Morgunblaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 25
UMRÆÐAN
„VERSLUN og þjónusta, íbúða-
byggð og útivistarsvæði á Akureyr-
arvelli,“ þannig hljóðaði fyrirsögn í
blaðinu Vikudegi hinn 12. apríl sl. og
segir þar að meirihlutaflokkarnir í
bæjarstjórn Akureyar,
þ.e. Framsókn og Sjálf-
stæðisflokkur, leggi til
við bæjarstjórn að
íþróttavöllurinn „þjóð-
arleikvangur“ Akureyr-
inga verði tekinn undir
fyrrgreinda starfsemi,
sem segir í upphafi
greinar. Það er sem
sagt lagt til að taka af
okkur „þjóðarleikvang“
okkar, það svæði, sem
er eitt fallegasta
íþróttavallar- og útivist-
arsvæði á landinu og
hafa t.d. flest aðkomuknattspyrnulið
rómað völlinn fyrir gæði og snyrti-
mennsku.
Þarna leggur meirihluti bæj-
arstjórnar til að byggð verði stór-
verslun og íbúðablokkir.
Þessi völlur er rúmlega hálfrar ald-
ar gamall, en það versta er að aum-
ingjaskapur ráðamanna allan þennan
tíma og allt fram á þennan dag hefur
verið slíkur að engin almennileg upp-
bygging hefur farið þar fram eins
glæsilegt og hægt er að gera svæðið.
Nokkur orð til oddvitanna
Mig langar í nokkrum orðum að
fræða oddvita B- og D-lista, aðkomu-
mennina Kristján Þór Júlísson bæj-
arstjóra og Jakob Björnsson formann
bæjarráðs, sem ætla að leggja til að
„þjóðarleikvangurinn“, þessi gersemi
Akureyrar, verði eyðilagður, örlítið
um upprunann.
Það var árið 1946 að þrír vitrir
menn og íþróttafrömuðir á Akureyri,
þeir Ármann Dalmannsson, Her-
mann Stefánsson og Tryggvi Þor-
steinsson, í íþróttavall-
arnefnd ÍBA, sem þá
var nýlega stofnað,
fengu þá frábæru hug-
mynd að staðsetja
íþróttasvæði Akureyrar
á túninu austan
Brekkugötu og Klapp-
arstígs.
Staðsetning svæð-
isins þótti nefnilega
mjög góð og ein sú allra
besta, og miðsvæðis í
bænum, og auðvelt að
gera áhorfendasvæði
vestan svæðisins og
vallarsvæðið auðvelt í vinnslu.
Svæðið var í eigu dánarbús, en auð-
velt reyndist að fá það keypt. Það var
svo árið 1948, sem bæjarstjórn Ak-
ureyrar kaus íþróttavallarnefnd, sem
átti að vinna að uppbyggingu svæð-
isins og í þá nefnd völdust fyrr-
greindir menn, þ.e. Ármann, Her-
mann, Tryggvi ásamt Steindóri
Steindórssyni.
Eftir þrotlausa og mikla vinnu árin
á eftir var svo hlaupabrautin á
íþróttavellinum vígð 17. júní 1951 og í
ágúst 1953 fór vígsla knatt-
spyrnuvallarins fram með meist-
araflokksleik á milli KA og Þórs.
Eins og fyrr segir hefur vantað
metnað, og áhugaleysið verið slíkt að
með eindæmum er. Að byggja ekki
upp þetta fallega svæði og gera það
með þeirri reisn að eftir verði tekið og
Akureyringum til sóma.
Vill einhver stórmarkað og
íbúðablokk á Laugardalsvöll?
Fram hafa komið undirskriftalistar
með nokkur hundruð nöfnum, sem
fengin voru í ákveðnum verslunum
hér í bæ þar sem mælt er með versl-
un og íbúðabyggð á íþróttasvæðinu
og var ekki greint á milli hvort það
voru Akureyringar eða fólk búsett
annars staðar á landinu, sem skrifaði
á listana. Komið hefur fram að áhugi
er á að byggja Hagkaupsverslun á
svæðinu og einnig að aðilar innan KA
og Þórs séu því hlynntir að „þjóð-
arleikvangur“ Akureyringa, þessi
gersemi, verði eyðilagður með stein-
steypu, en allt virðist þetta vera
„bisnessjónarmið“ og ættu sannir
Akureyringar að láta í sér heyra og
ekki taka þátt í eyðileggingunni.
Hverjum dettur t.d. í hug, ef ég tek
samanburð, að Hagkaupsverslun og
íbúðablokkir rísi í Laugardalnum í
Reykjavík? Tökum ekki þátt í að
eyðileggja gersemar Akureyrar.
Ekki eyðileggja
„þjóðarleikvang“ Akureyrar
Hjörleifur Hallgríms skrifar
um skipulagsmál á Akureyri ’… allt virðist þetta vera„bisnessjónarmið“ og
ættu sannir Akureyr-
ingar að láta í sér heyra
og ekki taka þátt í eyði-
leggingunni.‘
Hjörleifur Hallgríms
Höfundur er framkvæmdastjóri,
fæddur og uppalinn á Akureyri.
ORKUVEITA
Reykjavíkur, í sam-
starfi við Klasa ehf.,
er með áform um að
selja 6-700 lóðir á
jörð sinni við Úlfljóts-
vatn. Þessi jörð var
ætluð sem útivist-
arsvæði fyrir almenn-
ing og um svæðið
liggur göngu- og reið-
leið. Ljóst er, að ef af
þessum fram-
kvæmdum verður
skerðist aðgangur almennings að
þessu svæði verulega. Úlfljótsvatn
er rómað fyrir einstaka nátt-
úrufegurð og við það orti Reykja-
víkurskáldið, Tómas Guðmunds-
son, mörg sín fegurstu ljóð, m.a.
Fljótið helga.
Í tillögu Umhverfisstofnunar til
umhverfisráðherra frá 2003 „Nátt-
úruverndaráætlun, aðferðarfræði –
Tillögur Umhverfisstofnunar um
friðlýsingar“, eru tilnefnd 75 svæði
sem sérstök ástæða er til að
vernda. Hlaut Sogið tilnefningu
m.a. vegna alþjóðlegs nátt-
úruverndargildis; sjaldgæfar fugla-
tegundir og votlendi. Svæðið nær
frá útfalli Sogs í Ölfusvatnsvík nið-
ur að ármótum Hvítár; þ.e. áin,
Úlfljótsvatn og Álftavatn, ásamt
200 m breiðu belti beggja vegna
árinnar, ásamt hluta af Þrast-
arskógi. Í tillögu til þingsályktunar
um náttúruverndaráætlun 2004-
2008 kemur skýrt fram að öll 75
svæðin þurfi sérstakrar aðgátar
við, hvað varðar hvers konar rask
og ógnanir og skuli þau svæði sem
ekki eru á núgildandi áætlun, svo
sem Sogið, höfð til hliðsjónar við
endurskoðun náttúruminjaskrár.
Leggja skal Náttúruvernd-
aráætlun fyrir Alþingi á 5 ára
Úlfljótsvatn –
Náttúruverndaráætlun
Reynir Þór Sigurðsson
fjallar um Úlfljótsvatn og
framkvæmdir OR ’Þurrkun votlendis ogbygging sumarhúsa við
vatnsbakkann hlýtur að
skerða verulega lífríki
vatnsins og rýra þar með
verndargildi þess.‘
Höfundur er húsasmíðameistari og
áhugamaður um óspillta náttúru.
fresti og má því ætla að umhverf-
isráðherra leggi fram Nátt-
úruverndaráætlun
2009-2013 í síðasta
lagi 2008. Ég tel að
það sé ekki spurning
um hvort, heldur hve-
nær Úlfljótsvatn verð-
ur lögformlega frið-
lýst. Gæti það verið
ein af ástæðum þess
að Orkuveita Reykja-
víkur/Klasi virðast
vilja hraða deiliskipu-
lagi og breytingu á að-
alskipulagi hjá sveit-
arstjórn Grímsnes- og
Grafningshrepps?
Þurrkun votlendis og bygging
sumarhúsa við vatnsbakkann hlýt-
ur að skerða verulega lífríki vatns-
ins og rýra þar með verndargildi
þess.
Reynir Þór Sigurðsson
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
HÚSAFELL - SUMARHÚS
Til sölu þrjú falleg 47 fm sumarhús, rétt við sundlaugina í Húsafelli. Húsin eru
öll með góðri verönd og umlukin trjágróðri. Húsin skiptast í tvö svefnherbergi,
stofu, eldhús og baðherbergi. Gott svefnloft er yfir bústaðnum að hluta.
Hagstætt verð. V. 8,5 m. 5315
Iðnó 14. maí kl. 23.30
Miðaverð: 2.500
Ými 15. maí kl. 11.00 f.h.
Miðaverð: 2.300
Vinsælasti dansflokkur
S-Ameríku dag
Borgarleikhúsinu 12. og 13.
kl. 20.00 og 14. maí 14.00
Miðaverð: 3.500
Nasa við Austurvöll 13.
og 14. maí kl. 21.00
Miðaverð: 3.000
Uppselt 13. maí, örfá sæti 14. maí
Sönglagasirkus með Sigurði Flosasyni
saxófónleikara og Sólrúnu Bragadóttir
sópransöngkonu
Flytjendur: Miklós Dalmay og
Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikarar
Rómantísk tónlist í
sinni tærustu mynd
Uppselt 12. maí, örfá sæti 13. maí
www.listahatid.is
Kynnir: Halldór Hauksson
Efnisskrá: Davidsbündlertänze
ópus 6, Carnival ópus 9
www.listahatid.is
1. hluti
Stórskemmtilegt
pólskt
harmónikkuband