Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 9 FRÉTTIR 43 27. janúar – 1 vika / 3. febrúar – 1 vika / 27. janúar – 2 vika Verð: 123.970 kr. á mann í tvíbýli í 1 viku Verð: 182.400 kr. á mann í tvíbýli í 2 vikur Saalbach - Hinterglemm er oft nefnt skíðaparadís Alpanna og hefur verið valið eitt af 10 vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis. Gist verður á 4 stjörnu hóteli í þorpinu Hinterglemm. Hótelið er vel staðsett í jaðri bæjarins, rétt við skíðalyfturnar. Fararstjórar dvelja allan tímann á hótelinu og skipuleggja daglegar ferðir um skíðasvæðið. Innifalið er hálft fæði og rútuferðir til og frá flugvelli. Fararstjórar: Sævar Skaptason & Guðmundur K. Einarsson s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Ág ús ts dó tti r til Saalbach-Hinterglemm Skíðaferð Afmælisþakkir Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem með einum eða öðrum hætti glöddu mig á 95 ára afmælisdaginn minn þann 17. júlí sl. Guð veri með ykkur öllum. Freyja Bjarnadóttir (Lúlla), Borgarnesi. TJALDIÐ er fallið, ef svo mætti segja, í skútukappsiglingunni Skip- pers d’Islande frá Paimpol á Bret- aníuskaga í Frakklandi til Reykjavík- ur og Grundarfjarðar og til baka. Fyrsta skútan kom í mark á laug- ardag og síðan tíndust þær inn ein af annarri næstu daga en frestur til þess rann svo út síðdegis í gær, mið- vikudag. Lentu skúturnar flestar í hrakningum á bakaleiðinni sem var óvenju seinfarin. Glímdu þær við allt að 50 hnúta vind og fjallháar öldur á siglingunni milli Frakklands og Ís- lands. Fljótust til heimahafnar eftir að skúturnar voru ræstar af stað í Grundarfirði var 40 feta skúta með nafninu Tchuda Popka. Var hún önn- ur til Reykjavíkur og hraðskreiðust samanlagt. Og það þrátt fyrir að hálfs annars sólarhrings refsitíma væri bætt við siglingatíma hennar fyrir að laumast á brott frá Grindavík á undan öðrum siglurum sem þar leituðu vars vegna yfirvofandi óveð- urs á siglingaleið skútanna suður af Íslandi. Áhafnir skútanna höfðu sammælst um að leggja samtímis upp frá Grindavík og þótti því ekki góð íþróttamennska af skútustjóranum Gwenchlan Catherine að fara fyrr af stað þaðan. Tchuda Popka, sem mun vera rússneska og útleggjast sem „glæsi- legi litli rassinn“, vann flokk sérsmíð- aðra 40 feta kappsiglara og var fljót- ust í þeim flokki á báðum leiðum. Að meðtöldu stoppi í Grindavík var hún 16 daga og tæpar 10 stundir með sigl- inguna, þar af 6 daga og 12 stundir til Reykjavíkur. Skútan var smíðuð í vetur og vor og sjósett um mánuði fyrir keppni. Ung áhöfn hennar þótti sýna færni í að lesa í veðurkort og herfræði því hún nýtti lægðirnar hagstæðast til að skila sér á mark. Spíttskútan Vedette Brehat undir stjórn ungrar afrekskonu, Servane Escoffier, sem varð fyrst til Íslands frá Paimpol á 5 dögum og rúmum 13 stundum, vann 50 feta flokkinn. Sigldi hún ein síns liðs til baka til að ávinna sér keppnisrétt í keppninni eftir Rommleiðinni svonefndu síðar í haust. Er þar um margfalt lengri keppnislengd að ræða, frá Frakk- landi til Karíbahafsins. Að heildar- tíma töldum var hún næstfljótust með báðar leiðir. Nokkrum skútum var siglt einliða til baka og var tilgangurinn að öðlast þátttökurétt í Rommleiðarsigling- unni. Það tókst þeim öllum. Fyrstur þessara „sólóista“ til baka varð Pierre-Yves Chatelin á skútunni Destination Calais, en á henni vann hann Skippers d’Islande-siglinguna árið 2003. Skúta að nafni Armor Crustacés, sem einnig gengur undir bretónska nafninu Diaoul Gwenn eða Hvíti djöf- ullinn, vann svonefndan IRC-flokk. Hafði hún þar betur m.a. í keppni við tæplega sjötuga slúpu, Khayyam, sem varð fyrst í þessum flokki til Reykjavíkur. Skútustjórinn Didier Bellenger steig því á efsta þrep verð- launapallsins að þessu sinni eftir að hafa orðið í öðru sæti í Íslandssigl- ingunni bæði árið 2000 og 2003. Alls hófu 19 skútur keppni en ekki höfðu allar skilað sér í mark er tím- inn rann út á keppendur. Og sumar lentu í ýmiss konar hremmingum. Sjálfstýring bilaði á skútunni As- wakh svo skútustjórinn sem var einn um borð leitaði til Reykjavíkur. Tók niðri við Akurey en slapp vel frá því atviki. Hann ákvað svo að fljúga heim og fá aðra til að sigla skútunni til baka svo hann kæmist í tæka tíð í brúðkaup dóttur sinnar. Neysluvatnið þraut fljótt vegna leka Skipverjar á skútunni Port de Gra- velines, fulltrúar bæjarins Gravelines á Flandri þaðan sem mjög var sótt á fiskimið við Ísland á öldum áður, urðu fyrir því að neysluvatnstank- urinn var orðinn tómur eftir tveggja daga siglingu frá Grindavík. Gat hafði myndast á slöngu í tankinn svo hann tæmdist án þess að þess yrði vart fyrr en tómur var orðinn. Urðu skipverjar því að svala þorstanum á bjór og öðrum guðaveigum þá viku sem eftir var í heimahöfn. Siglingin til baka til Frakklands tók skúturnar miklu lengri tíma en áætlað hafði verið en lélegur byr var á leiðinni í kjölfar óveðursins sem leitað var undan til Grindavíkur. Vegna þessa voru vistir orðnar litlar eða engar á lokasprettinum um borð í magri skútunni. Keppnin fór nú fram í þriðja sinn og er orðin fastur liður í úthafskappsiglingum. Til hennar hef- ur verið efnt á þriggja ára fresti og er þegar ráðgert að hún fari fram fjórða sinni árið 2009. Að sögn Michèle Le Reun-Gaigné blaðafulltrúa keppninnar líður þátt- takan seint úr minni þeirra 150 manna sem við sögu kappsigling- arinnar komu. Hafi þeim í glímunni við Ægi og Kára verið hugsað til frönsku fiskimannanna sem sóttu á Íslandsmið á öldum áður, oft á tíðum við ólýsanlega erfiðar aðstæður og komu ekki allir til baka. Áttuðu skútusiglararnir sig á því að sóknin á Íslandsmið til forna var ekkert sæld- arlíf. Er skútukeppnin haldin til að halda sögu og minningu frönsku Ís- landssjómannanna á lofti. Gísli og Baldvin sæmdir heiðursborgaratign í Paimpol Mikil útgerð var á sínum tíma frá Paimpol á Íslandsmið á 19. öld og fram á þá tuttugustu. Þar er minn- ingunni um siglingarnar haldið á lofti. Götur, veitingahús og fleira eru kennd við Ísland eða Íslandssjó- mennina og af opinberri hálfu er Pa- impol sagður bær Íslendinganna. Bæjarbúum er kært um allt er við- kemur þessari sögu og í heiðursskyni við veitta aðstoð hafnaryfirvalda og íslenskra skútusiglara við fram- kvæmd keppninnar Skippers d’Isl- ande voru tveir fulltrúar þessara sæmdir heiðursborgaratign í Paim- pol í gær. Annars vegar Gísli Gísla- son framkvæmdastjóri Faxaflóa- hafna og hins vegar Baldvin Björgvinsson skútustjóri á skútunni Bestu. Hann tók m.a. þátt í keppn- inni 2003 og var þá fljótastur til Pa- impol frá Reykjavík. Siglingin frá Grundarfirði til Paimpol ekkert sældarlíf Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson Tchuda Popka var fyrsta skútan til baka til Paimpol á Bretaníuskaga. Servane Escoffier stýrir skútu sinni Vedettes de Bréhat. Ágúst Ásgeirsson í Frakklandi Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.