Morgunblaðið - 30.08.2006, Page 14
VERULEGT ójafnvægi hefur mynd-
ast í þjóðarbúskapnum og er líklegt
að næstu misseri verði tími aðlögunar
að jafnvægi. Líklegast er að jafnvægi
komist á í hagkerfinu eftir tiltölulega
skammvinnt skeið óverulegs hagvaxt-
ar og samdráttar í eftirspurn. Tíma-
bundin rýrnun kaupmáttar, lækkun
eignaverðs og aukning vanskila og
gjaldþrota mun koma fram. Þetta er
mat Greiningar Glitnis banka sam-
kvæmt nýrri þjóðhagsspá deildarinn-
ar, sem kynnt var á morgunverðar-
fundi bankans í gær.
Fram kom í máli Ingólfs Bender,
forstöðumanns Greiningar Glitnis, á
fundinum í gær, að þó svo að deildin
geri ráð fyrir því að mjúk lending sé
framundan í efnahagslífinu, þá sé
ekki er útilokað að aðlögunin verði
annaðhvort snarpari eða hægari en
spá deildarinnar geri ráð fyrir. Þá
sagði hann að hagur heimilanna hefði
versnað nokkuð þar sem af er þessu
ári og útlit sé fyrir að hann muni
versna enn á næsta ári þegar dregur
frekar úr þenslu í hagkerfinu.
Verðbólga líklega náð hámarki
Greining Glitnis gerir ráð fyrir
4,2% hagvexti á þessu ári. Fram kem-
ur í þjóðhagsspá deildarinnar að vöxt-
urinn sé nú drifinn áfram af mikilli
innlendri eftirspurn. Viðskiptahalli
vegi þó á móti, og er því spáð að hann
verði nærri 17% af landsframleiðslu.
Þá er talið að verðbólgan hafi líklega
náð hámarki, en hún muni þó verða
veruleg það sem eftir lifir árs.
Gert er ráð fyrir því í þjóðhagsspá
Greiningar Glitnis að líklega muni
hægja verulega á í íslensku efnahags-
lífi á næsta ári, þegar uppbyggingu
stóriðju á Austurlandi lýkur, önnur
fjárfesting í húsnæði og atvinnutækj-
um minnkar, og einkaneysla dregst
saman vegna minnkandi kaupmáttar,
lækkandi eignaverðs og erfiðari skil-
yrða á lánsfjármarkaði, auk mettun-
aráhrifa. Spáir deildin 0,3% hagvexti
á árinu 2007.
Verðbólga hjaðnar hratt
Viðskiptahallinn mun dragast hratt
saman eftir að hafa náð hámarki á
þessu ári og telur Greining Glitnis að
hallinn verði innan við 7% á næsta ári
og um 3% í lok áratugarins. Þá telur
deildin að verðbólga muni einnig
hjaðna hratt þegar áhrif gengislækk-
unar fjara út og framleiðsluspenna í
hagkerfinu minnkar. Seðlabankinn
muni ná verðbólgumarkmiði sínu,
sem er 2,5%, í lok næsta árs, og að
verðbólgan verði í kringum markmið
Seðlabankans á árunum 2008 til 2010.
Jón Bjarki Bentsson, hagfræðing-
ur hjá Glitni, sagði í erindi sem hann
flutti á morgunverðarfundinum, að
samkvæmt þjóðhagsspá deildarinnar
þá sé gert ráð fyrir að gengi krón-
unnar eigi eftir að lækka nokkuð þeg-
ar líður að lokum spátímabilsins, sem
er árið 2010. Gengi krónunnar sé enn
of hátt til að stuðla að jöfnuði í utan-
ríkisviðskiptum. Gengisvísitalan sé í
kringum 124 stig en jafnvægi ætti að
vera í kringum 130 stig.
Þá kom fram í máli Ingvars Arn-
arsonar, hagfræðings hjá Glitni, á
fundinum að Greining bankans telur
líkur á því að íbúðaverð muni lækka
um 5–10% á næstu 12 til 24 mánuðum,
en hækki síðan í takti við verðlag.
Glitnir spáir tímabundinni
rýrnun kaupmáttar
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Margt um manninn Það var þéttsetinn bekkurinn á morgunverðarfundi Glitnis um horfur í efnahagsmálum í gær.
14 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
0,52% í gær og var skráð 5.929 stig
við lok 2,8 milljarða króna viðskipta
með hlutabréf í Kauphöll Íslands.
Mest voru viðskipti með hlutabréf FL
Group fyrir um rúman milljarð króna
og hækkuðu bréf félagsins um
1,12%.
Mest hækkuðu bréf Mosaic eða
um 1,16%. Hlutabréf í KB banka
hækkuðu um 1%. Bréf Össurar lækk-
uðu um 1,19% og bréf Avion um
0,59%.
Hlutabréf hækkuðu
● GUNNAR Smári Egilsson hefur lát-
ið af störfum sem forstjóri Dags-
brúnar, að því er kemur fram í til-
kynningu til Kauphallar Íslands. Árni
Pétur Jónsson tekur við starfi for-
stjóra í stað Gunnars og gegnir því
samhliða starfi sínu sem forstjóri Og
Vodafone.
Samkvæmt tilkynningunni mun
Gunnar Smári veita forstöðu nýjum
sjóði, Dagsbrún Mediafund, sem
tekur við uppbyggingu og útgáfu Ny-
hedsavisen í Danmörku og undirbýr
frekari útgáfu fríblaða í öðrum lönd-
um. Þá mun Gunnar Smári áfram
koma að rekstri Wyndeham Press
Group í Bretlandi með stjórnarsetu í
félaginu.
Haft er eftir Gunnari Smára í til-
kynningunni að flest bendi til þess
að Nyhedsavisen muni hafa viðlíka
áhrif á danskan fjölmiðlamarkað og
Fréttablaðið hafði á Íslandi.
Forstjóraskipti
hjá Dagsbrún
Gunnar Smári
Egilsson
Árni Pétur
Jónsson
ÍSLENSKIR bankar kunna að hafa
áhuga á því í framtíðinni að fara úr
Kauphöll Íslands og skrá sig alfarið í
erlenda kauphöll og skrá sig í öðrum
gjaldmiðli en krónunni. Þetta var
meðal þess sem fram kom í máli
Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrver-
andi forstjóra Straums-Burðaráss
fjárfestingarbanka, á morgunverð-
arfundi Glitnis um horfur í efna-
hagsmálum í gær.
Að sögn Þórðar Más er það ljóst
að krónan hefur verið þröskuldur
fyrir áhuga erlendra fjárfesta á að
takast á við íslensk hlutabréf. Sagði
hann að skráning í erlendri kauphöll
myndi auðvelda innkomu erlendra
fjárfesta í hluthafahóp bankanna. Þá
sagðist hann fullviss um að til að
mynda fjármögnun Glitnis fyrir
næsta ár, sem greint var nýlega frá
að væri lokið, hefði verið auðveldari
ef bankinn hefði verið skráður sem
norskt fyrirtæki. Það sama ætti og
við ef KB banki væri skráður sem
breskt fyrirtæki.
Forskot íslensku bankanna
Að mati Þórðar Más eru nokkrar
ástæður fyrir því að erlendir bankar
hafa ekki haslað sér völl á Íslandi.
Hann sagði það meðal annars skýr-
ast af því að hagkerfið sé lítið, þekk-
ing hjá erlendum aðilum á íslensku
efnahagslífi sé lítil þó hún hafi farið
vaxandi, samkeppni innlendra
banka sé mikil og þeir hafi rekstrar-
og þekkingarlegt forskot á mark-
aðinum.
„Ég tel það vera ólíklegt að er-
lendir bankar hefji beina starfsemi á
Íslandi, til að mynda með opnun úti-
búa eða skrifstofa. Ég tel líklegra að
innan fárra ára kunni erlendir bank-
ar hins vegar að hafa áhuga á því að
gerast kjölfestufjárfestir eða yf-
irtaka íslenskan banka. Þetta getur
orðið veruleikinn eftir nokkur ár.“
Hann sagði að ástæðan fyrir því
að erlendir bankar hefðu hugs-
anlega áhuga á að kaupa íslenska
banka væri meðal annars til að ná
fótfestu á norrænum fjármálamark-
aði. Íslenskir kjölfestufjárfestar
kunni einnig hugsanlega að vilja
losa um stóra hluti sína í bönkunum.
Stórir eignarhlutir þeirra séu lítt
hreyfanlegir á innanlandsmarkaði í
dag.
Rýrari samkeppnisstaða
Þórður Már sagði að mikill ytri sem
innri vöxtur bankanna hefði vakið
furðu ýmissa erlendra aðila. Það sé
eðlilegt að spurt sé hvernig sá vöxt-
ur sé fjármagnaður. „Hann hefur að
mestu verið fjármagnaður með sölu
skuldabréfa erlendis, bæði til evr-
ópskra og bandarískra fjárfesta. En
samkeppnisaðilar okkar hafa verið
að tortryggja hvaðan peningarnir
eru sprottnir.“
Nýverið var greint frá endur-
fjármögnun tveggja banka, en þar
var um að ræða endurfjármögnun
fyrir 2006 og 2007 á eldri lánum,
ekki nýja fjármögnun. Sagði Þórður
Már að þær tilkynningar sýni honum
að íslenskir bankar njóti enn trausts
á erlendum mörkuðum þrátt fyrir
miklar dómdagsspár fyrr á árinu.
„Samhliða þessu hafa kjör bankanna
því miður hækkað. Hærri lánakjör
bankanna munu rýra samkeppn-
ishæfni þeirra,“ sagði hann.
Þá bætti hann við að það væri ljóst
að fjármögnun og aðgengi að fjár-
magni verði mikilvægur þáttur í
stafsemi bankanna á næstu árum.
Hann vék í máli sínu að þætti eft-
irlitsstofnana hér á landi og sagði að
þær hefðu þurft að styrkjast sam-
hliða vexti fjármálafyrirtækjanna.
Það hefðu þær hins vegar ekki gert.
Skráning erlendis auðveldar
innkomu erlendra banka
Morgunblaðið/Golli
Erlendir bankar Þórður Már Jó-
hannesson telur að erlendir bankar
muni innan fárra ára hafa áhuga á
að gerast kjölfestufjárfestar í ís-
lenskum banka.
»Glitnir spáir 2,5% atvinnu-leysi á næsta ári, 3,4% á
árinu 2008, 3,6% árið 2009 og
3,2% árið 2010.
»Verðbólga verður sam-kvæmt spá Glitnis 7,1% á
þessu ári, 5,6% á næsta ári,
2,7% árið 2008, 2,2% árið 2009
og 2,0% árið 2010.
» Í þjóðhagsspánni er gertráð fyrir 4,2% hagvexti á
þessu ári, 0,3% á næsta ári,
2,3% árið 2008, 3,0% árið 2009
og 3,6% árið 2010.
Í HNOTSKURN
*+
, *--.
/01
, 1
0; ,< #!,53.
0&3'; ,53.
0# ,< #!,53.
0#,< #!,53.
= ,< #!,53.
> ( %,53.
,< #!,53.
<& ,( ,53.
) !4 ,( ,53.
( ,/& ,53.
'&,53.
# ;, 5#,53.
?1,0& ;,?' #&'
@=
,
3.( ,53.
A ,53.
2 03 & ,< #!,53.
*=,< ,53.
B;'& ;,< #!,53.
CD5' ,53.
" E ,53.
-&,53.
4 "5
&
36& ,, & ,3.
"6) 7 BF7G
$
.'
/ 0
/ /
/
/ / /
/
/
/
/
/
/ /
0
0
/
0
0
0
0
= 'E ,3
3E ,.'
@
@
@ @
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
H, IJ
@
@
H,@ IJ
@
@
H,IJ
@
H, IJ
H, IJ
@
H,IJ
H, IJ
@
H,@IJ
@
@
@
@
@
@
@
@
*'& !
"&(#,$,&#, +
) !,,,,,,,,, &
. @
. . . . . .
. . . . .
. .
. @
@
@
@
@
@
@
@
-!,$,4%., .
0"*.,K,05 & &
!
@
@
@
@
@
@
@
C L
M?,
1 /
1 /
I
I
" 7
>0N
1 /
/
I
I
F0F, ON, #52&
1 /
1 /
I
I
ON,)53
C'
1 /
1 /
I
I
BF7N,
>#P,Q#'
1 /
1 /
I
I