Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Baldvin Ringsted stundar myndlistarnám við listadeild Háskólans íGlasgow, Guðmundur Viðarsson er í námi við SAE, School of Au-dio Engineering, alþjóðlegum skóla með útibú víða um heim. Þar
læra menn allar hliðar upptökutækni, að semja tónlist og endurhljóð-
blanda.
Birgir Hilmarsson fylgdi Maríu Kjartansdóttur, unnustu sinni, til Glas-
gow, þar sem hún stundar nám í listljósmyndun við listadeild háskólans.
Sjálfur er hann upptekinn við að semja eigin tónlist fyrir hljómsveitina
Ampop, sem hann hefur verið í sl. átta ár og jafnframt Blindfold, sem
hingað til hefur verið gæluverkefni sólóistans Birgis. Þar að auki hefur
hann haft lifibrauð af því að semja tónlist við íslenzkar auglýsingar, alls
kyns tónlist tengda listviðburðum og nú síðast samdi hann ásamt Þór
Eldon, Sykurmola, tónlist við kvikmyndina Allir litir hafsins eru kaldir
eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur, sem sýnd var í Sjónvarpinu í vetur.
Guðmundur er í hljómsveitinni Kamp Knox, Birgir í Ampop og Blind-
fold, og Baldvin, sem notar listamannsnafnið Bela í tónlistinni, var að
gefa út plötu á Íslandi undir nafninu Hole and Corner, sem hefur talsvert
verið fjallað um í fjölmiðlum hér heima og í tónlistartímaritinu Billboard,
þar sem hann fékk fína dóma fyrir frumburðinn. Þetta er fyrsta sólóplat-
an hans, en hann naut aðstoðar ýmissa tónlistarmanna að ónefndum vini
sínum Aroni Arnarssyni, sem var upptökustjóri plötunnar.
Platan var tekin upp á gömlu menningarheimili á Akureyri, sjálfu Dav-
íðshúsi (Stefánssonar). Útgefandi er Say Dirty Records í Glasgow, en um-
slagið hannaði Hrafnhildur Halldórsdóttir myndlistarmaður sem býr í
Glasgow.
Þegar ég hitti strákana þrjá á heimavelli þeirra, Glasgow, nánar til-
tekið á útibar við John Street, og ræddi við þá um daginn og veginn
barst talið fljótt að tónlistinni og náminu. Mér varð strax ljóst að þarna
voru á ferð ungir menn, sem tóku alvarlega bæði námið og áhugamálið
og atvinnuna; tónlistina. Þetta voru engir spraðurbassar að reyna að líkj-
ast einhverjum tónlistargoðum unga fólksins heldur ungir menn, sem
tóku list sína alvarlega en gerðu sér engar grillur um frægð.
Þeir eru allir fæddir um eða eftir árið 1980 og eiga það sameiginlegt að búa í Glasgow og stunda nám og/eða tónlist.
Halldór Halldórsson hitti þá Gumma, Balla og Bigga, nánar tiltekið Guðmund Viðarsson, Baldvin Ringsted og Birgi
Hilmarsson, einn góðviðrisdag í borginni og ræddi við þá um tónlistina, námið og daginn og veginn.
Ljósmyndir: Halldór Halldórsson
Birgir Hilmarsson, Baldvin
Ringsted og Guðmundur
Viðarsson skeggræða um
tónlistina á útibar við John
Street í Glasgow.
3Þrír góðir
gæjar í
Glasgow
Þótt Baldvin Ringsted sé í myndlistarnámiog hafi hingað til hallað sér meira aðmyndlist en tónlist, hefur hann lengi
fengist við tónlist.
„Ég veit ekki hvort togar meira í mig, mynd-
listin eða tónlistin,“ segir hann. Þegar ég hitti
hann úti í Glasgow var hann nýbúinn að klára
fyrsta diskinn sinn, Hole and Corner.
Sem tónlistarmaður notar Baldvin lista-
mannsnafnið Bela. Nýi diskurinn hans einkenn-
ist af ljúfri tónlist, þar sem eru gítarinn og rödd-
in, lágstemmd, rám en samt þýð. Hann er
höfundur laganna tólf.
Útgefandi Bela í Skotlandi er Say Dirty Re-
cords. Bela sendi þeim demó-disk og þeir
stukku á strák. Haldnir voru forútgáfutónleikar
á Bar Brel 14. júní í Glasgow við mjög góðar
undirtektir og strax þá fóru menn að bera Bela
saman við John Martyn, Kings of Convenience
og Nick Drake. Sjálfur fellst Baldvin á, að verið
geti að áhrifa frá Nick Drake gæti í tónlist sinni.
Rás 2 er byrjuð að spila lög af plötu Bela og í
bandaríska tónlistartímaritinu Billboard fær
hann mjög góða umsögn hjá Katie Hasty í dómi
sem birtur var 20. júní síðastliðinn. Hún segir:
„Gamalt rokk og nýtt hitta hvort annað fyrir í
Hole and Corner.“ Fyrirsögnin á Billboard-
greininni er „Listamenn án samnings sem hafa
getu til að komast á toppinn“.
Hasty hefur eftir Baldvin, að hann telji sig
vera undir áhrifum frá Steely Dan og Belle og
Sebastian.
Í samtali okkar kemur fram að hann hafi alist
upp við tónlist Crosby, Stills, Nash and Young
og sveitina America, en foreldrar hans hefðu
hlustað mikið á þessa listamenn. „Það kom út
smáskífa frá mér, Ticket for a Train, af Hole
and Corner-disknum sem var gefin út 29. maí.
Lagið er fáanlegt hjá iTunes (einhverri stærstu
músíkveitunni á netinu) og svo hjá tonlist.is og
12 Tónum, sem tóku að sér dreifingu plötunnar
hérna heima.
Fallegt lag notað í væminni
hafnaboltaauglýsingu
Baldvin er hógvær maður. Í spjalli okkar datt
það nánast óvart upp úr honum, að hann væri
nýbúinn að selja hafnaboltaliðinu Washington
Nationals lagið Jerome, sem er á Bela-disknum.
Liðið notar lagið í væminni auglýsingu og það er
ekki að heyra á Bela að hann sé neitt sérstak-
lega hrifinn af auglýsingunni.
Baldvin er þrítugur Akureyringur og bjó uppi
á Brekku. Eftir grunnskólann stundaði hann
nám í Verkmenntaskólanum á Akureyri og síð-
an myndlistarnám við Myndlistarskólann á Ak-
ureyri. En músíkin kallaði og Baldvin fór í tón-
listarnám hjá FÍH í Reykjavík. Núna er hann í
meistaranámi í myndlist í Glasgow.
„Ég held að ég hafi verið frekar innhverfur á
tímabili sem unglingur á Akureyri. Ég fór að
æfa mig á hljóðfæri og ætli megi ekki segja að
hljóðfærið hafi verið félagi minn á þessu tíma-
bili,“ segir Baldvin. „En ég var líka vandræða-
unglingur á tímabili, var í dópi og allri þeirri vit-
leysu. Núna er mér illa við allt slíkt og kem ekki
nálægt þessu.
Bela-nafnið nota ég í tónlistinni, en í mynd-
listinni nota ég hins vegar Ringsted-nafnið og
þessi tvö nöfn eiga ekkert skylt!“ segir Baldvin
og upplýsir að hann hafi verið 15 ára þegar hann
byrjaði að mála.
Baldvin hefur ekki einungis komið verkum
sínum í músíkinni á framfæri erlendis, heldur
var nýstárlegt verk eftir hann valið á samsýn-
ingu í galleríi í New York. Í því nýtir Baldvin
tónlistarþekkingu sína með því að taka fræga
ræðu blökkumannaleiðtogans Martin Luther
King, I Have a Dream, og skrifa hana út í nót-
um. Síðan útbjó hann nóturnar á skjal, sem
minnir á snjáð, gamalt og sögulegt plagg.
„Á sýningunni spilaði svo sellóleikari nóturn-
ar, „tónlist ræðunnar“, en flutningur Kings var
syngjandi og sveiflukenndur. Ég hafði í huga að
mörgum þessum blökkumannaleiðtogum og
predikurum er gospel hefðin inngróin og ræðu-
flutningur þeirra er mjög músíkalskur. Þetta
verk mitt vakti töluverða athygli.“
En þú ert ekki að læra músík?
„Nei, ég þarf það ekki,“ segir Baldvin og
glottir. „Ég spilaði t.d. með mönnum sem eru
enn að spila í hljómsveitum, eins og Tenderfoot,
Brain Police og Lights on the Highway. Ég
byrjaði að spila þungarokk og dauðarokk, en
síðan færðist þetta yfir í svona meira akústíska
músík, eins og á nýju plötunni minni.“
Í hvaða stúdíói tókstu plötuna upp?
„Við settum upp stúdíó í Davíðshúsi (Stef-
ánssonar) á Akureyri og tókum talsvert mikið
upp þar. Það var alveg frábært að vera þar. Fé-
lagi minn, Aron Arnarsson, sem er búinn að
taka upp heilan helling á Íslandi, kom með græj-
ur úr Thule stúdíóinu í Reykjavík og við settum
upp lítið stúdíó. Við rýmdum til í hjónaherberg-
inu og upptökuklefinn var inni í stofu.
Það voru margir sem lögðu hönd á plóginn,
fólk sem spilar og syngur með mér, m.a. Biggi í
Ampop (Birgir Hilmarsson), félagi minn í Glas-
gow og margir fleiri.
Yfirnáttúruleg aðkoma Pálma „Young“
„Það er svolítið skemmtileg saga í sambandi
við upptökurnar. Okkur vantaði bassaleikara
sem gæti spilað gamla Neil Young stílinn. Þá fer
vinur minn að spila Millilendingu Megasar
minnir mig, og ég heyri nákvæmlega bassaleik-
inn sem mig vantaði. Í ljós kom að þetta var eng-
inn annar en Pálmi Gunnarsson. Daginn eftir
vill svo einkennilega til að Aron hittir sjálfan
Pálma á kaffihúsi niðri í bæ. Og Pálmi fer að
spyrja hann hvað hann sé að gera á Akureyri:
„Ertu að taka eitthvað upp hérna?“ spyr Pálmi.
Og Aron segist vera að taka upp fyrir hann
Balla vin sinn. „Já, ég kannast við hann,“ segir
Pálmi og spyr: „Vantar hann ekki bassaleik-
ara?““
Baldvin skellihlær og segir: „Þetta var alveg
kosmískt, nánast yfirnáttúruleg tilviljun!“
Pálmi mætti svo í Davíðshús, renndi tvisvar í
gegnum lagið og það nægði. Hann er ekkert
annað en hreinn topp bassaleikari.“
Hefur þú verið að spila eitthvað á pöbbum
hérna í Glasgow?
„Ég hef verið að spila bæði á tónleikum og
pöbbum hérna, t.d. á Goat, Nice’n Sleazy og
fleiri stöðum. Á Nice er t.d. sérstakur salur niðri
fyrir tónleika og nýverið var svokölluð „acoustic
night“ og ég spilaði þar ásamt fullt af öðru fólki,
misgóðu að vísu.
Ég er satt að segja svolítið latur við tónlistina,
sem er í raun bara hliðarverkefni hjá mér. Þetta
er bara eitthvað, sem ég þurfti að gera og ég
fylgi þeirri fílósófíu að maður eigi að gera það
sem mann langar til að gera í lífinu, hvort sem
það er að koma út plötu eða kaupa sér gröfu eða
eitthvað annað.“
BELA – Baldvin Ringsted
Baldvin stundar myndlistarnám við Háskólann í Glasgow og semur tónlist fyrir sjálfan sig, Bela.
Tónlistarmaðurinn í myndlistarmanninum
TENGLAR
...........................................................
http://www.myspace.com/
belamusicforpeople