Morgunblaðið - 30.08.2006, Síða 25
HVEITIGRAS er umtalaðasta hollustufæðið
hér á landi um þessar mundir og líklega ekki að
ástæðulausu því það er sagt mjög hollt. En
margir hafa velt fyrir sér hvaða gras þetta er og
hvaða gagn það gerir manni.
„Hveitigras er grænmeti,“ segir Margrét
Helgadóttir hjá Gróðrarstöðinni Lambhaga en
þar er ræktað allt það hveitigras sem er í sölu
hér á landi. „Þetta er stilkurinn á sömu plöntu
og hveitikorn kemur af. Svona lítið sprottið er
þetta grænmeti en þegar það verður hærra
myndast kornbelgir og það eru þeir sem verða
að hveiti. Hveitigras er talið vera korngras
ásamt Barley grasi og alfa alfa.
Eitt af því góða við hveitigras er að það inni-
heldur ekki glútein. Glútein er efni sem margir
hafa óþol fyrir og er að finna í hveitikjarnanum
en ekki grasinu sjálfu.“
Hveitigras samanstendur af 70% blaðgrænu,
12% vatni, 12% próteini, 2% fitu, 1,8% steinefni
og 2,2% af óunnum trefjum. Einnig inniheldur
grasið vott af yfirgripsmiklum steinefnum, vít-
amínum, amínó-sýrum (alls átta talsins) og ens-
ímum.
Blaðgræna gerir öllum gott
„Þetta er talin vera fullkomin fæða því hún
inniheldur mestu blaðgrænuna af öllu öðru og
blaðgræna gerir manni mjög gott. Hún eykur
súrefnið í blóðinu hjá okkur, og ef súrefnið í
blóðinu er aukið þá ráðast t.d. krabbameins-
frumur síður á líkamann,“ segir Margét og bæt-
ir við að hveitigrasið sé ekki ný heilsujurt þótt
hún sé ný hér á landi meðal flestra. „Fyrstu
bækurnar um hveitigras voru skrifaðar um
1900. Lambhagi var beðinn um að rækta grasið
fyrir um fjórum árum fyrir fólk sem hafði próf-
að það erlendis, þetta var aðallega fólk með
gigt, krabbamein og húðsjúkdóma. Í dag rækt-
um við um hundrað bakka á viku en ræktunin
hefur aukist í hverjum mánuði, og hún eykst
enn,“ segir Margrét. „Hveitigras hefur verið
þekkt lengi en nú er mikil vakning í því, kannski
út af því að Maður lifandi og Heilsuhúsið fóru að
bjóða upp á hveitigrasskot og fólk er forvitið um
þetta. Hveitigras er mjög vinsælt hjá þeim sem
eru á hráfæði og þeir einstaklingar rækta það
flestir sjálfir.“ Margrét tekur skýrt fram að
hveitigras sé ekki sérstök megrunarvara eins
og sumir halda. „Það er engin vara sem er
megrunarvara heldur grennist fólk ef það borð-
ar rétt, þetta er vara sem hjálpar til við það.“
Aðspurð hvort fólk finni mun á sér við að taka
hveitigrasskot inn reglulega segir Margrét að
það sé ekki spurning. „Flestir finna mun um leið
og þeir byrja að taka þetta inn, verkir minnka
og lífsgleði eykst. Miðað er við að fólk taki eitt
skot á dag, það má taka fleiri yfir daginn en það
má ekki taka inn mikið magn í hvert skipti,“
segir Margrét sem tekur sjálf inn hveiti-
grasskot á hverjum degi ásamt manni sínum og
börnum. „Við förum með einn bakka á tveimur
til þremur dögum en fyrir börnin blanda ég
skotið með eplum eða appelsínum til að það sé
lystugra.“
Áskrift að hveitigrasi
Hjá Lambhaga er hveitigrasið selt í heilsu-
búðir og beint til fólks. „Það eru margir í áskrift
hjá okkur. Fólk kemur fyrst og kaupir einn
bakka og safapressu og svo kemur það einu
sinni í viku og endurnýjar bakkann. Það eru sjö
skammtar fyrir einn mann í bakkanum sem
kostar 800 kr. hjá okkur.“ Í Lambhaga eru líka
seldar þartilgerðar safapressur, handsnúnar
eða rafknúnar, fyrir hveitigrasið en það þarf að
pressa heilmikið af grasi til að fá eitt staup. „Að
pressa þetta í sérhönnuðum safapressum er
eina leiðin til að ná næringunni úr hveitigrasinu,
það er hægt að tyggja grasið og skyrpa því út úr
sér en það meltir það enginn nema jórturdýr.“
Margrét segir að hægt sé að rækta hveiti-
grasið heima en til þess þurfi bakka, góða mold
og hveitikorn sem hægt er að kaupa í öllum
heilsubúðum. „Þú leggur kornin í bleyti yfir
nótt, setur þau síðan í bakkann og á góðan stað,
en ekki þar sem er of heitt. Við réttar aðstæður
verður hveitigrasið orðið nógu langt á um tíu til
tólf dögum.“
Pressa Hveitigrasið er klippt við rótina og
pressað í þartilgerðum safapressum.
Morgunblaðið/Golli
Lambhagi Margrét Helgadóttir segir að talið
sé að hveitigras sé fullkomin fæða.
Hveitigras
er grænmeti
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 25