Morgunblaðið - 09.05.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar
sjóðsins og rétthafar rétt til setu á fundinum.
Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á að kynna sér tillögur til breytinga á
samþykktum eða ársreikning sjóðsins fyrir fundinn er bent á að hægt er að
nálgast þær á eftirfarandi hátt:
• Á skrifstofu sjóðsins í Borgartúni 30, Reykjavík
• Fá þær sendar með því að hafa samband í síma 510 5000
• Fletta þeim upp á vefsíðu sjóðsins, www.lifeyrir.is
Reykjavík, 8. maí 2006.
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
DAGSKRÁ
Ársfundur Sameinaða Lífeyrissjóðsins verður
haldinn þriðjudaginn 23. maí 2006, kl. 16.00,
á Nordica hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Borgartún 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000
F. 510 5010 • mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is
ÁRSFUNDUR 2006
● REKSTRARHAGNAÐUR Norð-
lenska matborðsins ehf. nam 14,5
milljónum króna á árinu 2005, þeg-
ar tekið hefur verið tillit til afskrifta
og fjármagnsgjalda. Árið áður var fé-
lagið rekið með 52 milljóna króna
tapi. Rekstrarhagnaður félagsins fyr-
ir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA)
á árinu 2005 nam röskum 228 millj-
ónum króna, sem er tæplega 87
milljóna króna afkomubati frá árinu
2004. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Norðlenska.
Í tilkynningunni segir að síðustu
fimm ár hafi afkoma Norðlenska
jafnt og þétt verið að batna og gert
sé ráð fyrir að á yfirstandandi ári
haldi rekstrarbatinn áfram og efna-
hagur fyrirtækisins styrkist enn frek-
ar.
Viðsnúningur
hjá Norðlenska
! "# #
!" #$%
&'
&"
% #%
() %" %
( "% '%* #% + %*
,
,
& %
-./01 &21#%
3
%
& .0 + %* 4 %*
4. 02% 5
%*
672
89& %
8.
:;"" %". 0 0 %
< %% 0 %
!
& * =;220 -1>" -0%*
"# $%
5?=@
-A0
0 0
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
; %" 1
; 0 0
/
/
/
/ /
/ /
/
/ /
/ /
/ /
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
B CD
/
/
B CD
/
B /CD
/
B /CD
B /CD
/
B /CD
B CD
/
B /CD
B / CD
B /
CD
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
4 * 0
*" %
: #0 A *" E
( -
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
< 0 A )$
:4 F "% &2 *
0
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði um 0,7% í gær og var
5.465 stig í lok dags. Viðskipti í
Kauphöllinni námu 13,1 milljarði
króna, mest með íbúðabréf fyrir 4,9
milljarða. Mestu hlutabréfaviðskipti
voru með bréf Actavis Group fyrir um
770 milljónir króna.
Bréf Actavis hækkuðu um 0,8%
og bréf Marels um 0,6%. Bréf FL
Group lækkuðu mest, eða um 2,2%
og bréf Landsbankans lækkuðu um
1,9%.
Gengisvísitala íslensku krónunnar
lækkaði um 0,7% í viðskiptum á
millibankamarkaði í gær og styrktist
gengi krónunnar sem því nemur. Í
upphafi viðskiptadags var geng-
isvísitala krónunnar 126,15 stig og í
lok dags var hún 125,25 stig. Velta á
markaðnum nam 22 milljörðum
króna. Í ½ 5 fréttum KB banka segir
að þessi mikla styrking komi í kjölfar
útgáfu tveggja skýrslna um fjár-
málastöðugleika á Íslandi í síðustu
viku, annars vegar skýrslu Við-
skiptaráðs á miðvikudeginum og
hins vegar skýrslu Seðlabanka Ís-
lands á fimmtudeginum.
Lækkun í Kauphöllinni
en krónan styrkist
● VÆNTINGAR um stöðvun vaxta-
hækkanaferlis Seðlabanka Banda-
ríkjanna hafa leitt til þess að gengi
dollars gagnvart myntum helstu við-
skiptalanda Bandaríkjanna hefur
lækkað. Gengi dollars gagnvart evru
hefur náð árs lágmarki. Frá þessu er
greint í ½ 5 fréttum KB banka. Bank-
inn hefur frá því í júní árið 2004
hækkað vexti 15 sinnum og standa
þeir nú í 4,75%. Búist er við að ferlið
stöðvist í 5%.
Dollar ekki veikari
gagnvart evru í eitt ár
● TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hefur
tryggt sér hátt í 75% hlutafjár í
norska tryggingafélaginu Nemi. TM
gerði sem kunnugt er öllum hlut-
höfum félagsins tilboð um kaup á
hverjum hlut á 63,50 krónur norskar.
Samkvæmt því er Nemi metið á um
890 milljónir norskra króna, eða
rúma 10 milljarða króna. Er tilboð
TM, sem rann út sl. föstudag, um
33% hærra en meðalverð bréfanna
síðustu sex mánuði sýnir. Næsta
skref er að afla heimildar hjá norska
fjármálaráðuneytinu fyrir eignarhald-
inu á Nemi. Reiknað er með að það
ferli geti tekið allt að þrjá mánuði fyr-
ir TM.
TM með 75% í Nemi
BANDARÍSKA tölvufyrirtækið
Apple Computer Inc. hafði betur í
deilu við bresku plötuútgáfuna
Apple Corps, sem Bítlarnir stofn-
uðu á sínum tíma, í deilu fyrir
breskum dómstólum um vörumerk-
ið. Apple Corps taldi að Apple
Computer hefði brotið samkomulag
félaganna frá árinu 1991 með því
að hefja sölu á tónlist á netinu undir
merkjum iTunes. AP-fréttastofan
greinir frá þessu.
Samkomulagið árið 1991 batt
enda á áralangar deilur fyrirtækj-
anna um nafnið. Þar samþykktu
fyrirtækin að troða hvort öðru ekki
um tær í starfsemi sinni.
Ekki í tengslum við tónlist
Bítlarnir stofnuðu Apple Corps árið
1968 og fyrirtækið er nú í eigu
þeirra Paul McCartney og Ringo
Starr, Yoko Ono, ekkju John Lenn-
on og dánarbús George Harrison.
Vörumerki félagsins er grænt epli.
Apple Corps krafðist lögbanns á
tónlistarstarfsemi Apple Computer
og fjárbóta. Lögmenn fyrirtækj-
anna tókust á meðan á málflutningi
stóð um auglýsingar fyrir iTunes
þar sem U2, Coldplay og Eminem
koma m.a. fram, en þar er vöru-
merki tölvufyrirtækisins, stílfært
epli sem bitið hefur verið í, notað.
En Edward Mann, dómari, úrskurð-
aði í gær að vörumerki Apple
Computer væri notað í tengslum
við verslanir fyrirtækisins en ekki
tónlist og því væri ekki um brot á
samningnum að ræða. Dómarinn
hafði raunar viðurkennt meðan á
réttarhöldunum stóð, að hann ætti
iPod tónlistarspilara frá Apple
tölvufyrirtækinu.
Apple hafði betur
gegn Apple
ÍSLENDINGAR gætu tekið upp evru án aðildar
að Evrópusambandinu, en það þjónaði hins vegar
engum tilgangi og væri í raun mistök. Þetta segir
Hervé Carré, aðstoðarframkvæmdastjóri skrif-
stofu efnahagsmála hjá Evrópusambandinu, og
bætir við að upptöku evru hér á landi án aðildar að
ESB myndi fylgja mikil áhætta.
Carré ræddi um hlutverk evrunnar í alþjóða-
væðingunni á fundi sem fastanefnd framkvæmda-
stjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, Samtök
atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins stóðu fyrir í
gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af Evrópu-
deginum, sem er í dag, en þá er þess minnst að á
þessum degi var grunnurinn lagður að stofnun
Evrópubandalagsins, eins og Evrópusambandi
hét á fyrstu árum þess.
Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að lokn-
um fundinum í gær, að það gæti ekki þjónað
nokkrum tilgangi fyrir Íslendinga að taka upp
gjaldmiðil sem stjórnað er af seðlabanka sem Ís-
land á ekki aðgang að. Seðlabanki Evrópu geti
hlaupið undir bagga með þeim aðildarríkjum sem
lenda í erfiðleikum, en án aðildar sé ekki hægt að
gera ráð fyrir slíkri aðkomu bankans. Því geti það
beinlínis verið áhættusamt að taka upp evru án að-
ildar að ESB, þó ýmsar þjóðir hafi tekið upp
stærri gjaldmiðla.
Carré er einn af hugmyndasmiðum evrunnar.
Hann hefur unnið að þeim málum allt frá árinu
1973, er hann réðist til starfa hjá framkvæmda-
stjórn ESB. Hann sagði að evran hefði svo sann-
arlega sannað gildi sitt. „Við vildum stöðugan
gjaldmiðil og evran er það,“ sagði hann. „Við töld-
um að evran myndi verða annar mikilvægasti
gjaldmiðill heimsins næst á eftir Bandaríkjadoll-
ar. Evran er nú í þeirri stöðu. Og upptaka evr-
unnar í þeim tólf ríkjum sem nú þegar hafa skipt
eigin gjaldmiðli út fyrir hana, hefur reynst við-
komandi ríkjum vel, svo ekki verður um villst. Þá
hefur evran stuðlað að verðstöðugleika og stöð-
ugleika í vaxtamálum, sem er ákaflega mikil-
vægt.“
Carré sagði að þótt hann teldi ekki skynsamlegt
fyrir Íslendinga að taka upp evru án aðildar að
ESB, þá sé hann sannfærður um að aðild Íslands
að sambandinu, og upptaka evrunnar í framhaldi
af því, yrði mikið til bóta fyrir Ísland. Spurningin
um aðild Íslands að ESB sé hins vegar fyrst og
fremst pólitísk og því ekki hans að segja þar nokk-
uð til um.
Tækifæri en ekki ógn
Fram kom í máli Carré á fundinum í gær, að
þegar málefni eins og alþjóðavæðing er til um-
ræðu, sé ekki hægt að stinga höfðinu í sandinn og
velja og hafna hvað hentar og hvað ekki. Líta beri
á alþjóðavæðingu sem tækifæri en ekki ógnun.
Sumir líti hins vegar á alþjóðavæðinguna sem ógn
við atvinnu hverrar þjóðar og launakjör sem og
stöðu innlendra fyrirtækja. Það sé misskilningur
að alþjóðavæðingin hafi neikvæð áhrif á atvinnu-
ástand og launa.
Hann sagði að frjálst flæði vinnuafls í Evrópu sé
skref í átt að alþjóðavæðingu og ekkert sé að ótt-
ast í þeim efnum. Þvert á móti eigi Evrópuþjóðir
að nýta sér þau tækifæri sem sem skapast hafi
með frjálsu flæði vinnuafls.
Evran stuðlar að stöðugleika
Morgunblaðið/Eggert
Tilgangslaust Hervé Carré segir það ekki þjóna
nokkrum tilgangi fyrir Ísland að taka upp evru
án aðildar að Evrópusambandinu.
6 *G
-H8
C
C
&:-=
!I
C
C
?? J,I
C
C
J,I ( %
6
C
C
5?=I
!K L%
C
C