Morgunblaðið - 09.05.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 17
ERLENT
MEIRA en 30 manns hafa látið lífið
vegna mikilla hita í Pakistan en
sums staðar í landinu hafa mælar
sýnt nærri 50 gráður á Celsíus.
Ekki bæta alvarlegir þurrkar úr
skák en þessi vélhjólakappi er að
spæna eftir botninum á Rawal-
vatni, helstu vatnsuppsprettu borg-
arinnar Rawalpindi. Nú er það
horfið og veðurfræðingar búast
ekki við neinni úrkomu að ráði
næstu tvo mánuði.
Reuters
Vatnsuppsprettan horfinMAHMOUD Ahmadinejad, forsetiÍrans, hefur skrifað George W.
Bush Bandaríkjaforseta bréf þar
sem lagðar eru fram tillögur um
lausn á deilu
ríkjanna vegna
kjarnorkuáætlun-
ar Írana. Bréfið
rýfur langt hlé í
samskiptum leið-
toga ríkjanna en
forsetar þeirra
hafa ekki átt í
formlegum
stjórnmálasam-
skiptum frá gísla-
tökunni í banda-
ríska sendiráðinu í Teheran 1979.
Viðbragða við bréfinu frá Wash-
ington var beðið í gær en írönsk yf-
irvöld sögðu að það myndi berast
Bush í gegnum sendiráð Sviss í Ír-
an, sem hefur farið með hagsmuni
Bandaríkjamanna í landinu síðan
1981. Að sögn Hamid Reza, tals-
manns íranska utanríkisráðuneytis-
ins, verður efni þess gert opinbert
eftir að Bush hefur veitt því viðtöku.
Í samtali við AFP-fréttastofunna
sagði vestrænn erindreki, sem vildi
ekki láta nafns síns getið, að fréttir
af bréfinu væru „diplómatísk
sprengja“, í ljósi þess að samskipti
ríkjanna að undanförnu hefðu verið
á milli aðila í mun lægri stöðum.
„Hingað til að hafa þessi sam-
skipti verið leynileg og ekki á milli
sérstaklega hátt settra aðila,“ sagði
erindrekinn. „Þetta hefur legið í
loftinu að því leyti að Íranir hafa
reynt að ná sambandi við Banda-
ríkjastjórn um hríð. Hins vegar
skiptir það að sjálfsögðu máli hvað
Ahmadinejad segir í bréfinu.“
Óhætt er að segja að bréfið sé
sögulegt en síðasta aldarfjórðung
hafa íranskir klerkar vísað til
Bandaríkjamanna sem hins „mikla
satans“ en Bush hefur áður skil-
greint Íran, ásamt Írak og Norður-
Kóreu, sem hluta af „öxulveldum
hins illa“.
Gholam Hossein Elham, talsmað-
ur Íransstjórnar, tjáði sig um efni
bréfsins í gær. „Í þessu bréfi, þar
sem lögð er fram greining á deilum
ríkjanna og stöðu heimsmála, hefur
hann [Ahmadinejad] lagt fram nýjar
tillögur í því skyni að leiða þjóð sína
út úr hinni viðkvæmu stöðu heims-
mála,“ sagði Elham.
Aðvarar Bandaríkjamenn
Ali Larijani, helsti samningamað-
ur Írana á sviði kjarnorkumála, kom
í heimsókn til Tyrklands í gær. Við
það tækifæri sagði hann stjórnvöld í
Ankara mundu styðja við kjarn-
orkuáætlun Írana, m.a. vegna þess
að þau færu einnig fyrir íslamskri
þjóð.
Þá sagði Larijani að írönsk yf-
irvöld hefðu ekki í hyggju að segja
upp aðild sinni að alþjóðasamningi
um bann við útbreiðslu kjarnavopna
(NPT) létu SÞ ekki af kröfum sín-
um, líkt og þing landsins gaf í skyn í
bréfi til Kofi Annan, framkvæmda-
stjóra samtakanna, á laugardag.
Þá varaði hann Bandaríkjamenn
við því að ráðast inn í Íran. „Ef þeir
hafa lágmarksgáfur munu þeir ekki
gera slík mistök,“ sagði Larijani.
Larijani kemur í heimsókn til
Grikklands í dag til fundar við Dora
Bakoyannis, utanríkisráðherra
landsins. Með honum í för verða
háttsettir menn í íranska utanrík-
isráðuneytinu en Grikkir, sem eiga
sæti í öryggisráðinu, vilja fara
samningaleiðina í deilunni.
Á sama tíma lýstu yfirvöld í
Indónesíu, fjölmennasta múslíma-
ríki veraldar, því yfir í gær, í að-
draganda sex daga opinberrar heim-
sóknar Íransforseta, að þau styddu
þá viðleitni Írana að koma sér upp
kjarnorkutækni til friðsamlegra
nota.
Hittust í New York
Hið óvænta bréf kom í aðdrag-
anda fundar meðlima fastafulltrúa
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
sem hafa neitunarvald, auk fulltrúa
Þjóðverja, í New York í gær. Þótti
fundurinn litlu skila en þar var rætt
frekar um drög að ályktun sem
Frakkar og Bretar lögðu fram í síð-
ustu viku.
Byggjast umrædd drög á ákvæði í
sjöundu grein stofnsáttmála SÞ, þar
sem öryggisráðinu er veitt heimild
til að beita þau ríki refsiaðgerðum
sem talin eru ógn við friðinn.
Kínverjar og Rússar hafa hins
vegar lýst sig andsnúna slíkum að-
gerðum og segjast vilja reyna samn-
ingaleiðina til þrautar.
Íransforseti
skrifaði Bush
Vestrænn erindreki í Teheran segir
bréfið marka tímamót
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mahmoud
Ahmadinejad
Málþing á Fosshóteli Húsavík 9. maí 2006
um álver og efnahagsáhrif þess á Norðurlandi
Fyrir skömmu tilkynnti Alcoa að það hefði áhuga á að reisa annað álver sitt á Íslandi á Húsavík.
Hér er hugsanlega um að ræða álver sem myndi framleiða 250 þús. tonn af áli á ári og ráða um
300 starfsmenn, en afleidd störf yrðu um eða yfir 300.
Rætt verður um þætti eins og: Hvaða áhrif hefur álver á N-Austurlandi á afkomu svæðisins og
tekjur þjóðarbúsins? Verður álverið knúið vistvænni orku frá háhitasvæðum við bæjardyr
Húsavíkur? Hver hefur reynslan verið á Austurlandi þar sem gróska ríkir? Liggur Húsavíkurhöfn
vel við siglingaleiðum til helstu hafna álfunnar? Er staðarvalið ekki kostur?
Fulltrúar launþega, atvinnurekenda og úr stjórnmálum eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á byggingu álvers á Húsavík.
Málþingið verður þriðjudaginn 9. maí nk. frá kl. 17:00 til kl. 18:30.
Dagskrá:
Hagrænir þættir og tækifæri í nærumhverfi
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans
Samspil umhverfisverndar og athafnalífs
Árni Sigurbjarnarson, fulltrúi Húsgulls
Hagræn áhrif álvers
Sveinn Agnarsson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun HÍ
Ört vaxandi athafnalíf á Austurlandi
Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs Austurlands
og forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Stóriðja og flutningar
Einar Eyland, svæðisstjóri Eimskips á Norðurlandi
Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.
Á Húsavík
sér framtíð?
Að fundinum standa: Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Viðskiptaráð Austurlands, OrkuÞing, Alcoa,
Landsbankinn, KEA, Eimskip og Alli Geira hf.
K
O
M
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
sl
/s
va
rt
h
ví
tt
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini þann 17. maí og 24.
maí. Njóttu sumarsins á þessum eina vinsælasta sumarleyfisstað
Ítalíu. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Rimini
17. maí og 24. maí
frá kr. 29.995
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í viku.
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
kr.29.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.