Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 41
DAGBÓK
Einstaklega glæsilegt og
vandað nýtt, fullbúið
raðhús án gólfefna á
einni hæð auk bílskúrs,
stutt frá útivistarparadís
í Grafarholtinu.
V. 39,0 m. 5340
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Biskupsgata 17 - Raðhús á einni hæð
Falleg raðhús á einni hæð.
Húsin eru til afhendingar
strax og munu seljast
tilbúin til innréttingar.
Húsin eru 140 fm + 28 fm
bílskúr. Samtals 168 fm.
V. 34,0m. 5344
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Biskupsgata 23 og 27 - Tilb. til innr.
Nickell/Weed.
Norður
♠72
♥108753 N/NS
♦G10654
♣K
Suður
♠10
♥ÁKG94
♦K82
♣Á843
Enn er það úrslitaleikur Nickells
og Weeds í Spingold-keppninni sem
er til umræðu. Til að byrja með
skulum við setja okkur í spor Ítalans
Fantonis og reyna við fimm hjörtu
eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Hamman Nunes Soloway Fantoni
– Pass 1 spaði 2 hjörtu
2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspilið er spaði, sem austur tekur
með ás og spilar smáum spaða til
baka.
Hvað dettur lesandanum helst í
hug að gera?
Ekki má gefa nema einn slag á
tígul, svo legan í litnum þarf að vera
hagstæð. Fyrirfram má teikna upp
ýmsar vinningsstöður, sem þó er
ekki hægt að sameina nema að hluta
til.
Norður
♠72
♥108753
♦G10654
♣K
Vestur Austur
♠D843 ♠ÁKG965
♥D6 ♥2
♦Á73 ♦D9
♣G975 ♣D1062
Suður
♠10
♥ÁKG94
♦K82
♣Á843
Fantoni spilaði beint af augum:
tók tvisvar tromp, fór inn í borð á
laufkóng, lagði af stað með tígulgosa
og lét hann fara þegar Soloway
dúkkaði. Og málið leyst.
En segjum að austur leggi drottn-
inguna á gosann og vestur drepi: Þá
kemur til greina að spila næst á
tíuna í von um að nían detti, eða fara
af stað með áttuna og reyna að
gleypa sjöuna í austur. Og ef vestur
dúkkar (!) tígulkónginn fumlaust
kemur þriðji möguleikinn upp, að
austur sé með ÁD tvíspil.
Það vakti athygli skýrenda á
Bridgebase.com að Fantoni skyldi
ekki byrja á því að hreinsa upp lauf-
ið. Eftir slíka upphreinsun kæmi
nefnilega til álita að spila tígli á
kóng og tígli í bláinn í von um Áxx í
austur og Dx í vestur. Sú viðleitni
Soloways að fela spaðakónginn í
byrjun hefði hæglega getað beint
sagnhafa á þá hættulegu braut.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3
O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 Rc6 13. d5 Ra5 14. b3 Bd7 15.
Rf1 Rb7 16. Rg3 g6 17. Rh2 c4 18. b4
a5 19. Bh6 Hfc8 20. Dd2 Re8 21. Bd1
axb4 22. cxb4 Ha3 23. He3 Hca8 24.
Hxa3 Hxa3 25. Dc1 Ha6 26. Bg4 Rd8
27. Bxd7 Dxd7 28. f3 f6 29. Be3 Rc7 30.
Re2 f5 31. g4 f4 32. Bf2 Rf7 33. Rc3 h5
34. Rf1 Kg7 35. Rd2 Rg5 36. Kg2 Ha8
37. Re2
Staðan kom upp í AM-flokki Fyrsta
laugardagsmótsins sem lauk fyrir
skömmu í Búdapest í Ungverjalandi.
Ungverski alþjóðlegi meistarinn Bela
Lengyel (2339) hafði svart gegn Guð-
mundi Kjartanssyni (2291). 37…
Rxh3! 38. Kxh3 hxg4+ 39. Kg2 gxf3+
40. Rxf3 Dg4+ og svartur fær nú
manninn til baka með dágóðum vöxt-
um. 41. Bg3 fxg3 42. Rxg3 Hh8 43. a4
Hh3 44. De1 Bh4 45. Rxh4 Dxh4 46.
Rf1 Dxe1 47. Hxe1 Hb3 48. axb5 Rxb5
og svarta staðan er gjörunnin. 49. Re3
Hxb4 50. Hc1 c3 51. Kf3 Rd4+ 52. Kf2
Hb2+ 53. Kf1 Re2 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
LSH – Heilsubæli Íslands?
ÞAÐ er lyginni líkast að verða vitni
að aðbúnaði, umönnun og viðhorfi til
sjúklinga á LSH. Svo ekki sé minnst
á það skipulags- og stjórnleysi sem
blasir við öllum þeim sem þurfa á
þjónustu þarna að halda. Einn segir
þetta og hinn hitt og upplýsingaflæði
með ólíkindum.
Þeir sem lenda í því að þurfa að
dvelja á LSH um lengri eða skemmri
tíma mega búast við að munir þeirra
hverfi á dularfullan hátt, sé fleygt eða
þeir eyðilagðir. Það er samt lítilvægt
miðað við það sem getur hent sjúk-
linginn sjálfan.
Að minnsta kosti ef viðkomandi er
aldraður og sjúkur og getur illa borið
hönd fyrir höfuð sér.
Fyrir utan það að vera sífellt
minntur á að vera afgangsstærð í
kerfinu, sem enginn vill hafa og helst
þurfi að losna við sem fyrst, má sá
teljast heppinn sem kemst hjá því að
vera skilinn eftir bjargarlaus á sal-
erni, detta þar og slasast. Eða vera
yfirgefinn í hjólastól og komast
hvorki lönd né strönd og bíða í það
endalausa eftir aðstoð.
Sjúklingi er talin trú um að hann
geti þetta og geti hitt, sem hann eng-
an veginn er fær um. Reynir samt,
því ekki vill hann vera álitinn einhver
aumingi. Afleiðingarnar: beinbrot,
sársauki, vanmáttur og öryggisleysi
ofan á allt annað. Og vei þeim sem
gagnrýnir eða finnur að vinnubrögð-
um. Bara þegja og brosa.
Eitt enn, ekki er verra að sjúkling-
ur búi yfir víðtækri tungumálakunn-
áttu. Reyndar er ein setning sem er-
lent starfsfólk kann lýtalaust að bera
fram: „Ég ekki mega.“
Fyrir utan allt þetta má eins búast
við að þurfa að liggja frammi á gangi
fyrir allra augum. Kannski svo sem
ekki miklu verra en að liggja á óvist-
legri stofu, sem lítur út fyrir að hafa
hvorki verið máluð né þrifin í árarað-
ir.
Einhverjar framkvæmdir eru þó í
gangi á stofnuninni, því dögum sam-
an í sumar máttu sjúklingar (og
starfsfólk) búa við hávaða úr loftbor
og hafa málara hangandi utan á
gluggum.
Þáttur úr Heilsubælinu sem sýnt
var hér í sjónvarpi fyrir margt löngu?
Nei, Landspítali – háskólasjúkra-
hús við Hringbraut, í dag.
Tekið skal fram að meirihluti
starfsfólks er mjög fær í sínu fagi,
elskulegt og allt af vilja gert að gera
dvöl sjúklinga bærilega.
Síðast en ekki síst. Ríkið og sveit-
arfélög, a.m.k. hér á höfuðborg-
arsvæðinu, eru með allt niður um sig í
málefnum aldraðra. Hvenær á að
hætta að tala og hysja upp sig?
Aðstandandi.
Nefhjól af fellihýsi í óskilum
NEFHJÓL af fellihýsi fannst á leið-
inni úr Borgarfirði eystra miðvikud.
5. júlí sl. Upplýsingar í s. 860 3116.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Félagið Heimssýn stendur um helginafyrir norrænni ráðstefnu á Nesjavöll-um og Laugarvatni undir nafninu„Norrænn þjóðfundur“. Ráðstefnan er
haldin í samvinnu við norrænu samtökin Frit
Norden. Hjörtur J. Guðmundsson er einn stjórn-
armanna Heimssýnar og starfandi fram-
kvæmdastjóri félagsins og annast hann und-
irbúning ráðstefnunnar.
„Heimssýn er hreyfing sjálfstæðissinna í Evr-
ópumálum og það merkir að félagsmenn telja
það ekki þjóna hagsmunum Íslendinga að ganga
í Evrópusambandið. Þetta er líka yfirlýst stefna
Frit Norden, en það eru samtök áhugamanna um
aukna norræna samvinnu sem hafa haldið nor-
rænar ráðstefnur undir yfirskriftinni Nordisk
Folkriksdag síðan 1990,“ segir Hjörtur.
Norræn samvinna ekki úrelt
„Á undanförnum árum hafa komið upp efa-
semdir um að norræn samvinna sé í takt við tím-
ann og bera margir fyrir sig alþjóðavæðingu í því
samhengi. Menn hafa talað um að Norð-
urlandaráð sé úrelt og að skera ætti niður fjár-
framlög til þess. Við teljum ekki hafa farið fram
nægileg umræða um þetta og minni stuðningur
við norrænt samstarf væri mjög róttækt úrræði,“
segir Hjörtur og bætir við að Íslendingar eigi rík
menningarleg og söguleg tengsl við Norð-
urlöndin og því sé mjög eðlilegt að horfa þangað
til samstarfs.
Að mati Hjartar hafa Norðurlönd sem gengið
hafa í ESB ekki jafn frjálsar hendur til að láta til
sín taka í vissum alþjóðamálum og áður. „Svíar
sýndu áður meiri samstöðu með þeim löndum
sem hafa átt undir högg að sækja, en nú hafa
þeir í auknum mæli fylgt ESB-löndunum. Það
eru helst Norðmenn sem halda uppi flaggi
skandinavísku þjóðanna í þessum málaflokki sem
inniheldur m.a. friðarmál, þróunarmál o.þ.h.,“
segir Hjörtur.
Meðal framsögumanna á ráðstefnunni eru frú
Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, Einar
K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Laila
Freivalds, fv. utanríkisráðherra Svía, Mininn-
guaq Kleist frá Grænlandi og Steingrímur Her-
mannsson, fv. forsætisráðherra.
Eru viðfangsefni meðal annars staða Norður-
landanna í heiminum, sérstaða Íslands, Noregs,
Grænlands og Færeyja utan Evrópusambandsins
og aukin norræn samvinna sem valkostur í stað
aðildar að Evrópusambandinu.
„Þessi ráðstefna er liður í víðtækri starfsemi
Heimssýnar en við höfum áður haldið stóra fundi
um málefni sem tengjast Evrópusambandinu.
Við héldum t.d. mjög góðan fund um upptöku
evrunnar síðasta haust og þar fékkst ákveðið
pólitískt sjónarhorn á umræðuna,“ segir Hjörtur
að lokum.
Ráðstefna | Norrænn þjóðfundur verður haldinn á Nesjavöllum og Laugarvatni
Norræn samvinna í stað ESB
Hjörtur J. Guð-
mundsson er fæddur
árið 1978 og ólst upp á
Skagaströnd. Hann út-
skrifaðist sem stúdent
frá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki árið 1998
og er nú langt kominn
með nám í sagnfræði
við Háskóla Íslands.
Hjörtur hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Samband ungra
sjálfstæðismanna og hefur verið formaður fé-
lags framfarasinna og er ritstjóri vefritsins
ihald.is. Sambýliskona Hjartar er Hildur Ýr Ís-
berg.
FYRSTA samsýning Art-Ice-
land.com verður opnuð hinn 29. júlí
í Mublunni, Kópavogi. Listamenn-
irnir sem ríða á vaðið eru Árni Rún-
ar Sverrisson, Helga Sigurð-
ardóttir og Álfheiður Ólafsdóttir.
Bjóða þau alla velkomna á sýningu
gallerísins sem er nefnd Orkuflæði.
Art-Iceland.com er með vef sem
tengist galleríinu. Vefslóðin er:
www.art-iceland.com. Það eru milli
200–300 manns sem heimsækja vef-
inn á hverjum degi. Aðallega er-
lendir gestir. Ekki sakar að hægt er
að festa kaup á listaverkum í gegn-
um vefinn.
Orkuflæði