Morgunblaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 46
Athyglisverð útskriftartíska
TÍU hönnuðir útskrifast í ár úr fatahönn-
unarnámi við Listaháskóla Íslands. Af því til-
efni var efnt til tískusýningar í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu á föstudagskvöld.
Þar sýndu hönnuðirnir útskriftarlínur sínar en
þeir eru: Björg Guðmundsdóttir, Elma Back-
man, Helga Lilja Magnúsdóttir, Rannveig
Kristjánsdóttir, Edda Ívarsdóttir, Þórey Björk
Halldórsdóttir, Guðjón Sigurður Tryggvason,
Hildur Björk Yeoman, Þórey Hannesdóttir
(Eyja) og Guðbjörg Jakobsdóttir.
Fagstjóri fatahönnunarnámsins er Linda
Björg Árnadóttir. „Mér fannst ganga mjög vel.
Tel að þetta sé okkar besta sýning til þessa.
Mér fannst allir vera nokkuð sterkir. Deildin er
ný og útkoman er betri á hverju ári,“ segir hún
og bendir á að þetta sé aðeins í þriðja skipti
sem verið er að útskrifa nemendur úr fatahönn-
un.
Þónokkrir erlendir blaðamenn og hönnuðir
voru viðstaddir sýninguna og segir Linda þá
hafa verið ánægða með útkomuna. „Þeim leist
mjög vel á. Þetta er fólk sem fer oft á skólasýn-
ingar og þeim fannst þetta vera framúrskar-
andi. Þarna var fólk frá París, London og New
York, mest blaðamenn og einhverjir hönnuðir
sem komu sem prófdómarar. Við reynum alltaf
að flytja inn prófdómara. Núna kom yfirhönn-
uður hjá Soniu Rykiel, það er líka manneskja
sem hugsanlega gæti ráðið einhvern af þessum
krökkum í vinnu.“
Diane Pernet er ein af þessu fólki sem hingað
kom til að fylgjast með sýningunni. Á vefsíðu
sinni www.ashadedviewonfashion.com skrifar
hún að henni hafi þótt áhugavert að nemend-
urnir væru óhræddir við að stunda tilrauna-
starfsemi.
Fjölmenni fylgdist með hönnuðunum sína út-
skriftarlínur sínar en hver hönnuður sýndi á
milli sex og átta alklæðnaði. Sýningin hófst á
línu Guðjóns og vakti sjóliðahattur í yfirstærð
mikla athygli en hann opnaði sýninguna. Eftir
það kom hver á eftir öðrum með sína sýn á
tískuheiminn og var hönnuðunum vel fagnað að
sýningu lokinni.
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Elma
Edda EyjaGuðjónBjörg
GuðbjörgÞórey Björk
46 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk
gamanmynd með með Uma Thurman
og Meryl Streep í fantaformi!
SUMARSINS ER KOMIN
FYRSTA
STÓRMYND
Eins og þú h
efur aldrei séð hana áður
Birgitta Haukdal fer á kostum sem Rauðhetta í íslensku talsetningunni.
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó
MI : 3 kl. 6, 9 og 11 B.i. 14 ára
MI : 3 LÚXUS kl. 6 og 9
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 4 og 6
Prime kl. 8
The Hills have Eyes kl. 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m. ensku tali kl. 4 og 8
Ísöld 2 m. ísl. tali kl. 4 og 6
Inside Man kl. 8 og 10.25 B.i. 16 ára
Rauðhetta m/íslensku tali kl. 6
Lucky Number Slevin kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6
eeee
VJV, Topp5.is
eee
H.J. mbl
“ÞAÐ ER VEL HÆGT AÐ MÆLA MEÐ
“M:I:III” SEM GÓÐRI AFÞREYINGU
OG SUMARSMELLI.”
MISSION IMPOSSIBLE
3 ER POTTÞÉTTUR
SUMARSMELLUR.
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG