Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 47
Færeyingar eru þannig aftarlega
á merinni í ýmsu, ekki bara í tón-
list heldur er umræða um samkyn-
hneigð varla til hjá þessari
strangkristnu þjóð og fóstureyð-
ingar eru bannaðar. Skref í rétta
átt hvað þessa hluti varðar væri
að sjálfsögðu að losa sig úr sam-
bandinu við Dani, en það er lífs-
nauðsynlegt skref ætli Færeying-
ar að hugsa skýrt, öðlast sjálfs-
virðingu og byggja upp stolt. Líkt
og kona sem þarf að losa sig úr
sambandi við ráðríkan, kúgandi
eiginmann.
Á Prix Föryoar 2003 heyrði égtónlist sem ekki hefði verið
hægt að búa til annars staðar en
þar. Ólýsanlegt „færeyskt“ rokk
sem var ekki skemmtilegt. Þar
steig hins vegar fram sem sigur-
vegari hljómsveitin Gestir frá
Götu, en hún leikur draumkennt
framsækið rokk í anda Radiohead
(fyrsta breiðskífa hennar, Burtur
frá Toftunum, er nýkomin út). Á
keppninni var mikið skeggrætt
um muninn á „færeysku“ sveit-
unum og þeim sem leituðust við að
flytja inn alþjóðlega strauma,
þeim sem væru að hagnýta og
vinna úr því sem væri að gerast
úti í heimi en slíkt átti sér varla
fordæmi. Meðlimir Gesta voru
sem sagt að fylgjast með, ekki
bara í tónlist heldur í tísku líka,
og hefðu getað verið nýrokkarar
frá Bretlandi eða Bandaríkjunum
þess vegna. Clickhaze reyndist
brautryðjandi í þessum efnum,
var raunverulega fyrsta sveitin í
Færeyjum sem tókst að búa til
boðlegt framúrstefnurokk. Vann
hún bæði með nútíma tölvuhljóma
og svo úr færeyskum þjóðlagaarfi
þannig að úr varð eitthvað alveg
sérstakt.
Í ár var svo að heyra að þessi
þróun hefði náð að breiðast nokk-
uð út. Á G! var meira um sveitir
sem voru að framreiða rokk sem
er fyllilega sambærilegt við annað
slíkt úti í heimi. Ég ræddi við
blaðamann á hátíðinni og sagði
hann mér frá því að efnilegasta
bandið í eyjunum um þessar
mundir væri The Story Ends þar
sem, „þeir væru með alþjóðlegasta
hljóminn, minntu dálítið á Franz
Ferdinand“. Þessi yfirlýsing fékk
mig til að staldra við. Ég skildi vel
hvað hann var að fara, að það
væri gott að menn væru með á
nótunum. En ekki get ég sagt að
sveitin hafi minnt mig mikið á
Franz Ferdinand, þetta var frem-
ur hefðbundið rokkpönk – sæmi-
legasta Músíktilraunarokk. En
spurningin sem sótti á mig var
þessi: Eru menn eitthvað vel settir
ef þeir hljóma eins og Franz Ferd-
inand? Er ekki málið að búa til
eitthvað nýtt og spennandi, þó að
það sé kannski undir áhrifum frá
einhverju. Lykillinn er að vinna úr
en ekki að endurspegla. Gestum
tekst t.d. vel upp í slíkri nýsköpun
og Högni Lisberg er fjarska gott
dæmi um tónlistarmann sem spil-
ar „alþjóðlega“ tónlist, en þó með
færeyskum auðkennum.
Einar Már Guðmundsson var íeyjunum og las upp ásamt
Eiríki Erni Norðdahl og fleiri nor-
rænum höfundum. Í spjalli við
Einar kom fram að yfir Færeyjum
lægi undarleg melankólía – sem
væri þó alltaf falleg. Setningin
lýsir vel einkennum margra tón-
listarmanna þaðan, allt frá þjóð-
lagasveitinni Enekk og Eivöru
Pálsdóttur til rokksveita á borð
við Deja Vu og Gesti og söngvar-
ann Pétur Pólsson (sem var sam-
söngvari Eivarar í Clickhaze).
Angurværð, dramatík, melankólía
og draumkennd fegurð býr í tón-
list þessa fólks og margra fleiri.
Ég held svei mér þá að ég hafi
fengið snert af þunglyndi er ég
kom frá eyjunum í fyrra, vopn-
aður nýjum færeyskum plötum því
að flestar bar þær að þessum
brunni. Sumum listamönnunum
hættir reyndar til að keyra
dramatíkina upp í melódramatík
þannig að úr verður tilgerðarlegt
tilfinningaklám.
Ef það er eitthvað sem ég sakna
úr færeyska tónlistarlífinu, eitt-
hvað sem ég væri til í að sjá og
heyra meira af, þá er það meiri
ævintýramennska – og jafnvel
meiri gleði og æringjaháttur til að
vega aðeins upp á móti drungan-
um. Að menn búi til rokktónlist
sem sækir ekki grimmt í Franz
Ferdinand eða Strokes eða hvaða
þá tískusveit sem er í gangi
hverju sinni eða að hún sé stein-
runnin og „erkifæreysk“, eitthvað
sem Gestir og félagar einsettu sér
að ryðja frá. Hvar er Mugison
Færeyja? Hvar eru þeirra Egill
Sæbjörns, Ske, múm o.s.frv.?
Mér dettur Mínus í hug í þessu
sambandi, í kringum þann tíma er
hljómsveitin gaf út Jesus Christ
Bobby. Það meistarastykki stóð
samhliða öllu því sem var að ger-
ast í framsæknu harðkjarnarokki
þess tíma (2001) – einmitt vegna
þess hversu tilraunakennt og ein-
stakt það var og það að Mínuslið-
ar skeyttu lítt um það hvað í
gangi var í þeim geira sem þeir
voru að vinna innan.
Það er gott og blessað að menn
séu vakandi fyrir því sem er að
gerast úti í heimi en vel unnin af-
rit af vinsælustu samtímasveit-
unum eru þreytandi. Ef þú hefur
áhuga á að ná „árangri“ á
alþjóðavettvangi er vænlegra að
vera einstakur en alþjóðlegur,
eins og nokkur dæmi frá Íslandi
sanna svo vel.
arnart@mbl.is
Sími - 551 9000
Silent Hill kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Stormbreaker kl. 3, 6 og 8
The Benchwarmers kl. 3, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.10 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 5 og 10 SÍÐUSTU SÝNINGAR B.i. 14 ára
Ísöld 2 m.ísl tali kl. 3
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Adam Sandler,
Kate Beckinsale og
Christopher Walken
í fyndnustu gaman-
mynd ársins!
ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA
HÖRKU
SPENNUMYND
Í ANDA JAMES
BOND
SÍÐUSTU SÝNINGAR
-bara lúxus
Sýnd kl. 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sýnd kl. 2 og 6Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 12
Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
Þau ætla að ná
aftur hverfinu...
...einn bita
í einu!
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10-POWER
-bara lúxus
ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA
HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND
POWERSÝNING KL. 10 Á STÆRSTA thx TJALDI LANDSINS
Sýnd kl. 4
500 kr.400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Leikstjórinn Oliver Stone hefuroftar en einu sinni lent í deilum
við hina ýmsu aðila í tengslum við
myndir sínar. Þegar spurðist út að
hann ætlaði að gera mynd um
hryðjuverkaárás-
irnar á tvíbur-
aturnana 11.
september heyrð-
ust háværar
gagnrýnisraddir,
m.a. frá fjöl-
skyldum þeirra
sem létu lífið í
árásunum. Nú
hefur verið
ákveðið að 10 prósent af tekjum frá
fyrstu sýningarhelgi myndarinnar,
sem ber nafnið World Trade Center,
fari til fernra góðgerðarsamtaka
sem sett voru á fót eftir árásirnar.
Peningarnir munu meðal annars
fara til samtaka sem veita börnum
sem misstu foreldra í árásunum
ýmsa þjónustu. Myndin fjallar um
tvo lögreglumenn sem festast í rúst-
um turnanna en þeir eru leiknir af
Nicholas Cage og Michael Pena.
Myndin verður frumsýnd 9. ágúst í
yfir 2.000 kvikmyndahúsum í Banda-
ríkjunum.
Fólk folk@mbl.is
Poppgoðið og Grammy-verð-launahafinn Justin Timberlake
mun tala fyrir Artúr konung í Shrek
hinum þriðja, þriðju myndinni um
græna, vinalega tröllið og vini hans.
Myndin verður
frumsýnd á
næsta ári en
þar eru Mike
Myers, Came-
ron Diaz og
Eddy Murphy
sem ljá aðal-
persónum
þriðju myndar-
innar raddir
sínar sem fyrr. Aðrir leikarar sem
koma við sögu eru Rupert Everett,
Ian McShane og Eric Idle.