Morgunblaðið - 09.05.2006, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 20/5 kl. 14 Su 21/5 kl. 14
Su 28/5 kl. 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP
Í kvöld kl. 20 UPPS. Mi 10/5 kl. 20 UPPS.
Fi 18/5 kl. 20 UPPS. Fö 19/5 kl. 20 UPPS.
Fö 19/5 kl. 22:30 UPPS.Su 21/5 kl. 20 UPPS.
Fi 25/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 20 UPPS.
Fö 26/5 kl. 22:30 UPPS.
Su 28/5 kl. 20 UPPS. Fi 1/6 kl. 20 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 22:30 UPPS.
Má 5/6 kl. 20 Fö 9/6 kl. 20
Fö 9/6 kl. 23 Má 12/6 kl. 20
VILTU FINNA MILLJÓN?
Forsýningar miðaverð 1.500
Fö 12/5 kl. 20 UPPS. Lau 13/5 kl. 20 UPPS.
Má 15/5 kl. 20 UPPS. Þri 16/5 kl. 20 UPPS.
Mi 17/5 kl. 20 UPPS.
Fö 19/5 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Su 21/5 kl. 20 UPPS. Fi 25/5 kl. 20
Fö 26/5 kl. 20 Fö 2/6 kl. 20
Lau 3/6 kl. 20 Má 5/6 kl. 20
Fi 8/6 kl. 20 Fö 9/6 kl. 20
MIKE ATTACK
Einleikur Kristjáns Ingimarssonar
Su 14/5 kl. 14 SÍÐASTA SÝNING
MIÐAVERÐ 1.900
MARLENE DIETRICH-Íd
Má 15/5 kl. 20 Þr 16/5 kl. 20
Mi 17/5 kl. 20 AÐEINS ÞESSAR SÝN.
BELGÍSKA KONGÓ
Su 14/5 kl. 20 Fi 18/5 kl. 20
Mi 24/5 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR
HUNGUR
Su 14/5 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING
TENÓRINN
Fi 18/5 kl. 20 Lau 27/5 kl. 20
AÐEINS ÞESSAR SÝN.
HLÁTURHÁTIÐ
HLÁTURHÁTÍÐARVIÐBURÐIR Í MAÍ
Fi 11/5 kl. 22:30
PÖRUPILTAR OG DRAGDROTTNINGAR
Pörupiltarnir troða upp ásamt óvæntum
gestum.
Þeir sem mæta í “dragi” fá frítt inn!
MIÐAVERÐ 1.000
Fi 18/5 kl. 22:30
LEiKTU FYRIR MIG
Leikarar leika eftir pöntun þín uppá-
haldsatriði úr Áramótaskaupunum.
MIÐAVERÐ 1.000.
Fi 25/5 kl. 22:30
BANANABIKARINN
Leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur og Leik-
félagi Akureyrar, keppa í leikhússporti
MIÐAVERÐ 1.000.
Su 28/5 kl. 20:00 HLÁTURNÁMSKEIÐ
Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason
kenna hláturjóga.
MIÐAVERÐ 1.000
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
MIÐASALA OPIN
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN Á NETINU.
Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september!
Vegnar gríðarlegrar aðsóknar: Aukasýningar í september!
Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING
Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING
Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING
Lau 10/9 kl. 19 AUKASÝNING
Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Allt að seljast upp!
Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sala hafin!
100 ára hús
eftir Jón Atla Jónasson
Vegna óviðráðanlegrar aðsóknar
verður sýningum fjölgað.
Miðvikudagur 10. maí 2006 kl. 22:00
Takið eftir óvenjulegum sýningartíma.
Sýningarstaður Ylströndin
í Nauthólsvík.
Munið hlýlegan klæðnað.
Miðasala í síma 899 8163,
fruemilia@simnet.is
og við innganginn
www.100arahus.blogspot.com
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga
Símasala kl. 10-18. þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Óperuvefnum allan sólarhringinn
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
LAUGARDAGUR 13. MAÍ KL. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT
SUN. 14. MAÍ KL. 19 - UPPSELT
LAU. 3. JÚNÍ KL. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Frábær sýning sem hefur slegið
algjörlega í gegn.
Sýnd í Óperunni í maí og júní.
Miðasala hafin
LITLA HRYLLINGSBÚÐIN
LAU. 20. MAÍ KL.19 - NOKKUR SÆTI LAUS
LAU. 27. MAÍ KL. 15 - Aukasýning
LAU. 27. MAÍ KL. 19 - ÖRFÁSÆTI LAUS
Sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar
LAU. 10. JÚNÍ KL. 19 - Laus sæti
GESTIR heimsækja Louvre-safnið
í París gegnum glerpíramídainn-
gang safnsins. Louvre-safnið, sem
eitt sinn var konungshöll með
dýflissu og virkisgröf í kring, sló
aðsóknarmet á síðasta ári. Heim-
sóttu þá ríflega sjö og hálf millj-
ón gesta safnið, fleiri en nokkuð
annað safn í veröldinni. Jafn-
gildir það því, að 20.548 manns
komi í safnið að meðaltali á
hverjum degi.
AP
Aðsóknarmesta listasafn heims
LEIKSÝNINGUNNI 100 ára húsi
eftir Jón Atla Jónasson, sem frum-
sýnt var af Frú Emilíu fyrir
skömmu í gömlu hersjúkratjaldi á
Ylströndinni í Nauthólsvík, hefur
verið boðið á alþjóðlegu leiklist-
arhátíðina „Midwinter Night’s
Dream“ sem borgarleikhúsið í Tall-
inn í Eistlandi heldur 27.–30. des-
ember annað hvert ár.
Útsendari hátíðarinnar var
staddur hér á landi í síðustu viku og
óskaði jafnframt eftir að sýning
Vesturports á leikritinu Brimi, sem
einnig er eftir Jón Atla, kæmi á há-
tíðina. Þekktir leikhúsmenn hafa
tekið þátt í leiklistarhátíðinni, m.a.
Frank Casdorf frá Þýskalandi,
Anatoly Vassilyev og Kamas Gin-
kas frá Rússlandi.
Hundrað ára húsi boðið
til Eistlands
GUÐRÚN Kristjánsdóttir mynd-
listarkona hlaut nýverið styrk úr
Pollock Krasner-sjóðnum, sem er al-
þjóðlegur listasjóður stofnaður af
Lee Krasner, ekkju listmálarans
Jacksons Pollock. Sjóðurinn er mik-
ils virtur; valnefnd hans er skipuð
viðurkenndu fagfólki innan hins al-
þjóðlega listgeira og eru miklar
kröfur gerðar til styrkþega. Styrk-
urinn þykir mikil viðurkenning þeim
sem hann hljóta.
Guðrún stundaði myndlistarnám í
Reykjavík og í Frakklandi og hefur
sýnt verk sín víða um heim á und-
anförnum tveimur áratugum. Á síð-
asta ári voru tvær einkasýningar á
verkum hennar í New York, auk
sýningar í Gallerí 100° í húsi Orku-
veitunnar í Reykjavík. Fram undan
hjá Guðrúnu eru ýmis verkefni og
sýningar, bæði hér heima og erlend-
is.
Hlýtur styrk úr
Pollock Krasner-sjóðnum
Morgunblaðið/Arnaldur
Guðrún Kristjánsdóttir
Í KVÖLD verður haldið ljóðakvöld
á Hressó, þar sem Ljóð.is, Nýhil og
List án landamæra mætast.
Fjöldi ljóðskálda með ólíkan
bakgrunn kemur fram; „útgefin og
óútgefin, hömluð og óhömluð,
fötluð og ófötluð. Hamlanir kvölds-
ins eru afstæðar, hvort sem er
skortur á mætti í fótum eða haml-
anir á tilfinningasviðinu“, eins og
segir í fréttatilkynningu.
Ljóðin verða túlkuð jafnóðum af
táknmálstúlkum, en kynnir kvölds-
ins er Viðar Þorsteinsson. Ljóð-
skáld kvöldsins eru: Hildur Lillien-
dahl, Bjarni Bernharður, Hallur
Þór Halldórsson, Ásdís Jenna Ást-
ráðsdóttir, Magnús Korntop, Hauk-
ur Már Helgason, Skúli Steinar Pét-
ursson og Björk Þorgrímsdóttir.
Hömluð og óhömluð ljóð á Hressó
RÚMLEGA 100 manns sóttu nám-
skeið um Da Vinci-lykilinn og
leyndardóma hans í Gautaborg í
Svíþjóð. Leiðbeinandi var sr. Þór-
hallur Heimisson, en hann hefur
starfað sem prestur í sænsku
kirkjunni í Uppsala. Var hið fyrra
haldið fyrir Íslendinga sem þar eru
búsettir en hið síðara fyrir Svía á
sænsku.
Það var íslenski söfnuðurinn í
Gautaborg í samvinnu við sænsku
kirkjuna sem stóð fyrir námskeið-
unum. Um var að ræða sama nám-
skeið og haldið hefur verið hér á
landi, sem yfir 700 manns hafa
sótt.
Á námskeiðunum var fjallað um
hugmyndir metsölubókarinnar Da
Vinci-lykilsins, um Jesú, hvernig
Nýja testamentið varð til, hvort
María Magdalena hafi verið eig-
inkona og barnsmóðir Jesú og
hvort sagan eins og við þekkjum
hana sé blekking. Einnig var kafað
niður í sögu krossferðanna, must-
erisriddaranna, Jóhannesarriddara,
og margvíslegra leynireglna kirkj-
unnar. Gralinn kemur mikið við
sögu í Da Vinci lyklinum og á nám-
skeiðinu var saga hans rakin og
nýjar kenningar um hann krufnar,
kenningar sem m.a. gera ráð fyrir
að hann sé hvorki bikar, né barn
Maríu Magdalenu, heldur skelfileg-
asta vopn allra tíma.
Hundrað manns á Da
Vinci-námskeiðum í Svíþjóð
Í PISTLI um skáldið
Snorra Hjartarson, sem
birtur var í tilefni aldar-
afmælis hans hinn 22. apríl
síðastliðinn, var sagt að
heildarútgáfu með verkum
Snorra væri „að vænta á
næstu misserum“ hjá Eddu
útgáfu. Útgáfan kom aftur
á móti út á sjálfan afmæl-
isdaginn, hinn 22. apríl, og
biðjumst við velvirðingar á
þessum ruglingi.
Heildar-
útgáfa á
verkum
Snorra