Morgunblaðið - 30.08.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691122
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðanátt, víða
8-13 m/s. Létt-
skýjað sunnanlands
en dálítil væta norðaustan til
á landinu. Hlýjast og sólrík-
ast á Suðurlandi. » 8
Heitast Kaldast
15°C 5°C
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
ÞEIR sem héldu að tími óheið-
arlegra bankastjóra sem stinga af
með peninga viðskiptavinanna sé
liðinn ættu að hugsa sinn gang.
Einmitt þetta gerðist í tölvu-
leiknum EVE Online, sem er svo-
kallaður fjölþátttökuleikur sem er
spilaður í gegnum netið og er
hann hannaður af íslenska fyr-
irtækinu CCP hf.
Magnús Bergsson, markaðsstjóri
CCP, staðfesti í gær að fyrirtækið
væri að kanna fréttir af bíræfnu
ráni sem framið var inni í tölvu-
leiknum, þar sem einn af notend-
unum stofnaði banka með gjald-
miðilinn ISK, sem er
gjaldmiðillinn í tölvuleiknum.
Bankastjórinn lofaði þeim sem
legðu rafrænu peningana sína á
reikninga bankans vöxtum, en eft-
ir nokkra mánuði stakk hann þess-
um rafrænu peningum í sinn raf-
ræna vasa og stakk af frá öllum
skuldbindingum bankans.
„Í raun og veru er ekkert í
leiknum sem bannar þetta. Þetta
er mjög vondur heimur þar sem
allt er í raun löglegt, þótt þetta sé
vissulega siðlaust. Menn geta not-
að ýmis brögð til þess að plata
fólk til að láta þá fá peninga, inn-
an ákveðinna marka. [...] Ef þetta
er allt rétt og satt er þetta líklega
stærsta peningasvindlið sem fram-
ið hefur verið í svona leik,“ segir
Magnús.
Talið er að upphæðin sem
bankastjórinn stal af öðrum spil-
urum hafi verið um 790 milljarðar
ISK, en Magnús gat í gær ekki
staðfest að sú upphæð væri rétt.
Hann segir engar reglur gilda í
leiknum sem geti náð til banka-
stjórans bíræfna og geti hann því
lifað í vellystingum í tölvuleiknum
með stolnu fjármununum.
Hann segir þó ekkert sem stöðv-
ar aðra spilara í því að taka hönd-
um saman og hefna sín á banka-
stjóranum, ef hann finnst.
„Gersamlega siðlaust“
„Ég vona að þeir geri það, hann
á það innilega skilið. Þetta er ger-
samlega siðlaust, en innan þeirra
reglna sem leikurinn setur.“
Þetta rán á tölvuleikjapeningum
hefur þó alvarlega hlið, enda er
hægt að selja tölvupeningana fyrir
raunverulega peninga. Reyndar
gengur það gegn reglum leiksins
og ef upp kemst um slík viðskipti
eru spilarar settir í bann, en engu
að síður eru viðskipti með tölvu-
leikjapeninga blómleg.
Verðmæti hvers milljarðs ISK
er um 215 dollarar, eftir því sem
næst verður komist, sem jafngildir
um 15 þúsund krónum. Verðmæti
milljarðanna 790 gæti því verið
um 12 milljónir króna.
Bankastjóri stingur af með 790 milljarða ISK
Rændir? Bankastjóri í tölvu-
leiknum EVE Online komst undan
með andvirði 12 milljóna króna.
Verknaðurinn átti sér stað í EVE Online og er stærsti hvítflibbaglæpur í fjölþátttökutölvuleik til þessa
Ósammála nið-
urstöðu áfrýj-
unarnefndar
PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, segir að eðli málsins
samkvæmt sé Samkeppniseftirlitið ósam-
mála niðurstöðu áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála frá því í gær, en þá ómerkti
nefndin málsmeðferð eftirlitsins á samruna
Dagsbrúnar og Senu vegna formgalla.
„Niðurstaðan er hins vegar endanleg og
því mun samruni félaganna að líkindum
ganga eftir, þrátt fyrir að Samkeppniseft-
irlitið telji að hann muni hafa samkeppn-
ishamlandi áhrif,“ segir Páll Gunnar.
Samkeppniseftirlitið ógilti samrunann í
júní sl. m.a. á þeirri forsendu að með honum
gæti fyrirtækið takmarkað samkeppni og
hagað verðlagningu sinni og þjónustu án til-
lits til keppinauta og neytenda.
„Samkeppniseftirlitið mun þurfa að meta
þennan úrskurð og áhrif hans til framtíð-
ar,“ segir Páll Gunnar. | 4
NEFND Evrópuráðsins um mannúðlega
meðferð á föngum hefur tvisvar gagnrýnt
að ekki sé meðferðardeild í fangelsinu á
Litla-Hrauni. Fangelsismálastofnun óskaði
árið 2003 eftir 17 milljónum til að setja slíka
deild á laggirnar en féð fékkst ekki. Í haust
tekur Alþingi afstöðu til sams konar beiðni.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, segir að besta vörnin gegn
fíkniefnaneyslu séu meðferðarúrræði.
Gegnumlýsingartæki og fíkniefnahundar
séu sjálfsagt einnig til bóta.
Lögreglan á Selfossi handtók samverka-
menn fangavarðarins sem reyndi að smygla
fíkniefnum inn á Litla-Hraun. Við yfir-
heyrslur játuðu þeir þátt sinn í málinu og
var sleppt að því loknu. | 12
Fengu ekki
fé til meðferðar-
deildar
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
TIL eru þeir sem vilja jarðgöng í
hvert hérað, en bóndinn á Sval-
barði í Eyjafirði gekk skrefinu
lengra og gerði sín eigin göng
undir þjóðveg 1 til að sleppa við
að reka hátt í hundrað kýr yfir
veginn tvisvar á dag.
„Það er gríðarlega mikil um-
ferð um þjóðveginn og ég er með
95 kýr sem þarf að reka yfir veg-
inn tvisvar á dag. Ég rek þær
uppeftir á morgnana yfir þjóð-
veginn og svo heim á kvöldin,
það er bæði erfitt og hættulegt
fyrir kýrnar, okkur sjálf og um-
ferðina,“ segir Guðmundur
Bjarnason, bóndi á Svalbarði.
Hann segir að á tímabilinu frá
maí til september fari 2.300–
2.700 bílar um veginn á dag og
allt upp í 4.000 bílar á dag þegar
mest er.
Undirgöngin hans Guðmundar
eru í raun afar svert rör. Grafa
þurfti niður í veginn aðfaranótt
síðasta laugardags, koma rörinu
fyrir og fylla yfir aftur á einni
nóttu til að hægt væri að opna
veginn aftur að morgni, og segir
Guðmundur að það hafi gengið
mjög vel.
Kostnaðurinn við að leggja
göngin fellur alfarið á Guðmund
og segist hann reikna með að
þegar upp er staðið verði kostn-
aðurinn á bilinu 2–3 milljónir
króna. „Þetta er búið að standa
til lengi, ég er búinn að ýta við
Vegagerðinni að gera þetta í 15
til 20 ár. Þeir hafa alltaf verið
tregir til en ég hef alltaf haldið
að þetta væri að koma.“ Guð-
mundur fékk svo loks endanlegt
afsvar í vor og ákvað því að fara í
verkið á eigin vegum, eftir að
hafa fengið tilskilin leyfi.
Best að láta forvitnina ráða
Þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við Guðmund í gær var
hann að leggja lokahönd á verkið
og girða af nágrenni ganganna.
Hann reiknaði þó ekki með að
kýrnar yrðu reknar í gegnum
göngin í gærkvöldi heldur fái
þær að vígja göngin í dag.
„Ég veit ekki hvernig gengur
að koma þeim í gegn, það kemur
bara í ljós. Þetta gæti orðið höf-
uðverkur,“ segir Guðmundur.
„Það verður best að láta þær
fara sjálfar, láta þær vera við
göngin og sjá hvað gerist. Þær
fara það oft á forvitninni, ef þær
eiga ekki að fara eitthvað þá fara
þær.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Göng fyrir kýrnar Guðmundur Bjarnason, bóndi á Svalbarði í Eyjafirði, lagði lokahönd á göngin undir þjóð-
veg 1 í gær, með aðstoð sonar síns, Bjarna Þórs, og Eyþórs Jóhannessonar og greiddi sjálfur fyrir verkið.
Gerði göng undir þjóðveginn fyrir kýrnar á eigin kostnað
Gæti orðið höfuðverkur
að koma kúnum í gegn
Kunna að
hafa áhuga
á íslenskum
bönkum
ÞÓRÐUR Már Jóhannesson, fyrr-
verandi forstjóri Straums-Burðar-
áss fjárfestingarbanka, segist telja
ólíklegt að er-
lendir bankar
hefji beina starf-
semi á Íslandi, til
að mynda með
opnun útibúa eða
skrifstofa. Þetta
kom fram í máli
hans á morgun-
verðarfundi
Glitnis banka í
gær, þar sem
fjallað var um
horfur í efnahagsmálum, en Grein-
ing Glitnis spáir m.a. tímabundinni
rýrnun kaupmáttar á næsta ári og
að verðbólga verði 7,1% á þessu ári
og 5,6% árið 2007.
„Ég tel líklegra að innan fárra
ára kunni erlendir bankar hins
vegar að hafa áhuga á því að gerast
kjölfestufjárfestir eða yfirtaka ís-
lenskan banka,“ sagði Þórður Már.
Skráning erlendis möguleg
Þórður Már sagði ennfremur að
ástæðan fyrir því að erlendir bank-
ar hefðu hugsanlega áhuga á að
kaupa íslenska banka væri meðal
annars til að ná fótfestu á norræn-
um fjármálamarkaði. Íslenskir
kjölfestufjárfestar kunni einnig
hugsanlega að vilja losa um stóra
hluti sína í bönkunum. Stórir eign-
arhlutir þeirra séu lítt hreyfanlegir
á innanlandsmarkaði í dag.
Þá kom fram í máli Þórðar Más
að hann telur að íslenskir bankar
kunni að hafa áhuga á því í framtíð-
inni að fara úr Kauphöll Íslands og
skrá sig alfarið í erlenda kauphöll
og skrá sig í öðrum gjaldmiðli en
krónunni. Sagði hann að skráning í
erlendri kauphöll myndi auðvelda
innkomu erlendra fjárfesta í hlut-
hafahóp bankanna.
Glitnir spáir | 14
Þórður Már
Jóhannesson
Greining Glitnis spáir
rýrnun kaupmáttar
»Ef upphæðin sem banka-stjórinn í EVE Online stal
reynist vera 790 milljarðar ISK
er þetta langstærsti hvít-
flibbaglæpurinn í fjölþátt-
tökutölvuleik frá upphafi.
»Hægt er að selja gjaldmiðilEVE Online fyrir raunveru-
lega peninga í gegnum netið,
hver milljarður leikjapeninga
kostar gjarnan um 15 þúsund
krónur. Verðmæti ránsfengs
bankastjórans óheiðarlega er
því um 12 milljónir króna.
»Bellibrögð af þessu tagi eruleyfileg í leiknum, en bann-
að er að selja ágóðann. Gæti því
bankastjórinn fyrrverandi lent
í banni frá tölvuleiknum ef
hann reynir að selja tölvupen-
ingana.
Í HNOTSKURN