Morgunblaðið - 30.08.2006, Page 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 19
Njarðvík | Strengjasveit og þjóð-
lagasveit Tónlistarskólans í Kyjov í
Tékklandi halda tónleika í Ytri-
Njarðvíkurkirkju í kvöld, klukkan
20. Tónleikarnir eru liður í fjöl-
skyldu- og menningarhátíðinni
Ljósanótt. Sveitirnar halda síðan
tónleika á Selfossi á morgun og í
Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudag.
Sumarið 2005 fór Strengjasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í
heimsókn til borgarinnar Kyjov í
Tékklandi. Vel var tekið á móti
hópnum og spilaði Strengjasveitin
víða. Nú endurgeldur Tónlistarskól-
inn í Kyjov heimsóknina og til
Reykjanesbæjar eru komnar
strengjasveit og þjóðlagasveit Tón-
listarskólans í Kyjov ásamt fylgd-
arliði, alls rúmlega 30 manns.
Fyrir utan að leikið er á hefð-
bundin strengjahljóðfæri í þjóðlaga-
sveitinni, er leikið á hljóðfærið
Cymbalom sem er einkennandi fyrir
þjóðlagatónlist í Mið-Evrópu. Þjóð-
lagasveitin kemur fram í þjóðbún-
ingum Kyjov-héraðsins, sem eru lit-
ríkir og fallegir.
Tékknesk
þjóðlagasveit
á tónleikum
SUÐURNES
Keflavík | Gengið verður eftir
gömlu þjóðleiðinni frá Keflavík til
Hvalsness, Hvalsnesleið, í fimmtu
og síðustu þjóðleiðagöngunni á
Suðurnesjum í haust.
Gengið verður næstkomandi
sunnudag, klukkan 11, frá Íþrótta-
akademíunni. Ferðin er í boði
Reykjanesbæjar, í samvinnu við
leiðsögumenn Reykjaness, FERLIR
og Ferðamálasamtök Suðurnesja.
Gatan er vel greypt í móann þar
sem hún liðast um Miðnesheiðina.
Fallegar vörður eru við hana, innan
varnarsvæðis, sem ekki hafa verið
aðgengilegar almenningi. Gatan er
tiltölulega greiðfær, um 7 til 8 km
löng.
Hvalsnesleið gengin
Vestmannaeyjar | Liðlega tvö þúsund einstak-
lingar skrifuðu undir áskorun til ráðherra og
ríkisstjórnar um tafarlausar úrbætur í sam-
göngumálum Vestmannaeyja. Sigurmundur G.
Einarsson, talsmaður eyjafrelsi.net, afhenti
Geir H. Haarde forsætisráðherra áskorunina í
fyrradag.
Ályktunin er til komin vegna þess sem Sig-
urmundur nefnir neyðarástand í samgöngu-
málum Vestmannaeyja. Annars vegar nefnir
hann afturför í flugsamgöngum, þar sem áður
var flogið þrisvar í viku á 50 sæta flugvélum en
nú á litlum vélum tvisvar til þrisvar á dag og oft
falli ferðir niður vegna bilana. Þá sé flugið orð-
ið allt of dýrt, það kosti orðið meira að fljúga til
Reykjavíkur en til London. Nýjustu fréttirnar
eru svo þær að ekkert flug verði til Vest-
mannaeyja á laugardögum í vetur. Hins vegar
nefnir hann að Herjólfur sé orðinn fullnýttur,
svo panta þurfi pláss með margra vikna fyr-
irvara á sumrin. „Herjólfur er okkar þjóðvegur
og við viljum geta keyrt um borð hvenær sem
er,“ segir hann.
Sigurmundur segir að hópurinn vilji að bætt
verði úr flugsamgöngunum til frambúðar og að
Herjólfur verði seldur og leigt nýtt skip til
bráðabirgða, á meðan verið sé að vinna að
framtíðarlausn á samgöngumálum Eyjamanna
með göngum eða ferju upp á Bakkafjöru. Telur
Sigurmundur að það geti rúmast innan núver-
andi fjárhagsramma.
Geta ekki beðið
Undirskriftum var safnað á vefsíðunni eyja-
frelsi.net. Þegar listarnir voru afhentir höfðu
2084 skrifað undir. Sigurmundur segir að um
helmingur sé búsettur í Vestmannaeyjum og
hinn helmingurinn búi annars staðar. Hann
tekur fram að núverandi bæjarstjórn Vest-
mannaeyja sé að vinna á sömu nótum, svo mik-
ill þungi sé á bak við þessa skoðun. „Búast
Eyjamenn og þeir einstaklingar er rituðu und-
ir ályktunina við skjótum viðbrögðum ráða-
manna,“ segir í fréttatilkynningu frá hópnum
og Sigurmundur tekur fram að Eyjamenn geti
ekki beðið eftir framtíðarlausn með hálflokað-
ar samgöngur.
Fram kemur að vinna er hafin við að finna
nýtt skip, í samvinnu við bæjarstjóra. Þegar
hafa verið sendar út fyrirspurnir um skip sem
henta þykja til siglinga milli Þorlákshafnar og
Vestmannaeyja og er stefna þeirra sem að
þessari vinnu koma, að nýtt skip komi í stað
núverandi Herjólfs fyrir 1. apríl 2007.
Krefjast tafarlausra útbóta í samgöngumálum
Eyjamenn leita
að nýjum Herjólfi
Áskorun Sigurmundur G. Einarsson, talsmaður eyjafrelsi.net, afhenti Geir H. Haarde for-
sætisráðherra áskorun fjölda fólks um tafarlausar úrbætur í samgöngumálum Eyja.
Búðardalur | Ekki verður slátrað í nýlega end-
urbyggðu sláturhúsi Dalalambs í Búðardal í
haust. Dalabyggð og Norðlenska hafa slitið
samvinnu sinni um rekstur hússins og Dala-
byggð samið við Kaupfélag Skagfirðinga um
leigu á sláturhúsinu undir kjötvinnslu.
Fyrir forgöngu sveitarstjórnar Dalabyggðar
var sláturhús Dalalambs í Búðardal endurnýj-
að mikið á síðasta ári og hafin slátrun þar að
nýju eftir nokkurt hlé. Samið var við Norð-
lenska um afurðasölu. Í byrjun þessa árs tók
Norðlenska að sér að reka sláturhúsið með
samningum til níu ára. Áætlað er að kostnaður
við endurbæturnar nemi 60 til 70 milljónum kr.
Dalabyggð á liðlega 60% hlutafjár í félaginu.
Stjórnendur Norðlenska komu á fund for-
svarsmanna Dalabyggðar í byrjun ágúst og
lýstu yfir áhuga á að framselja samninginn til
Kaupfélags Skagfirðinga. Eftir mikil fundar-
höld ákvað sveitarstjórn Dalabyggðar að taka
tilboði KS.
Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri
Norðlenska, segir að sláturhúsið í Búðardal sé
vel staðsett gagnvart stórum sauðfjárræktar-
héruðum og hafi fyrirtækið bundið vonir við að
hægt væri að byggja þar upp öfluga starfsemi.
Það hefði frá upphafi verið ljóst að ef bændur á
þessu svæði stæðu ekki saman um reksturinn
væri hann andvana fæddur. Telur hann nauð-
synlegt að slátra að minnsta kosti 20 þúsund
fjár og helst 30 þúsund til þess að reksturinn
gangi upp. Ekki hafi fengist nægjanlega góðar
undirtekir innleggjenda svo útlit hafi verið fyr-
ir að slátrun yrði svipuð og í fyrrahaust, eða um
15 þúsund fjár. Kaupfélag Skagfirðinga hafi
boðist til að kaupa upp samning Norðlenska við
Dalabyggð og hafi forsvarsmönnum fyrirtæk-
isins þótt rétt og sanngjarnt að gera sveitar-
stjórninni grein fyrir málinu. Í raun leyft henni
að velja hvort hafin yrði slátrun á þeim fjölda
sem fyrir lægi eða framselja samninginn til
KS. Sveitarstjórninni hafi litist betur á sam-
starfið við KS og því hafi það orðið niðurstaðan.
Hagsmunum Dalabyggðar betur borgið
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri Dala-
byggðar, segir að það hafi verið álit sveitar-
stjórnar að hagsmunum Dalabyggðar væri
betur borgið með samningum við KS en áfram-
haldandi samvinnu við Norðlenska enda hafi
gildandi samningur verið sveitarfélaginu óhag-
stæður. Nefnir hann að Norðlenska hafi átt að
greiða ákveðið gjald af hverju slátruðu lambi
til Dalalambs sem leigu fyrir afnot af slátur-
húsinu. Til þess að standa undir rekstri hússins
og afborgunum hefði þurft að slátra 20 að
minnsta kosti þúsund fjár á ári. Ekki hafi verið
farið að undirbúa slátrun í húsinu og því hafi
núverandi sveitarstjórn ekki treyst á að það
næðist að slátra þeim fjölda sem nauðsynlegur
væri til hallalauss rekstrar fyrirtækisins.
Samið var við KS um fast ákveðið leigugjald
fyrir húsið og að fyrirtækið kæmi þar upp kjöt-
vinnslu strax með fjórum til fimm starfsmönn-
um. Gunnólfur segir að með því sé tryggt að
Dalabyggð þurfi ekki að greiða meira með
þessum rekstri. Hann segir ljóst að ekki verði
slátrað í Búðardal í haust, hvað sem síðar verði
og vonandi verði hægt að byggja upp frekari
starfsemi í húsinu í samvinnu við KS.
Sigmundur Ófeigsson neitar því að Norð-
lenska hafi ekki undirbúið slátrun í Búðardal í
haust. Segir að heimamenn hafi átt eftir að
framkvæma ákveðnar lagfæringar til að leyfi
fengist fyrir slátruninni og samkvæmt samn-
ingum hafi Norðlenska ekki átt að fá húsið af-
hent fyrr en 1. september. Í yfirlýsingu sem
sveitarstjórn Dalabyggðar sendi frá sér í gær
kemur fram að unnið hafi verið að lagfæring-
um á sláturhúsinu í sumar og fulltrúi landbún-
aðarráðuneytis gert á því úttekt. Ekkert hafi
bent til annars en framleiðsluleyfi hefði feng-
ist.
Fylgjandi áframhaldandi rekstri
Samningurinn við KS var samþykktur í
sveitarstjórn Dalabyggðar á fundi í fyrrakvöld
með sex atkvæðum gegn einu. Einn fulltrúi
studdi hann ekki, Ingveldur Guðmundsdóttir
annar fulltrúi H-lista. Hún segist hafa verið
fylgjandi áframhaldandi samstarfi við Norð-
lenska þannig að slátrun legðist ekki af í Búð-
ardal. Ingveldur er sauðfjárbóndi og segist
hlynnt samkeppni í slátrun og telur að rekstur
sláturhúss í Búðardal hefði verið liður í því.
Hún bætir því við að miklir fjármunir hafi verið
lagðir í endurbyggingu sláturhússins og synd
að þessi fjárfesting skuli ekki vera nýtt. Telur
hún að ef Norðlenska og Dalamenn hefðu stað-
ið saman að málinu hefði nauðsynlegur fjöldi
sláturfjár fengist, kannski ekki í haust en á
næstu árum.
Sveitarstjórn mun kynna málið á almennum
borgarafundi sem haldinn verður í Búðardal
annað kvöld.
Dalabyggð semur við KS um vinnslu í sláturhúsinu
Ekki slátrað í
Búðardal í haust
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is