með um 10 cm langan hníf.
Eftir að hafa verið færður á lög-
reglustöð var ákveðið að leggja mann-
inn inn á geðdeild.
Maður í annarlegu ástandi kom á leikskóla með hníf í hendi
Foreldrum barnanna
og starfsfólki brugðið
Milljón til þróunar
kynjanámskrár
HJALLASTEFNAN fékk hæsta
styrkinn úr Þróunarsjóði grunn-
skóla fyrir næsta skólaár. Mennta-
málaráðherra hefur ákveðið, að til-
lögu ráðgjafarnefndar, að veita
styrki að upphæð alls 13 milljónir
króna til 31 verkefnis, en samtals
voru umsóknir að þessu sinni 54.
Hjallastefnan fær eina millj. kr. til
þróunar kynjanámskrár Hjalla-
stefnunnar, en Álftanesskóli fær
næsthæsta styrkinn, 700 þús. kr. til
þróunar lýðræðislegra vinnu-
bragða með aðferðum uppeldis til
ábyrgðar. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu.
Þar segir að tilgangur sjóðsins sé
að efla nýjungar, tilraunir og ný-
breytni í skipulagi náms, kennslu-
háttum, námsgögnum og mati í
grunnskólum.
Fimm manna ráðgjafarnefnd
metur umsóknir. Í henni eru
fulltrúar frá Kennaraháskóla Ís-
lands, Háskólanum á Akureyri,
samtökum kennara og skólastjóra
og menntamálaráðuneyti.