Morgunblaðið - 30.08.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 17
MENNING
ÞAÐ KENNIR margra grasa á kom-
andi starfsári Borgarleikhússins – af
íslenskum sem erlendum rótum. Ís-
lenskur söngleikur, gamanleikur um
Adolf Hitler og samsæriskenning um
dauða Mozarts eru meðal nýrra
verka sem landsmönnum gefst kost-
ur að sjá í vetur á fjölum leikhússins.
Að auki verða vinsælar sýningar frá
síðasta leikári teknar upp að nýju,
dansinn mun duna sem fyrr og staðið
verður fyrir fjölbreyttum uppá-
komum fyrir alla aldurshópa.
Endurkoma Grettis
Leikárið tekur flugið í september
með frumsýningu á nýja sviðinu,
Mein Kampf eftir leikskáldið George
Tabori. Um er að ræða svartan gam-
anleik um vináttu og sambýli Adolfs
Hitlers og gyðingsins Slómós, en
þegar sá fyrrnefndi fær höfnun frá
inntökunefnd Listaakademíunnar í
Vínarborg gengur Slómó honum í
föðurstað og kveikir hjá honum hug-
myndir um pólitískan frama. Leik-
stjóri Mein Kampf er Hafliði Arn-
grímsson en með hlutverk Hitlers fer
Bergur Þór Ingólfsson. Aðrir leik-
arar eru Þór Tulinius, Guðmundur
Ólafsson, Marta Nordal, Hanna
María Karlsdóttir og Björn Ingi
Hilmarsson.
Önnur frumsýning haustsins og sú
fyrsta á stóra sviðinu er Amadeus í
leikstjórn Stefáns Baldurssonar.
Eins og nafnið gefur til kynna fjallar
verkið um austurríska undrabarnið
Mozart og byggist á sögusögnum um
dularfullan dauða hans og meintan
þátt Salieris, hirðtónskálds Austur-
ríkiskeisara, í dauðdaganum. Margir
muna eflaust eftir samnefndri kvik-
mynd Milos Formans frá árinu 1984
en hún byggist eimitt á umræddri
leikgerð Peters Shaffers.
Með hlutverk stórtónskáldsins fer
hinn nýútskrifaði leikari Víðir Guð-
mundsson en Salieri túlkar Hilmir
Snær Guðnason. Birgitta Birg-
isdóttir, sem er sömuleiðis nýút-
skrifuð, leikur Konstönsu, konu Moz-
arts. Aðrir leikarar eru Pétur
Einarsson, Theodor Júlíusson, Ellert
Ingimundarson og Sigrún Edda
Björnsdóttir.
Tvær aðrar frumsýningar verða á
stóra sviðinu í vetur. Í mars hefjast
sýningar á söngleiknum Gretti eftir
þá Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin
Eldjárn og Egil Ólafsson. Þar segir
frá hinum lánlausa Gretti sem nær
skjótum frama þegar honum áskotn-
ast hlutverk í sjónvarpsseríu byggðri
á Íslendingasögunni um nafna hans
hinn sterka. Söngleikurinn hefur áð-
ur verið settur upp af Leikfélagi
Reykjavíkur, í Austurbæjarbíói árið
1980, þar sem hann gekk lengi fyrir
fullu húsi.
Umfjöllunarefni Fögru veraldar,
sem frumsýnt er í desember, er hins
vegar af dramatískari toga en aðal-
persónunni Lísu er fylgt inn í undra-
heim geðveikinnar. Leikstjóri er
Benedikt Erlingsson og höfundur er
Anthony Neilson.
Neilson þessi er einnig maðurinn á
bak við gamanleikinn Lík í óskilum
sem verður frumsýndur á nýja svið-
inu í apríl. Verkið fjallar um löggu-
teymi sem fær það hlutverk að boða
eldri hjónum váleg tíðindi á að-
fangadagskvöld. Um mikið misskiln-
ingsverk er að ræða sem býður upp á
flóknar fléttur og fjölskrúðugar
sögupersónur. Leikstjórn er í hönd-
um Steinunnar Knútsdóttur.
Þá verður einn af klassíkerum ís-
lenskrar leikhússögu einnig á nýja
sviðinu, Dagur vonar eftir Birgi Sig-
urðsson. Hilmir Snær Guðnason
heldur þar um listræna stjórntauma.
Verk frá síðasta leikári
og samstarfsverkefni
Samtals verður fimm sýningum á
vegum Leikfélags Reykjavíkur fram
haldið frá síðasta leikári. Þetta eru
farsinn Viltu finna milljón, barna-
leikritið Ronja ræningjadóttir,
Manntafl, Alveg brilljant skilnaður
auk Belgísku Kongó sem er að hefja
sitt fjórða leikár.
Að venju eru svo samstarfsverk-
efnin tvö. Í þetta sinnið Fyrirtíða-
spenna eftir Björk Jakobsdóttur og
Eilíf hamingja eftir Andra Snæ
Magnason. Þá verður nemendaleik-
húsið með litla sviðið fram að áramót-
um. Sönglist verður með söng- og
leiklistarskóla fyrir börn og ung-
linga, hláturhátíðin verður á sínum
stað, boðið er upp á leiklestra, Foot-
loose heldur uppi eitís-stemningu í
húsinu o.fl. o.fl.
Leiklist| Fjölbreytnin ræður ríkjum á komandi starfsári Borgarleikhússins
Hitler og
Mozart hvor
á sínu sviðinu
Morgunblaðið/Sverrir
Illur Bergur Þór Ingólfsson fer með hlutverk hins unga Hitlers.
Gamanleikur um Hitler og íslenskur
söngleikur meðal sýninga í haust
Útvarpsþátturinn Piteraq,
sem unninn var af þeim Jóni
Halli Stefánssyni, Rikke Houd
og Sabine Hviid, hefur verið
tilnefndur til verðlauna í
flokki heimildarþátta í út-
varpi á hinni virtu verð-
launahátíð Prix Europa, en
þar er keppt í flokki útvarps,
sjónvarps og netmiðla. Í þætt-
inum taka grænlensk börn
viðtöl við fólk sem lifði af mik-
inn fellibyl sem olli talsverðu tjóni á Grænlandi
árið 1972. Prix Europa fer fram í Berlín og Pots-
dam dagana 14. til 21. október.
Útvarp
Piteraq tilnefndur
til verðlauna
Jón Hallur
Stefánsson
STELPUMÚSÍKIN
hljómar á Café Rósen-
berg kl. 22 í kvöld, er
Hljómsveit Sollu spilar
þar soul, blús og popp
eftir Arethu Franklin,
Janis Joplin, Sheryl
Crow, Evu Cassidy og
fleiri. Solla er Sólveig
Þórðardóttir söngkona
bandsins, en aðrir þar
eru Ragnar Örn Em-
ilsson á gítar, Helgi Egilsson á bassa og Magnús
Tryggvason Eliasen á trommur. Gestaspilari á
trompet verður Jóhannes Þorleiksson.
Tónlist
Stelpumúsík
á Rósenberg
Sólveig Þórðardóttir
HVAÐ gerist á Kúbu eft-
ir Kastró? er yfirskrift
erindis Stefáns Á. Guð-
mundssonar, kennara og
Kúbusérfræðings, á
Kúbudögum í kvöld kl.
21. Spjallið verður óform-
legt, að sögn aðstand-
enda, og verður á annari
hæð Barsins á Laugavegi
22. Á neðri hæð stendur
líka yfir sýning á verkum kúbanskra listamanna.
Annað kvöld verður kúbönsk danskennsla með
mjaðmahnykk og sveiflu á sama stað.
Fyrirlestur
Gerist eitthvað
á Kúbu?
Frá Kúbu
Messósópransöngkonan og Íslands-
vinurinn Katherine Jenkins vinnur
nú að upptökum á fjórðu breiðskífu
sinni, Serenade. Jenkins hefur verið
söluhæsta klassíska söngkonan í
Bretlandi undanfarin ár en síðasta
plata hennar, Living a Dream,
skaust beint í fjórða sætið á breska
vinsældalistanum. Plötur hennar
hafa allar náð toppsæti klassíska vin-
sældalistans í Bretlandi og unnið til
fjölda verðlauna.
Jenkins hefur
vakið mikla at-
hygli fyrir að
hljóðrita þekkt
popplög í klass-
ískum stíl, en síð-
asta plata hennar
innihélt m.a.
Whitney Houston
smellinn I Will
Always Love
You. Höfundur lagsins er Dolly Par-
ton og veitti hún Jenkins leyfi til að
gefa það út á ítölsku en söngkonan er
fyrsti listamaðurinn í heiminum sem
fær að gefa lagið út á öðru máli en
ensku. Jenkins virðist ætla að leika
svipaðan leik að þessu sinni. Hún
hefur nú hljóðritað risasmellinn Eve-
rything I Do (I Do It For You) í
klassískum stíl á ítölsku, en lagið sló
eftirminnilega í gegn í flutningi
Bryan Adams hér á árum áður.
Adams er sérstakur gestur á upptök-
unni, þó ekki sem söngvari, heldur
spilar hann á gítar. Vel virðist hafa
farið á með þeim Jenkins og Adams
því auk þess að spila undir hjá Jenk-
ins ætlar Adams einnig að taka
myndir af henni sem prýða munu
plötuumslag Serenade. Adams er
þekktur ljósmyndari og hefur m.a.
myndað Cindy Crawford og Jennifer
Aniston.
Áætlað er að platan komi út 13.
nóvember nk. og hefur mikið tón-
leikaferðalag um Bretlandseyjar
verið skipulagt í tengslum við útgáf-
una. Eins og áður hefur komið fram
mun Garðar Thór Cortes syngja með
Jenkins á tónleikaferðalaginu en eins
og kunnugt er söng hún með honum
á tónleikum í Laugardalshöll í vor.
Garðar Thór og Katherine Jenkins
Vinnur með Bryan
Adams og syngur með
Garðari Thór
Katherine
Jenkins gefur
út nýja plötu
Bryan Adams
ÞAÐ verður mikið um dansdýrðir í
Borgarleikhúsinu í ár eins og endra-
nær. Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á mánudaginn mun einn
virtasti danshöfundur heims, Pina
Bausch, sækja Ísland heim í sept-
ember ásamt Wuppertal-leikhúsinu
sem er undir hennar stjórn. Mun
hópurinn sýna verkið Agua fjórum
sinnum á jafnmörgum dögum og er
miðasala á viðburðinn þegar hafin.
Þá er starfsár Íslenska dans-
flokksins í þann mund að hefjast. Að
þessu sinni verður boðið upp á fjög-
ur frumsamin verk, tvö eftir íslenska
danshöfunda og tvö eftir þekkta, er-
lenda höfunda. Þau hin íslensku ríða
á vaðið í október. Flest um fátt er
eftir Aðalheiði Halldórsdóttur og
Valgerði Rúnarsdóttur sem báðar
eru dansarar við
dansflokkinn.
Tónlistin við
verkið er frum-
samin af Jó-
hannssonunum
Jóhanni og Valdi-
mari. Tveir kunn-
ir tónlistarmenn
koma svo að
verkinu Við erum
komin eftir Ólöfu Ingólfsdóttur, ann-
ars vegar tónskáldið Áskell Másson
og hins vegar norska tónlistarkonan
Maja Ratkje sem mun flytja tónlist-
ina á sviðinu. Ratkje er þekkt fyrir
frumlega beitingu ótrúlegrar raddar
sinnar. Í febrúar verða sýnd tvö
frumsamin verk eftir rísandi stjörn-
ur í evrópsku danslífi, þá Roberto
Olivan og André Gingras.
Þá má ekki gleyma dansleikhúss-
amkeppni Leikfélags Reykjavíkur
og Íslenska dansflokksins.
Dansinn dunar
Maja Ratkje
Þekkt norsk tón-
listarkona með ÍD
Athugið kennum í nýjum og glæsilegum sal í Skipholti 35
www.balletskoli.is
Kennslustaðir
Skipholti 35,
og íþróttahúsið Breiðabliks, Smáranum
Námskeið fyrir byrjendur ( 3 ára yngst )
og framhaldsnemendur