Morgunblaðið - 09.05.2006, Page 18
Mývatnssveit | Nú eru síðustu
leifar vetraríssins að yfirgefa
Mývatn þetta árið. Það endar
þannig nú sem oft áður að sein-
asta íshroðið rekur undan hlýrri
suðvestanátt upp á vatnsbakka
Neslandatanga og ryður þar
upp háum íshraukum sem
bráðna síðan á næstu dögum.
Morgunblaðið/BFH
Kuldalegur vorboði
Vorið
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
bundin kaup verkefnisins samkvæmt
samningum eru í dag orðin um 65
milljarðar íslenskra króna. Þar af hef-
ur 48 milljörðum verið varið erlendis
en 16 milljörðum hér á landi. Samtals
hafa því 26% af heildarviðskiptum far-
ið fram á Íslandi.
Viðskipti Fjarðaálsverkefnisins áÍslandi eru nú orðin samtals 17milljarðar íslenskra króna, seg-
ir í fréttatilkynningu frá Alcoa-
Fjarðaáli.
Heildarfjárfestingar verða um 93
milljarðar íslenskra króna en skuld-
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Álver Alcoa-Fjarðaáls tekur nú óðast á sig mynd á Reyðarfirði.
17 milljarðar í Fjarðaál
Vorið er komið, – ogósjálfrátt rifjastupp gamlar stök-
ur. Káinn orti um sól-
skinið í Dakota:
Þegar vetur víkur frá
og veðrið fer að hlýna,
þá er fögur sjón að sjá
sólina okkar skína.
Og tvinnar síðan áfram
í þessum dúr og lýkur
ljóðinu þannig:
Þegar eg er fallinn frá
og fúna í jörðu beinin,
verður fögur sjón að sjá
sólina skína á beinin.
Kárinn var ólíkindatól.
Hringhenda hlunkhendu
kallaði hann þessa stöku:
Það, sem ég meina, sérðu,
sko!
vera ekki að neinu rugli;
bara að reyna drepa tvo
steina með einum fugli.
Og hér er svo vorvísa
úr Menntaskólanum á Ak-
ureyri, kveðin af Halldóri
Blöndal fyrir hálfri öld:
Ungri sætu ef ég mæti úti á
stræti
og ástin bregður fyrir fæti
fyndi ég mér eftirlæti.
Vorvísur
pebl@mbl.is
Húsavík | Málþing um efnahagsleg áhrif
álvers á Norðurlandi verður haldið á Húsa-
vík í dag undir yfirskriftinni Á Húsavík sér
framtíð? á vegum á vegum Atvinnuþróun-
arfélags Þingeyinga og viðskiptaráðs Aust-
urlands í samstarfi við OrkuÞing, Alcoa,
Landsbankann, KEA, Eimskip og Alla
Geira hf.
Í tilkynningu frá aðstandendum mál-
þingsins segir: „Ef álfyrirtækið Alcoa
ákveður að reisa á nýtt álver á Bakka við
Húsavík mun það skapa 300 störf í ál-
verinu, samkvæmt skýrslu sem verkfræð-
ingar frá HRV unnu um samfélagsleg áhrif
hugsanlegs álvers við Húsavík. Það kemur
einnig fram að afleidd störf álversins yrðu
900 til 1050 á
landsvísu, þar
af 150 til 200 í
Þingeyjar-
sýslu og á Ak-
ureyri yrðu
þau 150 til
200. Verði af
framkvæmd-
um má gera
ráð fyrir því
að fólksfjölg-
un vegna ál-
versins á
Bakka verði
um 1.000
manns í Þing-
eyjarsýslu.“
Á mál-
þinginu verð-
ur meðal annars rætt um áhrif álversins á
afkomu svæðisins og tekjur þjóðarbúsins.
Reynsla Austfirðinga af áhrifum af fram-
kvæmdum og byggingu álvers á Reyðar-
firði verður skoðuð, svo og kostir staðar-
valsins.
Á málþinginu sem hefst kl. 17 í dag á
Fosshóteli Húsavík, mun Edda Rós Karls-
dóttir, forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, tala um hagræna þætti
hugsanlegs álvers og þau tækifæri sem það
skapar í nánasta umhverfi þess. Árni Sig-
urbjarnarson, fulltrúi Húsgulls, ræðir um
samspil umhverfisverndar og athafnalífs.
Hagræn áhrif álvers er heiti fyrirlesturs
Sveins Agnarssonar, hagfræðings við Hag-
fræðistofnun HÍ. Tómas Már Sigurðsson,
formaður viðskiptaráðs Austurlands og
forstjóri Alcoa Fjarðaáls, ræðir um ört
vaxandi athafnalíf á Austurlandi í kjölfar
framkvæmda þar og Einar Eyland, svæð-
isstjóri Eimskips á Norðurlandi, talar um
Húsavíkurhöfn sem er vel staðsett með til-
liti til flutninga. Í lok málþingsins verða
umræður og fyrirspurnir.
Á Húsavík
sér framtíð?
Vorið er tími hreinsunar og hinn árlegi
hreinsunardagur var í Þórshafnarhreppi
á laugardaginn. Stórir og smáir kepptust
við að hreinsa umhverfi sitt. Vorsólin
geislaði og gladdist með léttklæddum
íbúunum meðan ruslapokar fylltust einn
af öðrum en hitinn fór allt upp í 18 gráð-
ur þegar heitast var.
Rúsínan í pylsuendanum var þegar all-
ir söfnuðust saman við íþróttahúsið þar
sem Þórshafnarhreppur bauð upp á grill-
aðar pylsur og rjómavöfflur og hreins-
unarfólk naut veðurblíðu og veitinga eftir
vel unnið dagsverk.
Vel hefur gengið á grásleppunni, miðað
við sama árstíma í fyrra og yfirdrifið að
gera í hrognasöltun. Fréttaritari leit inn í
hrognasöltunarhús Eyþórs Atla en
hrognasöltun hefur verið þar í um 16 ár.
Að sögn Eyþórs ber frúin hans hitann og
þungann af vinnunni þar en saltað er þar
af fimm bátum. Grásleppusjómenn segja
þetta vera nokkuð góða vertíð, mun betri
en í fyrra enda er nóg að gera í sölt-
unarhúsinu.
Það var ekki laust við að síldar-
árastemming ríkti í hrognasöltunar-
húsinu því 17 mánaða dóttir húsráðend-
anna Eyþórs og Svölu, Bjarney Hulda,
beið þolinmóð í kerrunni sinni meðan
móðir hennar lauk frágangi seinni hluta
dags.
Sögur frá síldarárunum austan af landi
komu upp í hugann, þegar söltunar-
stúlkur tóku börnin með sér og höfðu þau
í tunnu hjá sér meðan unnið var af kappi.
Litla Bjarney Hulda sýndi fullan skilning
á því að verðmætum yrði að bjarga upp
úr sjó, líkt og börn í sjávarplássum alast
jafnan upp við og sýndi engin merki um
óþolinmæði þegar hún vaknaði af síðdeg-
isblundinum og móðir hennar þurfti að
ljúka verki sínu.
Búið er að salta í um 260 tunnur hjá
Svölu og Eyþóri af fimm bátum, sem er
mun meira en í fyrra. Verðið á tunnunni
er hins vegar svívirðilega lágt, að sögn
Eyþórs, eða um 35.000 en var yfir 40 þús-
und í fyrra.
Úr
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR