Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 43
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning á listaverkum sem voru valin vegna úthlut- unar listaverka– verðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin endurspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista- menn, meðal annars listmálarinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síðast- liðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verk- anna og hefðbundin listasöguleg viðmið lát- in víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýn- ingunni sem spannar tímabilið frá aldamót- unum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portrettum Sig- urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–17. Out of Office – Innsetning. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knútsdóttir í sýningarsal Norræna hússins fram til 30. september. Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga. Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga kl. 15–17. Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel Magnússon og Hildur Bjarnadóttir eru með- al áhugaverðustu listamönnum sinnar kyn- slóðar. Tilvist mannsins er drifkrafturinn að list Bjarkar. Daníel veltir fyrir sér sambandi texta og ímyndunar og Hildur vinnur á nýjan hátt úr textíl og ögrar hefðbundinni nálgun konseptlistar. Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guð- rún Vaka með sýningu til 30. júlí. Dagrún og Guðrún Vaka útskrifuðust í vor frá Mynd- listaskólanum á Akureyri og sýna hluta út- skriftarverka sinna. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. www.safn.is Bandaríska myndlistarkonan Joan Backes sýnir ný málverk og skúlptúra í Safni; sam- tímalistasafni við Laugaveg 37. Einnig eru til sýnis verk úr safneigninni. Þungamiðja verka Joan Backes er fínleg vinna með tré úr skógum ýmissa landa. Opið er mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis er inn. Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson með sýningu í Listsýningasal til 6. ágúst. Atli nefnir sýninguna Tákn og leikur sér þar með línur og form. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns Guðmundssonar í Skaftfelli, menningar- miðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14–21 í sumar. Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan Ka- milla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís- lensku landslagi en hún hefur síðustu vikur fetað í fótspor langafa síns, danska listmál- arans Johannesar Larssen, sem gerði teikn- ingar fyrir danska Íslendingasagnaútgáfu um 1930. Listakonan Ingrid Larssen frá Vesterålen í Norður-Noregi sýnir hálsskart sem hún vinnur úr silki, ull, perlum og fiskroði. Sýn- ingin er liður í menningarsamstarfi Austur- lands og Vesterålen. Skúli í túni | Þóra Gunnarsdóttir sýnir Upp- tekin! –hef annað betra að gera – Mynd- bands- og hljóðinnsetning. Þóra er við MA- nám í Gautaborg og vinnur mikið í frum- samda texta sem hún blandar saman við myndbandsverk. www.skulituni.com www.thoragunn.is. Skúli í Túni er í Skúlatúni 4. Til 6. ágúst. Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir, Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu formi. Sýningin stendur til 11. ágúst. Þetta er 11. einkasýning listakonunnar auk þess hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum á Ís- landi og erlendis. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldukon- ur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síð- ari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra forrétt- inda að nema myndlist erlendis á síðustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum. Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sum- arið 1938. Af myndum ferðalanganna má sjá hve ljósmyndin getur verið persónulegt og margrætt tjáningarform. Söfn Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur verið opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840– 1940. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning Borgarskjalasafns Reykjavíkur í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggvagötu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13– 17. Ókeypis aðgangur. Gamli bærinn í Laufási | Kirkjan í Laufási var byggð 1865. Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni. Bærinn er nú búinn hús- munum og áhöldum eins og tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Kvöldvaka í Gamla bænum Laufási. Haraldur Þór Egilsson safn- kennari Minjasafnsins á Akureyri, flytur er- indi fimmtudaginn 3. ágúst kl. 20.30. Opið er til 22 í Gamla bænum í Laufási og veit- ingasalnum í Gamla prestshúsinu þetta kvöld. Allir velkomnir. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið- ir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is og í 586 8066. Iðnaðarsafnið | Iðnaðarsafnið var stofnað til að minnast síðastliðinnar aldar í iðnaði á Akureyri, enda bærinn þá oft nefndur Iðn- aðarbærinn. Á safninu gefur að líta vélar og verkfæri af öllum stærðum og gerðum, framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega frá 13–17 til 15. sept. 400 kr. inn, frítt fyrir börn. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði sem er bústaður galdramanns og litið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær- daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Krókur, Garðaholti | Krókur á Garðaholti í Garðabæ er lítill bárujárnsklæddur bursta- bær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum lands- hluta á fyrri hluta 20. aldar. Krókur er stað- settur ská á móti samkomuhúsinu á Garða- holti. Opið kl. 13–17. Ókeypis aðgangur. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpa- sögum. Reykjavík hefur löngum verið vin- sælasta sögusvið íslenskra glæpasagnahöf- unda. Langflestir íslenskir glæpasagnahöfundar hafa skapað sína eigin Reykjavík þar sem myrkraverk og misynd- ismenn leynast, allt frá Granda upp í Graf- arholt. Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmunds- dóttur. Sumir safna servíettum, aðrir safna hlutabréfum. Gerður safnar bókstöfum úr íslenskum handritum svo og laufblöðum haustsins, þrykkir á síður og býr til handrit og bækur. Sýning á teikningum Halldórs Baldurssonar byggðar á Vetrarborginni e. Arnald Indr- iðason. Upphaflega var Halldór beðinn að gera málverk en honum fannst eðlilegra að halda sig við söguformið og því varð mynda- sagan fyrir valinu. Teikningar Halldórs eru til sölu. Opið mán.–fösd. kl. 9–17, laugard. kl. 10–14. Listasafn Árnesinga | List, listiðnaður og hönnun frá Færeyjum. Verk eftir 32 ein- staklinga. Ríkey Kristjánsdóttir textílhönn- uður í hönnunarstofu. Aðgangur ókeypis. Opið alla daga kl. 11–17 til 31. júlí. Minjasafnið á Akureyri | Gönguferð með leiðsögn um fornleifauppgröftinn á Gásum, kaupstaðinn frá miðöldum, 11 km norðan við Akureyri. Gengið frá bílastæðinu við Gás- eyrina miðvikudaginn 19. og 28. júlí kl. 13 og 3. ágúst kl. 20. Þátttaka í göngunni kostar 300 krónur. www.gasir.is og www.akmus.is Sumarsýning. Ef þú giftist – Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaupssiði í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Ís- lands og er opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept. Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja söguna frá landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr og veiðitengdir munir, skotvopn o.fl. Opið 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Víkin – Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár“. Sýningunni er ætlað að veita innsýn í við- burðaríka sögu togaraútgerðar og draga fram fjölþætt áhrif hennar á samfélagið. „Úr ranni forfeðranna“ er sýning á minjasafni Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadótt- ur. Molakaffi í boði og frábært útsýni yfir höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Tvær glæsilegar nýj- ar sýningar: Íslensk tískuhönnun sem sýnir fjölbreytnina og sköpunarkraftinn í tísku- geiranum og Í spegli Íslands, um skrif er- lendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. Auk þess helstu handrit þjóðarinnar í vandaðri umgjörð á handritasýningunni og Fyrirheitna landið. Þjóðminjasafn Íslands | Fornleifauppgreftir fara nú fram víðs vegar um land og í Rann- sóknarýminu á 2. hæð má sjá úrval gripa sem fundist hafa á undanförnum árum. Mikil gróska hefur verið í fornleifarannsóknum vegna styrkja úr Kristnihátíðarsjóði en út- hlutana hans nýtur í síðasta sinn í sumar. Sýningin stendur til 31. júlí. Vaxmyndasafnið hefur löngum verið sveip- að ævintýraljóma og í sumar gefst tækifæri til að sjá hluta þess á 3. hæð safnsins. Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjöl- breyttar sýningar, fræðslu og þjónustu. Þar er safnbúð og kaffihús. Safnið hlaut sér- staka viðurkenningu í samkeppni um safn Evrópu árið 2006. Uppákomur Norræna húsið | Out of Office. Sýning Steinunnar Knútsdóttur og Ilmar Stef- ánsdóttur í sýningarsal Norræna hússins. Gjörningur alla laugardaga og sunnudaga fram til 30. september kl. 15–17. Fyrirlestrar og fundir Alanóhúsið | 12 spora-fundir kl. 11–12, fyrir skuldara, þar sem deilt er reynslu, styrk og vonum og DA kynna þér lausnir. Héðinshús- inu, Seljavegi 2, herbergi 3. Lækjarbrekka, veitingahús. | Tryggvi V. Líndal ræðir um menningarstarf Júlíanusar Rómarkeisara 20. júlí kl. 14.30. Síðan munu hann og aðrir lesa úr ljóðum sínum. Sögusetrið á Hvolsvelli | Sverrir Jakobsson sagnfræðingur flytur erindi sem hann nefnir „Tengslanet Flosa Þórðarsonar“ í Vík- ingasal Sögusetursins á Hvolsvelli, 30. júlí kl. 15.30. Að loknum fyrirlestri er að vanda boðið uppá umræður gesta og fyrirlesara. Fréttir og tilkynningar Ferðaklúbbur eldri borgara | 15. ágúst Fjallabaksleið syðri: Hvanngil – Emstrur – Fljótshlíð 17. til 21 ágúst: Sprengisandur – Hljóðaklettar – Raufarhöfn – Langanes – Dettifoss – Kjölur: Upplýsingar hjá Hannesi í síma 892 3011. Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat- vælum, fatnaði og leikföngum á mið- vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla sama dag kl. 15–17 í Eskihlíð 2–4 v/ Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár- hagslega, geta lagt inn á reikning 101–26– 66090 kt. 660903–2590. GA–fundir | Ef spilafíkn er að hrjá þig eða þína aðstandendur er hægt að hringja í síma: 6983888 og fá hjálp. JCI-heimilið | Ljósmyndasamkeppni JCI Ís- lands stendur yfir. Keppnin er opin öllum áhugaljósmyndurum og verða úrslitin kynnt á Menningarnótt Reykjavíkur 19. ágúst. Sjá nánar www.jci.is. Lónkot | Markaður verður haldinn í risa tjaldinu á Lónkoti í Skagafirði, 30. júlí kl. 13– 17. Sölufólk getur haft samband við Ferða- þjónustuna í Lónkoti og pantað söluborð í síma 453 7432. Kaffihlaðborð verður á Söl- vabar. Börn Garðabær | Golfleikjaskólinn heldur 5 daga golfnámskeið, mánudag–föstudags fyrir for- eldra og börn. Hægt er að velja milli tím- anna kl. 17.30–19 eða kl. 19.10–20.40. Upp- lýsingar og skráning eru á golf@golfleikjaskolinn.is og í síma 691 5508. Heimasíða skólans: www.golf- leikjaskolinn.is Reykjavíkurborg | Leikvellir á vegum ÍTR eru opnir fyrir 2–5 ára börn í hverfum borg- arinnar. Þar er boðið upp á útivist og leik í öruggu umhverfi. Komugjald er 100 kr. Nán- ari upplýsingar á www.itr.is og í síma 411 5000. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 43 DAGBÓK Fáanleg fyrirtæki: Þjónusta okkar felst í að tengja saman kaupendur og seljend- ur fyrirtækja. Sem fagfólk í fyrirtækjaviðskiptum erum við í lifandi tengslum við innlendan sem erlendan fyrirtækjamarkað. Aðili að Við erum sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum. TENGINGVIÐ TÆKIFÆRIN H O R N / H a u k u r / 2 4 0 4 A ) Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýsingar um fyrirtæki eru ekki gefnar í síma. Vinsamlega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200 en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is. • Sérverslun-heildverslun með heimilisvörur. Ársvelta 120 mkr. • Rótgróin heildverslun með þekktar gjafavörur. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með tæknivörur. Ársvelta 250 mkr. • Þekkt hugbúnaðarfyrirtæki með fasta viðskiptavini. EBITDA 10 mkr. • Lítið fyrirtæki með bílaréttingar og tvær bónstöðvar. • Stórt málmiðnaðarfyrirtæki. Ágæt EBITDA. • Traustur fjárfestir leitar að samstarfi við reyndan framkvæmdastjóra sem hefði hug á að kaupa eitthvert stórt fyrirtæki, að kaupverði lágmark 300 mkr. Fjárfestirinn legði fram eigið fé til kaupanna á móti framkvæmdastjóranum sem stjórnaði rekstrinum. • Lítil dagvörudeild úr heildverslun. Ársvelta 50 mkr. • Stórt innflutnings- og iðnfyrirtæki. EBITDA 100 mkr. • Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að meðalstóru framleiðslufyrirtæki í góðum rekstri. • Þekkt sérverslun með fatnað. Góð afkoma. • Jarðvinnufyrirtæki með nýlegar vélar og góða verkefnastöðu. • Meðalstórt iðnfyrirtæki í miklum vexti. • Fyrirtæki með tvo stóra og vel staðsetta söluturna. Ársvelta 110 mkr. • Rótgróin heildverslun með ýmsar vörur. Ársvelta 280 mkr. • Þekkt útgáfufyrirtæki. Ágætur hagnaður. • Merkjaland. Skilta- og merkjagerð. Góður hagnaður. • Meðalstórt fyrirtæki með gluggatjöld. EBITDA 15 mkr. • Lítið sérhæft ræstingafyrirtæki með mikla sérstöðu og vaxtamöguleika. Fastir samningar. • Mjög þekktur veitingastaður í nágrenni borgarinnar. Mikil sérstaða. Góð velta og hagnaður. Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is, gsm 820 8658 Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is, gsm 868 8648 Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is, gsm 694 7722 Birgir Ómar Haraldsson verkfræðingur, birgir@kontakt.is, gsm 896 6070 Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is, Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989 Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Farið verður í Fljótshlíðina þann 17. ágúst. Nán- ari upplýsingar í síma 535 2760. Dalbraut 18–20 | Brids mánu- daga kl. 14. Félagsvist þriðjudaga kl. 14. Bónus miðvikudaga kl. 14. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Hádegisverður og síð- degiskaffi. Uppl. um sumarferðir í síma 588 9533. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skrifstofa FEB verður lokuð frá 17. júlí til 8. ágúst. Skjaldbreiður – Hlöðufell 16. ágúst. Ekið til Þingvalla, um Uxahryggjaveg og Kjalveg skammt frá Gullfossi. Flateyjardalur – Fjörður 19. ágúst, 4 dagar: Ekið norður um Sprengisand, ekið til baka um hringveginn. Uppl. og skráning frá 8. ágúst í síma 588 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sumarleyfa starfsfólks fellur starfsemi og þjónusta niður til þriðjudagsins 15.ágúst. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, sími 557 5547, eru á mánudög- um kl. 10.30 og miðvikudögum kl. 9.30. Strætisvagnar S4, 12 og 17. www.gerduberg.is. Hafnarfjörður | Í sumar verður púttað á Vallavelli á Ásvöllum á laugardögum frá kl. 10–11.30 og á fimmtudögum frá kl. 14–16. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Félagsvist mánudaga kl. 13.30. Frjáls spil miðvikudaga kl. 13.30. Guðnýjarganga kl. 10 þriðjudaga og fimmtudaga. Gönuhlaup föstudaga kl. 9.30. Út í bláinn laugardaga kl. 10. Pútt- völlur opinn. Sumarferð 15. ágúst. Nánari upplýsingar 568 3132. Kirkjustarf Grundarfjarðarkirkja | Biskup Ís- lands, herra Karl Sigurbjörnsson, mun predika í hátíðarmessu í til- efni 40 ára vígsluafmælis Grund- arfjarðarkirkju. Fyrrverandi sókn- arprestar munu aðstoða við guðsþjónustuna. Að guðsþjón- ustu lokinni verður boðið til kaffisamsætis. Jafnframt verður opnuð sýning um byggingarsögu kirkjunnar. Reykholtskirkja | Reykholtshátíð 2006 – Kirkjudagur Reykholts- kirkju. Fagnað verður 10 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Hátíð- armessa sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Steindir gluggar Valgerðar Bergsdóttur prýða nú kirkjuna. Allir velkomnir. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.