Morgunblaðið - 30.08.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 41
Listheimurinn skiptist í tvær fylkingar þeg-ar kemur að umræðunni um klæðaburðgesta á menningarviðburðum.
Sumir vilja leggja á það alla áherslu að menn-
ingarstofnanir séu sem alþýðlegastar, lausar við
uppskrúfaða andakt og snobb: mestu skipti hvað
gerist á sviðinu en ekki hverju fólk klæðist. Aðrir
fagna því að fá tækifæri til að gera sér sannkall-
aðan dagamun, fara í sitt fínasta púss og þykir
hverskyns ritúöl og reglur aðeins ljá menning-
arlega kvöldstund meiri glæsibrag.
Sjálfur myndi ég vilja tilheyra seinni hópnumen verð samt að játa að ég hef nokkrum sinn-
um verið ansi skrautlegur til fara á menningar-
viðburðum sem áttu betra skilið.
Ætli hápunkti frjálslyndisins hafi ekki verið
náð þar sem ég sat á fremsta bekk í Mariinsky-
óperuhúsinu í Pétursborg klæddur í íslenska
lopapeysu og rússnesk loðstígvél. (Voru áhorf-
endur reyndar flestir kappklæddir það skiptið,
enda var þennan janúardag slegið nýtt kuldamet
í borginni.)
Ég hef lengi ætlað að kaupa mér smóking til að
geta verið virkilega fínn á spennandi menningar-
viðburðum, en guggnað á því hingað til því ég
myndi, merkilegt nokk, skera mig meira úr hópn-
um á íslenskum menningarviðburði í smóking en í
lopapeysu og loðstígvélum.
Já, ég, eins og aðrir Íslendingar, mætti klæðamig aðeins meira spari þegar farið er á
menningarviðburði.
Meirihluti gesta á íslenskum óperu- og leik-
hússýningum er, blessunarlega, nokkuð vel til
fara: karlarnir margir í jakkafötum og með bindi
og konurnar í drögtum.
Á sinfóníutónleikum er klæðaburðurinn iðu-
lega frjálslegri: gallabuxur og stuttermabolir
sjást í auknum mæli og bindin eru látin fjúka.
Sumir láta jafnvel vera að fara úr úlpunni áður en
þeir koma sér fyrir í sætinu.
Fólk er svosem ekki illa til fara, en klæðir sig
ekki mikið fínna en það myndi fyrir venjulegan
vinnudag. Enginn karl sést í smóking og engin
kona í síðkjól – nema kannski söngvarinn á svið-
inu.
Það er ekki vegna íhaldsseminnar einnar að égmyndi vilja sjá landsmenn (mig meðtalinn)
fínni í tauinu á menningarviðburðum.
Það er nefnilega virkilega gaman að vera í sínu
allra fínasta pússi og leitun að betra tækifæri til
að nota sparifötin en á menningarlegri uppá-
komu.
Lopapeysan er ágæt en karlmenn eru aldrei
myndarlegri en þegar þeir eru í smóking eða
kjólfötum og konur aldrei glæsilegri en í fal-
legum síðkjól. Það er synd að fólki skuli ekki gef-
ast fleiri tækifæri hérlendis til að njóta þess að
vera virkilega geislandi og grand – slíkt er alræði
lopapeysunnar.
Ég man til dæmis fiðluballið í MR: piltarnir
leigðu sér smóking, sumir jafnvel kjólföt, og
stúlkurnar fengu lánaða eða leigða ekta ballkjóla.
Skarinn hringsnerist í völsum og rælum fram á
nótt. Allir skemmtu sér konunglega þótt enginn
hefði vín um hönd og þótt dansinn væri ekkert
sérstaklega fimur eða leikur strengjasveit-
arinnar sérstaklega fallegur. Það var hátíðlegt
tilefni og galdrar augnabliksins höfðu byrjað að
magnast innra með hverjum gesti um leið og
hann leit í spegilinn heima og hneppti síðasta
hnappinum á smókingnum eða hnýtti síðustu
slaufuna á kjólnum.
Ég ætlast ekki til þess að landsmenn fari aðstreyma á Tíbrártónleika eða niður í Þjóð-
leikhús í kjólfötum og síðkjólum, en ég held að
landinn fari á mis við yndislegan hátíðleika og
stemningu ef ekki fer að skapast fyrir því hefð
hér á landi að fólk mæti, undantekningalaust, á
vissa menningarviðburði í sínu allra fínasta pússi.
Fötin skapa stemninguna
’Ég myndi, merkilegt nokk, skeramig meira úr hópnum á íslenskum
menningarviðburði í smóking en í
lopapeysu og loðstígvélum.‘
Fred Astaire hefði ekki verið svipur hjá sjón í
gallabuxum og stuttermabol.
AF LISTUM
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Væntanleg plata úr smiðju Sir Elt-on John verður að öllum lík-
indum hip-hop-plata þar sem hann
fær til liðs við sig kappa eins og Dr.
Dre, Snoop Dogg og
Kanye West. Þetta
kemur fram í viðtali
við söngvarann við
tímaritið Rolling
Stone sem birtist á
heimasíðu blaðsins.
„Útkoman gæti orðið
hörmung og hún gæti líka verið frá-
bær. Maður veit það ekki fyrr en
maður reynir,“ segir Elton John með-
al annars í viðtalinu. Þar kemur einn-
ig fram að enn hafi hann ekki nálgast
Dr. Dre út af verkefninu en hann vill
reyna að ná svipuðum hljómi og í lag-
inu „No diggity“ sem sveitin
Blackstreet gerði frægt um árið.
Fólk folk@mbl.is
Bart Cameron sem ritstýrt hefurtímaritinu The Reykjavík
Grapevine hefur látið af störfum
sem ritstjóri blaðsins. Hann er á leið
til Seattle, þar sem konan hans er að
fara í nám. Bart mun
þó sjá um daglega út-
gáfu blaðsins, á með-
an Iceland Airwaves
hátíðin stendur yfir
n.k. október.
Sveinn Birkir
Björnsson tekur við
starfi hans, en hann hefur starfað
hjá Reykjavík Grapevine um nokk-
urt skeið. Sveinn segir að „það verði
ekki gerðar neinar stórar breyt-
ingar“ á blaðinu. Þó muni alltaf eitt-
hvað breytast með nýju fólki. Að
sögn Sveins er jafnframt nýr penni
að bætast við hjá The Reykjavík
Grapevine, Virginia Zech sem kem-
ur frá The Onion.
Skúlagata 17 101 Reykjvavík sími : 566 88 00 e-mail : vidskiptahusid@vidskiptahusid.is www.vidskiptahusid.is
Við kynnum fasteignir á Spáni
Kynnum nýjar eignir frá TM sem er markaðsleiðandi fyrirtæki í byggingu og sölu fasteigna við
Miðjarðarhafsströnd Spánar.
Sölustjóri TM verður á staðnum.
Uppgötvaðu hversu auðveldlega draumur þinn um fasteign við Miðjarðarhafið getur orðið að veruleika.
Verðum á eftirtöldum stöðum:
Fimmtud. 31/08
Föstud. 01/09
Laugard. 02/09
Sunnud. 03/09
Mánud. 04/09
Þriðjud. 05/09
Vestmannaeyjar, Hótel Þórshamar frá kl. 18:00 til 22:00.
Ísafjörður, Hótel Ísafjörður frá kl. 18:00 til 22:00.
Reykjavík,Viðskiptahúsið Skúlagötu 17 frá kl. 11:00 til 17:00.
Reykjavík,Viðskiptahúsið Skúlagötu 17 frá kl. 11:00 til 17:00.
Reykjavík,Viðskiptahúsið Skúlagötu 17 frá kl. 09:00 til 17:00.
Akureyri, Hótel KEA frá kl. 18:00 til 22:00.