Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn er yfirleitt góður í því að sýna barnslega einlægni og fyllast að- dáun þegar töframaður dregur kanínu upp úr hatti sínum. Í dag langar hann hins vegar til að vita hver galdurinn er. Hann kemst að því. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nýtt fólk sem kemur inn í líf þitt sýnir hvar þú ert í tilfinningaþroska. Ef þú heldur að þú sért ekki á réttum stað, skaltu hugsa þig um tvisvar. Útgeislun þín sést best á félagsskapnum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Misskilningur gerir tvíburann brjál- aðan, ekki síst vegna þess að hann er yf- irleitt mjög flinkur í því að miðla upplýs- ingum. Deildu þörfum þínum með öðrum. Það er ekki víst að þú vitir hverjar þær eru fyrr en þú gerir það. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Viðurkenning skiptir þig máli. Þú gerir það sem tiltekinn hópur viðurkennir og færð þá staðfestingu sem þú þarft á að halda. Þegar hún er fengin getur þú lagt þig fram um að gera það sem virkilega ljær hjarta þínu byr undir báða vængi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Eyddu tíma í að skrifa niður það sem þig langar í – sama hversu yfirgengilegt og óhugsandi það kann að virðast. Sam- band við einhvern í fjarlægð kveikir ást- ríður innra með þér. Hver eða hvaðeina sem ekki gerir þér gott kemur líka við sögu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan setur met í einhverju sem yf- irleitt er ekki mælt. Eins og til dæmis fjölda brosa til ókunnugra eða umburð- arlyndi gagnvart ástvini. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin hefur fullkomna stjórn á þeirri einveru og samveru sem hún vill upplifa. Það er gott að deila með öðrum en ekki alltaf. Vogin er meistari í því að hafna félagsskap af háttvísi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Haltu þig við sérviskuna í sjálfum þér. Þú ert eins og kringlóttur snagi í fer- hyrndu gati núna. Þess vegna á einhver eftir að reyna að messa yfir þér, selja þér eitthvað, lokka þig, umbera og á endanum lofsyngja. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn þarf að mæta harðri sam- keppni en kemst á leiðarenda með því að gera það sem hann gerir alltaf, feta ókunna stigu. Hið ófyrirséða er það sem gerir kvöldið í kvöld svo spennandi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Himintunglin draga fram í dagsljósið hið vísindalega eðli steingeitarinnar. Hún gerir tilraunir, spyr, velur, raðar, tekur sundur, setur saman, smakkar, snertir, lyktar og tekur svo ákvörðun eða smíðar kenningu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hugsjónir vatnsberans verða truflaðar af skynsömu jarðarmerki á borð við naut, steingeit eða meyju, sem heimta að allar framfarir séu áþreifanlegar. Saman, eruð þið hið fullkomna par. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nýttu þér tæknina til hins ýtrasta, þó að það þýði að þú þurfir að mennta þig. Ótti við framtíðina er jafn algengur og kvef þessa dagana. Slakaðu á. Maður getur lært eitthvað nýtt án þess að eitt- hvað gamalt þurfi að víkja úr heila- búinu. Stjörnuspá Holiday Mathis Sólin er sest á hásæti sitt í ljóninu. Þegar sólin er í sínu eigin merki þurfa ljón svo sannarlega á athygli að halda og haga sér reyndar eins og kóngafólk eða hætta ekki fyrr en ósk þeirra er uppfyllt. Ljónsins gætir í stjörnukorti hvers og eins. Leyfðu ljóninu í sjálfum þér að vera svolítið kröfuhart. Kannski er kominn tími til að þú dekrir ljónsungann innra með þér. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 telja úr, 4 þurrka, 7 hefji, 8 morg- unsól, 9 lík, 11 þarmur, 13 tunnur, 14 fljót, 15 þorpara, 17 slátra, 20 skar, 22 megnar, 23 drekkur, 24 tarfs, 25 stokkur. Lóðrétt | 1 slök, 2 refir, 3 lengdareining, 4 þrjósk- ur, 5 tröllum, 6 fiskar, 10 flón, 12 veiðarfæri, 13 tímabils, 15 tónverkið, 16 fíngerðu, 18 hvolfið, 19 rugga, 20 lof, 21 reykir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 framgjarn, 8 fúlar, 9 rykug, 10 kyn, 11 trana, 13 skapa, 15 hlass, 18 brunn, 21 Týr, 22 lotna, 23 ætlar, 24 nafnkunna. Lóðrétt: 2 rulla, 3 marka, 4 járns, 5 rekja, 6 eflt, 7 ugga, 12 nes, 14 kær, 15 holt, 16 aftra, 17 stafn, 18 brælu, 19 ullin, 20 norn.  Tónlist Akureyrarkirkja | Sumartónleikar kl. 17. Margrét Bóasdóttir sópran, Nicole Vala Ca- riglia selló, Björn Steinar Sólbergsson orgel. Eitt hundruðustu tónleikarnir í tónleikaröð- inni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 2006. Hallgrímskirkja | Bine Katrine Bryndorf, prófessor í orgelleik við Konunglega kons- ervatoríið í Kaupmannahöfn, leikur á kvöld- tónleikum á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir Buxtehude, Couperin, Messiaen, Mozart, Holmboe og J.S. Bach. Kringlukráin | Blue brasil og Hrólfur Vagns- son kl. 21, sunnudag. Blue brasil stendur fyr- ir heita suður-ameríska tóna. Sjaldgæf harmonikkufimi. Efnisskráin samanstendur af bossa nova og latin jazz frá Carlos Jobim, Chick Corea, Tania Maria og Paquito D’Ri- vera. Rytmahluti er leikinn af Derek Scher- zer á trommur, Arnd Geise á bassa og gít- arleikari er Sandra Hempel. Neskirkja | Kanadíski kvartettinn Qartetto Constanze heldur tónleika í Neskirkju við Hagatorg mánudaginn 31. júlí. Á efnisskrá er m.a. nýfundið verk eftir íslenska tónskáldið Þórð Sveinbjörnsson. Sjá nánar http:// www.constanze.ca Aðgangur ókeypis. Reykholtskirkja | Lokatónleikar Reyk- holtshátíðar kl. 16.30. Hljómsveitin Virtuosi di Praga flytur m.a. verk eftir Dvorák, Jan- cék og Samuel Barber. Stjórnandi er Oldrich Vlcek. Myndlist 101 gallery | Serge Comte – sjö systur – se- ven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–laug. kl. 14– 17. Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson). Á sýningunni, sem er þeirra fyrsta einkasýn- ing, eru málverk sem þeir hafa unnið saman að síðan sumarið 2005. Sýningin stendur til 12. ágúst. Opið fim. fös. og lau. kl. 13–17. Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning gallerísins Art-Iceland.com Skólavörðustíg 1a. Listamennirnir sem sýna eru: Árni Rúnar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álfheið- ur Ólafsdóttir. Sýningin er í versluninni Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi. Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni mynd- listarmanni) er þriðja sýningin í röðinni af stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn- setning í rými. Sýningin stendur til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey- nomatic-myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júlímánuð. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26. ágúst eða fram yfir menning- arvöku. Opið virka daga og laugardaga kl. 14–18 í sumar. Gallerí Tukt | Rögnvaldur Skúli Árnason sýnir málverk og teikningar til 5. ágúst. Opið alla virka daga frá kl. 9–17. Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni beinir Hafnarborg sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins und- anfarin ár. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og hafa verk hennar ætíð haft sterka skír- skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn- ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Ís- lands. Til 26. ágúst. Handverk og hönnun | Á sumarsýningunni er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list- iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýn- ingin stendur til 27. ágúst. Opið er alla daga frá 13–17 og er aðgangur ókeypis. Hrafnista, Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menning- arsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning- unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal listamanna má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dag- verðará, Stórval og Kötu saumakonu. Til 31. júlí. Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmundsson sýnir hjá Jónasi Viðar galleríi í Kaupvangs- træti 12, Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sérkenni- legan feril sem listamaður. Sýningin mun standa til 30. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berjalandi, Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Ketilhúsið, Listagili | Hrefna Harðardóttir sýnir veggskúlptúra úr leir. Til 13. ágúst. Kirkjuhvoll, Akranesi | Listsýning á verkum eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst. Kling og Bang gallerí | Hinn heimsþekkti myndlistarhópur Gelitin frá Austurríki sýnir í Kling & Bang gallerí, en hópurinn hefur m.a. tekið þátt í Feneyjatvíæringnum og Gjörningatvíæringnum í New York. Sjá:http://this.is/klingogbang. Opið fim.– sun. kl. 14–18. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þor- kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð- urinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning – Lo- uisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýning sem haldin hefur verið á verkum Louisu og rekur allan hennar listamannsferil í sex ára- tugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri lands- lagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóð- sagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Opið í safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúru- fræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og kaffistofa. Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af- mæli bankans. Til 30. júlí. Um helgina lýkur sýningu á verkum Kjarvals. Kl. 15 á sunnudag verður boðið upp á leið- sögn um sýninguna þar sem Aðalsteinn Ing- ólfsson, listfræðingur, segir frá verkunum. Sýningin er opin frá 11–17 laugardag og sunnudag og er aðgangur ókeypis. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinn- aður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlut- um í skúlptúra og innsetningar. Í hópnum eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuc- hvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero Baker og Tsehai Johnson. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvern- ig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.