Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 Helluhrauni 10, 220 Hf., sími 565 2566, www.englasteinar.is Englasteinar Fallegir legsteinar á góðu verði Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, afa og bróður, SIGMARS JÓHANNESSONAR sjómanns, Egilsbraut 2, Þorlákshöfn. Helena Rós Sigmarsdóttir, Ægir Snær Sigmarsson, Hrannar Már Sigmarsson, Ástríður Rán, Askur Máni, Breki Blær og systkini hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HERMANÍU KRISTÍNAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Skálagerði 11, Reykjavík. Andrea Danielsen, Páll Ragnarsson, Sigurþór Charles Guðmundsson, Málfríður Sjöfn Hilmarsdóttir, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Martina Gudmundsson, Þórarinn Guðmundsson, Guðbjörg Ívarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR. Jósef Halldórsson, Guðni Dagbjartsson, Elísabeth Dagbjartsson, Guðrún Katrín Dagbjartsdóttir, Gísli Dagbjartsson, Sigurður Dagbjartsson, Baldur Dagbjartsson, Soffía Þórisdóttir, Gunnar Dagbjartsson, Helga Ottósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BRAGA EINARSSONAR, Krókabyggð 1, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynn- ingar LSH fyrir frábæra umönnun og vinarhug. Karen Mellk, André Berg Bragason, Olga Björk Bragadóttir, Sveinbjörn Ottesen, Einar Björn Bragason, Margrét Karlsdóttir, Sigurður Hannesson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæra EINARS SÆMUNDSSONAR fv. formanns KR, Jökulgrunni 27, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 12-G Landspítala við Hringbraut fyrir frábæra umönnun og vinarhug. Auður Einarsdóttir, Ásbjörn Einarsson, Jóna Guðbrandsdóttir, Sigrún Elísabet Einarsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Helga Einarsdóttir, Ólafur Davíðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR INGIBERGSSON frá Hjálmholti Vestmannaeyjum, Smárabarði 2b, Hafnarfirði, sem lést á Landspítala Landakoti föstudaginn 21. júlí, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Eyrún Hulda Marinósdóttir, Guðjón Ingi Ólafsson, Hildur Hauksdóttir, Birna Ólafsdóttir, Sveinn Ingason, Viðar Ólafsson, Heba Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Björg, nei … Björg frænka eins og ég kallaði hana var frænka í orðsins fyllstu merkingu. Átti ekki von á því að bregðast svona við þegar mér var tilkynnt um fráfall hennar. Ég brast í þung- an og sáran grát. Vissi vel um veik- indi hennar en einhvern veginn hvarflaði það ekki að mér að hún myndi bíða ósigur í þetta sinn frek- ar en endranær. Hún hefur þurft að takast á við ýmsa erfiðleika í lífinu og alltaf farið með sigur af hólmi. Hispurslaus, raunsæ og sterk tókst hún á við lífið með góðan skammt af kímni í farteskinu. Hún var ekki að „dramatisera“ eða finnast mikið til styrks síns koma. Hún var bara stór á sál og líkama. Hún þurfti að sinna bæði móður- og föðurhlutverkinu gagnvart börnum sínum og gerði það af einstakri hæfni. Hún var afar stolt af börnum sínum og barna- börnum. Hafði líka tíma fyrir vini og frændfólk og átti einstaklega gott með að ná til þeirra sem áttu við einhvers konar vandamál að stríða. Hún sýndi skilning og bar virðingu fyrir ýmsu sem aðrir áttu erfitt með að meðtaka eða skilja. Hún var ævintýrakona eins og við fleiri í fjölskyldunni. Þegar mamma BJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR ✝ Björg Ágúst-dóttir fæddist í Reykjavík 21. mars 1930. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 14. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 20. júlí. fékk einhverja skemmtilega hug- dettu þá var Björg frænka fyrsta mann- eskjan sem hringt var í, því hún var alltaf til í að fara og sjá, hlusta eða heyra eitthvað nýtt. Hún gaf sér allt- af tíma til að koma að hlusta á mig syngja, jafnvel ferðast yfir hafið til að vera við- stödd tónleika hjá mér í New York. Hún var alltaf einstaklega hlý við mig og dóttur mína. Man eft- ir henni hér úti á svölum hjá mér á Ítalíu með Júlíu í kjöltu sinni, að segja henni sögur eða útskýra eitt- hvað áhugavert og spennandi. Hafði alveg sérstakt lag á að ræða við börn og lét þau finna til sín sem jafningja. Það verður tómlegt að koma heim til Íslands og fá ekki að hitta Björgu frænku. Eftir situr kær minning um skemmtilega frænku. Blanda af skyldurækni, raunsærri og sterkri bóhemkonu. Guð blessi minningu hennar og okkar innilegustu samúðarkveðjur til allrar fjölskyldunnar. Elsa Waage og fjölskylda. Björg frænka hefur alltaf verið hluti af lífi mínu. Faðir minn og Björg voru systrabörn og aldurs- munurinn lítill. Hann átti eingöngu bræður og kannski var Björg það sem hann komst næst því að eiga systur. Hún hefði alveg getað verið föðursystir mín, eins mikið og hún tók þátt í lífi allra í minni fjölskyldu. Stærstan hluta lífsins hafa bæði ég og Elsa systir mín búið erlendis og því hefur heimili foreldra okkar haldið áfram að vera okkar heimili þegar við stöldrum við á Íslandi. Móður minni og Björgu frænku hefur alltaf gengið vel að umgang- ast og hafa þær brallað margt sam- an um ævina. Þær hafa skoðað heiminn í ótöldum utanlandsferðum, prjónað og saumað hvor í kapp við aðra, rætt matar- og prjónaupp- skriftir og auðvitað endalaust um börn og barnabörn. Við systkinin hittum Björgu frænku oft heima hjá móður okkar og ekki sjaldan hafa þær heimsflakkararnir komið á heimili okkar erlendis eða við höfum farið saman í frí eitthvert allt annað. Það hefur alltaf verið ánægjulegt að njóta góðra stunda með henni, ekki síst vegna léttleika hennar og góðr- ar kímni. Ekki er fjallað um öll stór- menni í fjölmiðlum. Sumum líður best við „að rækta garðinn sinn“. Fyrir mér er Björg frænka garð- yrkjumeistari í þeirri list. Ég man ekki eftir að viðmót hennar til mín hafi breyst frá því ég var smábarn og til dagsins í dag. Hún hafði nóg af manngæsku og kærleika og var gjafmild á athygli og tíma. Hún spurði og hlustaði, sýndi mér áhuga og virðingu sem persónu, sama hvort ég var 12 eða 42 ára. Þessi stóíska ró og bó- hemska lífssýn var mér fyrirmynd. Mér hefur orðið betur ljóst með aldrinum að hún var ein af þeim sem blómstraði og hún hafði unnið til þess. Björg frænka var hetja í mannlífinu. Ég veit ekki betur en að Björg hafi fengið sjö tromp í lífinu og tók slagi á þau öll. Þar á ég við persónuleikann, eiginmanninn og börnin fimm. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til Magnúsar, Haraldar, Stefáns, Valgerðar, Tryggva og fjölskyldna þeirra. Vera Waage. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.